Morgunblaðið - 05.01.2001, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.01.2001, Blaðsíða 1
Gyllti hnötturinn afhentur í janúar Þá riðu hetjur um héruð VESTRINN er hin sérameríska kvikmyndagrein og er jafngamall kvik- myndasögunni sjálfri. Rætur hans liggja djúpt í þjóðarvitund Bandaríkjanna en efniviðurinn er sóttur í þann þjóðsagnararf sem hin unga þjóð var að skapa sér. Hugmyndin um kúrekann, sem er engum háður og getur aðeins treyst á sjálfan sig, sína byssu og sinn hest, varð fljótt goðsagnarkennd, skrif- ar Heiða Jóhannsdóttir í grein sinni um vestrann fyrr og nú í Bíóblaðinu í dag en í Sjónarhorni lýsir Arnaldur Indriðason yfir söknuði eftir bandarísku vestrunum. Frumbyggjarnir og landnemarnir 2/5 Væntanlegt Nýtt í bíó FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 Á FÖSTUDÖGUM Fjölskyldu- maðurinn  Bíóhöllin, Kringlubíó, Nýja bíó, Akureyri, Nýja bíó, Keflavík, og Regnboginn frumsýna í dag róm- antísku gamanmyndina Fjölskyldu- manninn eða The Family Man með Nicholas Cage og Téa Leoni í aðal- hlutverkum. Leikstjóri er Brett Ratn- er en myndin segir frá manni sem fær tækifæri til þess að sjá hvernig líf hans hefði orðið hefði hann tekið aðra ákvörðun þegar hann var yngri. UNG leikkona af vest- ur-íslenskum ættum fer með áberandi hlut- verk í tveimur banda- rískum bíómyndum sem sýndar eru um þessar mundir hér- lendis, Unbreakable í SAM-bíóunum og The General’s Daughter, sem sýnd verður á Stöð 2 annað kvöld. Hún heitir Leslie Stef- anson og er fædd í norrænum byggðum Dakota, bænum Fargo, sem kunn mynd Coen-bræðra heitir eftir. Leslie Stefanson, fullu nafni Leslie Ann Stefanson, er 29 ára að aldri. Föðurforeldrar hennar settust að upp úr aldamótum 1900 í smábænum Moorhead í Minnesota, þar sem hún ólst upp, en afi hennar hét Skúli Stefánsson. Hún útskrifaðist frá Barnard College við Columbia- háskóla í New York með ensku sem sérgrein. Hún er nú búsett í Hollywood og hefur á nokkrum árum unnið sig úr fyrirsætustörfum til kvik- myndaleiks. Leslie Stefanson hefur alls leikið í 14 kvikmynd- um á sex árum, fyrst í stað smá- hlutverk í myndum eins og The Mirror Has Two Faces, Flubber og As Good as it Gets uns hún vakti athygli sem titilpersónan í spennumyndinni The General’s Daughter árið 1999 þar sem hún lék á móti John Travolta og Jam- es Woods. Á nýliðnu ári lék hún í fjórum bíómyndum, þ. á m. Beautiful með Minnie Driver og Kathleen Turner undir stjórn Sally Field, Unbreak- able, nýjustu mynd M. Night Shyamalan þar sem hún leikur á móti Bruce Willis í upphafs- atriðinu, örlagaþrung- inni lestarferð, og nú síðast Desert Saints á móti Kiefer Sutherland, en sú mynd hefur enn ekki verið frumsýnd. Einnig lék hún á árinu Joan Bennett Kennedy í sjónvarpsþáttaröð um Kennedy- fjölskylduna, Jackie, Ethel, Joan: The Women of Camelot. Þess má geta að á Netinu má finna vefsíður tileinkaðar Leslie Stefanson, m.a. The World of Leslie Stefanson, sem er á slóð- inni www.lstefanson.net/. Leslie Stefanson í The General’s Daughter og Unbreakable Í Hollywood: Leslie Stefanson og leikarinn Ryan O’Neal á frumsýningu. REUTERS Unbreakable: Leslie Stefanson í hlutverki sínu. Dreka- banar  Þann 9. mars verður ævintýra- myndin Drekabanar eða Dungeons & Dragons frumsýnd á Íslandi. Leik- stjóri hennar er Courtney Solomon en með helstu hlutverk fara Justin Whalin, Zoe McLellan, Jeremy Irons, Bruce Payne og Marlon Wa- yans. Myndin er byggð á hinu vin- sæla spili með sama nafni. Vestur-íslensk leikkona á uppleið í Hollywood Þann 9. mars verður nýjasta mynd Sean Connerys frumsýnd hér á landi en hún heitir Að finna Forrester eða Finding Forrester. Leikstjóri er Gus Van Sant (Good Will Hunting) en myndin segir frá rithöfundi sem hefur einangrast. Með önnur hlutverk fara F. Murray Abrahams og Anna Paq- uin en Valdís Óskarsdóttir mun vera klippari myndarinnar. Að finna Forrester „Ég hef alls ekki í hyggju að reyna að upplýsa Geirfinns- málið, ég veit ekkert um það frekar en aðrir. Það sem freistar mín fyrst og fremst er að lýsa andrúmsloftinu í þjóðfélaginu. Þetta tiltekna sakamál situr svo fast í fólki af því það var eins og íslenska þjóðfélagið missti sakleysi sitt þegar þetta gerðist árið 1974.“ Þetta segir Viðar Vík- ingsson, höfundur Leirburð- ar, nýrrar íslenskrar bíó- myndar sem byggist á Geirfinnsmálinu og er nú í vinnslu. Hann bætir við: „Menn höfðu fram að því talið sér trú um að við værum óhult fyrir þeim óhæfuverk- um sem eiga sér stað úti í hin- um stóra heimi.“ Í helstu hlutverkum eru Atli Rafn Sigurðsson, Álfrún Örnólfsdóttir, Þórhallur Sverrisson, Erlingur Gíslason o.fl. Páll Kristinn Pálsson ræðir við Viðar Víkingsson um verkefnið í Bíóblaðinu í dag./2 Óhult fyrir óhæfuverkum? Yfirheyrsla í Leirburði: Gunnlaugur Helgason, Sigurjón Kjartansson, sem leika fangaverði, og leirmynd Sigmundar Ernis Rúnarssonar. Leirburður byggist á Geirfinnsmálinu GOLDEN Globe-verðlaunin svokölluðu vekja sérstaka athygli á Íslandi í ár vegna þess að tveir Íslendingar eru tilnefndir til þeirra, Björk Guðmundsdóttir fyrir besta leik og lagasmíð í kvik- myndinni Dancer in the Dark og skáldið Sjón fyrir lagatexta. Verðlaunaafhendingin fer fram síðla í janúar en þeir sem hreppa verðlaunin þykja jafnan eiga góða möguleika til sigurs á óskars- verðlaunaafhendingunni seinni hluta marsmánaðar. Golden Globe eru verðlaun samtaka erlendra fjölmiðlamanna í Hollywood og Sæbjörn Valdimarsson fjallar hér um sögu gyllta hnattarins og metur tilnefningarnar í ár. Helsti keppi- nautur Bjarkar í hennar flokki er, að mati Sæbjörns, engin önnur en Julia Roberts. Björk eða Julia? 3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.