Vísir - 20.03.1979, Side 15

Vísir - 20.03.1979, Side 15
Þri&judagur 20. mars 1979. í' I í’ i Eru ánægð meö ævintýrasafnið Ein 10 ára úr Austur- bænum hringdi: „Ég er mjög glöð yfir þvi að stjórnendur „Stundarinnar okk- ar’’ eru farnir að lesa Visi þvi seinasta „Stund” var mjög góð/ sérstaklega ævintýrasafnið. Svo vil ég þakka þættinum fyrir að birta bréfið”. Fleiri hafa hringt i þáttinn og látið i ljós ánægju með ævintýra- safnið i „Stundinni okkar”. Friðhelgl einka- lífsins rofln HÞ hringdi: „Ég vil vekja athygli á þvi að friðhelgieinkalifsins er gróflega brotin á fólki á kvöldin og um helgar. Stöðugur straumur af sölumönnum og trúboðum ber að dyrum manna og misjafn- lega gengur að losna við þessa óboðnu gesti. Ég er ekkert á móti þvi að fá sölumenn og finnst sjálfsagt að taka þeim kurteislega. Oft á tiö- um hafa þeir eitthvað að bjóöa sem fengur er i. Flestir þeirra eru þannig aðþeir reyna ekki að troða á mann vörunni hafi mað- ur ekki áhuga. Hins vegar getur það verið •hvimleitt að verða fyrir ónæði á hverju kvöldi. Þaö er verið að selja bækur og sokka, málverk og vettlinga og allt sem nöfnum tjáir að nefna svo ég tali ekki um merkjasölur og happa- drættismiðasölur. Þó tekur steininn úr þegar trúboðar og mannkynsfrels- ararkveðjadyra. Þaðþýðirekki að segja sliku fólki að maður hafi ekki áhuga á söluvarningi þess. Þeir standa þarna fyrir fram- an mann þvingaðir og vandræðalegir ogþylja eitthvað á framandi tungum eða á bjagaðri islensku. Ekki er viðlit að fá þá til að stoppa eða að loka á þá þvi þeir hafa stungið fæti milli stafs og hurðar. Eftir að hafa þvertekið fyrir að vilja nokkuð tala við þá vilja þeir endilega fá að tala við kon- una eða börnin. Ef það gengur ekki draga þeir ípp bækur úr pússi sinu«og vilja selja manni. Þaö gengur ekki; þá fara þeir i frakkavasana og draga upp einhverja bæklinga. Þeir eru geflns og i þeirri von að losna loks við þá þiggur maður bæklinginn. Þetta var um mor- mónana ef einhver skyldi kann- ast við lýsinguna. En rétt þegar maður hefur lokað hurðinni koma kaþólikkarnir, vottar Je- hóva og....” „STYÐUR TÍMINN MARXISTA”? Námsmaður í Hí skrifar: „Ég er kominn af grjóthörðu framsóknarfólki, en sjálfur er eg ekki flokksbundinn framsóknar- maður. Ég les yfirleitt Timann á hverjum degi, enda er hann vax- andi fréttablaö. Þó svo að blaöið sé sjaldnast fyrst með fréttirnar þá m á finna i þvi oft góða punkta I blaðinu sem gaman er að lesa. Það má nefna að iþrótta- fréttirnar i blaðinu eru með þeim bestu sem birtast á siðum is- lenskra dagblaða, en þvi miður skilst mér að iþróttafréttaritari blaðsins sé að fara af blaðinu yfir á Dagblaöið og þykir mér það miður. Aðalástæðan fyrir þvi aö ég hripa þessar iinur eru greinar i blaöinu i dag, miövikudaginn 14. mars.Ég sem er stúdent I Háskól- anum harma það að Timinn skuli taka afstöðu með vinstri mönnum i Háskólanum eins og hann virðist gera iþættinum „A viðavangi” og i frétt á blaösiðu 5. Mér þykir þetta mjög leiðinlegt þar sem ég hefaldrei getað felltmig við öfga- fulla stefnu vinstri manna i Há- skólanum og sú stefna'er langt i frá að ganga i sömu átt og fram- sóknarstefnan og samvinnustefn- an. Það hefur aldrei verið stefna Framsóknarflokksins að útiloka frjálst framtak i landinu. Flokkurinn hefur alltaf talið einkarekstur nauðsynlegan en verið á móti rikisumsviíum. Framsóknarflokkurinn getur aldrei samþykkt námslánakerfi sem letur menn til vinnu. Þetta vilja vinstri menn, enda ráða framsóknarmenn ekki meðal þeirra miklu, frekar eru það marxistar sem ráða ferðinni. Einnig geta framsóknarmenn aldrei samþykkt þvilika með ferð og Félagsstofnun stúdenta hefur hlotið.” 99 x B” í Háskólanum ,.A þessum slðustu og ver&lu tlinum’ viröist allt lif manna snúastum þaðaðveröa ertthvaö fáir eru svo „vitlauslr” aö stefnuatriöi eru grundvöllur þessarar samfvlkingar: 1> Vinstri menn berjast fyrir jafnrétti til náms. Réttlát náms- kosti mundu þeirekki miöa nám •lit við nrAf na ákveðnar nrrtf- taka fullt tillit tU fjölskvldu hanc Klitrtentar verða að hert- fjöldatakmörkunum og niöur- skuröi til menntunar. Lang- timamarkmiöið er aö sérhverj- uin sé mögulegt aö sakja sér hverja þá menntun sem hugur hans stendur til. Vinstri menn leggja áherslu á aö verö á þjrtnustu þeirri sem FSveitir miöíst viö greiöslugetu námsmanna og stefnumotun stofnunarinnar sé i höndum starfsíólks sem og þeirra er neyta þjónustu stofnunarinnar. 2) Vinstri inenn berjast fyrir lýöræöislegu námi. t>eir eru andvigir hvers kyns skoöana- kúgun I liáskrtlanum, hvort sem er gagnvart nemendum eöa kennurum. Nemendum veröur aö gefast kostur á aö nálgast Styrkir til háskólanáms I Grikklandi Grisk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóöi fram i löndum sem aöild eiga að Evrópuráöinu fimm styrki til háskóla- náms i Grikklandi háskólaárið 1979-80. — Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver þessara styrkja muni koma I hlut Islendinga. Styrkir þessir eru eingöngu ætlaðir til fram- haldsnáms við háskóla og skulu umsækjendur hafa lokið háskólaprófi áöur en styrktimabil hefst. Þeir ganga að ööru jöfnu fyrir um styrkveitingu sem hyggjast leggja stund á grisk fræði. Styrkfjárhæðin er 10.000 drökmur á mánuði auk þess sem styrkþegar fá greiddan ferða- kostnað til og frá Grikklandi. Til greina kemur að styrkur verði veittur til allt að þriggja ára. Umsóknir um styrki þessa skulu sendar til: State Scholar- ships Foundation, 14 Lysicrates Street, GR 119 Athens, Greece, fyrir 30. april 1979 og lætur sú stofnun jafnframt i té umsóknareyðublöö og nánari upplýsingar. Menntamálaráðuneytið 15. mars 1979 . húsbyggjendur Afgreiðum einangrunarplast á Stór-Reykjavíkursvæðið frá mánudegi — föstudags. Afhendum vöruna á byggingarstað, viðskiptamönnum að kostnaðar iausu. Hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar við flestra hæfi. Borgarplast hf Borgarnesi sfmi93 7370 kvoJd 09 hclgammi 93 7155 Athugið hvort við getum aðstoðað isetningar á staðnum. BÍLRÚDAN Skúlagötu 26 símar 25755 og 25780

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.