Morgunblaðið - 09.02.2001, Page 7
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 D 7
Kíktu í Stjörnurnar
Nýju vörurnar komnar
o g L a u g a v e g i 4
1. Abraham Lincoln var kos-
inn á þing 1846.
John F. Kennedy var kos-
inn á þing 1946.
2. Abraham Lincoln var kos-
inn forseti árið 1860.
John F. Kennedy var kos-
inn forseti árið 1960.
3. Nöfnin Lincoln og Ken-
nedy eru bæði mynduð úr
sjö stöfum.
4. Báðir lögðu sérstaka áherslu á
mannréttindi þegnanna.
5. Eiginkonur beggja misstu barn
þegar þær bjuggu í Hvíta hús-
inu.
6. Báðir forsetarnir voru skotnir á
föstudegi.
7. Báðir forsetarnir voru skotnir í
höfuðið.
8. Einkaritari Lincolns hét Kenn-
edy.
Einkaritari Kennedys hét Lin-
coln.
9. Báðir forsetarnir voru myrtir af
suðurríkjamanni.
10. Þeir sem tóku við forsetaemb-
ættinu af þeim voru báðir suð-
urríkjamenn og hétu báðir
Johnson.
11. Andrew Johnson, sem tók við af
Lincoln, var fæddur árið 1808.
Lyndon Johnson, sem tók við af
Kennedy, var fæddur árið 1908.
12. John Wilkes Booth, sem myrti
Lincoln, var fæddur árið 1839.
Lee Harvey Oswald, sem myrti
Kennedy, var fæddur árið 1939.
13. Báðir morðingjarnir voru þekkt-
ir af þremur nöfnum.
14. Nöfn þeirra beggja eru gerð úr
fimmtán stöfum.
15. Lincoln var skotinn í Kennedy-
leikhúsinu.
Kennedy var skotinn í bíl af
Lincoln-gerð.
16. Booth hljóp frá leikhúsinu og
var handtekinn í vöruhúsi.
Oswald hljóp frá vöruhúsi og
var handtekinn í leikhúsi.
17. Bæði Booth og Oswald voru
myrtir áður en mál þeirra voru
rannsökuð fyrir dómi.
18. Og hér kemur svo rúsínan í
pylsuendanum...
Viku áður en Lincoln var skotinn
var hann í Monroe, Maryland.
Viku áður en Kennedy var skot-
inn var hann með Marilyn Monroe.
------------------------------------------
Framangreindar staðhæfingar,
sem ganga nú manna á milli í tölvu-
pósti, bárust Daglegu lífi nýverið.
Sé satt og rétt greint frá hafa tveir
fyrrverandi forsetar Bandaríkjanna
átt ótrúlega margt sammerkt. Til
dæmis eru nefnd áþekk tímamót
sem og viðburðir í lífi Abrahams
Lincolns (1809–1865) og Johns F.
Kennedys (1917–1963) sem bar upp
á sama ári nítjándu aldar hjá Lin-
coln og hjá Kennedy á þeirri tutt-
ugustu.
Þótt margt komi augljóslega
heim og saman er annað svo furðu-
legt að ráð þótti að leita í smiðju
sagnfræðings. Sæmundur Rögn-
valdsson, sem hefur masterspróf í
bandarískri sögu og er nú sögu-
kennari í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti, féllst góðfúslega á að
renna yfir listann og miðla af visku-
brunni sínum.
Rétt eða rangt?
1., 2., 3. og 4. Að sögn Sæmundar
stemma ártölin í fyrstu og ann-
arri staðhæfingu. Lincoln var
settur í embætti 1861, en Ken-
nedy 1961. Vart verður deilt um
þriðju og fjórðu.
5. Alkunna er að Kennedyhjónin
misstu barn þegar þau bjuggu í
Hvíta húsinu en Sæmundur
þorir ekki að fullyrða að sama
hafi hent Lincolnhjónin. Eftir-
grennslan leiddi Daglegt líf á
slóðina www.whitehouse.gov þar
sem fram kemur að Mary Tood
og Abraham Lincoln hafi eign-
ast fjóra syni. Þrír dóu ungir,
þar af einn árið 1862.
6. Samkvæmt slóðinni www.
cod.edu/people/faculty/lawrence/
year.htm bar 22. nóvember 1963
upp á föstudag. Og miðað við
dagatal í eigu auglýsingadeildar
Morgunblaðsins sem löngum
hefur þótt pottþétt heimild við
svipaða útreikninga var líka
föstudagur hinn 14. apríl 1865.
7. Rétt.
8. Sæmundur viðurkennir að hafa
ekki hugmynd um hvort einka-
ritari Lincolns hét Kennedy og
einkaritari Kennedys Lincoln.
Sagði töluvert grúsk að komast
að hinu sanna og baðst undan
slíkri vinnu.
9., 10. og 11. Óumdeilt.
12. Sæmundur segir einu ári skeika
með fæðingardag annars morð-
ingjans, Johns Wilkes Booths,
því hann var fæddur 1838, en
ekki 1839. Rétt er að Lee Har-
vey Oswald fæddist 1939.
13. og 14. Satt og rétt.
15. Lincoln var skotinn í Ford-leik-
húsinu í Washington. Að
minnsta kosti segir Sæmundur
að það hafi verið nefnt Ford-
leikhúsið á þeim tíma og honum
er ekki kunnugt um að þar hafi
orðið breyting á. Að vísu segir
hann að leikhúsinu hafi um
skeið verið breytt í vöruhús, en
síðan endurbyggt og varðveitt í
þeirri mynd sem það var í þeg-
ar Lincoln var drepinn. Þá gerir
Sæmundur fastlega ráð fyrir að
Kennedy hafi verið skotinn í
bifreið af Lincoln-gerð. Sam-
kvæmt heimildum Daglegs lífs
er það rétt. Nánar tiltekið í
svörtum Lincoln Continental ár-
gerð 1962 eða 1963. Bíllinn var
sérstaklega lengdur og bryn-
varinn að neðan fyrir forseta-
embættið.
16. og 17. Næsta víst er að eftir
morðtilræðin hafi
báðir hlaupið þaðan
sem þeir skutu á
forsetana; Booth frá
leikhúsinu og Oswald
frá vöruhúsinu. Oswald
var, að sögn Sæmundar,
þó ekki handtekinn í leik-
húsi. „Ég fékk tölvupóstinn
frá Bandaríkjunum þar sem
algengt er að tala um bíó sem
„theatre“. Staðhæfing númer
sextán hljómar mun betur á
ensku, því hið rétta er að Os-
wald var handtekinn í bíói,“
segir Sæmundur og fullyrðir að
Booth hafi aldrei verið handtek-
inn því hermaður hafi drepið
hann í hlöðu þar sem hann leit-
aði skjóls. „Hermaðurinn, sem
felldi Booth, var grunaður og
ákærður fyrir að vera einn af
samsærismönnunum sem stóðu
að morðinu því yfirmennirnir
ætluðu að ná Booth á lífi. Os-
wald var líka myrtur áður en
mál hans var rannsakað fyrir
dómi.“
18. Ekki kemur á óvart að Sæ-
mundur getur hvorki hnekkt né
samsinnt staðhæfingu númer
átján. Hann reynir þó eftir
bestu getu að klóra í bakkann:
„Mér finnst mjög trúlegt að í
Maryland sé til bærinn Monroe,
sem væri þá væntanlega nefnd-
ur eftir einum forseta Banda-
ríkjanna, James Monroe, sem
var forseti árin 1817 til 1825, en
hann var frá næsta nágranna-
fylki Maryland, Virginíu. Þar
sem Washington er ekki ýkja
langt frá Maryland má vel vera
að Lincoln hafi oft brugðið sér
þangað, líka viku áður en hann
var skotinn. Þá þykir sannað að
sambandið milli Johns F.
Kennedys og kvikmyndastjörn-
unnar Marilyn Monroe hafi ver-
ið meira en saklaust aðdáenda-
samband. Maður veit aldrei
nema forsetinn hafi verið með
viðhaldi sínu viku fyrir morð-
tilræðið,“ segir Sæmundur og
lætur gott heita.
Sagan
endurtekin?
Var Kennedy skot-
inn í bíl af Lincoln-
gerð og Lincoln
skotinn í Kennedy-
leikhúsinu?
SA
G
N
FR
Æ
Ð
I
ekki lengur. Þannig lít ég á það að
eiga einhverft barn sem mjög já-
kvæða reynslu. Bæði í mannlegum
samskiptum og öllu sem viðkemur
mínum persónuleika. Svo lít ég líka á
þessa reynslu sem eins konar fram-
haldsnám. Ég tel mig því betri
manneskju en áður. Ég hef til dæmis
getað tileinkað mér mikla þolinmæði
og svo er ég orðin mildari og skiln-
ingsríkari.“
Karólína sér framtíð sonar síns í
björtu ljósi. „Þótt hann sé bara níu
ára er hann í mjög öflugri meðferð.
Ég veit hvað hann getur núna, hvað
búið er að kenna honum og hvað við
getum kennt honum. Ég geri
kannski ekki ráð fyrir að hann fari í
verkfræði eða annað bóklegt nám en
hann hefur mikla hæfileika miðað við
ungan aldur og marga jafnaldra
hans. Ég sé hann fyrir mér sem ein-
stakling sem mun ekki þurfa á nein-
um sérúrræðum að halda. Við erum
það metnaðarfull,“ segir Karólína
ákveðin. Hún telur engan vafa leika
á að Kristján fari í nám að loknu
grunnskólaprófi. „...jafnvel eitthvað
verklegt, hann er til dæmis mjög
myndarlegur í eldhúsinu,“ segir hún.
Þau Karólína og Halldór ákváðu
að Kristján færi í almennan barna-
skóla þegar hann hóf skólagöngu.
Um þá ákvörðun segir Karólína: „Ég
gat aldrei séð Kristján fyrir mér í
sérdeild fyrir einhverfa, aðallega
vegna þess að í atferlismeðferðinni
hefur honum verið kennt að læra af
umhverfinu og herma eftir jafnöldr-
um sínum. Því vildi ég ekki að hann
færi að herma eftir krökkum sem
væru í svipaðri stöðu og hann. Það er
búið að minnka einhverfuhegðun
hans mikið og því vildum við frekar
að fyrirmyndir hans væru venjuleg
börn. Það kom því aldrei neitt annað
til greina þó að hann þyrfti á stuðn-
ingi að halda í skólanum. Þó að
Kristján sé á eftir jafnöldrum sínum
í þroska þá silast hann nær þeim.
Félagslega stendur hann þó mun aft-
ar en jafnaldrar hans og því tókum
þá ákvörðun að láta hann vera ári
lengur í leikskóla.“
Reynslan góður skóli
Karólína er sátt við hlutskipti sitt
og kveðst lítt hafa velt fyrir sér hvað
hún væri að gera ef hún hefði ekki
eignast einhverft barn. „Ég ætlaði
mér að fara í framhaldsnám þegar
ég var í London. Hins vegar er ekk-
ert víst að ég hefði gert alvöru úr
slíkum fyrirætlunum og ég hef aldrei
vorkennt sjálfri mér fyrir að fara
ekki í framhaldsnám og hljóta ekki
starfsframa á mínu sviði. Grunnnám
mitt, stjórnmálafræði, hefur þó nýst
mér vel í atferlismeðferðinni, sér-
staklega aðferðafræðin. En það er
margt sem ég hef hug á að gera þeg-
ar ég hætti að stjórna meðferðinni, “
segir Karólína brosandi.
Hún sér ekki eftir að hafa hafið at-
ferlismeðferð á syni sínum. „Ég hef
séð hvað slík meðferð getur breytt
miklu til hins betra bæði fyrir hinn
einhverfa sem og aðstandendur. Þó
er atferlismeðferð ekki fyrir alla. En
ef barn byrjar í slíkri meðferð þurfa
foreldrar að taka þátt í henni af heil-
um hug. Því yngri sem börnin eru
þegar þjálfun hefst þeim mun betri
árangri geta þau náð. Því er tíminn
mjög dýrmætur.
Karólína segir að þegar Kristján sé ekki í þjálfun þurfi að æfa hann í að
yfirfæra allt sem hann hefur lært yfir á eðlilegar aðstæður.
Systkinin Hanna og Kristján liðtæk við eldhússtörfin.
Höfundur er nemi í hagnýtri
fjölmiðlun í HÍ.