Morgunblaðið - 07.03.2001, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
8 SÍÐUR
Sérblöð í dag www.mb l . i s
Teiknimyndasögur
Myndir
Þrautir
Brandarar
Sögur
Pennavinir
Guðmundur Guðmundsson hættur
hjá Dormagen / C4
Mikil spenna í meistaradeild
Evrópu / C3
4 SÍÐUR 4 SÍÐUR
Í VERINU í dag er m.a. sagt frá söluaukningu söluskrif-
stofu SÍF í Þýskalandi, fjallað um fiskvinnslu í Norður-
Þýskalandi og sjávarútveg í Brasilíu. Í blaðinu er einn-
ig að finna fréttir af aflabrögðum og markaðsmálum.
ÍSLENSK erfðagreining og Roche Diagnostics
hafa ritað undir viljayfirlýsingu um víðtækt
samstarf á sviði DNA-greiningarprófa. Kári
Stefánsson, forstjóri ÍE, segir að samningurinn
auki tekjur fyrirtækisins um að minnsta kosti
50%. Samningurinn er til fimm ára. Á þeim tíma
veitir Roche umtalsverða fjármuni, 7–10 millj-
ónir dollara á hverju ári, að mati ráðgjafarfyrir-
tækisins Morgan Stanley, í rannsóknir sem
framkvæmdar verða af ÍE. Morgan Stanley
metur samninginn á 50 milljónir dollara, tæpa
4,5 milljarða ÍSK.
Roche Diagnostics er stærsta fyrirtæki á sviði
greiningartækni í heiminum. Það er dótturfyr-
irtæki svissneska lyfjafyrirtækisins F. Hoff-
mann-La Roche í Sviss.
„Þetta er samningur sem kemur til með að
hafa mótandi áhrif á þann iðnað sem við störfum
við. Þetta er stærsti samningur sem gerður hef-
ur verið um notkun á erfðaefni til sjúkdóms-
greininga. Þegar erfðaefni er notað til slíkra
greininga er yfirleitt ekki verið að greina sjúk-
dóm heldur að finna þá einstaklinga sem hafa
tilhneigingu til þess að fá sjúkdóm. Annað erfitt
úrlausnarefni sem tengist þessu er hvernig á að
miðla niðurstöðum til lækna og sjúklinga. Við
setjum því ekki einvörðungu saman aðferðir til
þess að gera greiningar, heldur setjum við einn-
ig saman hugbúnaðarkerfi til þess að koma nið-
urstöðunum til skila til lækna og sjúklinga á
þann hátt að það verði heilbrigðisþjónustunni og
einstaklingum til góða.“
Unnt að setja vöru fyrr á markað
Kári segir að greiningaraðferðirnar sem hér
um ræðir geri kleift að þróa vöru og setja hana á
markað mun fyrr en þegar lyf eru þróuð. „Við
reiknum með því að samningurinn leiði til þess
að fyrstu greiningartækin verði komin á markað
eftir u.þ.b. tvö ár, eða í ársbyrjun 2003.“
Kári segir að þessi samningur sé í upphafi
ekki jafnstór og samningurinn við Hoffmann-La
Roche. „Þessi samningur er ekki jafnstór þegar
litið er til þeirrar upphæðar sem við fáum
greidda áður en vara kemur á markað. En tæki-
færi okkar til að fá hluta af arði af vöru á mark-
aði er miklu meiri í þessum samningi. Ég er ekki
viss um hvor samningurinn muni skila okkur
meiru þegar upp verður staðið eftir fimm ár og
við förum yfir málið,“ segir Kári.
Í umsögn Morgan Stanley, sem fyrirtækið gaf
út í gær, segir að það telji að þessi samningur sé
hinn fyrsti af mörgum stórum viðskiptasamn-
ingum sem deCODE Genetics geri á þessu ári.
BYGGINGAKRANI féll á hliðina í
íþróttahúsi sem verið er að byggja
við Reykjalund í Mosfellsbæ í gær.
Að sögn Unnsteins Eggertssonar,
framkvæmdastjóra Kraftvaka
ehf., sem sér um framkvæmdirnar,
var mikil mildi að enginn skyldi
slasast, en um rúmlega 20 manns
vinna á staðnum.
Unnsteinn sagði að ekki væri
ljóst hvað hefði valdið því að kran-
inn féll en að verið væri að rann-
saka það mál. Hann sagði að kran-
inn hefði eitthvað eyðilagst sem og
steypumót sem hann hefði fallið á.
Að sögn Unnsteins tefur þetta
óhapp framkvæmdir eitthvað.
Hann sagði að ráðgert væri að ná
krananum upp í dag en til þess
þyrfti að fá annan stóran krana á
svæðið. Ef það tækist gætu fram-
kvæmdir hafist aftur fljótlega.
Morgunblaðið/Golli
Byggingakrani við Reykjalund féll á hliðina í gær en ráðgert er að reyna að ná honum upp í dag.
Mildi að enginn
skyldi slasast
þegar krani féll
SNJÓFLÓÐ féll austan við bæ-
inn Brekku í Mjóafirði um kl.
8.30 í fyrradag. Flóðið lenti á
heyvinnuvélum og hreif þær
með sér en stöðvaðist að mestu
á vegamótum og olli ekki skaða
á húsum. Tunga úr flóðinu rann
þó áfram og stöðvaðist í aðeins
70-80 metra frá húsinu Kastala,
þar sem býr þriggja manna fjöl-
skylda.
Sigfús Vilhjálmsson, bóndi á
Brekku og hreppstjóri, kvaðst
ekki alveg gera sér grein fyrir
umfanginu en þó sé ljóst að
flóðið sé mikið. Það kom niður
500-600 metrum austan við bæ-
inn Brekku. Niður við sjóinn er
annar bær sem heitir Kastali og
þar búa hjón og einn drengur
þeirra. Sigfús segir að allt hafi
þó sloppið enda stöðvaðist
megnið af flóðinu á vegamótum
að Brekku og að Dalatanga.
Síðan féll tunga áfram niður og
stöðvaðist 70-80 metra frá Kast-
ala. Heyvinnutæki sem geymd
voru við vegamótin lentu í flóð-
inu, þar á meðal ein dráttarvél
og hafði hvorki fundist tangur
né tetur af henni þegar rætt
var við Sigfús í gær.
Hann segir að sem betur fer
hafi enginn verið kominn út
þegar flóðið féll en fólkið í
Kastala heyrði hvin frá flóðinu.
Það leitaði sér síðan skjóls í
öðru húsi. Sigfús kvaðst einnig
hafa heyrt hvininn en taldi
hann vera vindhviðu.
Síðast féll umtalsvert flóð í
Mjóafirði í maímánuði 1979.
Snjóflóðið stöðvaðist
70 metra frá húsinu
ÁTTA fulltrúar hafna á Íslandi eru nú
í Flórída í Bandaríkjunum að skoða
stærstu sýningu um skemmtiferða-
skip og sitja ráðstefnu um sama efni.
Hannes Valdimarsson, hafnarstjóri í
Reykjavík, sagði að þetta væri
stærsta ráðstefna og sýning um
skemmtiferðaskip í heiminum. Þarna
hittust þeir sem gerðu út skemmti-
ferðaskip, fulltrúar ferðskrifstofa og
og fulltrúar hafna. Hann sagði að
margir Íslendingar hefðu sótt þessa
ráðstefnu á síðustu 10 árum, en hún
er haldin einu sinni á ári. Hannes
sagði að Reykjavíkurhöfn, Akureyr-
arhöfn og Ísafjarðarhöfn hefðu haft
samstarf við hafnir í Færeyjum og á
Grænlandi um kynningarbás á sýn-
ingunni.
Hannes sagði að markaðsstjóri
Reykjavíkurhafnar hefði sótt þessa
sýningu reglulega, en núna hefðu þrír
fulltrúar úr hafnarstjórn Reykjavíkur
farið með honum auk tveggja fulltrúa
frá Akureyrarhöfn og tveggja fulltrú-
ar frá Ísafjarðarhöfn.
Átta fulltrúar á
ráðstefnu um
skemmtiferðaskip
VON er á um 20 til 25 flóttamönnum
frá Balkanskaga í sumar af blönd-
uðum uppruna Serba og Króata. Að
sögn Árna Gunnarssonar, formanns
flóttamannaráðs, var fyrir tæpum
mánuði auglýst eftir sveitarfélögum
til að taka á móti þeim og barst að-
eins umsókn frá Skagafirði.
Árni ræddi í gær um verkefnið við
Snorra Björn Sigurðsson, sveitar-
stjóra Skagafjarðar. Árni sagði að
eftir ætti að ræða við Rauðakross-
deildina á staðnum sem væri mik-
ilvægur hlekkur í svona verkefni.
Hún sæi um túlkaþjónustu og stuðn-
ingsfjölskyldur, sem hefðu m.a. það
hlutverk að hjálpa flóttamönnunum
að aðlagast.
Að sögn Árna hafa Íslendingar
tekið á móti um 20 til 30 flóttamönn-
um á hverju ári frá árinu 1996 og yf-
irleitt hefur það gengið vel. Hann
sagði að nú virtist aftur á móti sem
samdráttur í atvinnulífinu úti á landi
hefði áhrif á áhuga sveitarfélaga til
að taka á móti flóttamönnum.
Rætt við
Skagfirðinga
um að taka
á móti flótta-
mönnum
Samningur ÍE og Roche met-
inn á yfir 4,5 milljarða ÍSK