Morgunblaðið - 08.04.2001, Síða 7

Morgunblaðið - 08.04.2001, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2001 D 7 Frá Tónlistarskóla Skagafjarðar Kennarar Kennara vantar að Tónlistarskóla Skagafjarðar. Æskilegar kennslugreinar: Píanó, tréblásturshljóðfæri, gítar og fiðla. Umsóknarfrestur er til 20. apríl 2001. Upplýsingar gefur skólastjóri, Sveinn Sigur- björnsson, í síma 453 5790 og hs. 453 6092 eða aðstoðarskólastjórar, Anna Kristín Jóns- dóttir í síma 453 7311 og Stefán R. Gíslason í síma 453 8819. Netföng: tons@skagafjordur.is eða svs@krokur.is . Menntaskólinn á Egilsstöðum, 700 Egilsstaðir, sími 471 2500. Laus störf frá 31. ágúst 2001 I. Starf sérkennara, heil staða. Starfið felst m.a. í yfirumsjón með sérkennslu í skólanum ásamt deildarstjóra almennrar námsbrautar. II. Störf raungreinakennara, allt að fjórar stöður Kennslugreinar: Efnafræði og NÁT 123 (1 st.). Líffræði og NÁT 103 (1 st.). Eðlisfræði og stærðfræði (2 st.). III. Hlutastörf í eftirtöldum kennslugreinum: Listgreinar (áfangar á listabraut). Sérgreinar upplýsinga- og fjölmiðlabrautar. Sálfræði og lífsleikni. Krafist er háskólamenntunar og kennslu- réttinda í viðkomandi kennslugreinum. Laun samkvæmt kjarasamningi milli KÍ og fjármálaráðherra. Umsóknir um ofangreind störf, ásamt upplýs- ingum um menntun og fyrri störf, sendist skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum, sem einnig veitir nánari upplýsingar í síma 471 2501 og 471 3820. Netfang: hob@me.is . Umsóknarfrestur er til 27. apríl 2001. Skólameistari. Höfðabakka 9 • 112 Reykjavík • Sími 550 5300 • Bréfasími 550 5302 • www.pwcglobal.com/is Við leitum að kerfisfræðingi, tölvunarfræðingi eða manneskju með sambærilega menntun sem tilbúin er að axla ábyrgð og takast á við spennandi og kref- jandi forritunarverkefni í vélatengdu þróunarumhverfi. Reynsla er æskileg en ekki skilyrði. Starfið felst í hönnun og þróun, kvótun, prófunum og skjölun. Við bjóðum þér að slást í hóp með úrvals starfsfólki sem hefur mikla reynslu og stendur framarlega á heimsvísu við lausn hugbúnaðarverkefna á sviði vigtunar og mælitækja fyrir erlendan markað. Starfinu fylgja ferðalög jafnt innanlands sem utan, t.d. til Noregs og Bandaríkjanna, ásamt því að ýmsir kostir í þjálfun og endurmenntun eru í boði. Umsóknir óskast sendar til Ráðningarþjónustu PricewaterhouseCoopers merktar ,,Póls“ fyrir 17. apríl nk. Upplýsingar veitir: Ari Eyberg. Netfang: ari.eyberg@is.pwcglobal.com Póls hf. er vaxandi og öflugt hátæknifyrirtæki á alþjóðamarkaði, með aðalbækistöðvar á Ísafirði, perlu Vestfjarða og einum fjölskylduvænsta stað landsins. Á Ísafirði er öflugt menningarlíf, góð íþróttaaðstaða, auðveldur aðgangur að leikskólum og dagvistun, stuttar vegalendir milli heimilis og vinnu og lítil bílamengun, góð opinber þjónusta og frábært húsnæðisverð. Síðast en ekki síst er þar minni andleg streita e.t.v. vegna nálægðarinnar við stórbrotna náttúru. Á Ísafirði er einnig fyrirmyndar aðstaða til skíðaiðkunar og önnur tækifæri til vetraríþrótta. Forritari Póls hf. á Ísafirði óskar eftir að ráða forritara í þróunarvinnu. Kolonien Filadelfia DanmörkuTaugasálfræðingur óskast við endurhæfingu heilaskaddaðra sjúklinga Endurhæfingarmiðstöðin í Kurhus, Danmörku Við leitum að taugasál- fræðingi í 30-37 tíma á viku til að annast þverfag- lega starfræna endurhæf- ingu sjúklinga sem hafa væg eða alvarleg einkenni traumatísks heilaskaða. Gert er ráð fyrir nýrri stöðu í sálfræðingahópi endurhæfingarmiðstöðvar- innar, þar sem nú starfa 4 sálfræðingar. Miðstöðin rúmar 18 skjólstæðinga sem fá sólarhings þjálfun í 3-15 mánuði. Starfsemin tekur einnig til nýreists út- skriftarhúsnæðis með 6 íbúðum, þar sem nokkrir af skjólstæðingum mið- stöðvarinnar geta fengið inni í 1-2 ár og er það lið- ur í lengra endurhæfingar- ferli. Starfsvið sálfræðing- anna er í þróun í sam- starfi við aðra faghópa stöðvarinnar, en hér fer fram náið og þverfaglegt samstarf allra starfsmanna. Taugasálfræðingar sjá um samband við hvern skjól- stæðing, einstaklingsmið- aða þjálfun hugarstarfs svo og þjálfun í hópum, sam- band við aðstandendur, aðstandendahópa, annast taugasálfræðilegt mat auk þess að hafa yfirumsjón með þverfaglegu starfi með tilliti til endurhæfing- aráætlana, útskriftarferla og eftirfylgni. Við óskum eftir taugasálfræðingi sem allra fyrst, sem gjarnan hefur bæði sérmenntun og víð- tæka reynslu; er áhuga- samur og sveigjanlegur í viðhorfi sínu til starfsins og er innblásinn í sam- starfi sínu við kollega, skjólstæðinga og fjölskyld- ur þeirra, og getur um leið aukið við faglega hæfni okkar. Við bjóðum aðlaðandi og lifandi starfs- umhverfi þar sem öll að- staða er góð, einnig hvað varðar endurmenntun, vinnutími er sveigjanlegur og viðkomandi getur haft áhrif á framtíðarþróun endurhæfingarstarfsins. Laun samkvæmt samningum Kolonien Filadelfia og Samtaka danskra sálfræðinga. Kynntu þér starfsemi okk- ar á www.kurhus.dk og hægt er að snúa sér til Anders Kirkeskov sími 0045 5826 5050/5103 eða netfang kurhus@vestamt.dk og fá nánari upplýsingar, starfslýsingu og upplýsing- ar um heimsókn á miðstöðina og útskriftar- deildina. Umsóknir verða að hafa borist að morgni 18. apríl 2001. Viðtöl fara fram u.þ.b. viku seinna. Umsónir, merktar „840 Neuropsyk“, sendist til Kolonien Filadelfia Løn- og personaleafdelingen, Kolonivej 1, DK-4293 Dianalund, Danmörku. Flogaveikisjúkrahúsið í Dianalund • Endurhæfingarmiðstöð fyrir heilaskaddaða • Sérskólar • Vinnustofur • Útskriftarhúsnæði • Félags- og heilbrigðisskóli • Funda- og ráðstefnumiðstöð Hjúkrunarfræðingar Heilsugæslustöðina á Dalvík vantar hjúkrunar- fræðing til sumarafleysinga í 1—1½ mánuð um miðjan júlí og allan ágúst. Kjörið tækifæri til að kynnast þeirri hjúkrun sem fram fer í heilsugæslu. Áhugasamir hafi samband við: Lilju Vilhjálmsdóttur, hjúkrunarforstjóra, vinnusími 466 1500, heimasími 466 1616.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.