Morgunblaðið - 05.01.2001, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 05.01.2001, Blaðsíða 8
H INSTA kvikmynda- hlutverk Jason Robards var dauð- vona krabbameins- sjúklingur, Earl Partridge, forríkur framleiðandi sjón- varpsþátta í prýðisgóðri mynd Pauls Thomas Andersons, Magnolia. Rob- ards lék þennan sakbitna, útlifaða gamla mann af dæmigerðu innsæi og innlifun. Þegar hann lék hlutverkið háði hann sjálfur baráttu við krabba- meinið og lét í minni pokann á annan í jólum. Þunglyndi og ofdrykkja Rispuð og hrjúf rödd hans hentaði vel túlkun ískaldra, harðneskjulegra, samviskulausra og undirförulla manna, gjarnan valdamanna af ein- hverju tagi, enda lék hann oft slík hlutverk. Óskarsverðlaun hlaut hann hins vegar fyrir leik sinn sem hörku- tólið Ben Bradlee, ritstjóri Washing- ton Post í myndinni All The Presi- dent’s Men, sem fjallaði um Watergatemálið. Það var 1976 og ári síðar hreppti hann aftur Óskar og þá fyrir túlkun rithöfundarins Dashiells Hammets í Julia, sem byggð er á minningum skáldkonunnar Lillian Hellman. Á leiksviðinu sýndi hann sérstök tilþrif í túlkun á persónum Eugene O’Neills í verkum eins og The Iceman Cometh og Long Day’s Journey Into Night. Þær persónur börðust margar hverjar við þung- lyndi og ofdrykkju, rétt eins og Rob- ards gerði sjálfur á tímabilum. Lífið reyndist honum ekki alltaf jafnhlið- hollt og listin. Úr stríði á svið Jason Robards jr eða yngri var sonur Jason Robards (1892–1963), sem var í hópi fremstu leikhúsleik- ara Bandaríkjanna á sinni tíð, auk þess sem hann lék í yfir hundrað bíó- myndum, einkum á þögla tímabilinu. Robards yngri hætti að kalla sig yngri eftir að faðir hans lést. Hann gegndi herþjónustu í sjóher Bandaríkjanna í sjö ár á tímum heimsstyrjaldarinnar síðari, þar sem hann lifði af árás Japana á flotahöfn- ina í Pearl Harbor. Fyrir herþjón- ustu sína var hann sæmdur Flota- krossinum, næstæðstu orðu flotans, en þegar henni lauk fetaði hann í fót- spor föður síns og hélt til New York. Þar stundaði hann nám við American Academy of Dramatic Arts og fór síðan að þreifa fyrir sér í leikhús- unum. Það gekk seint og illa og Rob- ards sá sér farborða með því að aka leigubíl og kenna. Honum áskotnuð- ust minniháttar hlutverk á sviði, í út- varpssápum og beinum sjónvarpsút- sendingum frá leiksýningum. Svo kom hann, sá og sigraði árið 1956 þegar hann lék Hickey í uppfærslu á The Iceman Cometh eftir O’Neill. Árið eftir fylgdi hann sigrinum eftir með leik í Long Day’s Journey Into Night og hreppti verðlaun gagnrýn- enda í New York fyrir. Allar götur síðan hefur Jason Robards verið au- fúsugestur í leikhúsunum á Broad- way. Kvikmyndaferillinn hófst árið 1959 í melódrama Anatoles Litvak, The Journey og Robards starfaði síðan jöfnum höndum við leikhús, kvikmyndir og sjónvarp. Í kvik- myndunum hefur hann leikið fjöl- breytileg hlutverk, en sjaldan þó að- alhlutverk; hann hefur gjarnan stolið senum í matarmiklum og flóknum aukahlutverkum. Það fyrsta sem vakti verulega at- hygli var Dick Diver í Tender Is the Night, eftir sögu F. Scotts Fitzger- ald árið 1962 en sama ár hitti hann einnig í mark sem Jamie Tyrone í kvikmyndun Long Day’s Journey Into Night. Tveir Óskarar Hann brilleraði í aðalhlutverki A Thousand Clowns árið 1965, þar sem hann lék uppreisnargjarnan galla- grip, var eftirminnilegur glæpafor- ingi sem Al Capone í The St. Valent- ine’s Day Massacre og byssubófi sem Doc Holliday í Hour Of the Gun, báðar 1967, revíuleikari í The Night They Raided Minsky’s 1968, aftur byssubófi í spaghettívestranum Once Upon a Time In the West 1968, hershöfðingi í Tora! Tora! Tora! 1970 og Brútus í Júlíusi Sesar 1971. Rob- ards lék í tveimur myndum fyrir leikstjórann Sam Peckinpah, kynd- ugt titilhlutverkið í The Ballad Of Cable Hogue og landstjórann í Nýju-Mexíkó í Pat Garrett and Billy the Kid. Mestri velgengni náði Robards á áttunda áratugnum þegar hann vann Óskara tvö ár í röð, sem fyrr segir, en var einnig tilnefndur til Óskars- verðlauna árið 1980 fyrir túlkun sína á sérvitra auðmanninum Howard Hughes í Melvin and Howard. Eft- irminnilegast af fjölmörgum hlut- verkum á níunda áratugnum var kostulegur faðir Steves Martin í gamanmyndinni Parenthood (1989) og á þeim tíunda var hann m.a. kaldranalegur lögmaður í Phila- delphia (1993), þrjóskur og spilltur fjölskyldufaðir í A Thousand Acres (1997) og, ekki síst, Earl Partridge í Magnolia (1999). Hann lék síðast í sjónvarpsmyndinni Going Home (2000). Jason Robards var fjórkvæntur, fyrst leikkonunni Eleanor Pitman 1948–1958 sem hann eignaðist með börn, m.a. leikarann og alnafnann Jason Robards III, Rachel Taylor 1959–1961, leikkonunni Lauren Bac- all 1961–1969 sem hann eignaðist með leikarann Sam Robards (Temp- est, Ballad Of Little Jo, American Beauty), og loks Lois O’Connor sem hann var kvæntur frá 1970 til ævi- loka og eignaðist með tvö börn. Á banabeði sínu sagði Earl Par- tridge í Magnolia: „Ég skal segja þér hvers ég iðrast mest: Ég lét ástina ganga mér úr greipum.“ Þótt Jason Robards ætti sitthvað sameiginlegt með persónunni sem hann lék svo vel gildir það vonandi ekki um þessi orð. The Ballad Of Cable Hogue: Draumóramaður í villta vestrinu. Magnolia: Julianne Moore og Jason Robards sem Earl Partridge. Hann var sonur frægs leikara en leið hans á tindinn var engu að síður löng. Þegar Jason Robards jr. lést í síðustu viku, 78 ára að aldri, blandaðist þó engum hugur um að hann var einn fremsti leikari sinnar kynslóðar, með yfir hundrað hlutverk að baki, jafnt á sviði, skjá og tjaldi. Þekktastur var hann fyrir að túlka myrkar manngerðir, enda barðist hann löngum við myrkur í eigin lífi, skrifar Árni Þórarinsson. Undir hrjúfu yfirborði Jason RobardsÍ minningu 8 C FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ BÍÓBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.