Morgunblaðið - 05.01.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.01.2001, Blaðsíða 4
4 C FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ BÍÓBLAÐIÐ PARÍS Rauða myllan snýst aftur Frakkar bíða spenntir eftir ný- stárlegri og spennandi endur- gerð á Rauðu myllunni, sem von er á fljótlega á næsta ári. Eins og flestir kvikmyndaunn- endur þekkja er sögusvið myndarinnar Montmartre- hverfið í París þar sem Rauða myllan stendur enn og er mik- ið sótt af ferðafólki. Kvikmyndin gerist ár-ið 1899 þegarvagga menningarstendur í París; Eiff- elturninn er nýbyggður og í kaffihúsum Montmartre- hverfisins sitja rithöfundar og drekka absint til vitundar- víkkunar. Krökkt er af söng- leikjum, kabarett- um og kan- kan- dans- meyjum. Rauða myllan hefur ótal sinnum ver- ið sviðsett á leiksviði og oft í kvikmyndaformi, enda saga sem Parísarbúar unna af al- hug. Hún fjallar um fátækt skáld sem heimsækir Mont- martre-hverfið. Þar upplykst fyrir honum heimur hins ljúfa lífs, eiturlyfja, kynlífs og svika. Hann kynnist m.a. list- málaranum Toulouse- Lautrec og söngleikjastjörn- unni Satin en kynnin af hinni síðarnefndu reynast honum afdrifarík. Að þessu sinni ræðst ástralski leikstjórinn Baz Luhrmann í endurgerð Rauðu myllunnar með Nicole Kidman í hlutverki Satin og Ewan MacGregor í hlutverki Christian. Tökur hófust í nóvember 1999 og hafa farið fram í Par- ís og í myndverum í Ástralíu. Luhrmann hefur þegar vakið athygli fyrir rokkútgáfu af Shakespeare, Romeo og Juli- et með Leonardo DeCaprio, og Ballroom Dancing. Áður en hann réðst í kvikmynda- gerð vann Luhrmann við upp- setningar söngleikja á sviði og í sjónvarpi, auk þess sem hann sviðsetti leikrit og óp- erur eins og t.d. La Bohème. Í endurgerð Luhrmanns á Rauðu myllunni koma fram hugmyndir um framsetningu söngleikja í kvikmyndaformi í Myrkradansaranum eftir Lars Von Trier. „Ég hef ekki í hyggju að sýna París í þvæld- um klisjum glæsiáranna,“ lét Luhrmann hafa eftir sér í ný- legu viðtali, „heldur verð ég með mína persónulegu út- gáfu af borginni. Myndin verður einskonar sambland af Dirty Dancing, Faktoríu Andys Warhols og kynferð- islegum heimi Disneylands.“ Það lítur því út fyrir að þessi endurgerð á Rauða myllunni verði vel krydduð og æsilegri en nokkru sinni fyrr. Oddný Sen Baz Luhrmann: Æsileg end- urgerð. H ÚN lék í myndunum fjórum á einu ári eft- ir að hún hafði tekið sér hlé frá kvik- myndunum og nú er verið að frumsýna þær eina af annarri í Bandaríkjunum. Þær eru mjög ólíkar og í þeim leikur hún á móti mjög ólík- um aðalleikurum. Allir eru þeir stór- stjörnur: Hún leikur á móti Richard Gere í Dr. T og konunum, sem Robert Altman leikstýrir; á móti Kevin Spac- ey í Pay It Forward. sem Mimi Leder leikstýrir; á móti Tom Hanks í Cast Away, sem Robert Zemeckis leikstýr- ir og á móti Mel Gibson í What Wom- en Want, sem Nancy Meyers leik- stýrir. Sjálf er Helen stórstjarna á meðal leikkvennanna í Hollywood en ferðin til stjarnanna hefur verið tor- sótt og löng í hennar tilfelli. Nú loks- ins er hún að njóta ávaxtanna af því striti sem hún hefur lagt á sig í skemmtanaiðnaðinum vestra frá því hún var níu ára gömul. Úr sjónvarpi í kvikmyndir Helen Hunt er 37 ára. Hún er fædd árið 1963 í Los Angeles og var faðir hennar kunnur leikstjóri í leikhúsum og leiklistarkennari. Helen lék fyrst í sjónvarpsmyndinni Pioneer Woman árið 1972. Um tuttugu ára aldurinn átti hún að baki fjöldann allan af sjón- varpsþáttum og sjónvarpsmyndum sem enginn man lengur eftir. Um það leyti fór hún að sjást fyrst í bíómynd- unum. Hún lék dóttur Kathleen Turn- er í Peggy Sue Got Married og kær- ustu Matthew Brodericks í Project X auk þess sem hún var í miklu mun síðri myndum eins og vísindahroll- vekjunum Trancers og Trancers II. Hlutverkin urðu stærri með árun- um þótt enn ætti hún langt í land. Hún vakti nokkra athygli í Water- dance þar sem hún fór með hlutverk eiginkonu fatlaðs rithöfundar og hún lék á móti Billy Crystal í Mr. Satur- day Night. Þá var hún farin að leika í gamanþáttunum Mad About You í sjónvarpi á móti Paul Reiser en eftir því sem tímar liðu urðu þeir æ vin- sælli og reyndust vera stökkpallur fyrir Hunt yfir í aðalhlutverk í kvik- myndum. Hún fékk aðalkvenhlutverkið í spennumyndinni Twister eftir Jan de Bont, sem byggðist á handriti eftir Michael Crichton og náði geysilegum vinsældum og svo gerðist það að leik- konan Holly Hunter hafnaði af ein- hverjum ástæðum bitastæðu hlut- verki í nýrri mynd James Brooks (Holly hafði leikið fyrir Brooks áður í Broadcast News), sem hann kallaði As Good As it Gets og var með Jack Nicholson. Hunt kom inn fyrir Hun- ter og það var ekki nóg með að hún hreppti Emmy-verðlaunin fyrir leik sinn á móti Nicholson, heldur einnig Golden Globe-verðlaunin og loks Ósk- arinn. Barðist eins og ljón Hlutverkið í mynd James Brooks kom ekki upp í hendurnar á henni baráttulaust. „Ég barðist eins og ljón til þess að fá hlutverkið,“ segir hún í nýlegu viðtali í bandaríska kvik- myndatímaritinu Movieline. „Þeir hjá kvikmyndaverinu voru sæmilega sáttir við að hafa mig í myndinni en James sagði nei, nei, nei, hún er alls ekki rétta leikkonan í hlutverkið. Hún er alltof ung. Hann samþykkti þó að hitta mig á fundi og ég var ein tauga- hrúga vegna þess að ég hef svo lengi dáðst að verkum hans og mér var svo mikið í mun að sanna mig í hlutverk- inu. Ég þoli það ekki þegar mann langar í eitthvað svona illilega vegna þess að þá er svo sárt að missa af því.“ Hún fékk Brooks á sitt band eftir jaml, japl og fuður og síðan hefur Hunt orðið ein eftirsóttasta leikkonan í draumaverksmiðjunni. Eftir að hún fékk Óskarinn rigndi yfir hana tilboð- um en hún hafnaði þeim öllum. „Mér fannst ekkert af hlutverkunum sem mér buðust henta mér,“ segir hún og það liðu tvö ár áður en hún fór í gang aftur. Þá var hún hætt í Mad About You. Mimi Leder stýrði henni í Pay It Forward sem er fyrsta myndin sem Kevin Spacey lék í eftir að hann fékk Óskarinn. „Við hittumst þegar við byrjuðum að æfa hlutverkin fyrir myndina,“ segir hún um fyrstu kynni sín af Spacey, „og eftir svona klukkustund litum við hvort á ann- að og það rann upp fyrir mér að þótt ég vissi ekki frá hvaða plán- etu hann kom, að þá var ég frá henni líka. Mér fannst við virki- lega tengjast vináttuböndum.“ Hanks og Gibson Pay It Forward er dramatísk mynd um kennara sem hvetur nem- endur til góðverka en Hunt leikur móður eins drengsins í skólanum. What Women Want er gjörólík mynd, rómantísk gamanmynd með Mel Gib- son. „Ég hafði síst hugsað mér að leika í rómantískri gamanmynd,“ segir Hunt, „vegna þess að ég var svo hreykin af Mad About You. En mér fannst frábært að Mel skyldi taka hlutverkið að sér og leik- stjórinn, Nancy Meyers, var svo klár. Það var vegna henn- ar og Mel sem ég lék í mynd- inni.“ Hlutverk hennar í Cast Pay It Forward frumsýnd: Með meðleikurunum Haley Joel Osment og Kevin Spacey, en Hunt leikur móður drengsins. Cast Away frumsýnd: Með Tom Hanks og eiginkonu hans Ritu Wilson en Hunt leikur kærustu strandaglópsins í myndinni. Reuters Í As Good as It Gets: Þurfti að berjast fyrir Óskars- verðlaunahluverkinu. Bandaríska leikkonan Hel- en Hunt hreppti Óskarinn fyrir As Good as It Gets fyrir nokkrum árum og hvarf úr heimi kvik- myndanna en hefur nú snúið aftur og leikur í fjórum bíómyndum, sem frumsýndar eru með stuttu millibili í Bandaríkjunum. Arnaldur Indriðason skoðaði feril Helenar en hún hefur leikið frá því hún var níu ára stelpa. Mad About You: Með Paul Reiser í sjón- varpsþáttunum vinsælu. Hunt og Gibson: Með mótleikara sínum í rómantísku gamanmyndinni What Women Want og leikstjóranum Steven Spielberg. Helena hin fagra Away er ekki mjög stórt því myndin fjallar að langmestu leyti um Tom Hanks í hlutverki skipreka manns á eyðieyju og hvernig hann fer að því að komast af. Hún segir að hlutverk sitt í myndinni hafi breyst mikið á meðan á gerð myndarinnar stóð. „Persóna Toms gengur í gegnum mikla lífs- reynslu til þess að finna sjálfa sig en persónan sem ég leik tapar sjálfri sér á meðan á því stendur.“ Helen lék fyrir Robert Altman í Dr. T and the Women og kunni því ákaf- lega vel. „Ég fór reyndar með lítið hlutverk í þeirri mynd. Æfði golfið af kappi og kunni ákaflega vel við Rich- ard Gere. Meira er eiginlega ekki um það að segja.“ Í myndinni leikur hún atvinnumann í golfíþróttinni og segist hafa æft sveifluna í þrjá mánuði áður en tökur hófust „en svo var aðeins eitt högg sýnt í allri myndinni,“ segir hún. „Aðeins eitt.“ Helen Hunt hefur sam- ið við Woody Allen um að leika í hans næstu mynd en það þykir enn mikill heiður að fá hlutverk í myndum hans. „Þetta er símtalið sem allar leikkonur sem fylgjast með bíómyndum og alast upp í New York bíða eftir,“ segir Hunt um Allen. „Þegar ég var orðin úrkula vonar um að heyra frá honum, hringir þá ekki kallinn.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.