Morgunblaðið - 06.02.2001, Qupperneq 3
HM Í FRAKKLANDI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2001 B 3
ÞEGAR forráðamenn Póstsins, að-
alstyrktaraðila HM í Montpellier,
kvöddu þátttakendur og blaða-
menn í lokahófi eftir að riðlakeppn-
inni lauk þar í borg, hélt forstjóri
fyrirtækisins ræðu. Þar þakkaði
forstjórinn mönnum fyrir komuna
og sagði í lokin að vonandi mættust
Frakkar og Svíar í úrslitum þar
sem Frakkar hefðu betur.
Ungur sænskur piltur, sem er við
frönskunám í Montpellier, þýddi
ræðu forstjórans, fyrst á ensku og
fór þá rétt með allt nema hann
þurfti að hósta þegar kom að því að
vona að Frakkar færu með sigur.
Þegar hann snaraði ræðunni hins
vegar yfir á sænsku var hann ekk-
ert að hafa fyrir því að þýða rétt,
sagðist vonast til að Svíar færu með
sigur í úrslitaleiknum við Frakka.
Tvöfaldir
meistarar
FRAKKAR tryggðu sér
heimsmeistaratitilinn í
handknattleik í París.
Þar með léku þeir eftir
leik franskra knatt-
spyrnumanna, sem urðu
heimsmeistarar í París
1998. Frakkar eru því
heimsmeistarar bæði í
knattspyrnu og hand-
knattleik. Þeir hafa fetað
í fótspor Þjóðverja, sem
voru tvöfaldir heims-
meistarar 1978, þegar
handknattleikslandsliðið
varð heimsmeistari í
Danmörku, en þá voru
Þjóðverjar handhafar
heimsmeistaratitilsins í
knattspyrnu, sem þeir
hömpuðu í München
1974.
MAGNUS Wislander, hinn 36 ára
gamli línumaður Svía, setti markamet
á heimsmeistaramótinu. Fyrir mótið
hafði Per Carlén gert 1.032 mörk í
landsleik fyrir Svía og var þar efstur á
lista. Annar var Erik Hajas með 996
mörk og Wislander í þriðja sæti með
995 mörk.
Wislander gerði fimm mörk í fyrsta
leiknum á móti Íslendingum og síð-
asta mark hans í þeim leik var hans
1.000 fyrir Svía. En þessi magnaði
línumaður hélt áfram að skora og
þegar riðlakeppninni lauk í Montpell-
ier hafði hann gert 1.021 mark fyrir
landsliðið.
Í 16 liða úrslitum mættu Svíar Arg-
entínumönnum og þar gerði Wisland-
er fjögur mörk og í 8 liða úrslitum
mættu þeir Úkraínu og þar var Wis-
lander með sjö mörk og sló þar með
met Carléns. Hann bætti síðan enn
um betur og skoraði fjögur mörk í
undanúrslitaleiknum við Júgóslava
og í úrslitaleiknum við Frakka gerði
hann fjögur mörk og hefur því gert
1.041 mark í 335 landsleikjum fyrir
Svía, eða 3,12 mörk að meðaltali í leik.
SÆNSKI leikmaðurinn Stefan Löv-
gren var útnefndur leikmaður HM í
Frakklandi. Hann var einnig í liði
HM ásamt David Barrufet, mark-
verði Spánar, Eduard Kokscharov,
Rússlandi, Hussein Zaky, Egypta-
landi, Kyung-Shin Yoon, Suður-
Kóreu, Zikica Milosavljevic, Júgó-
slavíu, og Bertrand Gille, Frakk-
landi.
Lövgren
bestur
OLA Lindgren fékk mikið högg á
nefið undir lok leiks Svía og Úkra-
ínu í 8-liða úrslitunum í Toulouse á
fimmtudaginn.
Við rannsókn kom í ljós að hann
hafði nefbrotnað og frekar en
leggja árar í bát var útbúin á hann
mikil gríma og lék hann með grím-
una á móti Júgóslövum í undan-
úrslitunum og Frökkum í úrslitum.
„Ég sagði við Bengt að ég vildi
spila,“ sagði Lindgren sem sagði að
það hefði ekki hvarflað að sér að
sleppa síðustu leikjunum vegna
þessa.
Lindgren
nefbrotnaði
Frakkar töpuðu fyrir Svíum ímóti í Svíþjóð helgina áður en
heimsmeistaramótið hófst og eftir
þann leik sagði Daniel Costantini,
þjálfari Frakka, að það væri hægt
að leggja Svía. Hann reyndist
sannspár og menn hans fögnuðu
ógurlega á meðan Svíar voru nið-
urlútir með annan silfurpening sinn
á einu ári en þeir urðu í öðru sæti á
Ólympíuleikunum í Sydney í haust.
Frakkar fengu óskabyrjun á
sunnudaginn, komust í 4:0 og flöt
vörn Svía virkaði ekki nægilega
vel. Það breyttist þó og með bar-
áttu og vinnusemi náði liðið að
jafna 7:7 og var 11:10 undir í leik-
hléi. Svíar komust síðan yfir í
fyrsta sinn er staðan var 12:13 og
skömmu síðar varð örvhenta skytt-
an Patrick Cazal að fara meiddur
af velli. Þessi skemmtilegi baráttu-
jaxl hágrét þegar hann var studdur
af leikvelli en læknar liðsins stífuðu
ökklann á honum þannig að hann
gat komið inn á að nýju.
Í millitíðinni hafði Svíum tekist
að ná þriggja marka forystu, 14:17
en sjálfstraustið kom á ný í leik
Frakka þegar Cazal mætti til leiks
á ný, Bruno Martini varði vítakast
og Frakkar náðu að jafna 17:17
þegar 12 mínútur voru til leiksloka.
Svíar voru fyrri til það sem eftir
var leiksins en Frakkar jöfnuð jafn
harðan. Þegar 17 sekúndur voru til
leiksloka skoraði Stefan Lövgren
22. mark Svía og kom þeim marki
yfir og héldu menn að hann væri
með þessu að endurtaka leikinn frá
því daginn áður er hann tryggði
Svíum eins marks sigur á Júgóslöv-
um. En Gregory Anquetil var á
öðru máli, á meðan Svíar skiptu
varnarmönnum inn á brunaði hann
upp hægri kantinn og fór inn úr
horninu og jafnaði.
Fyrri hálfleikur framlengingar-
innar var fjörugur og hvoru liði
tókst að skora í þrígang. Í síðari
hálfleiknum náðu Svíar hins vegar
ekki að skora, misnotuðu meðal
annars vítakast, en Frakkar gerðu
þrjú mörk og fögnuðu heimsmeist-
aratitlinum.
Bruno Martini, markvörður
Frakka, varði vel þegar á þurfti að
halda, Jerome Fernande byrjaði
vel, sást síðan ekki langtímum sam-
an en kom sterkur á lokakaflanum.
Besti maður Frakka var þó án
nokkurs vafa Patrick Cazal og það
kom í ljós þegar hans naut ekki við
hversu mikilvægur hann er liðinu.
Hornamaðurinn Gregory Anquetil
átti einnig góðan dag og í raun má
segja að allir leikmenn liðsins hafi
átt góðan dag.
Gentzel stóð í marki Svía allan
leikinn og stóð sig mjög vel, hélt
liðinu á floti á löngum köflum.
Flestir leikmenn Svía hafa leikið
betur en í þessum leik, en þó átti
Stefan Lövgren ágæta spretti.
APFrönsku leikmennirnir fagna heimsmeistaratitlinum í París, eftir sigurinn á Svíum 28:25.
Frakkar meistarar
FRAKKAR fögnuðu öðrum
heimsmeistaratitli sínum í
handknattleik karla í Bercy-
höllinni í París á sunnudag. Árið
1995 fögnuðu þeir í Laugardals-
höll, en að þessu sinni á heima-
velli eftir að hafa lagt Svía,
28:25, í framlengdum úrslita-
leik.
! "#
$
%
&'
()*'+
,-$
+.
/+$
-"
0-$"
01 $
,-$$ $). &1 +2 ' 3.+12
!"
#" $
% &'$!
!
2
2
2
+$)0/
+
45"-
45"-
45"-
45"-
6 + $
&5)
45
45
! "#
6 + $
&5)
7 ) -
6 + $
8 +
45
9
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
9
9
Póstmeist-
aranum varð
að ósk sinni
Glæsilegt
markamet
hjá Wis-
landers