Morgunblaðið - 31.01.2001, Side 1
TBL. 89. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 31. JANÚAR 2001
ÞRÁTT fyrir að nokkur fórnarlömb
jarðskjálftans á Indlandi hafi fundist
á lífi í gær, um 100 klukkustundum
eftir að skjálftinn reið yfir, eru
björgunarmenn nú nær úrkula vonar
um að finna fólk á lífi í rústunum.
Laust eftir hádegi að staðartíma
fundu rússneskir björgunarsveitar-
menn 75 ára gamla konu á lífi í
Bachao-umdæmi í Gujarat-ríki.
Nokkrum klukkustundum fyrr höfðu
björgunarsveitarmenn fundið móður
og eins árs gamlan son hennar á lífi í
rústum fjögurra hæða byggingar í
Ahmadabad, höfuðborg Gujarat.
Sextán ára drengur fannst á lífi í
bænum Anjar og hafði hann þá verið
96 klukkustundir undir tveggja
metra lagi af steinsteypu ásamt lát-
inni ömmu sinni. „Ég hrópaði ýmist á
hjálp eða svaf þennan tíma,“ sagði
Ketan Rathod sem gat aðeins hreyft
sig um örfáa sentímetra þar sem
hann var skorðaður á milli tveggja
súlna á heimili sínu. „Ég grét einnig
vegna ömmu minnar og hafði
áhyggjur af foreldrum mínum.“ Ket-
an fannst fyrst eftir að herinn var
kominn á staðinn með krana til að
fjarlægja rústir. Hermaður heyrði
óp hans og var hann færður úr rúst-
unum um tíuleytið í gærmorgun.
Rústir ruddar með jarðýtum
Þrátt fyrir að þessar sögur hafi
yljað björgunarfólki um hjartarætur
hefur það nær misst vonina um að
finna fólk á lífi. Á mörgum stöðum
var í gær farið að nota jarðýtur til að
ryðja rústir og nálgast rotnandi lík.
Bálkestir til að brenna líkin hafa
brunnið stöðugt um allt Gujarat-ríki
sl. þrjá daga og hefur verið fluttur
inn eldiviður frá nærliggjandi ríkjum
til að halda þeim við.
Jarðskjálftinn sem mældist 7,9
stig á Richter-kvarðanum reið yfir
Indland á föstudagsmorgun. Óljóst
er hve fórnarlömb hans eru mörg en
heyrst hefur að 16.000 til 100.000 hafi
látist.
Sorg Indverja hefur nú breyst í
reiði og beinir almenningur nú spjót-
um sínum að yfirvöldum og bygg-
ingaverktökum sem hafa látið hjá
líða að fylgja fyrirmælum um jarð-
skjálftavarnir við byggingu húsa. Að
sögn dagblaðsins Statesman í Kal-
kútta er „rannsóknar ekki þörf til að
staðfesta að tjónið hefði verið miklu
minna hefðu yfirvöld gert skyldu
sína og ófyrirleitnir byggingameist-
arar hefðu verið neyddir til að hafa
hemil á græðgi sinni“.
Að sögn Rögnu Söru Jónsdóttur,
sem stödd er á Indlandi á vegum
Morgunblaðsins, er nú fjöldi er-
lendra björgunarsveita í Ahmada-
bad. „Allir vilja hjálpa til en bæði
íbúar og fulltrúar hjálparstofnana
segja fjölmiðlum hér í Mumbai að
samhæfingu og skipulagningu að-
gerða sé verulega ábótavant,“ segir í
grein Rögnu Söru sem finna má á
miðopnu blaðsins í dag. Ragna Sara
segir dreifingu hjálpargagna líka
stórt vandamál, ekki hafi tekist að
koma þeim frá Ahmadabad út í þorp-
in og sveitirnar.
Hjálpargögn berast Indlandi nú
hvaðanæva. Meðal þeirra ríkja sem
komið hafa til aðstoðar er nágranna-
ríkið Pakistan en vanalega elda ríkin
grátt silfur. Rauði krossinn hóf form-
legar aðgerðir í gær og falast eftir 16
milljónum dollara í neyðaraðstoð.
Fórnarlömb jarðskjálftans talin vera á bilinu 16.000–100.000
Vonir dvína um að fólk
finnist á lífi í rústunum
AP
Þrjár konur líta yfir götuna í bænum Anjar þar sem nær 400 börn létust í jarðskjálftanum. Börnin voru í skrúð-
göngu í tilefni þjóðhátíðardagsins þegar jarðskjálftinn reið yfir og byggingarnar hrundu yfir götuna.
Ahmadabad. Anjar, Mumbai. Morgunblaðið, AFP, AP.
Indverjar sameinast/28
FRAKKAR létu gagnrýni Tyrkja
sem vind um eyru þjóta og birtu í
lögbirtingablaði sínu í gærdag lög
sem segja að Tyrkir hafi framið
þjóðarmorð á Armenum 1915.
Tyrkir hafa brugðist ókvæða við
lögunum og hafa hætt við ýmsa við-
skiptasamninga, einkum á sviði
varnarmála. Í gær sagði tyrkneska
sjónvarpsstöðin NTV að hætt hefði
verið við samning að upphæð 200
milljón dollarar, andvirði rúmlega 17
milljarða ísl. króna.
Forsætisráðherra Tyrklands,
Bulent Ecevit, sagði lagasetninguna
mikil vonbrigði.
Tyrkir vísa á bug ásökunum Arm-
ena um að Tyrkir hafi drepið yfir 1,5
milljónir Armena í fjöldamorðum á
árunum 1915–1917. Þeir segja að
nokkur hundruð þúsund Armenar og
þúsundir Tyrkja hafi látist í bardög-
um sem urðu þegar Tyrkjaveldi var
við að leysast upp.
Um 300.000 þúsund Armenar eru
búsettir í Frakklandi og barðist sam-
félag þeirra mjög fyrir setningu lag-
anna.
Tyrkir mót-
mæla lögum
París. Reuters.
Frakkland
EHUD Barak, forsætisráðherra
Ísraels, og Yasser Arafat, leiðtogi
Palestínumanna, munu hugsanlega
hittast á fundi síðar í vikunni. Sá fund-
ur yrði síðasta tilraun til að ná árangri
í friðarumleitunum fyrir kosningarn-
ar í Ísrael sem fram fara 6. febrúar.
Nýjustu skoðanakannanir benda
ótvírætt til þess að Ariel Sharon, leið-
togi Likud-bandalagsins, muni fara
með sigur af hólmi í þeim.
Palestínskir heimildarmenn AP-
fréttastofunnar halda því fram að
unnið sé hörðum höndum að undir-
búningi fundar í Egyptalandi á laug-
ardaginn. Ísraelska útvarpið flutti
einnig af því fréttir í gær að háttsett-
ur ísraelskur samningamaður, Gilead
Sher, og fyrrverandi yfirmaður Shin
Bet, ísraelsku öryggissveitanna,
Yisrael Hasson, væru á leið til Jórd-
aníu og Egyptalands til að koma við-
ræðum í kring. Skrifstofa Baraks
sagði hins vegar engan fund vera á
dagskránni.
Þrátt fyrir að takist að koma leið-
togunum á fund er ekki talið að draga
muni verulega til tíðinda í samninga-
viðræðum Ísraela og Palestínumanna
fyrir kosningarnar. Ef marka má
skoðanakannanir mun Sharon fara
með öruggan sigur af hólmi í þeim. Í
þeirri nýjustu, sem birt var í gær, er
fylgi Sharons 52% en Baraks 32%.
Könnunin var framkvæmd af Gallup
og tóku 1.300 Ísraelar þátt í henni.
Upplýsingaráðherra Palestínu,
Yasser Abed Rabbo, hvatti Palestínu-
menn með ísraelskan ríkisborgara-
rétt til að kjósa Barak og sagði sam-
stöðu gegn Sharon mikilvæga.
Palestínumenn segja leiðtogafund í bígerð
Sharon spáð sigri í
skoðanakönnunum
Jerúsalem. AP, AFP.
FJÖLDI ferðamanna hefur aldrei
verið meiri en í fyrra þegar 689
milljónir manna brugðu sér út
fyrir landsteina heimalandsins.
Það eru 50 milljónum fleiri en ár-
ið 1999 sem er 7,4% aukning.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi Alþjóðaferðamálaráðsins
(OMT). Tölurnar „fóru fram úr
björtustu vonum okkar“, sagði
framkvæmdastjórinn Francesco
Frangialli í gær.
Tekjur af ferðamönnunum eru
metnar 476 milljarðar dollara,
andvirði tæplega 41 þúsund millj-
arða ísl. króna.
Ólympíuleikarnir í Sydney,
Evrópumeistarakeppnin í fót-
bolta, heimssýningin í Hannover
og kristnihátíð í Róm eru meðal
þess sem jók fjölda ferðamanna.
Frakkland er enn sem fyrr vin-
sælasti áfangastaður ferða-
manna, 74,5 milljónir manna
sóttu það heim árið 2000 sem er
2% aukning. Næstflestir héldu til
Bandaríkjanna eða 52,7 milljónir
ferðamanna sem er 8,7% aukning
frá árinu á undan. Meðal tíu vin-
sælustu landanna voru Rússland,
þangað héldu 22,8 milljónir ferða-
manna sem er 23,2% aukning, og
Kína, en 31,2 milljónir manna
héldu þangað. Það er aukning um
15,5%. Sterk staða dollarans varð
til að metfjöldi Bandaríkjamanna
ferðaðist til Evrópu í fyrra. Bret-
land var eina landið í álfunni þar
sem ferðamönnum fækkaði.
Ferðamönnum til Miðaust-
urlanda fjölgaði mjög, allt til
haustsins þegar átökin milli
Ísraela og Palestínumanna hóf-
ust. OMT spáir því að færri leggi
land undir fót í ár en í fyrra eða
eingöngu 661 milljón manns
vegna samdráttar í bandarísku
efnahagslífi.
Metfjöldi á faraldsfæti
Madrid. AFP.
NETFYRIRTÆKIÐ Amazon.com
tilkynnti í gær að það myndi segja
1.300 manns upp eða 15% af starfs-
fólki fyrirtækisins. Tilkynningin
kom í kjölfar fréttar um að gengi
hlutabréfa í fyrirtækinu hefði lækk-
að um 25 sent á hlut á síðasta árs-
fjórðungi ársins 2000. Hreinn sölu-
hagnaður fyrirtækisins var 972
milljónir dollara á ársfjórðungnum
sem er 44% aukning frá sama árs-
fjórðungi 1999. Nettótap tímabilsins
var 545 milljónir dollara eða 1,53
dollarar á hlut. Á sama tíma í fyrra
var tapið 96 sent á hlut. Fyrirtækið
segist búast við að verða rekið með
hagnaði á síðasta ársfjórðungi þessa
árs.
1.300 sagt
upp hjá
Amazon
San Francisco. AFP.
♦ ♦ ♦