Morgunblaðið - 31.01.2001, Side 49
skólans við Sund
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 49
Holly McBuire - Fyrirsæta
Holly Maguire, 21 árs, b‡r í Basildon Essex í Bretlandi. Hún
er fyrirsæta a› atvinnu og birtist reglulega í blö›unum
The Times, The Sun og ö›rum flekktum dagblö›um.
Holly prófa›i ERDIC flar sem hún er mjög á móti
fegrunara›ger›um.
„Eftir a› hafa grennst um nokkur kíló höf›u
brjóstin mín minnka› verulega og ég haf›i
miklar áhyggjur. Eftir a› hafa lesi› um
ERDIC ákva› ég a› slá til. Ég haf›i aldrei
vilja› ígræ›slu flótt mér hef›i veri› bo›i›
hún ókeypis.“
„fia› var au›velt a› fylgja ERDIC
prógramminu og hafa brjóst mín stækka› frá
32A til 32C á rúmlega 10 vikum.“
Ann Louise Gittleman - Næringarsérfræ›ingur
„Sem rithöfundur og tí›ur talsma›ur um heilbrig›is-
mál kvenna, er ég í stö›ugri leit a› n‡jum vörum
sem á hollan og náttúrulegan hátt stu›la a›
líkamlegu, andlegu og tilfinningalegu heilbrig›i og
velfer› kvenna. Ég var› vitni a› sláandi árangri af ERDIC og
sem ánæg›ur neytandi af vörunni mæli ég stolt me› ERDIC
vi› allar flær konur sem vilja bæta á sér barminn.“
ERDIC-prógrammi› hefur fari› sigurför í Evrópu og
Skandinavíu og nú er fla› loksins komi› til Íslands.
Lesi› um ERDIC á sló›inni: www.erdic.co.uk
Pantanir og fyrirspurnir um ERDIC eru í
síma: 564-0062 alla virka daga frá 13-17 e›a
gegnum tölvupóst: erdic@binet.is
Mynd: Vicky Walberg (ensk fyrirsæta/Miss UK 1997):
„Brjóstin mín stækku›u um 2 skálastær›ir á 16 vikum“
Uppl‡singa og pöntunarsími: 5640062
Netfang: erdic@binet.is • Veffang: www.erdic.co.uk
N‡ fljónusta: Frí heimsending á stór Reykjavíkur svæ›inu og Su›urnesjum!
Vilt flú stærri e›a
stinnari brjóst ?
FULLT var út úr dyrum áÍslenska drauminn og 101Reykjavík á Kvik-myndahátíðinni í Gauta-
borg um helgina.
Á föstudaginn var tóku biðraðir
að myndast við kvikmyndahúsið
Drekann löngu fyrir kl. 18 þegar 24.
kvikmyndahátíðin í Gautaborg var
sett. Framkvæmdastjórinn, Gunnar
Bergdahl, kynnti vígslumyndina,
norsku dogmamyndina Når nettene
blir lange eftir Mona J. Hoel og not-
aði tækifærið og tilkynnti að unnið
væri að því að fá afhendingu Gull-
baggaverðlaunanna flutta til Gauta-
borgarhátíðarinnar (í ár fer hún
fram í Stokkhólmi að vanda, hinn 5.
febrúar nk.) Síðan gaf hann menn-
ingarmálaráðherra Svía, Maritu
Ulvskog, orðið, en hún hélt vígslu-
ræðu, með hugleiðingu um okkar
tíma ótta við alvöru og okkar tíma
þrá eftir alvöru.
Miðnætursýning
Drekinn er miðstöð hátíðarinnar
og annað stærsta kvikmyndahúsið
sem hún hefur til umráða, með 713
sæti. Eflaust voru einhverjir í bið-
röðinni að krækja sér í síðustu mið-
ana á íslensku mynd föstudags-
kvöldsins: 101 Reykjavík eftir
Baltasar Kormák, sem var miðnæt-
ursýning fyrir fullum sal Drekans,
þrátt fyrir fjölmenna vígsluhátíð
það kvöld.
Strax í byrjun síðustu viku, þ.e.
mörgum dögum áður en hátíðin
hófst var uppselt á laugardagssýn-
ingarnar bæði á 101 Reykjavík, og
myndina Íslenski draumurinn sem
einnig var sýnd tvisvar um helgina.
Eins og áður hefur komið fram í
Morgunblaðinu er Íslenski draum-
urinn eftir Róbert I. Douglas ein af
átta norrænum myndum sem
valdar voru til þátttöku í keppninni
um Norrænu kvikmyndaverðlaun-
in. Frumsýningin fór fram í Dreka-
bíóinu á öðrum degi hátíðarinnar,
síðla laugardags, að leikstjóranum
viðstöddum ásamt aðalleikaranum
Þórhalli Sverrissyni. Annar af
tveimur framleiðendum mynd-
arinnar, Jón Fjörnir Thoroddsen,
var einnig mættur. Stemmningin
var mettuð af athygli og ýmis atriði
vöktu óspillta kátínu. Það voru
hressir og glaðir félagar sem frétta-
ritari hitti að lokinni sýningu og að-
spurðir kváðust Þórhallur og Jón
Fjörnir mjög ánægðir með við-
brögð. „Það var ekki hlegið eins
mikið og á sýningum heima en það
kom heill hópur af fólki að þakka
fyrir og allir höfðu eitthvað jákvætt
að segja.“
Talandi höfuð
Daginn eftir þegar Róbert I.
Douglas sat fyrir svörum á dag-
skránni „Talking Heads“ þar sem
útvaldir leikstjórar mæta í yf-
irheyrslu, virtist hann á sama máli
og taldi að hinn gráglettni undir-
tónn myndarinnar hefði náð yf-
irhöndinni með þessum fyrstu er-
lendu áhorfendum hennar. Enska
textann kvað hann óþarflega fyr-
irferðarmikinn og tefja mynd-
skynjun áhorfandans.
Alls keppa átta myndir til úrslita
um Norrænu kvikmyndaverðlaunin
sem afhent verða á laugardaginn
kemur. Aðstandendur Draumsins
fylgdust af áhuga með hinum nor-
rænu keppnismyndunum – á milli
þess sem þeir unnu við að kynna
eigin verk – og Jón Fjörnir lýsti
strax hrifningu sinni á þeirri norsku
að hinum óséðum. Augljóst var að
aðstandendur Íslenska draumsins
voru fyllilega sáttir við þann heiður
að mynd þeirra var valin til þátt-
töku, hver svo sem verðlaunin hlýt-
ur, enda var laugardagssýningin
allra fyrsta sýning Íslenska
draumsins á erlendri grund.
Hvort hátíðin leiðir til áframhald-
andi ferðalaga og sölu myndarinnar
mun tíminn leiða í ljós en í frétt há-
tíðarblaðsins Draken sem kemur út
daglega meðan á hátíðinni stendur,
mátti lesa að leikstjórinn Róbert
Douglas gæti nú dregið andann
léttar, því síðastliðið föstudags-
kvöld var fjármögnunin á næstu
mynd hans komin á hreint. Sú
mynd verður í svipuðum stíl, gam-
anmynd með alvöru í, samtímalýs-
ing og kostnaður í lágmarki. Mynd
um taílenska innflytjendur á Ís-
landi.
Robert I. Douglas situr fyrir svörum á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg.
Gott
gengi í
Gauta-
borg
Kvikmyndahátíðin í
Gautaborg hófst um síð-
ustu helgi en þar eru
m.a. sýndar íslensku
myndirnar Íslenski
draumurinn og 101
Reykjavík. Kristín
Bjarnadóttir er okkar
maður á staðnum.
Á Drekanum eftir frumsýningu
á Íslenska Draumnum: Þórhall-
ur Sverrisson sem leikur Tóta
og Jón Fjörnir Thoroddsen, einn
framleiðenda.
Íslenski draumurinn og 101 Reykjavík á faraldsfæti
ÁRSHÁTÍÐ Menntaskólans við
Sund fór fram á sunnudaginn.
Nemendurnir héldu hvíld-
ardaginn hátíðlegan í þetta
skipti en lík-
legast hafði
verkfall kenn-
ara einhver
áhrif á daga-
valið.
Samkvæmt
hefðinni hófu
nemendur
veisluhöldin
snemma, en
bekkjarfélagar
hittast löngu
fyrir hádegi í
morgunteitum.
Sumir bekkj-
anna fara einn-
ig í sund, keilu
eða gera eitthvað glannalegra.
Kvöldverðarskemmtun var
haldin á Broadway með til-
heyrandi skemmtiatriðum og
verðlaunaafhendingum.
Um kvöldið var svo haldin
dansleikur á sama stað þar sem
m.a. hljómsveitirnar Sálin hans
Jóns míns og Ný dönsk samein-
uðust undir nafninu Draum-
urinn og héldu uppi stanslausu
stuði fram eftir nóttu. Sam-
kvæmt Ómari Arnari Ólafssyni,
forseta skólafélagsins, eða Ár-
manni eins og hann kallast þar,
lukkaðist árshátíðin prýðisvel.
Árshátíð Mennta-
Ásbjörn Jónasson með
heiminn í höndum sér, en
hann var kosinn bjartasta
von MS-inga.
Morgunblaðið/Jón SvavarssonKnattspyrnulið MS, sem sigr-
aði á móti menntaskólanna,
var heiðrað með blómum.
Ungfrú og herra MS voru valin Brynja Björns-
dóttir og Hannes Óli Ágústsson.
Skemmtun
frá morgni
til kvölds
Í KVÖLD kl. 21 hefjast tónleikar með hljómsveitinniZefclop. Hún hefur verið starfrækt í þessari mynd írúmt ár, og flytur frumsamin lög Ragnars Emils-
sonar gítarleikara. Auk hans skipa hljómsveitina
trommuleikarinn Þorvaldur Þór Þorvaldsson, bassaleik-
arinn Birgir Kárason og Þorbjörn Sigurðsson sem leikur
á hljómborð. Í kvöld munu tveir gestaleikarar bætast í
hópinn, Birgir Freyr Matthíasson sem leikur á trompet
og Eyjólfur Þorleifsson saxófónleikari.
Stemmningin í stefnunum
Tónlistarstefnur einsog jass, latín, fönk og rokk ein-
kenna tónlist Ragnars. „Þetta eru „instrúmental“ lög eftir
mig með áhrifum héðan og þaðan. Ég tek það sem mér
finnst skemmtilegt úr hverri stefnu og sem upp úr því.
Tónsmíðarnar byggja mikið á djassi því ég er að læra
hann. En tónlistin er ekki hreinn djass, það er rokk í
henni. Hún er heldur ekki hreint rokk. Það eru gangar í
lögunum sem endurtaka sig og hver hljóðfæraleikari fær
að spreyta sig á sólói yfir því, líkt og í djassi. En síðan eru í
lögunum samdir kaflar, meira einsog í rokki.“
Ragnar hefur samið lögin undanfarin tvö til þrjú ár, en
nokkur eru bara nýkomin í heiminn. „Þetta kemur hægt
og rólega,“ segir Ragnar sem er iðinn við kolann.
„Mér finnst ég ekki vera undir áhrifum neinna sér-
stakra tónlistarmanna, frekar að stemmning hverrar
stefnu fyrir sig hafi áhrif á mig. Rokkbakgrunnurinn skín
í gegn en hann er flæktur með smá djassflækjum til að
gera þetta meira spennandi.“
Innihald í smekklegum lögum
Ragnar vill samt ekki segja að tónlistin hans sé sér-
staklega framúrstefnuleg. „Hún er ekki beint frumleg, en
samt get ég ekki sagt að ég hafi heyrt beinlínis þessa tón-
list áður. Ég þekki ekki marga sem eru í alveg sömu pæl-
ingum. Og þannig er tónlistin kannski pínu persónuleg.
Bræðingur er kannski ekki svo ósvipaður, en mér finnst
stundum koma svona hljóðfæraleikarahetjubragur í
hann, og ég er ekki sérstaklega spenntur fyrir því. Ég vil
frekar að lagið sjálft sé smekklegt og hafi eitthvert inni-
hald. Ég vil hvorki hetjugítara né skjáauglýsingastemmn-
ingu,“ segir Ragnar gítarleikari og tónskáld að lokum.
Rokk í djassflækjum
Morgunblaðið/Kristinn
Ragnar með sína menn á bak við sig. F.v: Eyjólfur,
Birkir Freyr, Þorvaldur Þór og Birgir.
Zefclop spilar í Kaffileikhúsinu