Morgunblaðið - 06.02.2001, Síða 1
2001 ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
HAMAR OG ÍR MÆTAST Í BIKARÚRSLITUM / B6, B7
ÞÓREY Edda Elísdóttir, stangar-
stökkvari úr FH, vann öruggan sig-
ur í stangarstökki á Virginia Tech
Challenge í Georgíuríki í Banda-
ríkjunum á laugardaginn. Þórey
stökk 4,25 metra, 45 sentimetrum
hærra en Corrie Drakulich, sem
hafnaði í öðru sæti og sú sem hafn-
aði í þriðja sæti stökkk aðeins 3,35
metra. Kepppnin fór fram innan-
húss.
Þetta er annað mótið í röð þar
sem Þórey fer með sigur úr býtum í
stangarstökki en fyrir viku stökk
hún 5 sentimetrum hærra á móti í
Johnson City.
Þórey þarf að verða sér úti um
stífari stangir til þess að geta átt
raunhæfa möguleika á að bæta sig
enn frekar og mun málið með
stangirnar vera í skoðun. Þórey
hefur hæst stokkið 4,37 metra inn-
anhúss.
Heimsmet
hjá Dragila
Bandaríski heims- og ólympíu-
meistarinnn í stangarstökki
kvenna, Stacy Dragila, bætti eigið
heimsmeti í stangarstökki innan-
húss á Milrose-leikunum í New
York á laugardaginn. Dragila stökk
yfir 4,63 metra í annarri tilraun, en
hún vann öruggan sigur í greininni
á mótinu. Var árangur hennar há-
punktur mótsins og eina heims-
metið sem sett var. Eins vakti
frammistaða Merlene Ottey mikla
athygli. Hún sigraði í 60 m hlaupi á
7,20 sekúndum og var ekki sjáan-
legt að þar færi tæplega 41 árs
gömul kona.
Yfirburðir hjá
Þóreyju Eddu HELGI Sigurðsson, landsliðsmaðurí knattspyrnu, æfði í gær með enskaúrvalsdeildarliðinu Derby en eins og
fram kom í Morgunblaðinu á föstu-
daginn er möguleiki á að Derby fái
Helga að láni í þrjá mánuði frá gríska
liðinu Panathinaikos. Helgi fylgdist
með leik Derby gegn Sunderland á
laugardaginn. Þá átti hann fund með
forráðamönnum liðsins auk þess sem
hann mætti á létta æfingu. Það skýr-
ist væntanlega í dag hvort af því
verður að Helgi gangi til liðs við
Derby en félagið vantar tilfinnanlega
markaskorara. Helgi hélt frá Eng-
landi til Aþenu í morgun en ef Derby
ákveður að fá hann í sínar raðir kem-
ur hann til baka á fimmtudag.
„Ef Derby vill fá mig reikna ég
fastlega með að slá til í þessa þrjá
mánuði. Ég fann það á æfingunni að
þetta er fótbolti sem hentar mér
mjög vel, betur en sá gríski, en ég
verð þó að viðurkenna að þegar ég
kom í þennan kulda sá ég hvað ég hef
það gott í Grikklandi svona fyrir utan
fótboltann. Ég veit að félögin hafa
rætt sín á milli um skiptin. Það á allt
að vera klárt varðandi þau en boltinn
er hjá Derby og ég eða umboðsmað-
ur fáum væntanlega svar á morgun
frá liðinu (í dag). Ef þetta gengur upp
lít ég á þetta sem ákveðið ævintýri
fyrir mig en ég mun ekki leggjast í
neitt þunglyndi ef þetta dettur upp
fyrir.“
Todd ræddi við Las Palmas
um Þórð Guðjónsson
Þórður Guðjónsson landsliðsmað-
ur sem leikur með Las Palmas á
Kanaríeyjum er eins og Helgi einnig
undir smjásjá Derby. Colin Todd, að-
stoðarframkvæmdastjóri Derby,
kom til Kanaríeyja um helgina og átti
fund með stjórnarmönnum Las
Palmas um hugsanlegan lánssamn-
ing um Þórð út leiktíðina.
„Ég hef ekkert heyrt ennþá en ég
reikna með að málin skýrist mjög
fljótlega,“ sagði Þórður við Morgun-
blaðið í gær.
Helgi Sigurðsson og Þórður Guðjónsson
Boltinn er
hjá Derby
JÓHANNES B. Jóhannesson varði Norðurlandameistaratitil sinn í einliða-
leik í snóker, þegar hann vann Gunnar Hreiðarsson í úrslitum, 5:0. Hér
mundar Jóhannes kjuðann í úrslitaleiknum. Nánari umfjöllun er á B2.
Morgunblaðið/Jim Smart
Jóhannes B. Jóhannesson
Norðurlandameistari