Morgunblaðið - 05.01.2001, Page 6

Morgunblaðið - 05.01.2001, Page 6
6 C FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ BÍÓBLAÐIÐ SATT EÐA- LOGIÐ? Fjórar af þessum fimm kvikmyndalýs- ingum um íþrótta- kappa eru sannar en sú fimmta er haugalygi. Hver þeirra er það? 1. Freedom Road (1979). Rithöfundurinn Howard Fast hef- ur skrifað marga góða reyfara en fæstir hafa ratað á breiðtjald. Spartacus er eflaust frægasta mynd sem gerð hefur verið eftir skáldsögu eftir Fast. Frelsisbrautin er 200 mínútna sjónvarpsmynd. Heimsmeistaranum fyrrverandi Muhammed Ali var margt til lista lagt en hæfileikarnir á þessu sviði voru af nokkuð skornum skammti. Hér leikur hann frelsingja sem verður öldungadeildarmaður í Bandaríkjunum þegar fram líða stundir. Leikstjórinn hafði vit á því að fá Kris Kristoferson í hitt aðal- hlutverkið svo að hvorugur leik- arinn skyggði á hinn. 2) The Greatest (1977) Skyldi Ali hafa stungið upp á titl- inum sjálfur? Hér segir frá ævi þungavigtarmannsins en hún er kjörið yrkisefni fyrir kvikmyndagerð- armenn. Sá var galli á gjöf Njarðar að Ali lék sjálfan sig. Fjöldi úrvals- leikara kom við sögu og meist- arinn hafði ekki roð við þeim. Ein- hverjir vondir menn eru með nýja Ali-mynd í smíðum og hefur Will Smith verið orðaður við hlutverkið. Smith er frambærilegur leikari en ekki mikill að manni, reyndar hinn mesti væskill í samanburði við Ali. Maðurinn gæti ekki staðið eina lotu á móti Ómari Ragnarssyni. Vonandi verður Chris Rock ekki fenginn til að leika George For- eman. 3. Rocky V Steinamyndirnar eru alls orðnar fimm og er það orðið nokkuð gott. Stallone skrifaði sjálfur handrit að fyrsta kaflanum en John G. Avild- sen leikstýrði myndinni. Stallone var sjálfur við stjórnvölinn í næstu þremur Steinamyndum en virtist ekki skilja gangverkið í eigin sögu- persónu. Avildsen var því fenginn til að leikstýra lokakaflanum. George Foreman varð heimsmeist- ari í þungavigt fjörutíu og fimm ára gamall. Ári áður sigraði ungur box- ari, Tommy Morrison að nafni, Foreman á stigum. Morrison greindist síðan með alnæmi og sit- ur nú í fangelsi fyrir ýmsa smá- glæpi og yfirsjónir. Hnefaleika- kappinn lék lítið hlutverk í síðustu Steinamyndinni og reyndist í sama leikræna þyngdarflokki og Ali. 4)The Hustler (1961) Paul Newman og Jackie Gleason fóru á kostum í þessari mynd sem gerð var eftir samnefndri skáld- sögu eftir Walter Tevis. Kvikmynda- gerðarmennirnir náðu að magna fram andrúmsloftið í billiardstof- unum betur en tekist hefur fyrr eða síðar. Áhorfandinn gat beinlín- is fundið lyktina af sígarettureykn- um og billjardkrítinni. Þrefalt húrra fyrir tökumanninum Eugen Schufft- an. Martin Scorsese leikstýrði framhaldsmynd, The Color of Mo- ney, árið 1986 en seinni kaflinn var ekki svipur hjá sjón. Scorsese gerði ævi La Motta að yrkisefni í myndinni Nautið frá Bronx. Þess- um bandbrjálaða boxara brá fyrir í hlutverki barþjóns í myndinni The Hustler. Hver einasti aukaleikari í þessari mynd leit út fyrir að hafa ekki stigið fæti út fyrir billiardstof- una í þrjátíu ár. La Motta mætti eitt sinn á gamals aldri í spjallþátt með Mike Tyson og sagði við meistarann að hann liti út og hljómaði eins og smástelpa en Ty- son fannst greinilega mikil upp- hefð í því fólgin að láta þennan vit- firring ausa yfir sig svívirðingum og sat skælbrosandi undir öllum skömmunum. 5) Right On (1989) Sjálfur lék Mike Tyson hnefa- leikakappann McBean í myndinni Right On. Sá fær reynslulausn og kemur aftur í gamla hverfið. Fyrir röskum tíu árum gafst honum kostur á að berjast um heims- meistaratitil en misindismenn og glæpa neyddu hann til að leyfa andstæðingnum að vinna. McBean lagði hanskana á hilluna og gerð- ist eiturlyfjaneytandi. Kappinn hef- ur nú bætt ráð sitt og kennir pöru- piltum hnefaleika hjá KFUM. Honum gefst annað færi á að berj- ast við heimsmeistarann en að þessu sinni lætur hann ekki segj- ast þótt mafíósarnir hóti honum öllu illu. Kappinn ber heimsmeist- arann sundur og saman í síðustu lotu við mikinn fögnuð æskumann- anna. Tyson reyndist prýðisleikari en hefur ekki hætt sér út á þessa braut að ráði síðan. ------ JÓNAS KNÚTSSON Bíóhöllin, Kringlubíó, Nýja bíó Keflavík, Nýja bíó Akureyri og Regnboginn frumsýna Fjölskyldumanninn eða The Family Man með Nicolas Cage. eru David Diamond og David Weissman. „Mér fannst hugmyndin á bak við Fjölskyldumanninn alveg frá- bær,“ er haft eftir framleiðand- anum Mark Abraham. „Hún er mjög hlýleg og ástríðufull og segir frá manni sem kynnist alveg nýrri veröld sem hefði getað orðið líf hans.“ Marc segir að leikstjórinn Brett Ratner- hefði strax í upphafi sýnt mikinn áhuga á að leikstýra myndinni en framleiðand- inn var ekki á því að hann væri rétti maðurinn fyrir rómantíska gamanmynd. Hann væri meira fyr- ir ærslagrín eins og í Rush Hour, síðustu mynd Ratners. En leik- stjórinn gafst ekki upp og loks lét framleiðandinn undan. „Ég ætlaði mér svo sem aldrei að leikstýra rómantískri gaman- mynd,“ er haft eftir Ratner. „En þegar ég las handritið sagði ég við sjálfan mig, ég verð að gera mynd upp úr þessari sögu. Hún minnti mig á klassísku myndirnar sem ég ólst upp við nema hvað hún endaði ekki eins og flestar þær myndir enduðu, sem mér fannst mjög spennandi.“ Þegar Ratner hafði fengið það verkefni að leikstýra Fjölskyldu- manninum hafði hann þegar sam- band við Nicolas Cage, sem hon- um fannst að væri fæddur í titilhlutverkið. Cage hafði strax áhuga á sögunni og féllst á að taka þátt í gerð myndarinnar. „Kring- umstæðurnar sem myndin lýsir eru einstakar,“ segir hann, „þegar hafðar eru í huga andstæðurnar sem við kynnumst þar sem annars vegar er moldríkur einstæðingur á Wall Street en hins vegar fjöl- skyldumaður sem nýtur lífsins sem fjölskyldfaðir. Á endanum kemst hann svo að því hvað það er sem er honum mikilvægast.“ Téa Leoni hafði tekið sér nokk- urt hlé frá kvikmyndaleik eftir að hún lék í Deep Impact og eignaðist barn. Fjölskyldumaðurinn var eitt af handritunum sem hún las í barneignarfríinu og varð strax hrifin af hlutverki Kate og segist ekki hafa þurft að hugsa sig tvisv- ar um þegar henni bauðst hlut- verkið. Kvennamaðurinn Jack Campbell er jöfur mikill á Wall Street, hon- um gengur vel í starfi og hefur lít- inn tíma fyrir annað. Allt tekur það stórkostlegum breytingum þegar hann jólanótt eina verður vitni að vopnuðu ráni í verslun nokkurri og af undarlegri hug- hreysti ræðst á byssumanninn og afvopnar hann. Daginn eftir vaknar hann í út- hverfi í New Jers- ey og liggur við hliðina á Kate (Téa Leoni), æsku- ástinni sem hann yfirgaf til þess að byggja upp sinn ábatasama kaupsýsluferil. Hann kemst að því sér til mikillar skelf- ingar að líf hans eins og hann þekkti það er horfið. Þannig er söguþráðurinn í róm- antísku gamanmyndinni Fjöl- skyldumanninum eða The Family Man, sem frumsýnd er í dag í fimm kvikmyndahúsum. Með aðal- hlutverkin fara Nicolas Cage, Téa Leoni og Don Cheadle. Leikstjóri er Brett Ratner og er þetta þriðja bíómynd hans en handritshöfundar Frumsýning Hið stóra ef… Vaknað upp til nýs lífs: Nicolas Cage og Téa Leoni. Endurmatið hafið: Cage og Don Cheadle í Fjölskyldumanninum. Leikarar: Nicolas Cage, Téa Leoni og Don Cheadle. Leikstjóri: Brett Ratner (Money Talks, Rush Hour). The Family Man Svar: Númer 5.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.