Morgunblaðið - 31.01.2001, Qupperneq 18
ERLENT
18 MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞINGNEFND í
Indónesíu, sem rann-
sakar tvö spillingar-
mál, hefur komist að
þeirri niðurstöðu að
Abdurrahman Wahid
forseti sé líklega viðr-
iðinn annað þeirra og
hafi gerst sekur um
lögbrot í hinu málinu.
Varnarmálaráðherra
landsins hefur varað
við því að herinn kunni
að taka völdin í sínar
hendur ef deilur forset-
ans og þingsins leiddu
til glundroða í landinu.
Þingnefndin gekk
ekki svo langt í skýrslu
sinni að leggja til að þingið höfðaði
mál á hendur forsetanum til embætt-
ismissis. Búist er við að þingið ákveði
á morgun hvernig bregðast eigi við
skýrslunni og margir sérfræðingar í
stjórnmálum Indónesíu telja líklegt
að það ávíti forsetann fremur en
reyna að svipta hann embættinu.
Ákveði þingið að ákæra forsetann til
embættismissis verður ekki hægt að
hefja réttarhöldin fyrr en eftir að
minnsta kosti hálft ár og óttast er að
slík málshöfðun myndi leiða til
stjórnlagakreppu og blóðugra átaka
milli stuðningsmanna og andstæð-
inga forsetans.
Annað hneykslismál-
ið er kennt við mat-
vælastofnun indónes-
íska ríkisins, Bulog.
Nokkrir gamlir sam-
starfsmenn Wahids,
þeirra á meðal nuddari
hans, eru sakaðir um að
hafa dregið sér and-
virði rúmlega 350 millj-
óna króna úr lífeyris-
sjóði stofnunarinnar. Í
skýrslu þingnefndar-
innar segir að Wahid
hafi óskað eftir því að
lífeyrissjóðurinn yrði
notaður til að fjár-
magna hjálparstarf í
Aceh-héraði. Forsetinn
hefur viðurkennt að hafa íhugað
þetta en ákveðið að nota ekki sjóð-
inn. Í skýrslunni er hann þó sakaður
um að hafa átt þátt í fjárdrætti nokk-
urra manna sem hafi tekið fjár-
munina úr sjóðnum í nafni forsetans
og notað þá í eigin þágu.
Wahid hefur sagt að í stað þess að
nota fjármuni sjóðsins hafi hann
þegið gjöf að andvirði 170 milljóna
króna frá soldáninum af Brúnei. Í
skýrslunni segir að forsetinn hafi
brotið lögin með því að halda þessari
gjöf leyndri og hann hafi ekki gert
grein fyrir því hvernig peningarnir
voru notaðir.
Í skýrslunni segir að forsetinn hafi
veitt þjóðinni rangar upplýsingar um
gjöf soldánsins og hafi að öllum lík-
indum átt þátt í útborgun og notkun
fjármunanna úr lífeyrissjóði Bulog.
Wahid hélt sjónvarpsávarp í
fyrrakvöld og áréttaði að hann væri
saklaus af öllum sakargiftunum.
Óttast blóðsúthellingar
Líklegt er að skýrslan verði til
þess að pólitíska spennan í landinu
magnist til muna og indónesísk dag-
blöð vöruðu við því í gær að hún gæti
leitt til blóðsúthellinga. Um 10.000
mótmælendur söfnuðust saman við
þinghúsið í fyrradag og lögreglan
beitti táragasi og skaut viðvörunar-
skotum upp í loftið til að dreifa þeim.
Hörðustu andstæðingar Wahids á
þinginu kröfðust þess að hann yrði
sviptur embættinu. Hann virðist
hins vegar njóta stuðnings Mega-
watis Sukarnoputris varaforseta, en
flokkur hennar er með nógu mörg
þingsæti til að geta komið í veg fyrir
málshöfðun á hendur forsetanum.
Mahfud varnarmálaráðherra
sagði að enn hefðu engar vísbend-
ingar komið fram um að herinn
hygðist taka völdin í sínar hendur.
Hann varaði hins vegar við því að
herinn kynni að grípa til þess ráðs ef
deilur stjórnmálamannanna leiddu
til stjórnleysis eða ef hætta væri tal-
in á að landið leystist upp.
Wahid var leiðtogi stærstu sam-
taka múslima í Indónesíu þegar
hann komst til valda fyrir fimmtán
mánuðum. Hann er hálfblindur og
heilsuveill og ólíklegt þykir að hann
haldi embættinu þar til kjörtímabili
hans lýkur árið 2004. Hann hefur
verið gagnrýndur fyrir að svíkja lof-
orð sín um að koma á lýðræðislegum
og efnahagslegum umbótum eftir 32
ára einræði forvera hans í forseta-
embættinu, Suhartos.
Varað við blóðsúthellingum og valdaráni vegna mikillar ólgu í stjórnmálum Indónesíu
Wahid forseti
bendlaður við
spillingarmál
AP
Námsmenn mótmæla spillingu í Indónesíu við forsetahöllina í Jakarta.
Jakarta. Reuters, AP.
Abdurrahman
Wahid
„ÞEIR sem hafa gert rangt verða
látnir sæta ábyrgð,“ sagði Alan Mil-
burn, heilbrigðisráðherra Breta, í
gær eftir að gerð var opinber skýrsla
þar sem rakið er hvernig líffæri voru
numin úr látnum börnum á Alder
Hey barnaspítalanum í Liverpool,
þeim stærsta í Evrópu, án leyfis for-
eldra. Hollenski læknirinn Dick van
Velzen, sem álitinn er bera ábyrgð á
athæfinu, á að öllum líkindum dóms-
mál yfir höfði sér, en það var á með-
an hann starfaði við spítalann, 1988–
1995, að það tíðkaðist að því er virtist
langt umfram það sem eðlilegt má
telja, að líffærin væru tekin.
Það vekur almennan hrylling að
höfuð barna voru geymd, heil fóstur
og jafnvel heilt barn. Fjórir af yf-
irmönnum spítalans, þar á meðal
framkvæmdastjóri hans og stjórnar-
formaður, hafa þegar sagt af sér.
Læknar og samtök lækna hafa lát-
ið í ljós von um að málið verði ekki til
að torvelda rannsóknir.
Skelfilegt lestrarefni
Fyrirfram var búið að vara við því
að skýrslan væri skelfilegt lestrar-
efni og það er hvergi ofmælt. Í henni
er því lýst hvernig líffærum var safn-
að og þau geymd. Þar á meðal eru
heilar, augu úr fóstrum, 1.500 heil
fóstur, sem fæddust andvana eða
fyrir tímann, nokkur heil barnshöfuð
og jafnvel heil barnslík. Á meðal
þessa er einnig illa skaddað höfuð af
ellefu ára barni. Það er frá því á sjö-
unda áratugnum og hefur því verið
geymt frá því áður en hollenski
læknirinn kom til starfa.
Í skýrslunni er komist að þeirri
niðurstöðu að læknirinn ætti ekki að
fá að stunda lækningar framar.
Einnig er stungið upp á því að lög
um vefsýni og líkamshluta verði hert
og inn í þau verði bætt kafla um við-
urlög við því að brjóta lögin. Jafn-
framt er bent á að mikill munur sé á
hvað tíðkist á einstökum sjúkrahús-
um og í einstökum landshlutum og
því lagt til að sama eyðublaðið verði
lagt fyrir alla foreldra er missa börn
sín. Þar skipti öllu máli að um raun-
verulega upplýst samþykki sé að
ræða.
Læknir sem laug –
stjórn sem brást
Skýrslan var lögð fyrir þingið í
gær og rædd þar. Þar ályktaði Mil-
burn að það hefði verið skortur á
virðingu og skilningskortur á kring-
umstæðum sem leitt hefði til þess að
líffærum var safnað með þessum
hætti. Læknirinn hefði brotið allar
siðareglur, engu skeytt um óskir for-
eldra, sem hefðu lagst gegn fullri
krufningu, og aldrei veitt samþykki
fyrir að líffæri yrðu fjarlægð úr látn-
um börnum þeirra. Læknirinn laug
að foreldrunum, að öðrum læknum
og stjórn spítalans. Hann stal lækn-
isskýrslum, falsaði tölfræði og
skýrslur og hvatti annað starfsfólk
til þess sama, sagði ráðherrann.
Ráðherrann ályktaði einnig sem
svo að stjórn spítalans hefði brugðist
eftirlitsskyldu sinni og ekki reynt að
stöðva framferði læknisins, bæði
vegna skorts á faglegum vinnu-
brögðum og tilfinningaskorti, bæði
af hálfu spítalans og háskólans í
Liverpool sem sjúkrahúsið tilheyrir.
Líffæri fjarlægð úr börnum
Opinber skýrsla
staðfestir verstu
grunsemdir
London. Morgunblaðið.
CHRISTINE Deviers-Joncour, eitt
aðalvitnið í miklu spillingarmáli, sem
nú er fyrir rétti í Frakklandi, sagði í
gær, að hún hefði „misst alla tilfinn-
ingu fyrir verðgildi peninga“ er henni
voru greidd hundruð milljóna ís-
lenskra króna fyrir að hafa áhrif á
ástmann sinn, Roland Dumas, fyrr-
verandi utanríkisráðherra.
Deviers-Joncour, fyrrverandi fyr-
irsæta, 53 ára gömul, sagði frá því, að
olíufélagið Elf-Aquitaine hefði greitt
sér nærri 900 milljónir króna fyrir að
hafa áhrif á ákvarðanir Dumas
snemma á síðasta áratug.
„Það var eins og að koma inn í nýj-
an heim að vinna fyrir Elf. Þar lék allt
á hundruðum og milljörðum króna og
þegar á leið missti ég alla tilfinningu
fyrir verðgildi peninga,“ sagði De-
viers-Joncour en hún, Dumas, fjórir
háttsettir ráðamenn hjá Elf og kaup-
sýslumaður í París eru sökuð um að
hafa misnotað eigur olíufélagsins,
sem var ríkisfyrirtæki á þessum tíma.
Hafa réttarhöldin um spillinguna í
forsetatíð François heitins Mitterr-
ands vakið mikla athygli enda snúast
þau um kynlíf, mútur og fjármála-
brask hjá fína fólkinu í Frakklandi.
Fyrsta þóknunin
170 millj. kr.
Aðalvitni saksóknarans er eins og
fyrr segir Deviers-Joncour en hún
fletti ofan af öllu málinu í sjálfsævi-
sögu sinni, „Hóru lýðveldisins“. Þar
segir hún, að Alfred Sirven, fyrrver-
andi yfirmaður Elf, sem nú fer huldu
höfði á Filippseyjum, hafi ráðið sig til
starfa vegna sambands hennar við
Dumas.
Deviers-Joncour sagði, að fyrsta
greiðslan til sín hefði verið 170 millj-
ónir króna fyrir að beita sér fyrir því
við Dumas, að Loik Le Floch-Prig-
ent, einn hinna ákærðu í málinu, yrði
forstjóri Elf. Peningana hefði hún
notað til að kaupa glæsihús, sem not-
að var til ástafunda með utanríkisráð-
herranum. Húsið valdi hún í sam-
vinnu við Gilbert Miara, sem einnig
er ákærður í málinu, en hann var líka
ástmaður hennar á þessum tíma.
Sagði Deviers-Joncour, að hún hefði
notað Miara til að ala á afbrýðisemi
Dumas.
Freigátur til Taívans
Deviers-Joncour segir, að síðari
greiðslan hafi verið rúmlega 720
millj. kr. og hafi Sirven innt hana af
hendi í febrúar 1992 eftir að tekist
höfðu samningar um sölu á sex frei-
gátum til Taívans.
Hafði Dumas lengi verið andvígur
sölunni þar sem hún gæti styggt Kín-
verja og hann heldur því raunar fram,
að hann hafi aldrei skipt um skoðun.
Mitterrand sjálfur hafi tekið af skarið
um söluna.
Þetta mál er aðeins eitt af nokkr-
um, sem varða Elf, en á sínum tíma
var fyrirtækið öðrum þræði leynileg-
ur mútusjóður, sem stjórnmálamenn
til hægri og vinstri gátu ausið úr.
Stefnt er að því að ljúka réttarhöld-
unum 13. febrúar nk. og eiga hin
ákærðu yfir höfði sér allt að fimm ára
fangelsi og miklar sektir.
Aðalvitnið í málinu gegn Dumas, fyrrverandi
utanríkisráðherra Frakklands, og Elf-olíufélaginu
Missti allt skynbragð
á verðgildi peninga
París. AFP, Daily Telegraph.
AP
Christine Deviers-Joncour (t.h.) ásamt lögfræðingi sínum.