Vísir - 09.02.1979, Blaðsíða 9
Föstudagur 9. febrúar 1979
9
jÁskorun til ut-
: anríkisráðherra
V.S. Reykjavik
skrifar:
Flestir Islendingar hrukku viö
þegar ágætur vinur Vestur-
landa, Ali Bhutto, var endan-
lega dæmdur til dauöa af mjög
svo hlutdrægum hæstarétti
Pakistans. Flestir lögmenn
telja þetta vera viðurstyggilegt
réttarmorð.
Agætur félagsskapur, sem viö
öll þekkjum, Amnesty Inter-
national, hefur beöiö honum
vægðar en viö völd eru hræöi-
legir herforingjar sem einskis
svífast.
Ég skora á Benedikt Gröndal
utanrikisráöherra aö hafa nú
þegar samband viö kollega sina
á Norðurlöndum og að þeir i
sameiningu krefjist eöa biðji
þess, aö Ali Bhutto verði
náöaöur.
Ég er sannfæröur um aö allir
Islendingar væru honum þakk-
látir, og ef þvi veröur ekki ansaö
og Bhutto myrtur, þá slitum við
Islendingar og aörir Noröur-
landabúar öllum tengslum viö
Pakistan.
Ég skora á utanrikisráöherra,
Ali Bhutto, sem nú hefur veriö
dæmdur til dauöa.
að láta hendur standa fram úr
ermum og vera ákveöinn tals-
maöur mannúöar. Fyrir það
myndi hann hljóta mikla sæmd.
Lækjartorg er kjörinn staður fyrir „uppákomur” af ýmsu tagi og meðal)
annars hefur Visir sent mann út af örkinni tii að lifga upp á bæjarlifið. |
Fólkið kann vel að meta slikt.en lögreglan er ekki alltaf á sama máli ef|
marka má orð bréfritara. I
Smurbrauðstofan
BJÖRNÍNIM
Njálsgötu 49 ~ Simi 15105
SUBARU
SUBARU Coupe GL sportbíllinn,
sem er sparneytinn, fallegur
og þrœlsterkur. Kostar nú
aðeins KR.: 2.980 þús.
Ótrúlegt?
stoppar „uppá-
á Lœkjartorgi
Loggan
komu"
Diskótekari hringdi:
„Þaö er hér eitt gamalt mál
sem mig langar til aö vekja upp,
af þvl aö ekkert hefur veriö
skrifaö um þaö. Mig langar til
þess aö fá að vita hvort hér á Is-
landi sé lýöræði eöa lögreglu-
rlki.
A Þorláksmessu vorum viö
búnir að fá leyfi fyrir „uppá-
komu” á Lækjartorgi þar sem
áttu aö koma fram hljómsveit,
kórar og diskótek og fleiri
skemmtiatriöi.
Ég var með ferðadiskótek og
þaö var kvartaö um hávaöa. Ég
lækkaði i tækjunum I samráöi
viö þann sem kvartaöi. Seinna
kemur lögreglan og segir aö
þetta megi ekki vera svona
lengur og stoppar það.
Hljómsveitin Geimsteinn kom
fram dálitlu seinna og lögreglan
stoppaði hana llka. Sá sem var
með útimarkaöinn hringdi i
varöstjórann á lögreglustöðinni
á Hverfisgötu og spuröi hvort
þeirhefðu haft leyfi til aö stoppa
þetta og hann vissi ekkert um
það.
Þá var hringt á lögreglustöð-
ina niöri I miöbæ og þar höföu
ekki veriö gefin nein fyrirmæli
heldur. Þannig aö þessi „uppá-
koma” var stoppuö án þess aö
varöstjórar heföu gefiö fyrir-
mæli um þaö þrátt fyrir aö viö
heföum leyfi frá lögreglustjóra
til aö halda þessa skemmtun.
Þegar hljómsveitin var
stoppuð var komiö margt fólk
fyrir framan pallinn og púaöi á
lögregluna. A sama tlma heyrö-
ist tónlist frá Karnabæ, miklu
hærra en i bæði ferðadiskótek-
inu og hljómsveitinni”.
Lækjartorg er kjörinn staður
fyrir „uppákomur” af ýmsu
tagi og meöal annars hefur Visir
sent mann út af örkinni til aö
Hfga upp á bæjarllfið. Fólkiö
kann vel aö meta slikt en lög-
reglan er ekki alltaf á sama
máli ef marka má orö bréf-
ritara.
Meira glens í
Stundina okkar
Bréfritarar skrifa, aö börnin
horfi á Stundina okkar meö
fýlusvip.
Tvær 25 ára mæður
skrifa:
Við viljum taka undir þaö,
sem AH skrifar I lesendadálkinn
þann 1. febrúar. Við höfum
somu skoðunina á Stundinni
okkar.
Við eigum sex börn á aldrin-
um 2-8 ára. Þau sitja með fýlu-
svip meðan þau horfa á Stund-
ina okkar og þeim finnst hún
leiðinleg.
Viö vonum, að úr þessu veröi
bætt fljótlega og haft meira af
söng, glensi og grini.
INCVAR HELGASON
Vonorlandi v/Sogaveg — Simar 845)0 og 8451 l
Dagana 9.-18. febrúar
Verlð velkomln á síld Borðpantanlr í síma 22322
ICEFOOD
iSLENSK
MATVÆLI H/F
kynnir tramlelðslu
sína í samvlnnu
við Hótel Lottlelðl.
Nú er það síldarævintýri í Blómasalnum á
Hótel Loftleiðum.
Þar bjóðum við hverskyns lostæti úr ..Silfri hafsins'1
feitri Suðurlandssild, um 25 rétti: Marineraða síld,
kryddsíld á marga vegu og reykta síld, salöt og ídýfur,
ásamt reyktum laxi, graflaxi, reyksoðnum laxi og
smálúðu. Sannkallaður ævintýramálsverður
á tækifærisverði.
Notið tækifærið og snæðið kvöldverð í vistlegum
salarkynnum, sem skreytt er í þessu sérstaka tilefni.