Vísir - 24.03.1979, Síða 12
Laugardagur 24. mars 1979.
BARHAKÖRJIMðl á AKUREYRI UM SfflUSTU HELGI
Síöasta atriði á dagskrá barnakóramótsins var samsöngur allra kóranna undir stjórn Jóns Karls Einarssonar, alls 640 börn. Vakti þetta atriöi mikla hrifningu áhorfenda,
sem voru fjölmargir. Myndir: Heigi Baldvinsson
FRABÆR samstill-
ING 640 RAUUA
Sigrún Nikuiásdóttir, Mýrarhúsaskóla, Halldór óskarsson, Tónlistarskóla Rangæinga, Katrin Magnús-
dóttir og Alda Baldursdóttir, óldutúnsskóia.
„vi o æiium sko að
haida áfram að æfa”
Rætl vlð nokkra Uátltakendur á móllnu
A æfingu fyrir tónieikana hitt-
um viö fjóra hressa krakka og
röbbuðum ögn viö þá. Það voru
þau Sigrún Nikulásdóttir, sem
er I kór Mýrarhúsaskóla,
Ilalldór óskarsson og Katrln
Magnúsdóttir, bæöi úr kór Tón-
listarskóla Rangæinga, og Aida
Baldursdóttir úr kór öidutúns-
dkóla.
Þau voru sammála um, aö
þaö væri mjög gaman aö koma
saman og kynnast starfi og
árangri annarra kóra og sögöu
öll, aö þau ætluöu sko aö halda
áfram aö æfa þegar heim kæmi.
Halldór og Katrin sögöu, aö
erfitt heföi veriö aö koma
saman á æfingar s.l. hálfan
mánuö vegna ófærðar.
„Þaö er enginn snjór hér á
Akureyri, þiö ættuö bara að sjá
snjóinn heima i Rangárvalla-
sýslu”, sögöu þau.
Fararkostnaöur þeirra er 15
þúsund krónur á mann, en þau
hafa haldiö hlutaveltu og reynt
aö afla tekna á ýmsan hátt til að
lækka kostnaðinn.
Sigrún sagöi, aö hennar kór
æfði þrisvar sinnum I viku.
Ferðakostnaöurinn hjá þeim er
ekki eins mikill, þvi þau heföu
fengiö fimm þúsund krónur i
styrk á mann.
Þeim peningum fannst okkur
vel variö. Kór Mýrarhúsaskóla
flutti m.a. lag Jóns Nordal,
„Hvert örstutt spor” (viö texta
Halldórs Laxness úr leikritinu
Silfurtungliö) óbrenglaö og i
réttum anda.
„Ég syng i kór öldutúnsskóla
eins og vera ber”, sagöi Alda
Baldursdóttir og brosti. „Viö æf-
um þrisvar sinnum I viku”.
Aheyrendur fengu sannarlega
aö heyra árangur erfiðsins.
Kórinn er frábærlega vel
þjálfaöur og sem áheyrandi
spuröi undirrituösjálfa sig: Æfa
þau ekki nema þrisvar sinnum I
viku?
Meöal annars flutti kórinn lag,
sem var frumflutt og sérstak-
lega samiö fyrir þetta kóramót.
Þaö var lag Þorkels Sigur-
björnssonar viö texta Hannesar
Péturssonar, „Velferö”.
—LH
Síðastliðinn laugardag var haldið Landsmót íslenskra
barnakóra á Akureyri. Á sjöunda hundrað börn víðs-
vegar að af landinu fjölmenntu til Akureyrar/ en sam-
tals mættu 16 kórar til leiks. Þetta var fimmta barna-
kóramótið/ sem haldið hefur verið hér á landi.
Mótiö fór fram i íþróttaskemm-
unni á Akureyri, sem siöur en svo
er tónleikahús, og þvi mikil vinna
viö aö koma henni i þaö ásig-
komulag, aö viö mætti una. En
börnin eru ekki kröfuhörð og voru
hin ánægðustu.
Undur voru aö heyra hvaö sam-
stilling 640 radda var góð, er þau
sungu saman i lok tónleikanna
undir stjórn Jóns Karls Einars-
sonar.
Akureyringar tóku til þess,
hversu hegöun barnanna var góö,
hreint til fyrirmyndar, og hversu
einbeitt þau voru og ákveöin I aö
mótiö mætti takast sem best.
Kórarnir, sem tóku þátt i mót-
inu voru:
Barnakór Akureyrar, Stúlkna-
kór Selfoss, Kór Mýrarhúsaskóla,
Kór Lundarskóla, Skólakór
Tálknafjaröar, Barnakór Húsa-
vlkur, Barnakór Tónlistarskóla
Rangæinga, Kór Arbæjarskóla,
Skólakór Glerárskóla, Kór
Barnaskóla Akraness, Kór
Breiöageröisskóla, Kór Melaskól-
ans, Kór Barnaskólans I Hvera-
geröi, Kór Flúöaskóla, Kór
Laugarnesskóla og Kór öldutúns-
skóla.
Þess má geta, að Tónmenntafé-
lagiö greiddi 1500 krónur fyrir
hvert barn, en þaö svaraöi
helmingi af fæðiskostnaði. Fariö
var fram á þúsund króna styrk, á
hvert barn frá menntamálaráöu-
neytinu, en þar sem nú er
„Barnaár” var beiöninni hafnaö.
—LH
Ingimar Eydal var kynnir mótsins.
■