Morgunblaðið - 06.02.2001, Page 4
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
4 B ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Vilborg tók forystuna strax ífyrstu grein, 60 metra hlaupi,
og lét hana ekki af hendi það sem
eftir var. Hún bætti
sig í fimm greinum
af sex, aðeins í
kúluvarpinu tókst
Vilborgu ekki að
gera betur en hún hefur áður gert,
varpaði kúlunni 11,57 metra. Alls
bætti hún sig um 23/100 úr sek-
úndu í 60 m hlaupi, hljóp á 8,15
sekúndum. Þá bætti hún fyrri ár-
angur sinn í langstökki um 21
sentímetra, stökk 5,46 metra. Í há-
stökki stökk Vilborg 1,61 metra,
einum sentímetra hærra en hún
hefur hæst stökkið innanhúss. Í 60
m grindahlaupi kom Vilborg í
mark á 9,14 sekúndum, sem er 26/
100 úr sekúndu hraðar en hún hef-
ur áður hlaupið þessa vegalengd. Í
síðustu greininni, 800 m hlaupi,
bætti Vilborg sig um 8 sekúndur,
hljóp á 2.33,08. Íslandsmetið var
þar slegið en fyrra metið setti hún
fyrir réttu ári þegar hún vann
fyrsta sinni.
„Ég er að sjálfsögðu mjög
ánægð með sigurinn og Íslands-
metið, en ég hefði viljað bæta mig í
öllum greinum, það var bara
stressi um að kenna að mér tókst
ekki að bæta mig í kúluvarpinu,“
sagði Vilborg. „Eins vonaðist ég til
að fara hærra í hástökkinu. En
þetta var ágætt og ekki síst vegna
þess að ég hef ekkert keppt í sex-
þraut innanhúss síðan ég varð
meistari í fyrra.
Árangurinn er fyrst og fremst
að þakka því að ég hef æft mjög
vel frá því í fyrra. Í sumar stefni
ég á að bæta Íslandsmetið í sjö-
þraut utanhúss,“ sagði Vilborg. Ís-
landsmetið er 16 ára gamalt, 5.204
stig, í eigu Birgittu Guðjónsdóttur,
HSK. Vilborg náði 4.905 stigum í
sjöþraut í fyrrasumar.
„Ég æfi að jafnaði sjö sinnum í
viku, fimm sinnum fyrir norðan á
Sauðárkróki og kem ég suður með
félögum mínum og við æfum í
Reykjavík um helgar. Á Sauðár-
króki vantar okkur tilfinnanlega
betri aðstöðu utanhúss og vonandi
rætist úr því þegar menn hafa tek-
ið af skarið og ákveðið að byggja
nýjan völl og sækja um landsmótið
2004. Nýr völlur myndi bylta allri
aðstöðu fyrir okkur frjálsíþrótta-
fólk á Sauðárkróki og vonandi hafa
menn þor til þess að fara út í þá
framkvæmd,“ sagði Vilborg.
Önnur var Ágústa Tryggvadótt-
ir, HSK, með 4.161 stig, sem er
nýtt telpnamet og þriðja Gunnhild-
ur Hinriksdóttir, HSK, 3.956 stig.
Ólafur Guðmundsson, vann í
karlaflokki með 4.916 stig. Þetta
var fimmta árið í röð sem Ólafur
verður Íslandsmeistari. „Jón Arn-
ar tekur aldrei þátt, þannig að á
vissan hátt má segja að hann gefi
mér þetta,“ sagði Ólafur sem oft
hefur verið í betri æfingu en nú.
Hann hljóp 60 metrana á 7,32
sekúndum, stökk 6,62 metra í lang-
stökki, vippaði sér yfir 1,74 metra í
hástökki, varpaði kúlu 14,44 metra,
hljóp 60 m grindahlaup á 8,67 sek-
úndum, stökk 4,10 metra í stang-
arstökki og hljóp 1.000 metra á
3.04,37 mínútum.
Annar varð Theódór Karlsson,
UMSS, önglaði saman 4.797 stig-
um. Þriðji varð hinn ungi og efni-
legu Hafnfirðingur, Jónas Hall-
grímsson, með 4.719. Jónas stökk
m.a. 4,20 í stangarstökki og bætti
sinn persónulega árangur nokkuð.
Þá gerði hann tilraun við nýtt ung-
lingamet, 4,30 metra, en hafði ekki
erindi sem erfiði að þessu sinni.
Morgunblaðið/Ásdís
Ólafur Guðmundsson með Vilborgu Jóhannsdóttir, meistara í sexþraut, á háhesti.
Íslandsmet hjá
Vilborgu í sexþraut
VILBORG Jóhannsdóttir, UMSS, setti Íslandsmet og varð Íslands-
meistari í sexþraut kvenna annað árið í röð á sunnudaginn. Vilborg
hafði umtalsverða yfirburði í kvennaflokki, fékk 4.407 stig og bætti
eigið Íslandsmet frá síðasta ári um 278 stig. Í sjöþraut karla vann
Ólafur Guðmundsson, HSK, átakalítinn sigur, hlaut 4.916 stig. Mót-
ið fór fram í Baldurshaga og í íþróttahúsinu Smáranum.
Ívar
Benediktsson
skrifar
Íslands- og Norðurlanda-met Jóns Arnars í sjö-
þraut er 6.293 stig. Það
setti hann á
heimsmeist-
aramótinu í
Maebashi í
Japan fyrir
tveimur árum. Um mótið í
Tallin sagði Jón að sprett-
hlaupin, 60 metrarnir og 60
m grindahlaupið hefði verið
gott, eins langstökkið og
kúluvarpið hefði verið í
lagi. Þá hefði herslumuninn
vantað upp á að hann næði
yfir 5,05 metra í stangar-
stökki. „Eitt þúsund metra
hlaupið gekk illa. Ég fékk
krampa í báða kálfana þeg-
ar fjögur hundruð metrar
voru eftir. Þar með var úti
um að ég næði að komast
yfir 6.100 stig samanlagt
eins og ég stefndi að,“ sagði
Jón. Hann gerir sér hæfi-
legar vonir um að þessi árangur
nægi til þess að tryggja honum far-
seðilinn á HM í Lissabon í næsta
mánuði. „Það væri öruggara með
þátttöku á HM hefði ég farið yfir
6.100 stigin. Nú er bara að vona,
en það verður enginn heimsendir
hjá mér komist ég ekki á HM, það
eru næg verkefni framundan, bæði
við æfingar næstu mánuði og síðan
í tugþrautinni þegar kemur fram á
vorið,“ sagði Jón Arnar.
Jón hljóp 60 m á 6,99 sekúndum
og varð í 5. sæti, 13/100 á eftir Lev
Lobodin, Rússlandi sem var fráast-
ur á fæti. Lobodin varð í öðru sæti
í þrautinni með 6.196 stig. Jón
stökk næst lengst keppenda í lang-
stökki, 7,65 metra, tveimur senti-
metrum skemur en Sebrle.
Lengsta stökki sínu náði Jón í ann-
arri umferð en fyrstu umferð stökk
hann 7,02 og 7,48 í þriðju tilraun. Í
öðru stökki varð Jón fyrir því að
brjóta alla gaddana undan stökks-
kónum á uppstökksfætinum við
uppstökkið. „Ég hef aldrei lent í
þessu fyrr, aðeins orðið fyrir því að
beygja gaddana,“ sagði Jón um
óhappið. Honum tókst að ná brot-
unum úr skónum og setja nýja
gadda í fyrir lokastökkið.
Jón varpaði lengst 15,88 metra í
kúluvarpi sem hann taldi vera við-
unandi, en best á hann innanhúss
16,37.
Jón var nokkuð frá sínu besta í
hástökki, fór yfir 1,95 metra. Sagði
hann tæknileg atriði hafa komið í
veg fyrir að hann færi hærra. „Í
næstu hæð, 1,98 metrar, þá felldi
ég alltaf á niðurleið. Þetta er
tækniatriði sem ég verð að vinna
betur í.“ Sebrle stökk hæst allra í
hástökki, 2,10 metra.
Jón var aðeins 2/100 úr sekúndu
frá Íslandsmeti sínu í 60 m grinda-
hlaupi, kom í mark á 8 sekúndum
sléttum. Lobodin varð fyrstur í
mark á 7,87. Hann varpaði einnig
keppenda lengst í kúluvarpi, 16,02
metra.
Ólympíumeistarinn í tugþraut,
Erki Nool frá Eistlandi, stökk
manna hæst í stangarstökki, 5,25
en Jón varð að láta sér 4,95 nægja.
„Þetta er það hæsta sem ég hef
stokkið í Eistlandi, þannig að þetta
er framför,“ sagði Jón. „Það þýðir
ekkert annað en að líta á björtu
hliðarnar.“
Eins og fyrr segir gekk Jóni illa
í 1.000 metra hlaupinu vegna
krampa í kálfa.
„Nú er bara að vinna í því betur
og halda sér heilum. Mér finnst út-
litið vera gott og ég er bjartsýnn á
að nú liggi leiðin upp á við,“ sagði
Jón Arnar Magnússon og leit já-
kvæðum augum fram á veginn.
Alls tóku 18 keppendur þátt í
sjöþrautinni í Tallin, þar af komust
14 þeirra klakklaust í gegnum allar
greinarnar sjö.
Jón Arnar Magnússon í 5. sæti
í sjöþraut í Tallin í Eistlandi
Morgunblaðið/Sverrir
Jón Arnar Magnússon er
kominn af stað.
Þurfti á þessu
að halda
„ÉG er fyrst og fremst ánægður með að komast í gegnum þrautina
og finna að það eru engin meiðsl að plaga. Á þessu þurfti ég að
halda til þess að sanna ýmislegt fyrir sjálfum mér og öðrum,“ sagði
Jón Arnar Magnússon, Norðurlandamethafi í sjöþraut karla eftir að
hann hafnaði í fimmta sæti á alþjóðlegu móti í sjöþraut í Tallin í
Eistlandi á sunnudag. Jón Arnar fékk 6.056 stig, 111 stigum minna
en sigurvegarinn, Roman Sebrle, Tékklandi. „Það var gífurlega mik-
ilvægt fyrir mig að komast heill í gegnum þrautina, ekki síst fyrir
sjálfstraustið, en vissulega þarf að vinna í ýmsum atriðum til þess
að ná enn betri árangri,“ sagði Jón ennfremur.
Ívar
Benediktsson
skrifar