Morgunblaðið - 05.01.2001, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 C 7
BÍÓBLAÐIÐ
gráa sandana fyrir austan sem
uppljúkast áhorfandanum í nýju ljósi
í Gullsandi; stóðið skeiðandi á leirun-
um við tignarlegan Grundarfjörðinn í
Maríu. Sverri tekst ekkert síður að
fanga niðurdrabbað borgarlandslag
og sjúskað mannlíf í Sódóma Reykja-
vík. Þrútið loft og þungur sjór sagði
okkur allt um hugarástand Jóns Leifs
í órafjarlægð frá ástvinum sínum í
Tári úr steini.
Það er eitt af höfuðmarkmiðum
kvikmyndatökumannsins að halda
svipmóti og yfirbragði viðfangsefnis-
ins frá fyrsta skoti til þess síðasta,
ÚTI á hrjóstrug-
um berangrinum
kúrir lítið blóm.
Einhvern veginn
hefur því tekist að
festa rætur á sandorpinni auðninni
miðri og brosir til sólarinnar.
Skyndilega heyrist hófagnýr utan af
mörkinni, síðan sjáum við hestshófa
lyftast og skella á einbúanum fagra.
Í einni sjónhending eru dagar hans
taldir. Mörkin hefur lit sínum glatað
í eilífri lífsbaráttu sem engu þyrmir.
Þetta er lýsing á skoti úr mynd-
inni Útlaganum (’81). Sá sem á heið-
urinn af því er Sigurður Sverrir
Pálsson, einn okkar langreyndasti
og besti kvikmyndatökumaður.
Stutt myndskeiðið bergmálar inntak
myndarinnar og andrúmsloft mis-
kunnarleysis sögualdar, ástar- og
harmsögu aðalpersónunnar, Gísla
Súrssonar, sem sjálfur féll í valinn í
blóma lífsins. Slík listræn og afdrátt-
arlaus vinnubrögð hafa jafnan ein-
kennt handbragð Sverris. Allt frá
frumrauninni, Landi og sonum, sem
var fyrsta mynd íslenska kvik-
myndavorsins til nýjasta afsprengis
þess, barnamyndarinnar Ikingut,
sem nú er verið að sýna í Háskóla-
bíó.
Slík myndskeið eru mörg og minn-
isstæð. Ægifagur Skagafjörðurinn –
sjálft landið í Landi og sonum, var
stórfenglegasti þátturinn í heillandi
kvikmyndatöku á merkri frumraun
og átti sinn þátt í að fólk trúði því að
við gætum gert alvöru kvikmyndir;
mennirnir sem birtast á fjörukamb-
inum í Eins og skepnan deyr; sýnin á
þar er Sverrir fagmaður í sérflokki.
Handverk hans einkennist bæði afl-
istfengi og ekki síður ótrúlegum
þrótti, ánægju af starfinu og virð-
ingu fyrir viðfangsefninu.
Hér hafa aðeins örfá atriði verið
talin úr leiknum myndum, Sverrir á
ekki síður að baki farsælan feril sem
heimildamyndagerðarmaður. M.a.
fjölda verkefna fyrir Sjónvarpið,
stórvirkin Hin rámu reginöfl, Ver-
stöðin Ísland og Íslands þúsund ár,
svo nokkuð sé nefnt. Sverrir hefur
einnig átt þátt í handritaskrifum,
klippingu og stjórn margra heim-
ildamyndanna, auk tökunnar.
Sigurður Sverrir er Reykvíking-
ur í húð og hár, fæddur ’45 og uppal-
inn í Hlíðunum. Stúdent frá M.R.
’65. Stundaði nám við H.Í. veturinn á
eftir, hélt síðan utan og útskrifaðist
sem kvikmyndagerðarmaður frá
London School of Film Technique
’68. Það var hentugur tími því ný-
stofnað Sjónvarp allra landsmanna
bauð upp á ný atvinnutækifæri í
stétt sem hefur farið nánast dagvax-
andi síðan. Fyrsta árið starfaði
Sverrir sem klippari hjá stofnuninni;
kvikmyndatökumaður frá ’70–’73 og
stjórnandi („produsent“) frá ’73–’76.
1977 urðu breytingar á starfshátt-
um Sverris sem hætti hjá RÚV og
stofnaði kvikmyndagerðarfyrirtæk-
ið Lifandi myndir, ásamt tveimur
starfsfélögum sínum hjá Sjónvarp-
inu. Við það fyrirtæki vann Sverrir
til ’95, að hann hóf eigin rekstur í
kvikmyndagerð, með aðaláherslu á
kvikmyndatöku.
Á sinni starfsævi hefur Sverrir
tekið hartnær 20 heimildamyndir,
tvær stuttmyndir, eina sjónvarps-
mynd og hvorki fleiri né færri en 13
leiknar kvikmyndir í fullri lengd á 20
árum. Fáir hafa mótað útlit ís-
lenskra kvikmynda sem hann.
Sverrir vinnur nú m.a. að heim-
ildamyndum um tvo þjóðkunna lista-
menn; málarann Svein Björnsson og
skáldið og ritstjórann Matthías Jo-
hannessen. Undanfarin ár hefur
Sverrir búið í Kaupmannahöfn með
danskri eiginkonu sinni en hefur
jafnframt aðsetur á Íslandi, því það
er hér sem hann vill helst vinna.
Svipmynd
Eftir Sæbjörn
Valdimarsson
Gegnum ljósop
Sigurðar Sverris
er listfengur vinnuþjarkur. Með mikilvirkustu kvikmyndatökumönnum
landsins, einn sá afkastamesti hvað snertir leiknar bíómyndir. Frum-
kvöðull, sem setti mark sitt á Land og syni (’79), fyrstu afurð „Íslenska
kvikmyndavorsins“, og hefur haldið ótrauður áfram allt til Ikíngut (’00),
nýjustu íslensku myndarinnar. Eins á hann að baki fjölda heimildar-
mynda, þ. á. m. nokkurra þeirra merkustu á síðustu áratugum.
Sigurður Sverrir Pálsson
Morgunblaðið/Jim Smart
1996: 1.verðlaun fyrir „Out-
standing Cinematography“
(kvikmyndatöku) á Prague Int-
ernational Film Festival fyrir Tár
úr steini. 1993: „Certificate for
Creative Exellence“ fyrir Ver-
stöðina Ísland, 4.hl., veitt af
US International Film and Vid-
eo Festival.
1991: „Þrautseigju-viðurkenn-
ing“ frá Félagi kvikmyndagerð-
armanna.
1981: Menningarverðlaun DV
fyrir kvikmyndatöku (Land og
synir).
Tilnefndur til Menningar-
verðlauna DV fyrir myndatöku á
Tári úr steini og Benjamín Dúfu
1996, fyrir myndatöku á Sjóar-
inn, skóarinn......1992.
Verstöðin Ísland var tilnefnd til
þessara verðlauna 1993 og Út-
laginn (myndin í heild) fékk
verðlaunin 1982.
Auk þessa hafa flestar af bíó-
myndunum, sem taldar eru
upp, unnið til verðlauna eða
viðurkenninga erlendis.
Viðurkenningar
1979: Land og synir
1980: Punktur, punktur,
komma, strik
1981: Útlaginn
1984: Gullsandur
1985: Eins og skepnan deyr
1991: Sódóma Reykjavík
1993: Skýjahöllin
1994: Tár úr steini
1994: Benjamín dúfa
1996: María
1997: Perlur og svín
1997: Sporlaust
2000: Ikingut
Stjórnandi
kvikmyndatöku,
bíómyndir:
NÝJAR MYNDIR
FAMILY MAN
Bíóhöllin: Kl. 3:30 – 6 – 8 – 10:30.
Kringlubíó: Kl. 5:30 – 8 – 10:30. Aukasýning
föstudag kl.12:50
Regnboginn: Kl. 5:30 8 – 10:30. Aukasýning
um helgina kl. 3.
DANCER IN THE DARK DRAMA
Dönsk/Bresk. 2000. Leikstjóri: Lars Von Trier.
Aðalhlutverk: Björk Guðmundsdóttir, Peter
Stormare, Catherine Deneuve.
Túlkun Bjarkar í nýjustu mynd
danska leikstjórans Lars Von Triers
er alveg einstök og heldur uppi brot-
hættum söguþræði.
Háskólabíó Kl. 5:30.
ÍSLENSKI DRAUMURINN GAMAN
Íslensk. 2000. Leikstjóri og handrit: Robert
Douglas. Aðalleikendur: Þórhallur Sverrisson,
Jón Gnarr, Hafdís Huld.
Íslensk gamanmynd, sem er mein-
fyndin, hæfilega alvörulaus en þó
með báða fætur í íslenska veru-
leikanum, er komin fram. Alveg
hreint afbragðs góð mynd.
Bíóborgin: Kl. 4 – 6 – 8.
NURSE BETTY ½ GAMAN
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Nel LaBute. Hand-
rit: John C. Richards. Aðalleikendur: Renée
Zellweger, Chris Rock, Morgan Freeman, Greg
Kinnear.
Yndisleg tragikómedía um unga
konu sem missir manninn og heldur
til Hollywood að leita að stóru ást-
inni.
Bíóhöllin: Kl. 8 – 10.10.
THE GRINCH THAT STOLE CHRIST-
MAS FJÖLSKYLDUMYND
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Ron Howard. Hand-
rit Jeffrey Price. Aðalleikendur: Jim Carrey, Tay-
lor Momsen.
Fín jóla- og fjölskyldumynd. Borin
uppi af stórleik Carreys og fagmann-
legri leikstjórn.
Bíóhöllin: Kl. 3:40 – 5:50 – 8 – 10:15. Aukasýn-
ing um helgina kl. 1:45.
KJÚKLINGAFLÓTTINN – CHICKEN
RUN FJÖLSKYLDUMYND
Bandarísk. 2000. Leikstjórn og handrit: Peter
Lord og Nick Park. Rödduð.
Leirbrúður fara með aðalhlutverkin í
fjölskylduvænni endurvinnslu Flótt-
ans mikla – með Watership Down-
ívafi.
ÍSLENSKT TAL.
Bíóhöllin: Um helgina kl. 1:50.
Háskólabíó: Föstudag kl. 4.
UNBREAKABLE SPENNA
Bandarísk. 2000. Leikstjórn og handrit:
McNight Shyamalan. Aðalleikendur: Bruce Will-
is, Samuel L. Jackson, Robin Wright Penn.
Áhugaverð og þægileg kvikmynd
sem veltir upp tilvistarspurningum á
spennandi hátt. Willis og Jackson
eru traustir en Wright Penn er betri.
Bíóhöllin: Kl. 3:40 – 5:50 – 8 – 10:15. Aukasýn-
ing um helgina kl. 1:30.
Kringlubíó: Kl: 8 – 10:15. Aukasýning föstudag
kl. 12:30.
Bíóborgin: Kl. 3:40 – 5:50 – 8 – 10:15
WHAT LIES BENEATH HROLLUR
Leikstjórn og handrit: Robert Zemeckis. Aðal-
leikendur Harrison Ford, Michelle Pfeiffer, Ja-
mes Remar.
Kunnáttusamlega gerður spennu-
tryllir og nútímadraugasaga í anda
Hitchcock gamla. Pfeiffer og Fordar-
inn í toppformi. Hrollvekjandi afþrey-
ing.
Stjörnubíó: Kl. 5:30 – 8 – 10:20. Aukasýning
um helgina kl. 3.
BRING IT ON ½ GAMAN
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Peyton Reeds.
Handrit: Jesse Bendinger. Aðalleikendur: Kirs-
ten Dunst, Eliza Dushka, Gavrielle Union.
Mynd um klappstýrukeppni veldur
ekki vonbrigðum, merkilegt nokk.
Þökk sé líflegum leik aðalleik-
kvennanna þriggja, pólitíkinni í
handritinu, ekki alveg fyrirsjáanleg-
um endi og dálítilli lífsgleði.
Bíóhöllin: Kl. 3:30 – 6 – 8 – 10:30. Aukasýning
um helgina kl. 1:40.
Kringlubíó: Kl. 3:50 – 5:55 – 8 – 10:10. Auka-
sýning föstudag kl. 12:30, um helgina kl. 1:45.
Háskólabíó: Kl. 4 – 6 – 8 – 10. Aukasýning um
helgina kl. 2.
CHARLIE’S ANGELS SPENNA
Bandarísk. 2000. Leikstjóri McG. Handrit: Ivan
Geoff. Aðalleikendur Cameron Diaz, Drew Barry-
more, Bill Murray.
Skemmtileg tilbreyting í hasar-
myndaflórunni að sjá þrjár gellur í
Schwarzenegger-rullunni. Delluverk
af Hollywood-tegundinni.
Laugarásbíó: KL. 4 – 6 – 8 – 10.
Regnboginn: Kl. 6 – 8 – 10.
IKINGUT ½ BARNAMYND
Íslensk. 2000. Leikstjóri: Gísli Snær Erlings-
son. Handrit: Jón Steinar Ragnarsson. Aðalleik-
endur: Hjalti Rúnar Jónsson, Hans Tittus Nak-
inge, Pálmi Gestsson.
Hugljúf, átakalítil barnamynd um for-
heimsku og fordóma fyrr á öldum í
vestfirsku sjávarþorpi.
Háskólabíó: Kl. 4 – 6 – 8 – 10. Aukasýning
föstudag/laugardag kl. 2.
THE LEGEND OF BAGGER VANCE
½ DRAMA
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Robert Redford.
Handrit: Elton Dillinger. Aðalleikendur: Will
Smith, Matt Damon, Charlize Theron.
Falleg saga frá Redford, um golfara
sem finnur sig aftur á vellinum.
Regnboginn: Kl. 8 – 10:30.
Stjörnubíó: Kl. 5:30 – 8 – 10:30. Aukasýning
um helgina kl. 3. *
OPEN YOUR EYES ½ SPENNA
Spænsk. 1998. Leikstjórn og handrit: Alejandro
Amenábar. Aðalleikendur: Eduardo Noriega,
Penélope Cruz, Chete Lera.
Það er ekkert sem sýnist í mynd
sem leikur sér að ráðgátunni um líf
og dauða. Athyglisverð og vel leikin
af aðalleikurunum þrem.
Bíóborgin: Kl. 5:50 – 8 – 10:15. Aukas. Fös. kl.
3:40.
RISAEÐLURNAR ½ FJÖLSK.
Bandarísk. 2000. Leikstjórar Eric Leighton,
Ralph Sontag. Rödduð teiknimynd.
Heldur hugmyndasnauð Disney-
mynd, afar vel teiknuð og gerð en
sagan væmin er líður á. Frábær
barnamynd.
Bíóhöllin: Kl. 4. Aukasýning um helgina kl. 2.
Kringlubíó: Kl. 3:40. Aukasýning um helgina kl.
1:45.
DINOSAUR ½ TEIKNIMYND
Bandarísk. 2000. Leikstjórar Eric Leighton,
Ralph Sontag. Rödduð teiknimynd.
Heldur hugmyndasnauð Disney-
mynd, afar vel teiknuð og gerð en
sagan væmin er líður á. Frábær
barnamynd.
Bíóhöllin: Kl. 6.
THE GOLDEN BOWL – GULL-
SKÁLIN DRAMA
Bresk. 2000. Leikstjóri. James Ivory. Handrit
Ruth Prawler Jhabvala. Aðalleikendur: Nick
Nolte, Uma Thurman, Anjelica Huston.
Lin mynd og óspennandi um ást-
fangið fólk sem er gift feðginum.
Maður fær enga samúð með per-
sónunum þótt leikararnir séu fínir.
Háskólabíó: Kl. 5:30 – 8 – 10:30. Aukasýn. um
helgina kl. 2.
GUN SHY SPENNUMYND
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Eric Blakeney.
Hamdrit: John V. Sterling. Aðalhlutverk: Liam
Neeson, Oliver Platt, Sandra Bullock.
Lögguhetja leitar sálfræðings vegna
ótta við lokaverkefnið. Ágæt saga.
Lélegur húmor og ósannfærandi
leikur.
Bíóborgin: Kl. 10.
RED PLANET VÍSINDA-
SKÁLDSK.
Bandarísk. 2000. Leikstjóri og handrit: Anthony
Hoffman. Aðalleikendur: Val Kilmer, Carrie-Anne
Moss.
Kilmer og Moss fara fyrir hópi vís-
indamanna til Mars og lenda í mikl-
um kröggum.
Bíóhöllin: Kl. 10:15.
SAVING GRACE GAMAN
Bresk. 2000. Leikstjóri Nigel Cole. Handrit Craig
Ferguson og Mark Crowdy. Aðalleikendur Brenda
Blethyn og Craig Ferguson.
Ekkja tekur til við hamprækt er
þrengist í búi. Vel leikin af Blethyn
og Ferguson en grínið nánast hung-
urmorða.
Háskólabíó: Kl. 4 – 6 – 8 – 10. Aukasýning
föstudag/laugardag kl. 2.
WHIPPED GAMAN
Bandarísk. 2000. Leikstjóri og handrit: Peter M.
Cohen. Aðalleikendur: Amanda Pett, Brian van
Holt, Zorie Barber.
Furðuleg mynd um stærilæti ung-
karla á kynlífssviðinu. Í senn fyndin
og leiðinleg, frumleg og þreytt.
Háskólabíó: Kl. 10:15.
POKÉMON 2000 ½ TEIKNI-
MYND
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Gail Tilden. Hand-
rit: Norman Grossfeld. Aðalraddir: Grímur Gísla-
son, Vigdís Hrefna Pálsdóttir.
Óskiljanleg, súr stuttmynd um Pok-
émon, sem er fylgt eftir með ofbeld-
isfullri mynd um sömu persónur.
Bíóhöllin: Kl. 3:50 – 6. Aukasýning um helgina
kl. 1:40. Regnboginn: Kl. 6. Aukasýning um
helgina kl. 2 – 4.
Kringlubíó: Kl. 3:50 – 6. Aukasýning um helgina
kl. 1:40.
URBAN LEGENDS: FINAL CUT –
SÖGUSAGNIR 2 ½ HROLLUR
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Jamie Blanks.
Handrit: Silvio Horta. Aðalleikendur: Alicia Witt,
Jared Leto.
Ekkert nýtt, aðeins meira af sama
blóðslabbinu.
Laugarásbíó: Kl. 4 – 6 – 8 – 10.
AUTUMN IN NEW YORK DRAMA
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Joan Chen. Hand-
rit: Gary Lucchesi. Aðalleikendur: Richard Gere,
Wynona Ryder.
Gamaldags ástarsaga hlaðin tilfinn-
ingavellu og væmni.
Háskólabíó: Kl. 8.
LITTLE NICKY GAMAN
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Steven Brill. Hand-
rit: Adam Sandler. Aðalleikendur: Adam Sandler,
Harvey Keitel. Sullumbull um son Satans, sem
er prúðmenni. Adam Sandler er lélegur leikari.
Laugarásbíó: Kl. 4 – 6 – 8 – 10.
Regnboginn: Kl. 6 – 8 – 10. Aukasýning um
helgina kl. 2 – 4.
Bíóin í borginni
Sæbjörn Valdimarsson/Arnaldur Indriðason/Hildur Loftsdóttir