Morgunblaðið - 03.04.2001, Side 2

Morgunblaðið - 03.04.2001, Side 2
KNATTSPYRNA 2 B ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ  DAVID Rocastle, fyrrverandi leikmaður Arsenal og enska lands- liðsins í knattspyrnu, lést á laug- ardagsmorgun af völdum krabba- meins, aðeins 33 ára að aldri. Rocastle lék 277 leiki með Arsenal frá 1983 til 1992 og varð tvisvar enskur meistari með félaginu. Síð- ar lék hann um skeið með Leeds, Chelsea og fleiri félögum. Hann lék 14 landsleiki. Leikmenn Ars- enal og Tottenham báru sorgar- bönd í leik liðanna á laugardaginn til minningar um Rocastle og mín- útu þögn var fyrir alla leiki helg- arinnar.  GUÐNI Bergsson og félagar í Bolton misstu tvö dýrmæt stig á heimavelli þegar Kevin Cooper jafnaði fyrir Wimbledon, 2:2, á lokamínútunni í leik liðanna í 1. deild. Guðni lék allan leikinn og lagði upp síðara mark Bolton fyrir Colin Hendry.  BLACKBURN komst þar með í annað sætið, upp fyrir Bolton, og á tvo leiki til góða. Matt Jansen skor- aði tvívegis í 5:0-sigri Blackburn á Burnley.  BJARKI Gunnlaugsson var á varamannabekk Preston sem gerði jafntefli heima, 0:0, við Gillingham en á áfram góða möguleika á að komast í úrslitakeppni 1. deildar.  HEIÐAR Helguson lék í 70 mín- útur með Watford sem tapaði, 3:0, fyrir WBA. Lárus Orri Sigurðsson var varamaður hjá WBA en lék ekki. Lið hans á enn góða mögu- leika á sæti í úrvalsdeildinni en Watford heldur áfram að dragast aftur úr í þeirri baráttu.  ÓLAFUR Gottskálksson og Ívar Ingimarsson fengu báðir góða dóma fyrir frammistöðu sína með Brentford sem sigraði Wrexham, 1:0, í 2. deild.  BJARNÓLFUR Lárusson skor- aði fyrra mark Scunthorpe sem sigraði Barnet, 2:1, í 3. deild. Hann jafnaði metin á 14. mínútu leiksins með yfirveguðu skoti eftir fyrir- gjöf. Scunthorpe hefur gengið vel í síðustu leikjum og á nú ágæta möguleika á að komast í úrslita- keppnina um sæti í 2. deild.  GORDON Strachan, knatt- spyrnustjóri Coventry, ætlar að taka hart á Mustapha Hadji fyrir að hrækja á Danny Higginbotham, leikmann Derby, í leik liðanna á laugardaginn. Hadji fékk rauða spjaldið og Strachan sagðist ekki þola neinum svona framkomu, hvort sem það væri innan knatt- spyrnuvallar eða utan.  HADJI var einn af fimm leik- mönnum sem reknir voru af velli í úrvalsdeildinni á laugardaginn. Hinir voru Danny Murphy hjá Liv- erpool, Alan Smith hjá Leeds, Stu- art Pearce hjá West Ham og Danny Tiatto hjá Manchester City.  ANDY Oakes, markvörður Derby, var borinn meiddur af velli eftir 9 mínútna leik gegn Cov- entry. Stöðu hans tók Mart Poom, sem lék frábærlega fyrir áramót en hafði verið frá keppni í þrjá mán- uði, fyrst vegna meiðsla og síðan vegna góðar frammistöðu Oakes. FÓLK STOKE City styrkti stöðu sína í sjötta sæti ensku 2. deildarinnar í knattspyrnu með sannfærandi sigri á Bristol Rovers, 4:1, á heima- velli á laugardaginn. Michael Hansson skoraði tvívegis á fyrstu 16 mínútunum og Peter Thorne bætti við tveimur mörkum í seinni hálfleik en gestirnir svöruðu í lok leiksins. Ríkharður Daðason og Bjarni Guðjónsson lögðu upp sitt markið hvor með góðum send- ingum. Brynjar Björn Gunnarsson og Stefán Þór Þórðarson voru líka í byrjunarliði Stoke en Ríkharður, Bjarni og Stefán fóru allir af velli seint í leiknum. Birkir Kristinsson var á varamannabekknum en Ga- vin Ward, aðalmarkvörður Stoke sem slasaðist snemma á tímabilinu, hefur leyst hann af hólmi í mark- inu. Guðjón Þórðarson lét lið sitt leika 4/4/2 en sem kunnugt er hafa stuðningsmenn og fjölmiðlar þrýst mjög á að hann beiti þeirri leikaðferð frekar en 5/3/2 sem Stoke hefur notað lengst af í vetur. Næstu lið fyrir neðan töpuðu stigum þannig að möguleikar Stoke á að komast í úrslitakeppn- ina um sæti í 1. deild jukust um- talsvert. Liðið er tíu stigum á eftir Millwall sem er í öðru sætinu þannig að líkurnar á að fara beint upp eru litlar en Stoke á sjö leiki eftir. Staða Stoke mun betri Lokeren missti af gullnu tækifæritil að komast í fjórða sætið í belgísku 1. deildinni í knattspyrnu þegar liðið tapaði, 2:1, fyrir Antwerpen á laugardaginn. Rúnar Kristinsson var nálægt því að skora fyrir Lokeren, beint úr auka- spyrnu af 30 metra færi, en Mampa- ey, markvörður Antwerpen, varði naumlega. Arnar Þór Viðarsson bjargaði skömmu síðar á marklínu Lokeren eftir skyndisókn. Antwerpen komst yfir í seinni hálfleik með marki beint úr auka- spyrnu en Sambegou Bangoura jafn- aði með skalla eftir fyrirgjöf Auðuns Helgasonar. Þegar 12 mínútur voru eftir varð Lokeren fyrir miklu áfalli þegar Auðun fékk sitt annað gula spjald og var þar með rekinn af velli. Stuttu seinna var Arnar Grétarsson talinn hafa brotið á leikmanni Ant- werpen og dæmd var mjög vafasöm vítaspyrna sem Antwerpen skoraði úr sigurmarkið. Arnar Grétarsson vann mjög vel í leiknum og átti hann margar góðar sendingar sem framlínumenn Lok- eren nýttu illa. Auðun var besti leik- maður Lokeren, Arnar Þór Viðars- son átti góðan leik en minna bar á Rúnari, sem var skipt út af á 80. mín- útu. Sigurður Ragnar Eyjólfsson lék ekki með Harelbeke sem tapaði á heimavelli, 1:2, fyrir Genk. Auðun sá rautt Kristján Bernburg skrifar frá Belgíu Tvö glæsileg mörk frá StevenGerrard og Robbie Fowler í fyrri hálfleik tryggðu Liverpool verðskuldaðan sigur. Danny Murphy var rekinn af velli 20 mínútum fyrir leikslok en tíu leikmenn Liverpool héldu fengnum hlut af öryggi og voru nokkrum sinnum nálægt því að skora þriðja markið úr skyndisóknum eða með skotum frá miðju vallarins þeg- ar Fabian Barthez, markvörður Un- ited, var nokkrum sinnum langt utan eigin vítateigs á lokakafla leiksins. Gerard Houllier, knattspyrnu- stjóri Liverpool, var hógvær að vanda eftir sigurinn á erkifjendunum á laugardaginn. „Við áttum stórkostlegan fyrri hálfleik og hefðum getað skorað fjög- ur til fimm mörk. Þar sýndum við hæfileika og þor, og í þeim síðari sýndum við styrk og seiglu. Þarna sást hvað liðið getur gert, en þótt við höfum sigrað leikmenn Manchester United er ekki þar með sagt að við stöndum þeim jafnfætis. Það þarf að- eins að horfa á þann stigafjölda sem skilur liðin að, og árangur þeirra í Evrópukeppninni,“ sagði Houllier. Ósigurinn særir ekki stolt okkar Alex Ferguson, knattspyrnustjóri meistaranna, tók ósigrinum vel. „Þetta var magnaður leikur og raf- magnað andrúmsloft, og ósigurinn særir ekki stolt okkar. Okkur hefur gengið vel á Anfield undanfarin ár, það er erfiður staður heim að sækja og það var ljóst að velgengni okkar þar yrði ekki endalaus. Fyrsta mark- ið ræður oft úrslitum og sú varð raunin í þetta sinn. Þetta var stór- brotið mark hjá Gerrard,“ sagði Ferguson en hinn tvítugi Gerrard, sem var valinn maður leiksins, skor- aði markið með miklum þrumufleyg af 30 metra færi. Falleg mörk hjá Arsenal Það voru líka skoruð falleg mörk á Highbury þar sem Arsenal þurfti að bíða í 70 mínútur með að brjóta ísinn gegn Tottenham. Robert Pires og Thierry Henry skoruðu þá mikil til- þrifamörk með stuttu millibili. „Við spiluðum vel og þurftum að halda ró okkar. Marktækifærin voru mörg og ég var viss um að við mynd- um skora að lokum en Tottenham varðist mjög vel. Sumir okkar manna léku með David Rocastle og það var erfitt fyrir þá að spila þennan leik strax eftir að hafa frétt af andláti hans,“ sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal. Leeds gerði góða ferð á Leikvang ljósanna í Sunderland og vann þar, 2:0, með mörkum frá Alan Smith og Mark Viduka. Gífurleg barátta er framundan um sæti þrjú til sex sem gefa öruggan þátttökurétt í Evrópu- keppni. Þórður í byrjunarliðinu Þórður Guðjónsson var í fyrsta skipti í byrjunarliði Derby sem tap- aði í fyrsta skipti í sex leikjum, 2:0 fyrir Coventry. Þórður náði sér ekki á strik frekar en flestir samherja hans og fór af velli eftir klukkutíma leik. Coventry vann þarna fyrsta leik sinn á árinu og eygir enn von um að halda sér í deildinni. Félagið hefur níu sinnum bjargað sér frá falli í lokaumferð deildarinnar og ekki leikið utan hennar frá því það komst þangað fyrst árið 1967. Arnar Gunnlaugsson lék síðustu 30 mínúturnar með Leicester sem tapaði, 2:0, fyrir Charlton í London. Leicester datt með tapinu niður í ní- unda sætið og stendur því höllum fæti í baráttunni um Evrópusæti. Liverpool lagði Man. Utd. á Anfield MANCHESTER United þarf sem fyrr þrjá sigra í viðbót til að tryggja sér enska meistaratitilinn. Forskot liðsins minnkaði úr 16 stigum í 13 á laugardaginn þegar meistararnir töpuðu, 2:0, fyrir Liverpool í hörkuleik á Anfield og Arsenal vann Tottenham á sannfærandi hátt á Highbury, 2:0. Liverpool hefur þar með unnið báða deildaleiki sína gegn Manchester United á tímabilinu og það hefur ekkert annað félag gert, enda var þetta aðeins þriðja tap United í deildinni í vetur. EIÐUR Smári Guðjohnsen blés lífi í vonir Chelsea um að vinna sér sæti í Evrópukeppni þegar hann skoraði sigurmark liðsins gegn Middlesbrough, 2:1, í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Þetta var 12. mark Eiðs fyrir Chelsea í 30 leikjum á tímabilinu, og í 15 af þessum leikjum hefur hann komið inn á sem varamaður. Níu markanna hefur Eiður gert í úrvalsdeildinni sem er það mesta sem íslenskur knattspyrnumaður hefur nokkurn tíma skorað á einu tímabili í þeirri deild. Í umsögn um leikinn á heima- síðu Chelsea er eftirfarandi að finna: „Eiður Guðjohnsen hefur sýnt að kaupin á honum fyrir að- eins fjórar milljónir punda gætu reynst bestu kaup Chelsea í ára- raðir.“ Eiður Smári var ekki í byrj- unarliði Chelsea þar sem hann hafði lítið æft í vikunni á undan eftir hnjámeiðslin sem hann varð fyrir í landsleik Íslands og Búlg- aríu. Gianfranco Zola tók stöðu hans og skoraði eina mark fyrri hálfleiks. Eiður kom inn á sem varamaður fyrir Jesper Grönkjær í byrjun síðari hálfleiks. Alen Boksic jafnaði fljótlega fyrir Boro en síðan var röðin komin að Ís- lendingnum. Á 63. mínútu nýtti hann sér slæm mistök Noels Whelans sem ætlaði að senda boltann á markvörð sinn, Mark Schwarzer. Eiður komst inn í sendinguna, vék sér laglega und- an tæklingu og lyfti boltanum yf- irvegað yfir Schwarzer og í netið. Reuters Eiður Smári Guðjohnsen er búinn að senda knöttinn fram hjá Mark Schwarzer, markverði Middlesbrough, og fagnar marki sínu með því að fara til áhorfenda á Stamford Bridge í London. Reuters Bestu kaup Chelsea í áraraðir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.