Morgunblaðið - 07.03.2001, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2001 55
DAGBÓK
Dagskrá:
13:30 Setning málþings.
13:40 Byggðaþróun á Íslandi.
Hvað er framundan hjá Byggðastofnun?
Kristinn H. Gunnarsson, formaður stjórnar Byggðastofnunar.
14:15 Þróun ferðaþjónustu.
Styrkleikar, veikleikar, hverjir eru vaxtarbroddar ferðaþjónustunnar.
Anna G. Sverrisdóttir, rekstrarstjóri Bláa Lónsins hf.
14:50 Uppbygging og rekstur iðnfyrirtækis á Suðurlandi.
Kostir og gallar við staðsetningu á landsbyggðinni
Bergsteinn Einarsson, framkvæmdastjóri SET hf. á Selfossi
15:25 Uppbygging þekkingariðnaðar, hvað þarf til?
Þekkingariðnaðurinn, umhverfi, leikreglur, arðsemi o.fl.
Bjarki Brynjarsson, framkvæmdastjóri Klaks ehf.,
nýsköpunarsviðs Nýherja hf.
16:00 Flutningur matvælavinnslufyrirtækis á landsbyggðina.
Styrkleikar, veikleikar, árangur
Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands.
16:35 Framtíðarþróun í atvinnumálum.
Hvernig verður líkleg ásýnd atvinnu- og efnahagslífs á Íslandi
á næstu áratugum.
Gústaf Steingrímsson, hagfræðinemi og blaðamaður
hjá Viðskiptablaðinu.
17:10 Samantekt og þingslit.
Léttar veitingar verða í boði að loknu þingi.
Þingið er öllum opið og er aðgangur ókeypis.
Þingstjóri: Dr. Þorsteinn Ingi Sigfússon.
ATVINNUÞRÓUNARSJÓÐUR
SUÐURLANDS
Opið málþing um atvinnumál
Hótel Örk, Hveragerði, 9. mars 2001
Atvinnuþróunarsjóður Suðurlands boðar til málþings,
föstudaginn 9. mars nk. kl. 13:30 á Hótel Örk.
Þingið er vettvangur þeirra sem áhuga hafa á atvinnumálum í kjördæminu
í nútíð og framtíð. Boðið verður upp á erindi sem munu m.a. fjalla um
byggðaþróun í landinu, þróun ferðaþjónustu, uppbyggingu iðnfyrirtækja á
Suðurlandi, þekkingariðnað til framtíðar, flutning matvælavinnslufyrirtækis
inn á svæðið og einnig heyrum við viðhorf um líklega ásýnd atvinnulífsins
á Íslandi á næstu áratugum.
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
FISKAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú stendur fast á þinni
meiningu og getur þess
vegna verið nokkuð stjórn-
samur. En mönnum finnst
gott að leita til þín.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú átt að notfæra þér alla þá
upplýsingamöguleika sem í
boði eru til þess að sinna starfi
þínu sem best því nú til dags er
þekkingin fyrir öllu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Reyndu að forðast að gera
nokkuð það sem getur varpað
skugga á starf þitt eða komið í
veg fyrir að sköpunargleði þín
fái að njóta sín.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Til þess að fjárfestingar nýtist
sem best er nauðsynlegt að
gæta fyllstu varkárni og leita
ráða hjá þeim sem hafa sýnt
sig verðuga þess að veita ráð-
gjöf á þessu sviði.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Oft leynir fólk á sér og býr yfir
miklu meiri hæfileikum og
kunnáttu en virðist í fljótu
bragði. Hrapaðu því ekki að
dómum um menn og heldur
ekki málefni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þótt öll höldum við það að ekk-
ert geti komið fyrir okkur þá
er það nú svo að ólánið getur
dunið yfir alla og líka þig.
Gerðu því ráðstafanir fram í
tímann.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er óráð að sjá hlutina bara
í svarthvítu því þá missir þú af
þýðingarmiklum hlutum gát-
unnar. Reyndu að létta af þér
vinnuálagið.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Lífið er líkt og leiksvið og þú
kemst ekki af öðruvísi en að
þekkja leikritið og kunna þitt
hlutverk. Einhverjar breyting-
ar standa fyrir dyrum hjá þér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Reiddu þig ekki um of á aðra
því þegar til kastanna kemur
þá er þetta þitt hlutverk sem
þú berð ábyrgð á. Sérstakt
tækifæri bíður þín handan
hornsins.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú getur ekkert sagt við því
þótt annað fólk taki eftir afstöðu
þinni til manna og málefna þeg-
ar þú sérð ekki ástæðu til þess
að fara í launkofa með þær.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þótt breytingar séu nauðsyn-
legar er samt óráð að láta þær
ganga of hratt fyrir sig. Gefðu
þér tíma til þess að skipuleggja
þær vandlega svo þær nýtist
þér á jákvæðan hátt.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vertu ekki að naga þig í hand-
arbökin fyrir hluti sem þú færð
engu um ráðið. Sinntu því sem
þér ber og þá muntu fá þín
tækifæri þegar þar að kemur.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Varastu að dragast um of inn í
annarra mál því þá áttu á
hættu að sitja uppi með at-
burðarás þar sem þú ert leik-
soppur annarra.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
90 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 7.
mars, er níræð Elísabet R.
Jónsdóttir, Njarðargötu 27,
Reykjavík, nú til heimilis að
Skógarbæ, hjúkrunarheim-
ilinu Árskógum 2, Reykja-
vík. Hún verður stödd á af-
mælisdaginn á heimili sonar
síns, Brekkubæ 12, Reykja-
vík.
80 ÁRA afmæli. Í dagmiðvikudaginn 7.
mars er áttræður Tómas
Grétar Sigfússon, Keldu-
hvammi 1, Hafnarfirði. Eig-
inkona hans er Sigríður
Gunnarsdóttir. Þau verða
að heiman.
70 ÁRA afmæli. Sjötíuára er í dag, miðviku-
daginn 7. mars, Snorri
Hjartarson, Heiðarbraut
38a, Akranesi. Hann er að
heiman á afmælisdaginn.
Í SJÁLFU sér er alltaf
gott að segja og vinna
slemmu í tvímenningi, en
ekki sakar ef hægt er að
knýja fram yfirslag. Suður
á mikil og góð spil og fær
út tígulníu gegn sex lauf-
um.
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ 1095
♥ Á43
♦ Á765
♣ 976
Suður
♠ ÁD
♥ G
♦ KG84
♣ ÁKDG105
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 1 spaði Dobl
2 spaðar Dobl Pass 6 lauf
Pass Pass Pass
Spaðakóngurinn ætti að
liggja fyrir svíningu, en þó
er það ekki víst, því austur
er í þriðju hendi utan
hættu og í þeirri stöðu er
allt leyfilegt. Þess vegna
væri vafasamt að drepa á
tígulás og svína strax
spaða, því hjarta til baka
gæti komið sagnhafa í
mikla klípu ef tígullinn er
4-1, eins og líklegt er. En
til að hægt sé að svína öllu
sem svína þarf í réttri röð
er best að drepa á tígulás
og láta áttuna undir heima.
Norður
♠ 1095
♥ Á43
♦ Á765
♣ 976
Vestur Austur
♠ 632 ♠ KG874
♥ 987652 ♥ KD10
♦ 9 ♦ D1032
♣ 843 ♣ 2
Suður
♠ ÁD
♥ G
♦ KG84
♣ ÁKDG105
Síðan eru lauf varnarinn-
ar tekin í þremur umferð-
um og endað í borði. Og
tígulsjöu spilað. Ef austur
stingur á milli drepur suð-
ur, fer inn borð á hjartaás
og spilar tígulsexu. Nú er
sama hvað austur gerir,
sagnhafi mun alltaf fá fjóra
tígulslagi og innkomu til að
svína fyrir spaðakónginn.
940 er betra en 920, en
tvímenningsvillidýrin munu
spila sex grönd og upp-
skera 990 vegna hagstæðr-
ar legu. Við því er ekkert
að gera.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
OPNA alþjóðlega skák-
mótinu í Cappelle la Grande
í Frakklandi lauk fyrir
skömmu. Fjöldi Íslendinga
tók þátt í mótinu enda stóð
Skákskóli Íslands m.a. fyrir
ferðinni. Bragi Þorfinnsson
stóð sig með miklum sóma
og velgdi mörgum meistar-
anum undir uggum. Aðrir
ungir íslenskir skákmenn
stóðu sig einnig með prýði.
Staðan kom upp í skák Stef-
áns Kristjánssonar (2371),
hvítt, og Simens Agdestein
(2591). 31.Hxd7! Dxd7
32.Dxa6 hvítur er manni yfir
en stórmeistarinn norski er
þekktur fyrir allt annað en
að gefast upp og yfirleitt
hættulegastur þegar
hann hefur sprikl í
stöðum sem þessum.
32...Dc7! 33.Rf1
axb3 34.De2? Eftir
þetta hefur svartur
fullnægjandi færi
fyrir manninn. Mun
virkara var að leika
34.Db5 og eftir t.d.
34...Hb8 35.Dd5 b2
36.Hb1 Dc2 37.Rd2
stendur hvítur með
pálmann í höndun-
um. 34...Hd8 35.Hb1
35.Ha7 var hugsan-
lega betra. 35...Hd3
36.Bf2? 36.Kg2 var ákjósan-
legra. 36...Df4 37.Be3 Dxf5
38.Kg2 Dd5 39.Rd2 Bb4
40.Rf1 Be7 41.Dg4 Eftir
þetta nær svartur endan-
lega að snúa taflinu sér í vil.
41...Hxe3! 42.Rxe3 Dd2+
43.Kh1 Dxe3 44.g6 hxg6
45.hxg6 Dh6+ 46.Kg2
Dd2+ 47.Kh1 Dd5 48.Hd1
Dc6 49.gxf7+ Kf8 50.Dd7
Dxd7 51.Hxd7 e3 52.Kg2
Bb4 og hvítur gafst upp
enda ræður hann ekki við
frípeð svarts.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
LJÓÐABROT
Landið
Þegar ljósið kemur til mín
gegnum myrkur langra daga
og ég vakna og ég horfi
yfir land mitt er það kemur
og ég horfi á land mitt rísa
gegnum myrkur langra daga
sé það rísa landið hvíta
Og það rís með opinn faðminn
og ég heyri rödd þess segja
Ég sem hélt ég ætti að deyja
Og það rís í nýju ljósi
og ég heyri í nýju ljósi
rödd þess hvísla morgunbjarta
Nú slær aftur fjallsins hjarta.
Jón Óskar
Veistu ekki að það er bannað að krota á veggina?
COSPER
Með morgunkaffinu