Morgunblaðið - 12.01.2001, Side 8
Fylkir og
KR hefja
mótið
ÍSLANDSMÓTIÐ í knatt-
spyrnu hefst á sannköll-
uðum stórleik í vor. Leikur
Fylkis og KR hefur verið
settur á sem opnunarleikur
mótsins, þriðjudaginn 15.
maí á Fylkisvelli, en þessi
félög börðust sem kunnugt
er um Íslandsmeistaratit-
ilinn síðasta sumar. KR
hafði þá betur og tryggði
sér titilinn í lokaumferðinni.
Aðrir leikir í fyrstu um-
ferð fara fram fimmtudag-
inn 17. maí en þá mætast
Breiðablik-ÍBV á Kópavogs-
velli, Fram-Valur á Laug-
ardalsvelli, Grindavík-
Keflavík í Grindavík og ÍA-
FH á Akranesi.
FH vann Gróttumótið
FH-ingar sigruðu á hinu árlega Gróttumóti í innanhússknattspyrnu
sem haldið var á Seltjarnarnesi um helgina. FH sigraði Stjörnuna í
úrslitaleik, 4:3, og skoraði Hannes Þ. Sigurðsson sigurmark Hafn-
arfjarðarliðsins undir lok leiksins.
Haukar urðu í þriðja sæti á mótinu en þeir höfðu betur gegn
Skagamönnum í leik um þriðja sætið, 3:2.
Átta lið töku þátt í mótinu og var þeim skipt í tvo riðla. Haukar
og ÍA unnu riðlana en FH og Stjarnan urðu í öðru sæti og komust
því áfram. Í undanúrslitunum hafði FH betur gegn ÍA og Stjarnan
lagði Hauka að velli.
Hassan hefur leikið með egypskalandsliðinu í sextán ár, frá
1985, og hefur sett stefnuna á að
spila með Egpytum í lokakeppni
HM í Japan og Suður-Kóreu á
næsta ári. Það yrði í annað skiptið á
ferlinum því Hassan lék alla þrjá
leiki Egypta í úrslitakeppninni á
Ítalíu árið 1990.
„Þetta er mikill áfangi og ég er
fyrst og fremst glaður yfir því að
það skuli vera Egypti og Arabi sem
nær honum, frekar en að það sé
vegna sjálfs mín. Leikjafjöldinn
sjálfur skiptir heldur ekki höfuð-
máli, það eru gæðin en ekki magnið
sem ráða úrslitum í knattspyrn-
unni,“ sagði Hassan eftir metleikinn
sem var vináttuleikur gegn Zambíu
og endaði 3:1, Egyptum í hag. Hann
náði ekki að skora en var nálægt
því og lagði upp eitt markanna.
„Hassan hefur náð þessum
áfanga vegna þess að hann helgar
sig knattspyrnunni algjörlega og
lætur lítið fyrir sér fara í einkalíf-
inu. Hann leggur sig alltaf allan
fram, bæði á æfingum og í leikjum.
Það er honum mikil hvatning að
reyna að komast með liði okkar í
lokakeppni HM,“ sagði Mahmoud
al-Gohary, þjálfari Egypta. Lið
hans á marga leiki framundan,
þann næsta gegn Líbíu í undan-
keppni Afríkumóts landsliða á
sunnudaginn. Egyptar eru í riðli
með Marokkó, Senegal, Alsír og
Namibíu í undankeppni HM og
gerðu jafntefli við Senegal í fyrsta
leik sínum en mæta Marokkó síðar í
þessum mánuði. Efsta liðið í riðl-
inum kemst í lokakeppnina.
Þjóðverjinn Lothar Matthäus átti
fyrra metið en hann lék 150 leiki og
hætti á síðasta ári. Skæðasti keppi-
nautur Hassans er Claudio Suarez
frá Mexíkó sem hefur leikið 149
landsleiki og er enn að.
Methafinn
Hassan á
HM 2002
!
" #$% $&'(
) *+$
" #+',-(. /
-$ 01
# "01' / 2
$ 0
3$
$ # "01'
!1" 4$ 5'"
6$
5
1 5'"
$ 0
7"
"8" # "01'
9$$ #6$"6$
3: /
0" ;1"%$ #
<$ $ " *=$' >
9$$ #"
/
4 $ ! $&'(
" ? 4
* *"$% $&'(
57 ! #.7($ / @
9 4$" AB
@2 @
$"% $ #+" /
*
A"
#+',-(. @
2
2>
2
2
>
/
/
@
2
>
/
@
HOSSAM Hassan er nafn sem fáir knattspyrnuáhugamenn hafa til
skamms tíma kannast við, að minnsta kosti í hinum svokallaða
vestræna heimi. En nú hefur Egyptinn sem ber þetta nafn öðlast
heimsfrægð. Hann setti í þriðjudagskvöld heimsmet í lands-
leikjafjölda þegar hann lék sinn 151. leik fyrir Egyptaland og útlit er
fyrir að þessi 34 ára gamli sóknarmaður bæti metið talsvert áður en
að því kemur að hann hættir að leika með landsliði Egypta.
Reuters
Félagar Hossam Hassan bera hann af velli eftir leikinn gegn
Zambíu í fyrrakvöld þar sem hann setti nýtt heimsmet.
JOAN Gaspart, forseti Barcelona,
segir að félagið kaupi ekki fleiri leik-
menn á þessari leiktíð. Fullt traust
sé borið til þeirra sem skipa liðið um
þessar mundir og þeim sé ætlað að
ná árangri.
JIM Jefferies, knattspyrnustjóri
Bradford, hefur sett Benito Car-
bone, Dan Petrescu og Stan Colly-
more á söluskrá. Jefferies segir leik-
mennina vera of dýra.
PSG hefur gert hálfs árs samning
við Mickael Madar, fyrrum fram-
línumann franska landsliðsins.
Félagið endurnýjaði ekki samning-
inn við hinn 32 ára Madar eftir síð-
asta tímabil þótt hann fengi að æfa
með félaginu.
FINNSKI sóknarmaðurinn Jari
Litmanen, sem gekk til liðs við Liv-
erpool á dögunum frá Barcelona,
segist ekki óttast samkeppnina um
framherjastöðuna, en þar þarf hann
að eiga við þá Emile Heskey, Mich-
ael Owen og Robbie Fowler.
ARRIGO Sacchi féllst snemma í
vikunni á að taka við þjálfun Parma
en á mánudaginn var Alberto Mal-
esani látinn fara frá félaginu. Sacchi
hætti hjá Atletico Madrid í febrúar
1999 og sagðist þá vera hættur að
þjálfa en lét svo til leiðast að taka við
Parma.
TOMAS Rosicky hefur gert 5 ára
samning við Borussia Dortmund.
Þýska liðið greiðir Spartak Prag um
1 milljarð króna fyrir hinn tvítuga
knattspyrnumann. Er þetta hið
mesta sem þýskt lið hefur greitt
félagi utan Þýskalands fyrir knatt-
spyrnumann.
DENNIS Wise, harðjaxlinn í liði
Chelsea, ætlar að vera um kyrrt hjá
Lundúnaliðinu. Wise reiddist mjög
þegar Claudio Ranieri, stjóri Chel-
sea, tók hann út úr liðinu og sagðist
Wise vilja komast burtu frá félaginu.
Leikmenn Chelsea töluðu um fyrir
Wise en það sem skipti sköpum var
það að móðir hans skipaði honum að
vera um kyrrt.
DIEGO Maradona, fyrrum knatt-
spyrnuhetja frá Argentínu, fær 30
milljónir króna fyrir að spila einn æf-
ingaleik í knattspyrnu. Hann hefur
samþykkt að spila með skoska liðinu
Dundee gegn gamla félaginu sínu,
Napólí frá Ítalíu.
DAGSETNING á umræddum leik
hefur enn ekki verið ákveðin, en leik-
urinn á að fara fram á heimavelli
Dundee, Dens Park. Í liði Dundee er
Claudio Caniggia, einn besti vinur
Maradona sem lék með honum í
landsliðinu á sínum tíma.
FÓLK
Nýverið voru birtar nokkrar tölu-legar staðreyndir um Ólympíu-
leikana í Sydney samanborið við síð-
ustu fimm leika. Þar kemur meðal
annars í ljós að konur hafa aldrei
verið fleiri en á síðustu leikum.
Leikarnir í Sydney sýna að þeir
eru stöðugt að stækka enda voru
keppendur 10.936 keppendur í 28
íþróttagreinum.
Konur létu meira að sér kveða á
leikunum í haust en nokkru sinni áð-
ur því af þeim 199 þjóðum sem sendu
keppendur voru aðeins níu sem ekki
sendu konur til keppni. Sambæri-
legar tölur fyrir Atlanta voru að af
þeim 197 þjóðum sem sendu þátttak-
endur höfðu 26 ekki konur í sendi-
nefnd sinni og árið 1984 þegar leik-
arnir voru haldnir í Los Angeles
voru þátttökuþjóðirnar 140 og 45
þjóðir sendu ekki konur til keppni.
Á sama tíma og karlkeppendum
fækkaði lítillega frá síðustu þrenn-
um leikum fjölgar konum jafnt og
þétt. Á leikunum í Seoul voru 7.150
karlar, 7.080 í Barcelona 1992, 7.006 í
Atlanta 1996 og í Sydney voru karl-
arnir 6.682. 2.477 konur kepptu í
Seoul, 2.845 í Barcelona, 3.624 í Atl-
anta og í haust voru 4.254 konur
meðal keppenda í Sydney.
Af þeim 199 þjóðum sem sendu
keppendur unnu 80 til gullverðlauna
í Sydney, fleiri en nokkru sinni fyrr
því 79 þjóðir fengu gull í Atlanta og
þar unnu 53 þjóðir til verðlauna en í
Sydney voru það 51 þjóð sem hlaut
verðlaun.
Á sama tíma og blaðamönnum og
ljósmyndurum fækkar milli leika,
voru 5.300 í Sydney en 5.954 í Atl-
anta fjölgaði starfsfólki sjónvarps-
stöðva mikið eða úr 9.880 í 11.000.
Aldrei fleiri konur
á Ólympíuleikum