Morgunblaðið - 06.02.2001, Page 5
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2001 B 5
Valsstúlkur halda áfram að klifraupp töfluna og nálgast nú liðin
fyrir miðju deildarinnar eftir naum-
an sigur á KA/Þór á
Akureyri í gær í
hörkuspennandi
leik. Lokatölur urðu
19:18. Stúlkurnar í
KA/Þór sitja því enn í næstneðsta
sæti með 4 stig en Valur hefur verið
á spretti í síðustu leikjum, rifið sig
frá botninum og er liðið komið með
10 stig.
Leikurinn var harður og afar
spennandi. Heimastúlkur byrjuðu
betur og leiddu fram í stöðuna 5:4.
Þá hafði Ásdís Sigurðardóttir skorað
4 mörk og gripu Valsstúlkur þá til
þess ráðs að taka hana úr umferð og
þær komust smám saman fram úr.
Staðan í leikhléi var 10:11. Athygli
vakti að Valur fékk 7 vítaskot dæmd
í hálfleiknum, skoraði úr 4 en Sig-
urbjörg Hjartardóttir varði þrjú.
KA/Þór fékk eitt víti.
Valsstúlkur mættu öflugar til
seinni hálfleiks og skoruðu fjögur
mörk í röð; staðan 10:15. Þessi mun-
ur hélst fram á 20. mín. er staðan var
13:18 en þá kom frábær leikkafli hjá
heimaliðinu, sérstaklega Ásdísi sem
bæði braust í gegn og skoraði og
opnaði fyrir Guðrúnu Lindu í horn-
inu. KA/Þór jafnaði í 18:18 þegar 4
mín. voru eftir. Eivor Pála Blöndal
skoraði svo loks fyrir Val af vítalín-
unni og Berglind Hansdóttir mark-
vörður bjargaði liðinu síðan í tví-
gang, fyrst með því að verja frá
Þórhildi Björnsdóttur eftir gegnum-
brot og síðan vítaskot frá Ásdísi þeg-
ar rúm mínúta var eftir. Raunar
töldu flestir, nema dómararnir, að
brotið hefði verið á Þórhildi þegar
hún prjónaði sig í gegn.
,,Ásdís sagði mér einu sinni hvar
hún myndi skjóta ef hún þyrfti að
taka víti undir pressu. Hún hefði
ekki átt að gera það,“ sagði Berglind
Hansdóttir, hetja Vals. ,,Ég var ekki
ánægð með frammistöðu mína í fyrri
hálfleik og var ákveðin að gera betur
í þeim seinni. Við höfum spilað mjög
vel eftir jól og það er allt á uppleið
hjá okkur.“
Auk Berglindar lék Árný Ísberg
skínandi vel hjá Val. Ásdís var afar
kraftmikil í liði heimastúlkna og
skoraði 8 mörk þrátt fyrir að vera
lengstum tekin úr umferð, auk þess
sem hún fékk oft óblíðar móttökur.
Sigurbjörg varði stórvel, m.a. 4 víta-
skot og Guðrún Linda átti mjög góð-
an leik.
Hörkuleikur á Akureyri
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar
Leikur Fram og ÍBV var baráttaallt frá upphafi til enda. Liðin
skiptust á um að hafa forystuna og
jafnt var með liðun-
um í leikhléi 11:11.
Það var í raun ótrú-
legt að sú skyldi
vera raunin því tví-
vegis í fyrri hálfleiknum voru Fram-
arar tveimur leikmönnum fleiri og í
rúma mínútu voru þremur fleiri
Framarar inni á heldur en Eyja-
stúlkur. Hið leikreynda lið Fram
náði þó ekki að nýta sér það enda
sýndi liðið mikið agaleysi í sóknar-
leiknum og gerði ekki meira en að
halda í horfinu. ÍBV sýndi á sama
tíma mikinn styrk. Í liðinu eru sam-
an komnir mjög sterkir leikmenn
sem á tíma tóku þrír á móti sex
óhræddir á móti Frömurum og
héldu jöfnu.
Seinni hálfleikurinn var svipaður
hinum fyrri, liðin skiptust á um að
hafa forystuna en um miðjan hálf-
leikinn lentu Framarar í sömu
vandræðunum og Eyjastúlkur í
fyrri hálfleiknum. Þá missti Fram
tvo leikmenn út af á sama tíma og
það tækifæri nýttu Eyjastúlkur sér
vel, breyttu stöðunni úr 15:14 í 15:18
og lögðu grunninn að góðum bar-
áttusigri. Af þessum fjórum mörk-
um sem ÍBV skoraði í röð gerði
Tamara Mandzec þrjú en hún var
best í sterku Eyjaliði.
„Það vantaði baráttu og það vant-
aði vilja til að sigra. ÍBV vann þenn-
an leik vegna þess að þær höfðu
meiri sigurvilja en við,“ sagði Haf-
dís Guðjónsdóttir, leikmaður Fram,
í leikslok. „Það er alveg hrikalega
niðurdrepandi að fá svona dóm-
gæslu eins og í þessum leik en við
getum samt ekki skellt skuldinni á
dómarana, hversu lélegir sem þeir
voru, tapið skrifast á okkur sjálfar.“
Lið ÍBV náði ágætlega að vinna
úr vandræðum þeim sem það lenti í
en alls máttu Eyjastúlkur hvíla í 18
mínútur í leiknum. Liðið sýndi það í
þessum leik að það ætlar sér ekki að
láta Íslandsmeistaratitilinn bar-
áttulaust af hendi. Eftir erfiða byrj-
un hefur leiðin legið jafnt og þétt
upp á við og miðað við baráttuand-
ann sem ríkti hjá Eyjastúlkum á
laugardag verða þær mjög erfiðar
heim að sækja í úrslitakeppninni.
Framstúlkur voru sjálfum sér
verstar í þessum leik. Í seinni hálf-
leiknum létu þær og Gústaf Adolf
Björnsson, þjálfari þeirra, dómara
leikins fara illa í taugarnar á sér og
fékk Gústaf Adolf að líta rauða
spjaldið hjá þeim fyrir mótmæli.
Vissulega voru dómararnir ekki
bestu menn vallarins, síður en svo,
en afar slök dómgæsla þeirra Ing-
vars Reynissonar og Einars Hjalta-
sonar, bitnaði ekki síður á liði ÍBV
og Framarar geta engum nema
sjálfum sér um kennt að hafa ekki
nýtt sér þau fjölmörgu tækifæri
sem liðið fékk til að hafa sigur í
leiknum. Marina Zoueva lék best
Framara, sem geta gert mikið betur
en það sem útúr liðinu kom á laug-
ardag.
Öruggt í Ásgarði og á Ásvöllum
Það var allt eftir bókinni í Ásgarði
í Garðabæ þegar Stjarnan tók á
móti neðsta liði deildarinnar ÍR.
Stjarnan, sem er í öðru sæti deild-
arinnar, hafði ekki mikið fyrir 18
marka sigri 31:13. Inga Lára Þór-
isdóttir lék einn sinn besta leik í
langan tíma og virðist ætla að koma
sterk inn í lokakeppnina. Helga
Dóra Magnúsdóttir, hinn 16 ára
gamli markvörður ÍR, lék best í
ungu og efnilegu liði, varði 15 skot
og forðaði því frá enn stærra tapi.
Haukar lögðu grunn að sigri
sínum í fyrri hálfleik
Á Ásvöllum héldu Haukarnir enn
eina sýninguna fyrir mótherja sína
sem að þessu sinni voru Víkingar.
Haukar, sem hafa leikið allra liða
best í vetur lögðu grunninn að sigri
sínum í fyrri hálfleiknum og höfðu 9
marka forskot í leikhléi, 16:7. Hauk-
arnir slökuðu á í seinni hálfleiknum
og höfðu sjö marka sigur, 27:20.
Haukarnir hafa verið að sýna
mjög jafnan leik í allan vetur, ef
undan er skilinn eini leikurinn sem
liðið hefur tapað, gegn Gróttu/KR í
11. umferð og þessi stöðugleiki er
helsti styrkleiki liðsins.
Víkingar mættu ofjörlum sínum í
þessum leik en það var ýmislegt já-
kvætt í leik þeirra. Ein besta skytta
deildarinnar, Kristín Guðmunds-
dóttir, átti mjög góðan leik og Guð-
rún Hólmgeirsdóttir átti sömuleiðis
fínan leik í hægra horninu.
Línurnar að skýrast
Nú þegar aðeins fjórar umferðir
eru eftir í deildinni eru línurnar um
það hvaða lið fara í úrslitakeppnina
farnar að skýrast. KA á ennþá
möguleika á að fara áfram, en þarf
að treysta því að Valur tapi þeim
leikjum sem eftir eru og á sama
tíma þarf KA að sigra í sínum leikj-
um, gegn Gróttu/KR, ÍR, Stjörn-
unni og FH. Haukarnir hafa óneit-
anlega góða stöðu til að tryggja sér
deildarmeistaratitilinn en liðið á
erfiða leiki framundan, Stjörnuna,
ÍBV, FH og Val en forystan í dag er
sex stig og þurfa Haukarnir aðeins
einn sigur til að tryggja sér titilinn.
Stjarnan og ÍBV berjast um það
hvort liðið endar í 2. sætinu á eftir
Haukum. Bæði þessi lið eiga enn
möguleika á að taka deildarmeist-
aratitilinn en þá þurfa þau að
treysta því að Haukarnir tapi þeim
leikjum sem eftir eru, markatala
Haukanna er slík að það dugar
hvorki Fram né ÍBV að Haukarnir
tapi aðeins öðrum leiknum gegn FH
eða Val, nái annaðhvort liðanna
Haukum að stigum munu Haukarn-
ir alltaf hafa betur á markatölu enda
hefur liðið 101 mark í plús nú þegar
14 umferðir eru búnar. Það er
sennilega lítil löngun hjá liðunum að
þurfa að fara til Eyja í úrslitakeppn-
inni og nú fara stigin sem Víkingur,
Grótta/KR og FH næla sér í að telja
fyrir alvöru en þessi þrjú lið eru lík-
legust til þess að lenda gegn ÍBV.
Jafnvel eru líkur til þess að það
verði markahlutfall sem ráði um það
hverjir fari til Eyja en þó aðeins
fjórar umferðir séu eftir af deildinni
er ennþá fullsnemmt að spá um það.
Morgunblaðið/Ásdís
Framstúlkur ná hér að stöðva Gunnley Berg, leikmann ÍBV. Meistaralið ÍBV er komið á góða siglingu og til alls líklegt.
Meistarar sýndu styrk
HAUKAR halda föstu taki á forystu sinni í 1. deild kvenna í hand-
knattleik eftir 14. umferðina sem fram fór um helgina. Þá tóku
Haukastúlkur á móti Víkingum og unnu næsta auðveldan sigur,
27:20. Í Ásgarði í Garðabæ tóku Stjörnustúlkur ÍR-inga í kennslu-
stund og unnu 31:13, en aðalleikur helgarinnar fór fram í Fram-
heimilinu þar sem Íslandsmeistarar ÍBV fikruðu sig upp að hlið
Stjörnunnar í 2.–3. sæti í deildinni með góðum sigri á Fram 21:20.
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar