Vísir - 20.03.1979, Blaðsíða 16

Vísir - 20.03.1979, Blaðsíða 16
Umsjón : Sigurveig Jónsdóttir VISIH Þriðjudagur 20. mars 1979. UHGUHQA- VANDAMAL KÚREKA Tonabió: Bófafiokkur Spikes. Stjórn: Richard Fleischer Aftalhlutverk: Lee Marvin, Gary (irimes. Eg hef þaðfyrir satt að Richard Fleischer láti leikurum sínum sem fæstar upplýsingar i té áöur en byrjað er að filma. Það er t.d. útilokaö að þeir fái að lesa hand- rit. Þeir hafa ekki hugmynd um örlög þeirra persóna sem þeir eiga að leika i myndinni, hvort þeir eiga t.d. eftir að gifta sig og eignast börn og buru, eða hvort þeir eiga eftir að lenda í slysi, hvort þeir deyja, t.d. i skotbar- daga, eða lifa myndina á enda. Til að byrja með eru aöeins til tvö eintök af handritinu: annaö handa Fleischer sjálfum, hitt er geymt i eldtraustum peningaskáp á vel völdum stað. Siöan byrjar kvikmyndatakan og um leið er byrjað að mjatla handritinu i starfsliðiö, en aðeins svolitilli ögn i senn, svo að enginn leikaranna fái að vita of fljótt hvaö um sig veröur i myndinni. „Ef leikari veit að persónan sem hann leikur á eftir að deyja i myndinni, þá byrjar hann strax I fyrstu at- riðunum að leika feigan mann”, er kenning Fleischers. Ekki veit ég hvort þessum að- Piitarnir æfa skotfimi undir stjórn Lee Marvins feröum var beitt við gerð myndarinnar um bófaflokk Spikes. Ég var hins vegar ekki búinn aö sjá mikið af myndinni þegar mér skildist, aö þeir sem þar slæddust inn á t jald gætu ekki reiknað með þvi að kemba hærurnar. Strax Ur fyrstu at- riðunum mátti lesa ótvfræða feigðarspá, eins og i öllum góðum vestrum. Sagan greinir frá þremur drengjum sem gerast leiðir á þrældómi ogbarsmið heima fyrir og halda út I veröldina til aö freista gæfunnar. Þessi veröld reynisthins vegar harösnúnari en þá hafði órað fyrir. Þar virðist hægt að sjá fyrir sér með aðeins tvennum hætti: striti eöa banka- ránum. Aðrir kostir gefast ekki. Þessisaga er ekki svo illa sögö, þótt mér þyki margt i persónu- sköpun og atburðarás einfaldað um of. Kannski er ekki ástæða til að fetta fingur út i þess háttar. Þaðfylgir vestranum. Hins vegar vantaði myndina eitthvert fast svipmót,heildarblæ, sem jafnan hefur verið pryði mynda eftir Fleischer. Atökin viö efnið hafa verið aðstandendum myndarinn- ar allt of létt. Unnendur vestrans munu þó ekki láta svona úrtölur á sig fá. Þegar myndin var búin streymdi fólkið út i bilana sina, opnaði fyrir útvarpið og þar var þá veriö að lesa eina kúrekasög- una til með ekki færri manndráp- um en biómyndin: Eyrbyggja sögu. Einhvern tima verður hún kvikmynduð, væntanlega með miklum tæknibrellum svo að Fróöárundrin missi ekki marks. Þá veröur nú gaman. 0E0RGE HARRISOH RÉTTIR ÚR KÚTNUM Hinum einu sönnu Bitlum hefur reitt misjafniega af i ólgusjó lifs- ins eftir að ieiðir þeirra skiidu um 1970. Bæði I einkalifinu og á tón- listarbrautinni hafa þeir steytt á skerjum, en svo er að sjá aö mestu erfiöleikarnir séu aö baki hjá þeim öllum. Aö visu hefur ekkert heyrst frá John Lennon i óratima og ku hann helga Yoko sinni og barni þeirra alla krafta sina. Þess er þó vænst aö hann muni rjúfa þessa þögn áöur en áratugurinn er allur. Paul McCartney hefur verið mest i sviðsljósinu af þeim félög- um undanfarin ár, enda sá eini sem starfrækir hljómsveit af þeim félögum. Honum og hljóm- sveit hans, Wings, hefur vegnað mjög vel þótt vinsældir þeirra séu ekki ámóta og Bítlanna. Ringo Starr hefur árlega gefið út sólóplötu með lögum eftir \Tnsa höfunda og sannast sagna mun hann ekki hátt skrifaöur i tónlistarheiminum. Enguað síður eru plötur hans skemmtilegarog sérstæðar. , Og þá er komiö að George Harrison. Frá þvi leiöir Bitlanna skildu hefurá ýmsu gengið hjá Harrison og mun ekki ofsagt að þetta tlma- bil ævi hans hafi verið storma- samt. Eins og menn rekur eflaust minni til varð hann fyrstur Bítl- anna til að senda frá sér sólóplötu, All Things Must Pass aö nafni/)g voru þaö raunar þrjár plötur I einu albúmi. Hann haföi enda aö sögn veriö sveltur 1 Bitlunum hvaö varöaði fjölda laga á plötu og þótti gott ef hann fékk tvö lög á plötu. í viötali um 1967 hafði hann m.a. á oröi að hann ætti um 30 lög fullunnin á segulbandi og miðað við sömu skilmála þyrftu Bitlarnir að gefa út 15 plötur til þess að tæma bunk- ann. Það kom þvl að sönnu ekki mönnum I mjög opna skjöldu er þrjár plötur i einu albúmi litlu dagsins ljós frá Harrison árið 1970. Það þarf ekki aö orölengja þaö aö All Things Must Pass fékk frá- bærar viðtökur, bæði unnenda Bitlanna og gagnrýnenda. A al- búminu voru tvær plötur með hans eigin iögum en sú þriðja innihélt ,,jam” þar sem margir frægustu hljóðfæraleikarar þess tima komu við sögu. Popprit kepptust viö að hrósa plötunni og það var tekið til þess að vikuritiö virta Time birti umsögn um plöt- una, þar sem farið var mjög lof- samlegum orðum um hana. Þar var m.a. sagt að lagið „I’d Have You Anytime” eftir Harrison og Bob Dylan væri fegursti ástar- óöur rokksins. Ýmsir vildu meina eftir útkomu þessarar plötu að hæfileikar Harrisons heföu ekki fengið aö njóta sin sem skyldi I Bitlunum og ofriki Lennons og McCartneys hefðu hindrað hann i þvi að sanna fullkomnlega getu sina. Þvi verður seint mótmælt að á siðari árum Bltlanna óx mjög viröing fyrir Harrison sem lagasmið og margir telja lög hans „While My Guitar Gently Weeps”, „Some- thing” og „Here ComesThe Sun” meðal bestu laga sem Bitlarnir sendu frá sér. En þótt sól Harrisons bærihátt á tónlist Gunnar Salvarsson skrifar um popp himninum eftir All Things Must Past bar skugga á, þvi Bright Tunes útgáfufyrirtækið ákæröi hann fyrir lagastuld og taldi hið geysivinsæla lag hans „My Sweet Lord” hnuplað frá Chiffons. Eftir mikið málaþóf tapaði Harrison málinu 1976. A sama ári geröi Harrison góölátlegt grin að öllu saman i laginu „This Song” á plötunni 33 1/3. En I millitlöinni haföi ýmislegt gerst og flest heldur dapurlegt. Aðdáendur biðu I hartnær þrjú ár eftir framhaldinu af All Things Must Pass og þegar þaö loks kom voru hóloröin dregin fram úr pennum. Ég minnist m.a. fyrir- sagnar i Visi frá þessum tima: „Allt er fullkomið”. Poppsagna- ritarar samtiðarinnar hafa hins vegar talað um Harrison sem andlausan á plötunni. Eitt var þó vist, platan var gæðaflokki lakari en sú fyrri. En ástandiðáttieftir að versna. Þriöja sólóplatan hans var hörm- ung og hljómleikaferð um Banda- rikin i kjölfar hennar var sögð „tútal”. Röddin var brostin, trúarbrögðin höfðu gleypt hann, konan farin til Eric Qapton og skömmu siöarneitaðilikami hans að beygja sig undir það ok sem fylgdi þvi að nærast einvörðungu á jurtafæði— oglif hans stóð tæpt um stund. Eiturlyfin höföu llka sett sitt mark á hann. Harrison mátti þola hina mestu niöurlægingu með þessari plötu, Dark Horse, og næsta plata á eft- ir, Extra Texture (1975) *reisti hann litið upp úr niöurlægingar- öldunni, þótt þar hafi veriö að finna nokkrar perlur. Ari seinna kom svo 33 1/3 og visaði nafnið bæði til aldurs hans og hraða plöt- unnar. Þessi plata var eins og ExtraTexture nokkuð misjö&i að gæðum, en gaf m jög góð fyrirheit. Trúarbragöaofsinn og austur- George Harrison lensku áhrifin, sem svo mjög höfðu einkennt siðustu plötur hans, voru I rénun og platan bar yfirbragð lffsgleði og hamingju, sem hafði verið af skomum skammti áður. Hann var sumsé að rétta úr kútnum. Með nýju plötu sinni, sem ber einvörðungu nafn hans, réttir hann alveg úr kútnum. Plötunni hefur verið afburöavel tekið og m.a. fór hún beint i 28. sæti bandariska listans. Harrison virðist vera i góðu jafnvægi, melódiskari en áður og af- slappaðri i tónlist sinni. 1 heild er platan ákaflega sterk og hnit- miðuð. Valinkunnir hljóðfæraleikarar eru með honum á þessari plötu, sem hinum fyrri, m .a. Steve Win- wood, Andy Newmark, Willie Weeks og Eric Clapton, en Harrison leikur auðvitað á gitara og virðist ekki i annan tima hafa gert betur á þvl sviði. Nýtt timabil I tónlistarsögu Harrisons er runnið upp, ólikt bjartara en saga siðustu ára og við þvi má fastlega búast að punkturinn aftan viö þá sögu ver- ði ekki settur i bráð. Það er altént min ósk. Fyririestr- ar hjá MÍR A næstu vikum, I mars og aprfl gengst MIR, Menningartengsl Is- lands og Ráðstjórnarrikjanna fvrir flutningi nokkurra erinda i MlR-salnum, Laugavegi 178. Stuttar heim ildarkvikmy ndir veröa sýndar meö hverjum fyrir- lestri. Erindi þessi verða sem hér segir. Fimmtudaginn 22. mars kl. 20.30 gerir Georgi Farafonov, sendiherra Sovétrikjanna á Is- landi grein fyrir sovéskum við- horfum á sviði utanrikismála i ljósi hinnar nýju stjórnarskrár Sovétrikjanna, sem tók gildi i október 1977 Laugardaginn 24. mars kl. 15 segir Hörður Bjarnason fyrrv. húsameistari rikisins, frá ferö sinni til Sovétrikjanna i fyrra i boði samtaka sovéskra arkitekt. Laugardaginn 31. mars kl. 15 ræðir Vladimir K. Vlassov, sovéski verslunarfulltrúinn á ls- landi um efnahagssamvinnu sósialiskra rikja og störf „Ráðs gagnkvæmrar efnahagsað- stoðar” (KOMEKON), en um þessar mundir eru liöin 30 ár frá þvi ráðið tók til starfa. Laugardaginn 7,aprfl kl 15 seg- ir Guðrún Kristjánsdóttirlæknir, sem stundaði nám og starfaði um nokkurt árabil i Sovétrikjunum, frá ýmsu er varöar stöðu og kjör sovéskra barna. Laugardaginn 28. april kl. 15 segir óskar B. Bjarnason efna- verkfræðingur, ferðaminningar frá Alma-Ata höfuöborg sovét- lýðveldisins Kazakhstan og einn- ig verður greint frá „Sovéskum dögum MIR” sem fyrirhugaðir eru I september i haust með þátt- töku listamanna frá þessu sovét- lýðveldi i Mið-Asiu. MIR hefúr i vetur sýnt sovéskar kvikmyndir fullrar lengdar hvern laugardag i salnum að Laugavegi 178, nú að undanförnu t.d. nokkr- ar gamlar sovéskar barna- myndir, og veröur þessum sýningum haldið áfram fram á vor. Þær falla þó niður þá laugar- daga sem fyrirlestrar verða.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.