Vísir - 31.01.1979, Síða 9
9
VISIR Mi&vikudagur 31. janiiar 1979
Bréfritari telur, aö sumir þeirra flugstjóra, sem sendir voru tii þjálfunar á breiöþotuna nýju I Banda-
rikjunum hafi veriö of gamlir.
ÞJÁLFUNARMÁL FLUGSTJÓRA
5135-5520 spyr:
Taliö er, aö þjálfun flugstjóra
á hina nýju breiöþotu Flugleiöa
h.f. muni kosta um kr. 11
milljónir, þegar allt er meötal-
iö. Heyrst hefur aö meöal þeirra
flugstjóra sem nú hafa veriö
sendir út til þjálfunar sé maöur
sem muni missa réttindin fjór-
um mánuöum eftir aö hann get-
ur hafiö störf sem flugstjóri á
vélinni vegna aldurs en flug-
menn munu ekki fá skirteini sín
endumýjuö er þeir hafa náö 63
ára aldri.
Ekki draga svona ráöstafanir
úr fargjaldakostnaöi. Hvaö
liggur aö baki ákvöröuninni?
Haft er eftir góöum heimildum,
aö ábyrgir aöilar erlendis
myndu ekki hafa sent menn i
þjálfun sem ættuminna eftir af
starfsti'ma en 5 ár, ogsýnist þaö
mark sýnu eölilegra sem lág-
mark en aöeins 4 mánuöir.
Hvernig forsvarar stjórn Flug-
leiöa ráöslag þetta gagnvart al-
menningi? Égvæntiþess ásamt
fjölmörgum öörum, aö fá svar
viö þvi hiö fyrsta.
Visir haföi samband við Flug-
leiðir vegna þessarar fyrir-
spurnar bréfritara og fékk þær
upplýsingar aö hún sé á mis-
skilningi byggö.
Þaö er venja hjá flugfélögum
um allan heim aö elstu og
reyndustu flugstjórarnir taka
viönýjum og stærriflugvélateg-
undum.
Hinsvegar ætla félögin sér
vissan árafjölda, mismunandi
mikinn þó, til aö afskrifa
kostnaö viö þjálfunina.
Hinn elsti meöal flugstjóranna
sem nú erui þjálfun mun fimm-
tiu og sex ára gamall. Þaö eru
þvi ein sjö eöa átta ár þar til
hann verður aö hætta vegna
aldurs.
Bréfritari telur, aö hassiö hafi leitt margan út I neyslu sterkari eiturlyfja.
LÁTIÐ HASSIÐ ÓSNERT
Rannveig Þórðardóttir
skrifar:
Talsvert hefur veriö rætt og
ritaö um hassog hassneyslu upp
á siökastiö. Menn hafa deilt um,
hvort hassið sé hættulegt eða
ekki, hvort hass eöa áfengi sé
hættulegri vimugjafi.
Menn greinir töluvert á um
hassið. Sérfræöingar geta ekki
komiö sér saman um, hvort
hassiö hafi slæm áhrif á líkam-
ann eöa hvort þaö er vanabind-
andi. Ekki vil ég heldur leggja
dóm á það.
Hins vegar er ég alveg viss
um, aö félagsleg áhrif hassins
eru mjög slæm. Menn neyta
efnisins gjarnan nokkrir saman
og i hópum. Engin eftirköst eru
af neyslu hassins, svo sem
timburmenn og þaö leggur þess
vegna ekki hömlur á neyslu
þess. Hægt er aö neyta þess aö
kvöldi, þó mæta skuli I vinnu
eða skóla daginn eftir.
Þetta veröur aftur til þess, aö
menn freistast til aö nota efniö
æ oftar og aö lokum hætta menn
að fá þaö út úr efninu, sem þeir
sækjast eftir. Þaö leiöir þá tii
annars tveggja: menn hætta
hassneyslunni, eöa þeir fara út I
eitthvaö sterkara.
Annaö sem virðist fylgja
hassneytendum, hvort sem þaö
er efiiinu sjálfu aö kenna eöa
félagsskapnum: Þeir veröa lat-
ir og kærulausir, skila minni
vinnuafköstum og lakari
árangri I skóla.
Ég vil þvi skora á menn, aö
þeir láti ógert að reykja hass og
skyld efiii. Hassið hefur nefni-
lega reynst mörgum dyrnar að
sterkari eiturlyfjum, skaölegri
og lifshættulegum.
Leiðrétting
Viö sögðum frá þvi á
mánudaginn hér I þættinum,
aö ekiö heföi veriö á gráa
Mazda-bifreiö á mótum Alf-
heima og Suöurlandsbrautar
og aö ökumaöur Mazda-bils-
ins væri nú aö leita aö öku-
manni bilsins, sem árekstr-
inum oUi.
Sú meinlega villa siæddist
inn, aö áreksturinn heföi orö-
iö klukkan 30. Hiö rétta er, aö
hann varö klukkan 8 um
morguninn. ökumenn bil-
anna (hvorttveggja konur)
voru þá á leiö i vinnu.
Viö viljum itreka þaö, aö ef
ökumaöur bilsins, sem
árekstrinum olli, sér þessar
linur, þá hafi hann samband
viö þáttinn ..Lesendur hafa
oröiö’’. Þátturinn mun siöan
sjá til þess aö ökumennirnir
geti hist og rætt málin.
LANDSINS
STÆRSTA
BÍLASALA
Ekkert innigjald
Opið 9-7, einnig á laugardögum
ÁRSALÍR
jí Sýningahöllinni
símar 81199-81410
SUBARU
SUBARU Sedan D.L. 2ja dyra
fjölskyldubíllinn, sem
uppfyllir allra kröfur
Kostar nú aðeins kr. 3.095 þús.
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Simai^845l0 og 8451 1
L. a
VÖRUR
SEM VANDAÐ ER TIL
mnmi skidabindingai"
skíðaskór
SKÁTABÚÐIN
skíði
SÉRVERSLUN
FVRtR
FJALLA- OG
FERÐAMENN.
SNORRABRAUT 58 SÍMI 12045 Rckin af (+) H/álparsvcit Skita Rcykjavík