Morgunblaðið - 03.04.2001, Page 12
NÝR þjálfari tekur við karla-
liði Stjörnunnar í handknatt-
leik á næsta tímabili en Einar
Einarsson ætlar ekki að halda
störfum sínum áfram hjá
Garðabæjarliðinu.
„Þegar Eyjólfur Bragason
hætti með liðið fyrr í vetur tók
Einar að sér að stjórna liðinu
út leiktíðina og hann gerði
okkur strax grein fyrir því að
hann yrði ekki áfram. Við er-
um þegar byrjaðir að leita að
þjálfara og höfum rætt við
nokkra aðila og vonandi get-
um við fengið botn í þessi
þjálfaramál sem allra fyrst,“
sagði Þorsteinn Gunnarsson,
formaður handknattleiks-
deildar Stjörnunnar, við
Morgunblaðið í gær.
Rússinn Euduard Mosk-
alenko verður að öllu óbreyttu
áfram með Garðabæjarliðinu
á næstu leiktíð. Hann á eitt ár
eftir af samningi sínum við
félagið en klásúla er þó í
samningnum um að fái hann
tilboð frá þýsku félagi geti
hann farið. Ekkert slíkt er
uppi á borðinu hjá Rússanum,
að sögn Þorsteins, svo líklegt
er að hann verði um kyrrt í
Garðabænum. Arnar Pét-
ursson er einn þriggja leik-
manna Stjörnunnar sem eru
með lausan samning í vor og
má fastlega búast við að hann
yfirgefi liðið en eins og frægt
er orðið neituðu Stjörnumenn
að skrifa undir félagaskipti
Arnars til Fram fyrir þessa
leiktíð.
Stjarnan í
þjálfaraleit
JOEY DiGimarino, bandaríski
knattspyrnumaðurinn sem er til
reynslu hjá Fylki, lék fyrri hálfleik-
inn með Árbæjarliðinu gegn FH í
deildabikarnum á laugardaginn. Di-
Gimarino þýtti sýna ágæta takta og
átti stangarskot. Fylkir vann leikinn,
2:1.
ADOLF Sveinsson er genginn til
liðs við 1. deildarlið Stjörnunnar frá
Val. Adolf lék sinn fyrsta leik með
Garðbæingum á sunnudag og skor-
aði eitt mark í óvæntum stórsigri
þeirra á Skagamönnum, 4:1.
GUÐNÝ Þórðardóttir, 17 ára
stúlka úr Val, skoraði fimm mörk
þegar Hlíðarendaliðið vann Hauka,
7:0, í deildabikarkeppni KSÍ í
Reykjaneshöll í fyrrakvöld.
HILDUR Einarsdóttir, sem er ný-
orðin 16 ára, kom inn á sem vara-
maður og skoraði þrennu á aðeins 17
mínútum í sínum fyrsta meistara-
flokksleik með Breiðabliki, þegar
Kópavogsliðið vann RKV, 13:0, í
deildabikarnum í Reykjaneshöll í
fyrrakvöld.
HÓLMFRÍÐUR Samúelsdóttir,
sem einnig er 16 ára, skoraði strax á
3. mínútu fyrir Breiðablik í sínum
fyrsta meistaraflokksleik. Hún er
dóttir Ástu B. Gunnlaugsdóttur sem
er markahæst í efstu deild kvenna
frá upphafi með 154 mörk.
HÓLMFRÍÐUR hefur greinilega
erft markheppni móðurinnar því hún
þurfti ekki að hafa mikið fyrir mark-
inu. Hún fékk boltann í andlitið fyrir
utan vítateig RKV og af henni þeytt-
ist boltinn alla leið í netið.
BÁRA Gunnarsdóttir, leikmaður
með Breiðabliki, ristarbrotnaði í
leiknum við RKV og verður Bára frá
æfingum og keppni næstu sex vik-
urnar.
FÓLK
ÞÓREY Edda Elísdóttir, stang-
arstökkvari úr FH, heldur
uppteknum hætti og bætti sig enn
um helgina, nú um 4 sentímetra,
stökk 4,35 metra á háskólamóti í
Athens í Georgíruríki, en þar
stundar hún háskólanám í um-
hverfisverkfræði. Um leið bætti
hún eigið skólamet og innsiglaði
þátttökurétt sinn á bandaríska
háskólameistaramótinu utanhúss
sem fram fer í Eugene í byrjun
júní.
Þórey vann öruggan sigur á
mótinu. Næst varð April Stiner frá
háskólanum í Arkansas, stökk 4
metra og þriðja sætið kom í hlut
Corrie Drakulich, sem einnig
stundar nám í Athens eins og Þór-
ey, stökk 3,70.
„Ég stökk ágætlega þrátt fyrir
að nokkur vindstrekkingur væri og
kuldi á meðan mótið fór fram,“
sagði Þórey eftir keppnina. Hún
lyfti sér yfir 4,20 og 4,35 í fyrstu
tilraun og reyndi síðan að bæta
bandaríska háskólameistaramóts-
metið um einn sentímetra með því
að fara yfir 4,46. Segist Þórey hafa
verið nálgæt að fara yfir þá hæð í
annarri tilraun af þremur. „Metið
kemur fljótlega. Mér leið mjög vel í
keppninni og fékk góðan stuðning
frá félögum mínum við skólann,“
sagði Þórey ennfremur. Þetta var
sjöundi sigur hennar í stang-
arstökki á háskólamóti síðan hún
hóf nám í Athens um sl. áramót,
fimm þeirra eru á innanhússmótum
en tveir utanhúss.Hún reiknar með
að keppa næst eftir hálfan mánuð
en þó er ekki loku fyrir það skotið
að hún reyni fyrir sér á móti á
heimavelli um næstu helgi.
Þórey Edda bætir sig um 4 cm
Teitur
stefnir á
gullið
EFTIR tvær vikur hefst
keppni í norsku úrvaldsdeild-
inni í knattspyrnu og líkt og í
fyrra er þjálfari Brann, Teit-
ur Þórðarson, eini þjálfarinn
sem segir upphátt að mark-
miðið liðsins sé að keppa um
gullið við meistara síðustu
níu ára, Rosenborg. „Við ætl-
um að gera allt sem við get-
um til að bæta árangur okkar
frá því í fyrra en til þess þurf-
um við að vinna í deildinni
þar sem við enduðum í öðru
sæti,“ sagði Teitur við Verd-
ens Gang. Teitur sagði að ef
þjálfarar settu ekki stefnuna
á toppinn væru þeir að senda
þau skilaboð til sinna manna
að það sé viðunandi að tapa
fyrir Rosenborg.
Segja má að gangur leiksins hafiverið eins og búist var við og
ljóst að ÍS átti fá svör við öguðum og
úthugsuðum leik
Þróttar. Þróttur
sigraði nokkuð
örugglega, 25:14,
25:11, 20:25 og 25:17.
Tap Þróttar í þriðju hrinu hleypti
örlítið meiri spennu í leikinn en sig-
urinn var þó aldrei í hættu. Bestar í
liði Þróttar voru þær Anna Pavlio-
uk, sem nýlega var kjörin besti leik-
maðurinn á Íslandsmótinu í blaki
kvenna, og fyrirliðinn Hulda Elma
Eysteinsdóttir. Hjá ÍS var Dagbjört
Víglundsdóttir best en ljóst er að ÍS
liðið skortir meiri samæfingu. Það
var Smári Geirsson forseti bæjar-
stjórnar Fjarðabyggðar sem afhenti
Þróttarstúlkum bikarinn við mikinn
fögnuð áhorfenda sem fylltu íþrótta-
húsið í Neskaupstað.
Lið Þróttar hefur haft töluverða
yfirburði í kvennablakinu í vetur,
líkt og í fyrravetur. Segist Petrún
Jónsdóttir, þjálfari Íslandsmeistar-
anna, fyrst og fremst þakka það
þrotlausum æfingum og metnaðar-
fullum mannskap: „Sérhæfing liðs-
manna er orðin mikil og hefur það
skilað góðum árangri,“ sagði Pet-
rún.
Jafnframt kom fram í máli Pet-
rúnar að verið sé að skoða mögu-
leika á öðrum og stærri verkefnum á
erlendri grund fyrir liðið á komandi
vetri.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Meistararnir frá Neskaupstað. Í fremri röð frá vinstri eru Iðunn Pála Guðjónsdóttir, Hulda Elma Eysteinsdóttir, Þorbjörg Ólöf Jóns-
dóttir, Hjálmdís Zoëga, Aðalheiður Árnadóttir og Joanna L. Wojtowicz. Aftari röð frá vinstri: Sæunn Svava Ríkharðsdóttir, Anna
Pavliouk, Natalia Gomzina, Jóna Harpa Viggósdóttir og Petrún Bj. Jónsdóttir.
Þrenna ann-
að árið í röð
KVENNALIÐ Þróttar í Neskaupstað tryggði sér Íslandsmeistaratitil í
blaki kvenna á laugardaginn með öruggum 3-1 sigri á liði ÍS í
íþróttahúsinu í Neskaupstað. Með þessum sigri tryggðu Þróttar-
stelpurnar sinn þriðja titil í ár, en um síðustu helgi sigruðu þær ÍS í
bikarúrslitum og áður höfðu þær unnið deildarmeistaratitilinn.
Stúlkurnar frá Neskaupstað endurtóku því leikinn frá í fyrra, að
sigra þrefalt.
Þróttur Neskaupstað Íslandsmeistari í blaki kvenna
Kristín
Ágústsdóttir
skrifar