Morgunblaðið - 31.01.2001, Side 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Húrra, húrra, það dæmist rétt vera að Dóri hafi sigrað
andstæðinginn á teknisku bréflegu rothöggi.
Fjarskiptaþing samgönguráðuneytis
Tækifærin
blasa við
í fjarskiptum
ÁMORGUN efnirsamgönguráðu-neytið til fjar-
skiptaþings á Grand Hótel
Reykjavík. Hefst það
klukkan 12.15 með skrán-
ingu og erindi hálftíma síð-
ar. Ragnhildur Hjaltadótt-
ir, skrifstofustjóri í sam-
gönguráðuneyti er fundar-
stjóri. Hún var spurð um
markmið þingsins.
„Tilgangur fjarskipta-
þings er að ræða og meta
stöðu fjarskipta hér á landi
og þau tækifæri sem blasa
við með breyttum sam-
skiptum fyrirtækja, stofn-
ana og einstaklinga.“
– Hver er aðdragandinn?
„Á undanförnum árum
hafa breytingar í heimi
fjarskipta og tækni verið
ótrúlegar. Fjarskiptin eru orðin
burðarás allra samskipta okkar,
jafnt í leik og starfi. Í kjölfar nýrra
fjarskiptalaga er öflug samkeppni
orðin að veruleika á fjarskipta-
markaðinum, til hagsbóta fyrir
notendur. Það eru spennandi
tímar, ný kynslóð farsíma væntan-
leg. Tækifæri landsbyggðar til
þátttöku í mennta- og atvinnulífi
hafa aukist og svo mætti lengi telja
– þetta er aðdragandinn.“
– Hvað mun fara fram á fjar-
skiptaþinginu?
„Á þinginu mun fjölbreyttur
hópur frummælenda flytja erindi.
Þrjú burðarerindi verða flutt af
þeim Sturlu Böðvarssyni sam-
gönguráðherra, sem opnar þingið,
Mark Anderson, framtíðarsér-
fræðingi á sviði tölvu og fjarskipta-
mála, og Bjarna Ármannssyni, for-
stjóra Íslandsbanka–FBA. Auk
þessu munu ellefu styttri erindi
varpa ljósi á tækifæri sem við blasa
á ákveðnum sviðum.“
– Hvaða málefni verður helst
fjallað um?
„Sturla Böðvarsson mun fjalla
um núverandi stöðu fjarskipta og
áhrif nýrra fjarskiptalaga á þetta
umhverfi – hvað er í vændum hjá
stjórnvöldum og hvað er framund-
an í þessum málum almennt. Mark
Anderson ætlar að fjalla um heim-
inn árið 2005 – hver er framtíðar-
sýnin. Hann er sá maður sem m.a.
heldur Bill Gates upplýstum um
fjarskiptaheiminn. Mark Ander-
son er Bandaríkjamaður og rit-
stjóri þekkts og öflugs tímarits,
Strategic News Service, sem
fjallar um helstu tíðindi og framtíð-
arsýn á sviði tölvu- og fjarskipta í
heiminum í dag. Bjarni Ármanns-
son mun tala um fjárfestingartæki-
færi í fjarskiptum og tengdum
greinum hér á landi, sem er mjög
gott dæmi um nýja og breytta
hugsun í fjarskiptum.“
– Um hvaða málefni fjalla styttri
erindin?
„Sú umfjöllun er mjög víðtæk,
allt frá fjarskiptafyrirtækjunum
sjálfum til þeirra vaxtarsprota sem
byggja sína tilveru á
þróun fjarskipta. Þar
má nefna ferðaþjón-
ustu, fjölmiðlun,
kennslu, stafrænt gagn-
virkt sjónvarp og IP-
símatæknina. Þá má
nefna þráðlaus fjarskipti og þeirri
spurningu verður varpað upp
hvernig „þriðja kynslóð farsíma“
verði notuð. Það eykur á eftirvænt-
inguna að í lok þingsins mun Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra
kynna ákvörðun sína um hvaða að-
ferð verður beitt við úthlutun á
svokölluðum „þriðju kynslóðar
farsímaleyfum“ – en þetta fyrir-
bæri er ný kynslóð farsíma sem
býður upp á mikinn flutningshraða
og fjölbreytta margmiðlunarþjón-
ustu.“
– Munu nýju fjarskiptalögin
leiða til breytinga sem varla eru
fyrirséðar?
„Fjarskiptalögin byggjast á
tveimur meginstoðum. Annars
vegar almennum leikreglum sem
eiga að tryggja samkeppni og að-
gang allra, m.a. annarra símafyr-
irtækja, að grunnneti Landssím-
ans. Hins vegar á ákvæðum sem
eiga að tryggja aðgang allra lands-
manna að ákveðinni lágmarksþjón-
ustu á sambærilegum kjörum. Með
lögunum er því lagður grunnurinn
að því að Ísland verði í fremstu röð
tæknivæddra ríkja með ódýra,
góða og aðgengilega fjarskipta-
þjónustu. Fjarskiptalögin eiga að
stuðla að því að þessum markmið-
um verði náð. Það er mjög erfitt að
sjá fyrir sér hver þróunin verður –
möguleikarnir virðast ótæmandi
nema hvað snertir hugarorku
mannsins. Tæknilegir möguleikar
virðast sem sagt óþrjótandi en þá
er spurningin sú: Hvernig beita
menn hugarorkunni, hvernig verð-
ur tæknin notuð? Eða eins og yf-
irskrift fjarskiptaþings segir:
„Tækifærin blasa við í fjarskiptum,
hvernig ætlum við að nýta þau?“
– Hvaða málefni hvað snertir
fjarskipti eru mest aðkallandi nú
um stundir?
„Aðalmálin á næst-
unni verða einkavæðing
Landssímans og úthlut-
un „þriðju kynslóðar
farsíma,“ svo sem fyrr
gat. Að jafna aðgang
landsmanna að fjar-
skiptaþjónustu er mikilvægt verk-
efni í ráðuneytinu.“
– Verða svona fjarskiptaþing
haldin með jöfnu millibili?
„Það er von mín að fjarskipta-
þing 2001 marki upphafið að öfl-
ugri umræðu og upplýsingum um
stöðu og framtíð í fjarskiptamálum
bæði hér á landi og í heiminum öll-
um.“
Ragnhildur Hjaltadóttir
Ragnhildur Hjaltadóttir fædd-
ist 28. ágúst 1953 í Reykjavík.
Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1973 og lögfræðiprófi frá Há-
skóla Íslands 1979 og framhalds-
námi í þjóðarétti í Genf í Sviss
1981 frá Institut Universitaire de
Hautes Études. Hún hefur starf-
að í dómsmálaráðuneytinu og í
samgönguráðuneytinu þar sem
hún er skrifstofustjóri nú. Hún
er formaður Hollvinasamtaka
Háskóla Íslands. Ragnhildur á
tvær dætur.
Anderson
fjallar um fjar-
skiptaheim-
inn árið 2005