Morgunblaðið - 05.01.2001, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.01.2001, Blaðsíða 3
Bjarkar vegna, átti ofurstjarnan Julia Roberts (hún er í dag ein hæstlaunaða kvik- myndastjarna heims og sú sem getur selt vinnu sína dýrast allra kvenleikara), góðan dag í Erin Brockovich og hætt við að stjörnu- blindan varpi glýju í augu meðlima HFPA (sem og Akademíunnar, seinna í vetur). Persónulega þótti mér Roberts standa sig vel í rösk- lega miðlungsmynd. Breski stórleik- arinn Albert Finney var hins vegar sá sem gaf myndinni nokkurn klassa. Roberts verður tvímælalaust illvið- ráðanleg í þessum flokki og myndin gekk vel á meðan lítið fór fyrir Dan- cer in the Dark, sem var einungis sýnd í örfáum, litlum kvikmyndahús- um. Hér eru líka tilnefndar tvær aðr- ar frægar og færar leikkonur; Joan Allen, fyrir leik sinn í The Conten- der, og Ellen Burstyn, sem átti, að sögn, glæsilega endurkomu í Re- quiem for a Dream. Minna hefur heyrst af You Can Count on Me, og afrekum aðalleikonunnar, Lauru Linney. Sú fimmta er svo Björk, sem setti sitt persónulega mark á Dancer in the Dark. Vitaskuld veðjum við á okkar stjörnu. Björk var hjarta myndarinnar og spurningin er: Nýt- ur Björk þess að vera evrópskur listamaður hjá útlendingaherdeild blaðamanna í Hollywood? Mynd ársins – drama Myndirnar, sem keppa um Golden Globe í flokki dramatískra verka, eru sundurleitur hópur og hafa aðeins tvær þeirra verið sýndar hérlendis. Hin magnaða Gladiator, ágæt mynd og ábúðarmikil fyrir augað en synd væri að segja að dramað risti djúpt, frekar en í Erin Brockovich, sem einnig hefur verið sýnd hérlendis. Báðar þessar myndir voru prýðileg afþreying en verða seint flokkaðar í þungavigt. Mikið og gott orðspor fer af bresku myndinni Billy Elliot, sem dregur nafn sitt af aðalpersónunni, ungum strák sem kemur einsog þruma úr heiðskíru lofti inn í fjöl- skyldu harðsoðinna verkamanna, því Billy vill ekki á eyrina, heldur nema dansmennt. Sunshine mun vera nýj- asta verk ungverska leikstjórans Istváns Szabós. Fjallar um at- burðina sem leiddu til uppreisnar- innar í heimalandi hans árið 1956, er Þ AÐ er fyrst til að taka að Golden Globe- verðlaununum var komið á laggirnar og verðlaunahafar jafnan valdir af Samtökum er- lendra blaðamanna í Hol- lywood – Hollywood Foreign Press Association (HFPA). Tilgangurinn með þeim að efla menningartengsl er- lendu pressunnar og Banda- ríkjanna, stuðla að upp- fræðslu á sviðum lista með styrkjum til háskólanáms og verðlauna framúrskarandi ár- angur í kvikmynda- og sjón- varpsiðnaðinum. Meðlimir samtakanna, sem voru stofnuð 1943 (fyrstu verðlaunin afhent ári síðar), eru 89 og eiga það sameiginlegt að sjá heimalöndum sínum fyrir fréttum af kvik- mynda- og sjónvarps- gerð. Tveir meðlim- anna eru reyndar ekki starfandi blaðamenn. Til- nefningar og verðlaunahafar eru valdir með leynilegri at- kvæðagreiðslu meðal meðlima HFPA, úr hópi gjaldgengra þátttakenda í hverjum flokki. Stjórn HFPA velur viðtakanda hinna ár- legu heiðursverðlauna, sem kennd eru við stórmyndaleikstjórann og brautryðjandann Cecil B. DeMille. Hún hefur þegar komist að niður- ströðu; verðlaunin fyrir yfirstand- andi ár falla í hlut ofurstjörnunnar Al Pacino. Framvinda gullna hnattarins er á þann veg að tilnefningar eru til- kynntar 21. des. en 5. janúar sendir endurskoðunarfyrirtækið Emst & York, öllum meðlimum HFPA kjör- seðla. Þeir hafa síðan hálfan mánuð til að skila inn atkvæðum sínum, sem verða að hafa borist endurskoðunar- skrifstofunni fyrir kvöld þess 17. Sjálf afhendingarhátíðin fer síðan fram með tilheyrandi glæsibrag á Beverly Hilton-hótelinu sunnudags- kvöldið 21. janúar. Golden Globe-verðlaunin skiptast á kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðinn. Kvikmyndirnar keppa um 13 gull- hnetti, sjónvarpsefni um 11. Margt hefur verið rætt og ritað um Golden Globe sem nk. fyrirboða hinna mun virtari Óskarsverðlauna. Í því sam- bandi má nefna að á síðasta ári hlutu 7 af 13 sigurvegurum Golden Globe, Óskarinn, sem er hátt hlutfall; árið áður voru þeir aðeins 4, sem er al- gengari fjöldi. Flestum þykir, af ærnum ástæðum, mun minna til þeirra koma. Klassi og virðing ríkja yfir Óskarnum, Golden Globe berg- málar frekar tískusveiflur í kvik- myndaheiminum og hefur haft mun sjáanlegri áhrif á Emmy-verðlaunin (veitt árlega af bandarísku sjón- varpsakademíunni, sem er hliðstæð kvikmyndaakademíunni). Einhverj- ar illkvittnar tungur halda því fram að erlendu blaðamennirnir tilnefni þá sem eru í tísku, frekar en þá sem skara fram úr. Séu dálítið sjóndaprir af stjörnuskininu. Vafalaust nokkuð til í því. Hvað um það, gullhnötturinn verður æ meira áberandi í kvik- myndaumræðunni með hverju árinu. Einsog fram hefur komið eru þau Björk Guðmundsdóttir og góðskáld- ið Sjón Sigurðsson, á meðal til- nefndra í ár. Þau eru ástæðan, öðru fremur, fyrir þessari umfjöllun, auk þess eru verðlaunin tvímælalaust ein þau kunnustu í kvikmyndaheiminum og sáralítið hefur verið um þau rætt á síðum blaðsins að undanskildum smáfréttum. Nú verður rennt yfir til- nefningarnar í flokkunum 13 og þá gefst lesendum innsýn í þá veröld sem erlenda pressan tignar í kvik- myndaborginni. Kvenleikari ársins í aðalhlutverki söngva-, dansa- eða gamanmynd Golden Globe-verðlaunin skipta leikurunum í tvo hópa. Þá sem koma fram í söngva-, dansa- og gaman- myndum, og þá sem leika í drama- tískum hlutverkum. Björk er ekki í fyrrnefnda hópnum, heldur keppir í þeim dramatíska, ásamt miklum kvennablóma. Til allrar óhamingju, Undir áramót hefst verðlaunaafhendingatímabilið í skemmtanaiðnaðinum í Bandaríkjunum. Fyrst til að ríða á vaðið eru samtökin National Board of Review, síðan líta þau dagsins ljós hver af öðrum og ná hámarki síð- asta sunnudag marsmánaðar. Önnur eftirsótt verðlaun, Golden Globe, eru afhent síðla í janúar, sú athöfn vekur meiri athygli að þessu sinni hér á landi en nokkru sinni áður, því okkar eigin Björk Guðmundsdóttir og Sjón Sig- urðsson, eru á meðal tilnefndra, fyrst Íslendinga. Sæbjörn Valdimarsson brá því stækkunarglerinu að sögu gyllta hnattarins og tilnefningunum í ár. og gullhnötturinn Útlendingaherdeildin Ungverjar gerðu máttvana tilraun til að losna úr vítiskrumlu Sovétsins. Wonder Boys er fyrsta mynd leik- stjórans Curtis Hanson eftir þá mögnuðu L.A. Confidential og segir af rithöfundi sem Michael Douglas leikur með miklum tilþrifum. Mynd- in féll í miklu betri jarðveg hjá gagn- rýnendum en almenningi. Fimmta myndin er Trafic, nýjasta mynd hins eftirtektarverða og afkastamikla leikstjóra Stevens Soderberghs, sem einnig á Erin Brockovich, í þessum álitlega hópi hópi. Trafic fjallar um baráttuna við eiturlyfjasmyglið inn í Bandaríkin og kemur Douglas aftur við sögu í aðalhlutverki. Mynd ársins – söngva- og dansa- eða gamanmynd Almost Famous eftir leikstjórann/ handritshöfundinn Cameron Crowe (Jerry Maguire) og smámyndin Best in Show, eftir Christopher Guest eru óþekktar stærðir hérlendis. Kjúk- lingaflótti – Chicken Run, hefur hins vegar gengið hérlendis mánuðum saman, enda tölvuteiknimynd af bestu gerð, og gott dæmi um hvað Jeffrey Katzenberg er að gera hjá DreamWorks eftir að hafa verið út- lægur gerr hjá Disney. Kjúklinga- flótti er eina, tilnefnda myndin í þessum flokki, sem sýnd hefur verið hérlendis til þessa. Chocolat er nýj- asta verk Svíans Lasses Hallströms og frönsku leikkonunnar Juliette Binoche. Hefur hlotið mikið lof og verður forvitnilegt að sjá hvernig þessum Evrópubúum reiðir af. Fimmta myndin er síðan nýjasta af- urð Coen-bræðra; O Brother, Where Art Thou? sem mun vera skopstæl- ing á Ódysseifskviðu Hómers. Lofar vissulega góðu. Karlleikari í aðalhlutverki – drama Við höfum aðeins séð Russell Crowe í Gladiator, en við hann keppa þrír gæðaleikarar í myndum sem hafa hlotið mikið lof. Michael Dougl- as í Wonder Boys, áðurnefndri mynd Curtis Hanson; Tom Hanks í Cast Away, nýju metaðsóknarmyndinni hans Roberts Zemeckis, og Geoffrey Rush, sem sagður er fara á kostum í Quills, umdeildri mynd Philips Kauf- mans um öfuguggan, markgreifann De Sade. Þá er aðeins ógetið Javiers Bardems, sem fer með aðalhlutverk- ið í Before Night Falls, eftir nýliðann Jonathan Schnabel. Karlleikari í aðalhlutverki – söngva-, dansa- eða gamanmynd Fyrstan skal frægan telja Jim Carrey í hlutverki Trölla í mynd Rons Howards, How the Grinch Stole Christmas, sem hefur glatt okkur um jólin og er til alls líklegur. George Clooney er að komast í tölu ofurstjarna kvikmyndaheimsins, sú fyrsta sem sem tekst að ná því marki eftir að hafa slegið í gegn á skjánum. Hann er sagður aldrei betri en í mynd bræðranna Coen, O Brother, Where Art Thou? Þá eru þrír aðrir, góðkunningjar bíógesta tilnefndir: John Cusack fyrir High Fidelity; Ro- bert De Niro í Meet the Parents og síðast en ekki síst Mel Gibson, fyrir frammistöu sína í gamanmyndinni What Women Want. Kvenleikari í aðalhlutverki – söngva-, dansa- eða gamanmynd Í fullri hreinskilni er maður ekki trúaður á að nokkur þeirra leik- kvenna sem hér eru tilnefndar, hljóti sömu náð hjá kvikmyndaakademí- unni í næsta mánuði. Þó veit maður aldrei neitt... Einna helst er þó veðj- andi á franska uppáhaldið, Juliette Binoch e(Chocolat), frekar en það breska, stórleikkonuna Brendu Blet- hyn. Hún spjarar sig vissulega vel í Saving Grace, en myndin tæpast í þeim gæðaflokki sem heillar aka- demíuna. Þá er það Sandra Bullock sem lög- reglukona sem lærir barsmíðar í Miss Congeniality; Renée Zellweger í Nurse Betty og Tracy Ullman í Small Time Crooks. Allt mjög í anda Golden Globe-stílsins. Kvenleikari í aukahlutverki – drama Enn höfum við ekkert séð af þeim leiksigrum sem HFPA telur fræk- nasta hjá leikkonum. Sjálfsagt ber hæst lafði Judi Dench í hinni stjörn- um prýddu Choclat. Þær koma einn- ig við sögu, Kate Hudson og Frances McDormand í Almost Famous. Þá er Julie Walters tilnefnd fyrir Billy El- liot, hún er til þessa einnar myndar leikkona, sló í gegn í Educating Rita, fyrir 17 árum, hefur fátt gert umtals- vert síðan. Lestina rekur svo velska elskan hans Michaels Douglas, kynt- röllið Catherine Zeta-Jones, sem fer með hlutverk í margnefndri Trafic. Karlleikari í aukahlutverki – drama Jeff Bridges hefur verið einn besti – en seinheppnasti karlleikari Hol- lywood, allt frá því hann setti mark sitt á tvær gæðamyndir á öndverðum áttunda áratugnum: The Last Pict- ure Show og Fat City. Síðan hefur Bridges leikið í fjölda mynda og jafn- an staðið sig miklu betur en mynd- irnar sjálfar. Í ár er hann tilnefndur fyrir enn einn skellinn, sem heitir The Contender, en þykir ágætasta mynd. Willem Dafoe í Shadow of the Vampire og hinn athyglisverði Joa- quin Phoenix í Gladiator, hafa báðir á sér nokkurn Golden Globe stimpil. Jafnvel Benicio Del Toro í Trafic (þó gæti piltur leynt á sér). Þá er Albert Finney einn ótalinn, hann stóð sig vel að vanda í Erin Brocovich. Hann væri vel að sigrinum kominn. Leikstjóri Fjórir fræknir hæfileikamenn á öllum aldri og ýmsum þjóðernum, eru tilnefndir í ár. Steven Soder- bergh hlytur að teljast sigurstrang- legur þar sem hann er tilnefndur fyr- ir tvö verk, hinar margumtöluðu Erin Brockovich og Trafic. Hér eru líka höfðingjarnir István Szabó fyrir Sunshine og Ang Lee með eina bestu mynd Kvikmyndahátíðar í Reykja- vík 2000, Crouching Tiger, Hidden Dragon. Síðast en ekki síst Ridley Scott, sem vaknaði aftur til lífsins með Gladiator. Fróðlegt verður að sjá hver stendur uppi sem sigurveg- ari í þessum flokki. Allt hinir mæt- ustu menn. Handrit Í þeim flokkum sem eftir eru verð- ur farið fljótt yfir sögu. Efstur á lista er sá sem telja má sigurstrangleg- astan (frá þessum bæjardyrum séð). Douglas Wright hlýtur að teljast lík- legur, en hafa ber í huga að Holly- wood pressan hefur mikið dálæti á Cameron Crowe. Quills – Douglas Wright Almost Famous – Cameron Crowe Trafic – Stephen Gaghan Wonder Boys – Steven Kloves You Can Count On Me – Kenneth Lonegan. Erlend mynd ársins Crouching Tiger, Hidden Dragon – Taívan The Hundred Steps – Ítalía Love’s a Bitch – Mexíkó Malena – Ítalía The Widow of St. Pierre – Frakk- land. Frumsamin tónlist Gladiator – Lisa Gerrard og Hans Zimmer All the Pretty Horses – Larry Paxton, Marty Stuart, Kristin Wilk- inson Chocolat – Rachel Portman Crouching Tiger, Hidden Dragon – Tan Dun Malena – Ennio Morricone Sunshine – Maurice Jarre. Frumsamið lag I’ve Seen It All. Tónskáld Björk. Texti Sjón og Lars Von Trier, úr Dancer in the Dark My Funny Friend and Me – The Emperor’s New Groove One in a Million – Miss Congeniality Things Have Changed – Wonder Boys When You Come Back to Me Again – Frequency. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 C 3 BÍÓBLAÐIÐ Björk: Dancer in the Dark. Julia Roberts: Erin Brockovich. Keppinautarnir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.