Morgunblaðið - 08.04.2001, Side 1

Morgunblaðið - 08.04.2001, Side 1
Sunnudagur 8. apríl 2001 atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð Forstöðumaður Laus er til umsóknar staða forstöðumanns ný- stofnaðrar Krabbameinsmiðstöðvar Landspítala- háskólasjúkrahúss. Forstöðumaður skal vera læknir og æskilegt er að viðkomandi hafi auk sérfræðiréttinda, innsæi og reynslu af rannsóknum í heilbrigðisvísindum. Einnig er stjórnunar- og rekstrarreynsla æskileg. Staðan er 80% starf og veitist frá og með 1. júlí 2001. Forstöðumaður ber faglega og rekstrarlega ábyrgð á starfseminni gagnvart stjórn KM-LSH, forstjóra og yfirstjórn spítalans og er hann æðsti starfsmaður miðstöð- varinnar. Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám, fyrri störf, ritsmíðar, vísindavinnu og reynslu af stjórn- unarstörfum sendist í tvíriti til formanns stjórnar KM-LSH, Margrétar Oddsdóttur, handlækninga- deild LSH-Hringbraut, 101 Reykjavík, fyrir 15. maí n.k. En hún veitir einnig upplýsingar um stöðuna í síma 560 1000, netfang margreto@landspitali.is. Mat byggist á innsendum umsóknargögnum og viðtölum við umsækjendur. Stofnskrá Krabbameinsmiðstöðvarinnar má sjá á neti Landspítala-háskólasjúkrahúss. Deildarlæknar Tvær stöður deildarlækna við svæfinga- og gjörgæsludeild Hringbraut eru lausar til umsóknar, önnur frá 1/10 2001 og hin frá 1/1 2002. Starfshlutfall 100%. Ráðningartími er 6 mánuðir eða lengur. Til greina kæmi að hluta ráðningar- tímans yrði varið á svæfinga- og gjörgæsludeild Fossvogi. Umsóknir ásamt CV berist til prófessors Gísla Sigurðssonar forstöðulæknis svæfinga- og gjör- gæsludeildar Landspítala Hringbraut fyrir 1. maí 2001. En hann veitir nánari upplýsingar ásamt Guðrúnu Bragadóttur, deildarlækni í síma 560 1375, netfang gudrbrag@landspitali.is Hjúkrunarfræðingur Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á geisla- meðferðareiningu krabbameinslækningadeildar Hringbraut. Starfið felst m.a. í því að taka þátt í þverfaglegu starfi á deildinni við geislameðferð. Starfið er dagvinna og boðið er upp á einstaklings- hæfða aðlögun með reyndum hjúkrunar- fræðingum. Upplýsingar veita Jóna Margrét Kristjánsdóttir deildarstjóri í síma 560 1460, netfang jonamk@landspitali.is og Kristín A. Sophusdóttir sviðsstjóri í síma 560 1000, netfang kristsop@landspitali.is Hjúkrunarfræðingur - sumarafleysing Hjúkrunarfræðing vantar til afleysinga í sumar á móttöku- og endurkomudeild á Landakoti. Dagvinna ( 8-16 ) frí um helgar. Starfshlutfall 100%. Upplýsingar veitir Björg Guðmundsdóttir aðstoðardeildarstjóri í síma 525 1914, netfang bjorgg@landspitali.is Deildarstjóri Staða deildarstjóra frávikagreiningar og rekstrareftirlits á fjármálasviði Landspítala – háskólasjúkrahúss er laus til umsóknar. Um er að ræða fullt starf sem felst í samanburði á rauntölum við áætlanir ásamt rekstrarráðgjöf. Æskilegt er að umsækjandi hafi menntun og eða reynslu í klínísku starfi ásamt rekstri og stjórnun. Upplýsingar veitir Anna Lilja Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri skrifstofu fjárreiðna og upplýsinga í síma 560 2930, netfang annaligu@landspitali.is. Ljósmóðir/hjúkrunarfræðingur óskast sem fyrst á sængurkvennadeild 1, 22A Hringbraut. Starfið felst m.a. í hjúkrun kvenna og barna þeirra eftir eðlilegar fæðingar, keisara- skurði og inngripsfæðingar, ásamt hjúkrun kvenna í sængurlegu með langvinna sjúkdóma. Boðið er upp á tvískiptar vaktir. Starfshlutfall 100%. Upplýsingar veitir Sólveig Friðbjarnardóttir deildarstjóri í síma 560 1151, netfang solvffri@landspitali.is Hjúkrunarfræðingar Vegna aukinna verkefna eru lausar stöður hjúkrunarfræðinga á slysa- og bráðamóttöku í Fossvogi. Verkefni eru margvísleg og lúta m.a. að móttöku og hjúkrun bráðveikra og slasaðra, forgangsröðun, símaráðgjöf, áfallahjálp og hjúkrun á sólarhrings gæsludeild. Nýir hjúkrunar- fræðingar fá mánaðar aðlögun auk sérhæfðra námskeiða. Æskilegt er að umsækjendur hafi a.m.k. 2 ára starfsreynslu við hjúkrun og hyggist starfa á deildinni í a.m.k. 2 ár. Möguleiki á sveigjanlegum vinnutíma. Upplýsingar veita Margrét Tómasdóttir sviðsstjóri í síma 525 1705, netfang margt@landspitali.is og Guðbjörg Pálsdóttir deildarstjóri í síma 525 1720, netfang guggap@landspitali.is. Umsóknarfrestur ofangreindra starfa er til 23. apríl n.k., nema annað sé tilgreint. Mosfellsbær Fræðslu- og menningarsvið Kennarar á yngsta stigi Í Mosfellsbæ viljum við ráða kennara sem vilja sérhæfa sig í byrjendakennslu. Í bænum ríkir nemenda- og starfsmanna- væn skólastefna. Mosfellsbær miðar við að nemendur í 6 ára deildum fari ekki yfir 18 í bekk. Í Mosfellsbæ starfa stuðningsfulltrúar í öll- um 6 ára bekkjum. Við leitum eftir hugmyndaríkum kennurum og hvetjum sérstaklega unga kennara til að kynna sér starfsaðstæður og kjör. Við bjóðum ykkur velkomin í samhentan hóp starfsmanna við grunnskólana í Mosfellsbæ. Annars vegar er um að ræða Varmárskóla og hins vegar nýjan skóla á vestursvæði. Upplýsingar gefa Sigríður Johnsen, aðstoð- arskólastjóri, í símum 525 0700/862 9701, Viktor A. Guðlaugsson, skólastjóri, í síma 566 6186/897 0943, Jóhanna Magnúsdóttir í símum 586 8200/864 0111 eða Birgir Einars- son í síma 525 6700/897 4791. Laun grunnskólakennara eru skv. kjara- samningum Launanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. Umsóknum sé skilað í síðasta lagi mánu- daginn 23. apríl 2001. Mosfellsbær er um 6.100 íbúa sveitarfélag. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í skólum bæjarins á síðustu árum og ríkjandi er já- kvætt og metnaðarfullt viðhorf til skóla- mála. Í bænum er rekið öflugt tómstunda- og íþróttastarf við góðar aðstæður. Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar veitir skólun- um faglega þjónustu og ráðgjöf jafnframt því sem hún aðstoðar við nýbreytni- og þróunarstarf og stendur fyrir símenntun fyrir kennara Skólafulltrúi. Mötuneyti Starfsfólk óskast í mötuneyti Reykjalundar. Bæði er um að ræða sumarafleysingar og störf til lengri tíma. Möguleiki er á húsnæði á staðn- um fyrir einstakling. Upplýsingar gefur Geir Þorsteinsson í síma 566 6200.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.