Morgunblaðið - 31.01.2001, Blaðsíða 52
52 MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
andi fólk og eru svo alveg óhrædd að
steypa saman allskonar týpum og
aðferðum. „Svo skulum við sjá hvað
gerist“ er kannski þeirra kjörorð.
Hér í Reykjavík hefur Tilraunaeld-
húsið staðið sig eins og hetja í þess-
um efnum. Batofar var heldur ekki
seinn að koma sér í samband við Eld-
húsfólkið þegar þau voru hér á landi.
Leitað að norðri
Í sumar ferðaðist Batofar-fólkið til
norðursins – Íslands, Noregs og
Finnlands – í leit að spennandi og
áhugaverðum listamönnum. Þau
voru stödd hér í nokkra daga og
hittu alls konar fólk. Þau eru dugleg
að spyrja og með ákaflega lífrænum
hætti fréttu þau af einum í gegnum
annan og svo framvegis.
Íslensk helgi var svo haldin í Bat-
ofar í vetur auk þess sem Bang Gang
spilaði síðar í sömu viku. Íslensku
kvöldin hétu Chois Islandais, Kitch-
en Motors og Thule Musik. Þarna
spiluðu hljómsveitirnar múm, Org-
BATOFAR er klúbbur og menning-
arsetur sem flýtur við festar á Signu
í París. Húsnæðið er gamalt björg-
unarskip með litlum vita sem hefur
verið breytt í fallegan tónleikastað.
Uppi á dekkinu er dúllulegur veit-
ingastaður, en undir þiljum er tón-
leikasalur og ýmis skringileg afdrep.
Allt innanstokks er mjög í takt við þá
starfsemi sem þar fer fram. Allt er
pínulítið skrýtið og óreglulegt í
forminu.
Julie Demuer er stjórnandi skips-
ins og með aðstoðarmönnum sínum
hefur hún búið til mjög þétta og
heillandi senu, sem er vel sótt af Par-
ísarbúum. Áherslan er mest á raf- og
tilraunatónlist. Heimamenn hafa
spilað og sungið en einnig hafa þau
leitað til annarra landa og staðið fyr-
ir uppákomum ættuðum frá Berlín,
Barselóna, Búdapest og London.
Svo hafa þau líka farið með hug-
myndina til New York og haldið Bat-
ofar-kvöld á Hudson-ánni. Þau fara
um borgirnar og þefa uppi spenn-
elkvartettinn Apparat og Big Band
Brútal. Tveir dansarar frá Íslenska
dansflokknum fluttu verkið Kippa,
við undirleik múm. Sjón, Baldur og
Ása Júníusdóttir fluttu ljóð eftir
Sjón í tali og söng með undirleik.
Gjörningaklúbburinn gerði tvo
gjörninga, „We are the World, We
are the Children“ á fimmtudags-
kvöldinu og „Blow Job“ á föstudags-
kvöldinu við undirleik Orgelkvar-
tettsins. Egill Sæbjörnsson
trommaði við eigin glæru-danssýn-
ingu. Þá léku Hilmar Jensson og
Matthías Hemstock, auk þess sem
Margét Sara Guðjónsdóttir dansaði
við undirspil Óla Björns, trommu-
snillings úr Big Bandi Brútal. Inni í
skrýtnu „hangsunum“ hafði óska-
barnið Auxpan gert hljóðkrot (e. so-
nic graffiti). Thule Musik sá svo um
að koma öllum í brjálað stuð á laug-
ardagskvöldinu. Á þeirra vegum á
Signu voru plötusnúðarnir Agzilla,
Exos, Jónas Þór og Árni Valur og
svo Biogen, Sanasol og Ruxpin. Þá
var allt stappað í bátnum og á tíma-
bili biðu fleiri en 150 manns í röð á
árbakkanum eftir að komast í partý í
káetunum. En þetta er einmitt það
frábæra sem þeim á Batofar hefur
tekist, að búa til sérstaka blöndu af
klúbbi þar sem fólk kemur til að
dansa og djamma og menningarmið-
stöð. Batofar sýnir líka stuttmyndir
og myndbandsverk, en eitthvað hef-
ur klúðrast með það hér heima því
engar íslenskar stuttmyndir voru
sýndar. Er það mjög glatað.
Að öðru leyti var þetta vel heppn-
að ævintýri. Múm heilluðu menn.
Orgelkvartettinn var mjög svalur á
sviðinu. Öll orgelin sem þeir gátu
ferðast með og svo hin stóru orgelin
sem þeir fundu eftir krókaleiðum í
París, smekkfylltu sviðið svo þeir
komust eiginlega ekki fyrir sjálfir.
Gjörningaklúbburinn bauð fólki með
í óskastund með stjörnuljósa- og æv-
intýraívafi á þilfarinu.
Ísland ... vá!
Hrifningin af Íslandi er, eins og
allir vita, magnað fyrirbæri. Það
kemur manni sífellt á óvart hversu
víðtækur áhuginn virðist vera. Allir
vilja vita meira um Ísland. Á bátinn
komu hinar ýmsu gerðir Íslandsvina.
Þeir sem eru flottir og svalir og vilja
sjá plötusnúða og hljómsveitir og
ferska hluti. Og þeir komu líka sem
hafa verið eins konar skiptibænda-
synir í sveitum Íslands og vildu ræða
við fólk á bjagaðri íslensku um
stærsta hver í Evrópu og Sæmund
fróða. Margir eru í bullandi sjálf-
boðavinnu við Íslandskynningu,
bæði meðvitað og ómeðvitað. Það er
frábær auðlind sem Ísland á, í ungu
fólki, sem með ódrepandi sköpunar-
krafti og framkvæmdagleði býr til
stórmerka hluti og skemmtir sér og
öðrum konunglega í leiðinni. Það er
þetta sem öll þessi spenna er í kring-
um. Ekki víkingaskip og fjallkonur.
Það má líka geta þess að starfsmað-
ur Batofar sem sótti hópinn á Char-
les de Gaulle-flugvöllinn sagðist
aldrei hafa tekið á móti svona mörg-
um stelpum í einum hópi. Það var
mjög ánægjulegt að heyra. Hvernig
þau á Batofar láta sitt dæmi ganga
upp er ekki alveg ljóst, en það hlýtur
meira að koma til en bara aðgangs-
eyrir. A.m.k. komu hátt í 30 manns
frá Íslandi og komu Flugleiðir þar til
hjálpar.
Hægt er að kíkja á www.batofar.-
org og ef menn eru staddir í París er
hægt að taka neðanjarðarlestina að
Francois Mitterrand-bókasafninu,
þar sem Batofar liggur við festar
ekki svo langt frá.
Batofar – frumlegur klúbbur í bát á Signu
Ljósmynd/Sigrún Hrólfsdóttir Glaumur og gleði baksviðs á Batofar. Hér má sjá Hörð
Bragason, Jóhann Jóhannsson og Jóní Jónsdóttur.Orgelkvartettinn Apparat í góðu sambandi.
Samband í
Frakklandi
Við bakka Signu í París er rekinn athyglis-
verður klúbbur í gömlu björgunarskipi.
Batofar heitir hann. Fyrr í vetur sóttu nokkrir
ungir íslenskir listamenn klúbbinn heim og
brugðu þar á leik. Sigrún Inga Hrólfsdóttir
segir frá því sem fyrir augu bar.
Gjörningaklúbburinn þvær heiminn upp úr kampavíni. Egill Sæbjörnsson myndlistarmaður lék á trommur.
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
990 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 8 og 10.15. B. i. 14. Vit nr. 186
Sýnd kl. 4. ísl tal Vit nr. 169 Sýnd kl. 3.50 og 5.55. Vit nr. 178
Sýnd kl. 3.50. Ísl tal. Vit nr. 179
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.16 ára. Vit nr. 185.Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit nr. 190.
Sýnd kl. 8 og 10.15. Vit nr. 177 Sýnd kl. 8 og 10.10. Vit nr. 167
Sýnd kl. 3.50 og 5.55.Vit r. 168
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl tal.Vit nr. 183.
kl., 4 og 6. enskt tal. Vit nr. 187.
B R I N G I T O N
"Þú hélst það væri óhætt að fara aftur inn í
skóginn.." og "Gleymdu því sem
þú hefur áður séð, því nú er sannleikurinn
hræðilegri en menn héldu!"
Golden Globe
fyrir besta leik
Var á toppnum í
Bandaríkjunum í 3 vikur.
Mbl
www.sambioin.is
ÓFE Hausverk.is
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
1/2
AI MBL
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl.10. .B. i. 12.
„fyndin og skemmtileg“
H.K. DV
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
1/2
Kvikmyndir.is
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
SV Mbl
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 6. Með íslensku tali.
INGVAR E. SIGURÐSSON
BJÖRN JÖRUNDUR FRIÐBJÖRNSSON
EGGERT ÞORLEIFSSON
NANNA KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR
EDDA BJÖRGVINSDÓTTIR
SV Mbl
DAGUR
ÓFE Sýn
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
SAVINGGRACE
ÓHT Rás 2
DV
Var á toppnum í
Bandaríkjunum í 3 vikur.
Golden Globe fyrir besta leik
Hagatorgi sími 530 1919
ÓFE Hausverk.is
Kvikmyndir.com
1/2
AI MBL