Morgunblaðið - 06.02.2001, Page 12
MAGNUS Andersson, leik-
stjórnandi sænska lands-
liðsins í handknattleik, til-
kynnti eftir tapleikinn gegn
Frökkum í úrslitaleik
heimsmeistarakeppninnar
að hann hefði tekið þá
ákvörðun að hætta að leika
með landsliðinu. Andersson
hefur leikið með sænska
landsliðinu samfleytt í 13 ár
og eru leikirnir orðnir 277
talsins hjá þessum snjalla
leikmanni sem lék mjög vel
á HM í Frakklandi.
Þar með er ljóst að Svíar
verða að finna nýjan leik-
stjórnanda fyrir Evrópu-
mótið sem fram fer í Sví-
þjóð á næsta ári en þar eiga
Svíar Evrópumeistaratitil
að verja.
Á sama tíma og Anders-
son tilkynnti um þessa
ákvörðun sína fengu Svíar
góðar fréttir því hinn gamli
jaxl, Staffan „Faxi“ Olsson,
ætlar að snúa til baka í
landsliðið að nýju og leika
með því á Evrópumótinu á
næsta ári. Olsson, sem er
orðinn 37 ára gamall, gaf
ekki kost á sér í heims-
meistarakeppnina en hann
vill kveðja landsliðið á
heimavelli.
Andersson
hættur en
„Faxi“ snýr
til baka
RAGNHEIÐUR Stephensen skor-
aði tvö mörk fyrir Bryne sem burst-
aði Gjerpen, 30:16, í norsku úrvals-
deildinni í handknattleik um helgina.
Bryne er með átta stig í deildinni og
er í þriðja neðsta sætinu.
HULDA Bjarnadóttir skoraði 3
mörk fyrir lið sitt Skjern er það tap-
aði 24:19 fyrir Brabrand í dönsku 2.
deildinni í handknattleik á sunnu-
daginn.
NENAND Perunicic, júgóslav-
neski risinn sem leikur með Kiel í
þýsku úrvalsdeildinni í handknatt-
leik, hefur ákveðið að ganga til liðs
við Magdeburg á næstu leiktíð.
PERUNICIC, sem er 29 ára gam-
all, gerði þriggja ára samning við
Magdeburg en sem kunnugt er
þjálfar Alfreð Gíslason liðið og Ólaf-
ur Stefánsson leikur með því. Per-
unicic er ætlað að fylla skarð Rúss-
ans Vassili Kudinov en hann gengur
til liðs við félag í Japan á næstu leik-
tíð.
SIGURBJÖRG Ólafsdóttir og
Maríanna Hansen hafa gengið til liðs
við frjálsíþróttalið Breiðabliks í
Kópavogi. Sigurbjörg kemur frá
USAH og Maríanna úr ÍR.
ÁRNI Gautur Arason lék í mark-
inu hjá Rosenborg, er norska liðið
lagði sænska liðið AIK frá Stokk-
hólmi að velli á móti á La Manga á
Spáni, 3:2.
GUÐMUNDUR Stephensen borð-
tennismaður lék tvo leiki með félagi
sínu, Thyland, í dönsku úrvalsdeild-
inni um helgina. Liðið vann Esbjerg
6:4 en tapaði fyrir Hörning, 6:4.
Gegn Esbjerg tapaði Guðmundur
einni viðureign en vann aðra í ein-
liðaleik og þá vann hann í tvíliðaleik.
Í leiknum gegn Hörning tapaði Guð-
mundur einnig einum leik í einliða-
leik, vann annan og hafði sigur í tví-
liðaleik ásamt samherja sínum.
FÓLK
ÞAU fjögur lið sem léku í undanúr-
slitum heimsmeistarakeppninnar í
handknattleik í Frakklandi komu úr
tveimur riðlum, A-riðli, riðli okkar
Íslendinga, og B-riðli. Frakkar, sem
léku í B-riðli, sigruðu Svía, sem léku
í A-riðli, í úrslitum og í leiknum um
bronsið fór eins, Júgóslavar, sem
léku í B-riðli, unnu Egypta, sem léku
í A-riðli. Það má því segja að B-riðill-
inn hafi haft betur.
B-riðill
hafði betur
Hvorki gekk né rak hjá gestunumúr ÍS til að byrja með en á
sama tíma lék allt í höndunum á KR-
ingum svo að eftir
rúmar átta mínútur í
stöðunni 22:6 skipti
þjálfari KR öllu
byrjunarliði sínu út-
af. Það reyndist ekki heillaráð því
ÍS-stúlkur gengu strax á lagið og
minnkuðu muninn niður í 6 stig. Því
kom mest af byrjunarliði KR aftur
inná og eftir að tvö skot úr afar erf-
iðri aðstöðu rötuðu beint ofan í körfu
ÍS, hrukku KR-ingar í gang á ný.
Eins og í þeim fyrri hóf KR þann
síðari af krafti og náði 18 stiga for-
ystu en það gerði útslagið þegar
rúmar sex mínútur liðu án þess að
ÍS tækist að skora stig á meðan KR
jók forskotið í 27 stig, 63:36.
„Við komum ákveðnar til leik og
ætluðum að kýla á þetta því ákvörð-
un okkar um að fá okkur ekki út-
lending hleypti meira lífi í liðið og
við urðum enn ákveðnari fyrir vik-
ið,“ sagði Hildur Sigurðardóttir í
KR eftir leikinn en hún átti prýð-
isleik. Það skiptir miklu máli að ná
forystu strax í byrjun og við náðum
að halda henni mest allan leikinn þó
að við hefðum misst aðeins dampinn
um tíma en við náðum okkur fljót-
lega aftur á strik. Þessi leikur
vannst því á góðri liðsvinnu og bar-
áttu,“ bætti Hildur við og spáir
hörkuúrslitaleik. „Það verður
hörkuleikur því þær eru komnar
með liðsstyrk frá Bandaríkjunum.
Það herðir okkur enn meira upp því
við vildum sjálfar bæta okkur frekar
en að fá erlendan leikmann.“ Gréta
M. Grétarsdóttir og Hanna B.
Kjartansdóttir voru einnig mjög
góðar.
„Ég get lítið um þessi úrslit sagt
nema að ég held að við séum ekki
nógu góðar,“ sagði Hafdís Helga-
dóttir fyrirliði ÍS, sem jafnframt var
stigahæst í sínu liði en sagði tapið
einnig liggja í því að félögum hennar
gekk ekki sem best að hitta í körf-
una. „Fyrst og fremst þá hittum við
ekki neitt. Í byrjun gekk allt upp hjá
KR-stelpum og þær hittu vel en við
ekki neitt en samt var munurinn
ekki svo mikill.“ Hafdís, Lovísa A.
Guðmundsdóttir, Þórunn Bjarna-
dóttir og María B. Leifsdóttir voru
bestar hjá ÍS.
Meistararnir höfðu betur
gegn KFÍ í spennandi leik
Í hinum undanúrslitaleiknum
höfðu Íslands- og bikarmeistarar
Keflavíkur betur gegn KFÍ á heima-
velli, 66:56. Það var ekki fyrr en í
fjórða leikhlutanum sem Keflavík-
urkonur gátu andað léttar. KFÍ
hafði haft undirtökin í leiknum en
þegar sex mínútur lifðu eftir af
leiknum fékk besti leikmaður liðs-
ins, Jessica Gaspar, sínu fjórðu villu
og í framhaldinu tæknivillu og þar
með var þátttöku hennar í leiknum
lokið. Við þessa miklu blóðtöku
misstu Ísfirðingar leikinn úr hönd-
um sér og meistararnir gengu á lag-
ið og innsigluðu öruggan sigur en
Keflavík skoraði 11 stig á móti að-
eins einu á lokakafla leiksins.
Í liði Keflavíkur lék bandaríska
stúlkan Brooke Schwartz mjög vel
en hún skoraði 28 stig og tók 10 frá-
köst. Erla Þorsteinsdóttir lék einnig
vel en hún setti niður 15 stig og hirti
7 fráköst.
Hjá KFÍ lék Gaspar vel meðan
hennar naut við. Hún skoraði 17 stig
og tók sjö fráköst. Þá átti Sólveig
Gunnlaugsdóttir góðan leik og skor-
aði 14 stig.
Morgunblaðið/Ásdís
Guðbjörg Norðfjörð og Símon Jónsson með Gyðu Maríu.
GUÐBJÖRG Norðfjörð
hafði í nógu að snúast á
laugardaginn þegar hún
lék með KR gegn ÍS í und-
anúrslitum í bikarkeppni
kvenna. Þegar kom að leik-
hléi og félagar hennar
hvíldu sig, stökk Guðbjörg
upp í stúku til manns síns,
Símonar Jónssonar, og náði
í tæplega tveggja mánaða
dóttur sína, Gyðu Maríu, til
að gefa henni brjóst.
Guðbjörg var fyrirliði KR
þar til hún tók sér hvíld fyr-
ir 7 mánuðum en er mætt í
slaginn á ný. „Það var ann-
aðhvort að byrja strax eða
sleppa því en ég vildi vera
með,“ sagði Guðbjörg eftir
leikinn. „Ég var svolítið
spennt fyrir leikinn og það
er langt síðan ég hef verið
svona stressuð en var fljót
að hrista það af mér – mað-
ur er með þetta í sér en það
var samt ekki laust við að
það vantaði aðeins uppá
getuna hjá mér.“
Brjósta-
gjöf í
hálfleik
Engin grið gefin
í Vesturbænum
ENGIN grið voru gefin í Vesturbænum á laugardaginn þegar KR-
stúlkur tóku á móti stöllum sínum úr ÍS í undanúrslitum Körfuknatt-
leikssambandsins. Með grimmri vörn og mikilli baráttu ásamt því
að flestöll skot þeirra fóru ofan í körfuna náðu KR-stúlkur góðri for-
ystu, sem þær létu aldrei af hendi og uppskáru fyrir vikið 72:47 sig-
ur. Þar með tryggðu þær úrslitaleik við Keflavík í Laugardalshöllinni
24. febrúar næstkomandi.
Stefán
Stefánsson
skrifar