Vísir - 09.02.1979, Page 8
Föstudagur 9. febrúar 1979
vtsm
félk
Teflt í Hvíta húsinu
Rosalynn Carter hús-
móðir í Hvíta húsinu
hefur látið gera ýmsar
breytingar innanstokks
til að gera húsið heim-
ilsislegra. Annarri hæð-
inni hefur verið breytt
og f jölskyldumyndir;
prýða tómstundaher- \
bergið þar sem Rosa-i
lynn grípur í tafl við
dóttur sina Amy.
Harrison Ford meö Lesley-Ann Down (Georglnu) i Hanover
Sireet..
Eftir aö vera búinn aö ná sér eftir
hræösluna, talaöi galdarlæknirinn
viö þorpsbúa: „Égmun tala viö
fiallaúuöinn I kvöld”. hrópaöi hann.
Galdaralækniéinn
horföi hatursfuil uin |
augum á apamanninn
og sneri sér svo viö
og hélt til , <S?\ ///
fjallsins.íi w"“ “
Burroughs. muuim»aa~~ _«>■? . —
_. Syndiein 1111')T ~—'jf/ lA M HlAL
Seinna pegar dímmt var orBiö elti Tarsan þá innfæddu,
|þegar þeir fóru til aö hlusta á guö sinn.
Komdu nú aö hátta, Hamlet
Megum viö ekki
fyrst klára þessa
sögu?
—vsn
Allt i lagi, en svo
beint i rúmiö.
Og þá sagöí pabbabjörninn, „Einhver
hefur sofiö I rúminu mfnu...
Upp á
stjörnuhimininn
t>ótt Mark Hamill, I
hlutverki Loga geim-
gengils, væri aðalhetjan
i Stjörnustríðinu, vakti
Harrison Ford einnig
mikla athygli í hlutverki
hins fégráðuga Hans
Öla.
Þessi ungi maður,
með eftirnöfnin tvö, var
búinn að reyna um ára-
bil að lifa á leiklistinni,
og með nokkuð misjöfn-
um árangri.
Harrison Ford fæddist
13. júlí 1942 í Cicago og
sótti menntaskóla í Wis-
consin. Hann er kvæntur
og á tvö börn. Hann lék I
fyrstu kvikmynd sinni
árið 1963, en enginn man
lengur hvað hún hét.
Næstu árin fékk hann
smáhlutverk í ýmsum
kvikmyndum og sjón-
varpsþáttum. Engin
myndanna reyndist
mikils virði en hann
fékk inni í ágætum sjón-
varpsþáttum, t.d. Iron-
side, Gunsmoke og
Virginiumaðurinh.
Þetta gekk þó allt svo
hægt að árið 1970 gafst
hann upp og gerðist tré-
smiður. Ekki var hann
þó mjög lengi i burt þvi
hann sló til þegar honum
var boðið hlutverk I
American Graffiti. Og
siðan hafa hlutverkin
verið skárri.
( stórstjörnuf lokk
komst hann svo með
Starwars og síðan hefur
tilboðunum rignt yfir
hann. Fljótlega eftir að
...og 1 hlutverki slnu i „Force
Ten From Navarone”.
lokið var við Stjörnu-
stríðið bauðst honum
eitt aðalhlutverkið I
„Force Ten From Nav-
arone" sem er nokkurs-
konar framhald á hinni
frægu: „Byssurnar I
Navarone" eftir Alister
McLean.
AAeð önnur aðalhlut-
verk fóru kallar eins og
Robert Shaw, David
Niven og Edward Fox.
Frá Navarone fór Ford
til Englands til að leika
annað aðalhlutverkið i
Hanover Street.
Kvenhlutverkið var I
höndum Lesley-Ann
Down, sem við munum
eftir sem Georgínu I
Húsbændur og hjú.
Frá Englandi fór svo
Ford aftur til Banda-
rikjanna til að leika I
Stjörnustriði númer tvö,
sem væntanlega verður
tekin til sýningar ein-
hverntlma á þessu ári.
Litlar llkur eru taldar
á að piltur þurf i aftur að
reyna að vinna fyrir sér
með trésmlði.
Umsjón: Edda Andrésdóttir