Morgunblaðið - 06.02.2001, Side 2
SNÓKER
2 B ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
„ÉG átti möguleika í fyrst og
þriðja leik en hún malaði mig í
öðrum leiknum,“ sagði Rós Magn-
úsdóttir, sem keppti við Charlotte
Staun um Norðurlandameist-
aratitil. Rós hefur lítið sem ekkert
æft síðan í maí og hafði ekki ætlað
sér að vera með en þegar ljóst var
að einungis ein kona var mætt til
leiks sló hún til. Hún fór því á
nokkrar æfingar fyrir mótið en
sagði að taugarnar hefðu verið
þandar þegar hún gekk til leiks.
„Það þarf fyrst og fremst reynslu í
svona mót, maður þarf stáltaugar
og pókerandlit því það má ekki
láta sjá nein svipbrigði, það styrkir
mótherjann ef hann sér einhvern
veikleika,“ bætti Rós við. Hún hóf
að leika snóker fyrir tveimur árum
og segir að mótið hafi aukið áhuga
sinn á ný. „Þetta mót kveikir áhug-
ann á ný og ég vil æfa meira en
vegna meiðsla eftir árekstur get
ég ekki legið yfir þessu eins og
strákarnir gera. Svo þarf líka mik-
inn tíma ef vel á að vera því það
þarf að æfa einn eða tvo tíma á
hverjum degi. Annars á snóker er-
indi til stelpna því einn þjálfari
hérna segir að ef stelpur leggi á
sig sömu vinnu og strákarnir geti
þær orðið betri en þeir því það eru
til dæmis meiri fínhreyfingar.“
Stáltaugar og
pókerandlit
Til að ná að fylla 32 manna töfluvar nítján Íslendingum boðin
þátttaka og þegar átta keppendur
voru eftir reyndust
sex af þeim vera
heimamenn. Í und-
anúrslitum voru síð-
an aðeins Íslending-
ar. Þar hafði Gunnar Hreiðarsson
6:3-sigur á Brynjari Valdimarssyni
en öllu lengri og átakameiri var
viðureign Jóhannesar B. og Jó-
hannesar R. Félagarnir skiptust á
að vinna ramma svo að staðan var
5:5 eftir fimm tíma barning en sem
fyrr segir vann Jóhannes úrslita-
rammann. Það er því ljóst að Jó-
hannes B. verður að hafa sig allan
við til að verja Íslandsmeistaratitil
sinn því Jóhannes R., sem tók sér
ársfrí frá íþróttinni, er stigahæstur
á Íslandsmótinu um þessar mundir
og til alls líklegur.
Keppni í kvennaflokki var aðeins
einn leikur því Íslandsmeistarinn
Rós Magnúsdóttir og Danmerkur-
meistarinn Charlotte Staun voru
þar einar. Í fyrsta rammanum voru
stúlkurnar nokkuð taugaspenntar
því hvorug hafði séð nokkuð til
hinnar auk þess sem sjónvarps-
vélar möluðu og ljósmyndarar
smelltu af. Það fór svo að sú
danska vann naumlega fyrsta
rammann en þann næsta örugg-
lega. Í þriðja fór Rós oft illa að
ráði sínu en tók sig á þegar leið á
leikinn. Það dugði hinsvegar ekki
til og Charlotte varð Norðurlanda-
meistari. Hún hefur æft snóker í
fjögur ár og fær, vegna þess hve
fáar konur æfa snóker í Dan-
mörku, að keppa í karlaflokki og
þar er hún í kringum miðju í
styrkleika.
Liðakeppnin fór fram á föstu-
deginum og áttu Íslendingarnir
ekki í vandræðum með að verja tit-
il sinn þar, en í liðinu voru Krist-
ján Helgason, Jóhannes B. Jó-
hannesson og Brynjar
Valdimarsson. Af þeim 27 römm-
um, sem hvert lið spilaði, vann það
íslenska 24 en hver Íslendinganna
þriggja tapaði einum leik. Keppnin
var því aðallega á milli Norðmanna
og Svía og þar náðu Svíar að
hreppa silfrið. Það lífgaði þó upp á
liðakeppnina þegar Jóhannes náði
að skora 120 stig í röð.
Morgunblaðið/Jim Smart
Jóhannes B. Jóhannesson varði báða titla sína á Norðurlandamótinu í snóker um helgina þegar hann sigraði bæði í liðakeppni og
einstaklingskeppni. Auk þess fékk hann flest stig í einu stuði, 120.
Jóhannes B. sópaði
til sín verðlaunum
JÓHANNES B. Jóhannesson, Íslandsmeistari í snóker, endurtók
frækna frammistöðu sína frá Norðurlandamótinu í snóker í fyrra og
sópaði til sín verðlaunum á Norðurlandamótinu í ár, sem haldið var í
Hafnarfirði og Reykjavík um helgina. Hann vann gull í liðakeppninni
og einnig í einstaklingskeppni en fékk auk þess verðlaun fyrir flest
stig í einu stuði í báðum flokkum, 98 í einstaklingskeppninni og 120
í liðakeppninni. Alls mættu þrettán erlendir keppendur á mótið,
sem var hið skemmtilegasta, en mesta athygli vakti tæplega sex
tíma viðureign nafnanna Jóhannesar B. og Jóhannessar R. Jóhann-
essonar í undanúrslitum.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Morgunblaðið/Jim Smart
Rós Magnúsdóttir, sem hér mundar kjuðann af einbeitingu,
fékk silfur á Norðurlandamótinu í snóker um helgina.
„ÞETTA gekk allt eins og í
sögu, sömu sögu og í fyrra
þegar ég vann allt nema
hvað ég var mjög smeykur
í undanúrslitunum við Jó-
hannes R., sem er að koma
sterkur til leiks á ný og er
mikill reynslubolti,“ sagði
Jóhannes B. Jóhannesson
að niðurlotum kominn eft-
ir mótið en þá hafði hann
leikið samfleytt í 8 klukku-
stundir, þar af í tæplega 6
við Jóhannes R. og reyndi
einbeitingin mikið á þrek-
ið. „Sá nærri sex klukku-
stunda leikur tók mikið á
einbeitinguna, sem þarf að
vera í góðu lagi. Leikurinn
var hrikalega erfiður og
fram að honum hafði ég
aðeins tapað tveimur
römmum. Ég var orðinn
nokkuð svartsýnn á að
mér tækist að halda áfram
á mínum takti þegar stað-
an var 5–5 hjá okkur, það
gekk samt en þetta var
með erfiðari leikjum á
ferlinum.“
Jóhannes B. reyndi fyrir
sér á erlendum atvinnu-
mótum fyrir skömmu og
langar út aftur. „Ég hef
ekki getað æft mikið fyrir
þetta mót því vinnan geng-
ur fyrir en ég reyndi að
koma eins mikið og hægt
var til að æfa. Ég varð að
fara að vinna af krafti því
það eru enn skuldir síðan
ég var erlendis að spila og
lifði að mestu á kreditkort-
inu. Hinsvegar vona ég að
það gangi að finna styrkt-
araðila svo að ég geti
spreytt mig aftur úti því
ég á fullt erindi á erlendu
mótin og ég vona að þessi
árangur í dag sýni pen-
ingakörlunum á landinu
hvað í mig er spunnið,“
bætti kappinn við og þeir
sem sáu hann þrauka þess-
ar átta stundir undir mikl-
um þrýstingi kinkuðu kolli
við því.
Átta
stunda
þrekraun