Morgunblaðið - 08.04.2001, Side 8

Morgunblaðið - 08.04.2001, Side 8
8 D SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ DIGRANESSKÓLI Eftirtaldar kennarastöður við Digranes- skóla eru lausar til umsóknar: • Almenn kennsla í 1. - 10. bekk • Myndmenntakennsla • Tónmenntakennsla • Sérkennsla Digranesskóli er einsetinn grunnskóli í grónu hverfi í austurbæ Kópavogs með um 520 nemendur. Laun skv. kjarasamningi KÍ og Launanefndar sveitarfélaga. Umsóknarfrestur til 1. maí 2001. Upplýsingar gefa skólastjóri og aðstoðarskóla- stjóri í síma 554 0290. Starfsmannastjóri KÓPAVOGSBÆR Lektor í íslensku Kennaraháskóli Íslands vill ráða lektor í fullt starf og eru meginverkefni hans, auk rann- sókna, að kenna íslensku með sérstakri áherslu á framsögn og framsagnakennslu. Kennslan fer fram bæði sem staðbundin kennsla og fjar- kennsla og getur verið bæði í grunndeild og framhaldsdeild. Einnig þarf lektorinn að sinna endurmenntun á starfssviði Kennaraháskólans. Umsækjendur skulu hafa lokið meistaraprófi á sínu sviði hið minnsta eða hafa jafngilda þekkingu og reynslu að mati dómnefndar. Æskilegt er að umsækjendur hafi kennslu- reynslu og kynni af skólastarfi á mismunandi skólastigum. Gert er ráð fyrir ráðningu í starfið frá 1. ágúst 2001. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar skýrslur um námsferil, fræðistörf og kennslureynslu um- sækjenda ásamt námsvottorðum. Þá skulu um- sækjendur leggja fram þau rit, birt eða óbirt, sem þeir óska eftir að verði tekin til mats dóm- nefndar á fræðilegri hæfni sinni. Æskilegt er að umsækjendur geri grein fyrir því hverjar rannsóknarniðurstöður sínar þeir telji mark- verðastar. Laun eru samkvæmt kjarasamningum starfs- manna ríkisins. Ekki er um að ræða sérstök umsóknareyðublöð en umsóknum og umsóknargögnum skal skila á skrifstofu Kennaraháskóla Íslands v/ Stakkahlíð, 105 Reykjavík fyrir 1. maí 2001. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð- un hefur verið tekin um ráðningu. Upplýsingar gefur Auður Torfadóttir, deildar- forseti grunndeildar skólans, og Sigurður Kon- ráðsson, prófessor, í síma 563 3800. Álftanesskóli Bessastaðahreppi Kennarar og skólaliðar Næstkomandi skólaár, 2001 til 2002, eru lausar stöður við Álftanesskóla, Bessastaðahreppi Við leitum að kennara í sérkennslu, til kennslu í heimilisfræðum, hannyrðum, myndmennt og íþróttum. Ennfremur óskast kennarar til afleysinga frá 1. ágúst til 31. desember í almenna bekkjar- kennslu og starfsmenn til að vinna með börn- um sem eru í Frístund eftir hádegi. Álftanesskóli er einsetinn grunnskóli með 1.— 7. bekk og fjöldi nemenda er 230 í 13 bekkjar- deildum. Við tókum í notkun nýtt og glæsilegt húsnæði haustið 2000 og er skólinn búinn full- komnum kennslutækjum þannig að vinnuað- staða bæði kennara og nemenda er eins og best verður á kosið. Fjaran og fuglarnir eru nágrannar okkar sem gefur mikla möguleika til lifandi náttúrufræðikennslu og ekki spillir að við höfum sérútbúna kennslustofu til raun- greinakennslu. Undanfarin ár hefur verið unnið öflugt þróunar- starf varðandi breytta kennsluhætti í stærð- fræði og skólinn hlotið styrki til þess. Einnig hefur skólinn fengið styrki til þróunarverkefna á sviði upplýsinga- og tæknimenntar, mats á skólastarfi og til samskipta við skóla á Norður- löndunum og í Lettlandi. Umsóknarfrestur er til 28. apríl og upplýsingar um störfin veita Erla Guðjónsdóttir, skólastjóri, í símum 565 3662 og 891 6590 og Ingveldur Karlsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 565 3662. Umsóknir berist til skólastjóra. Nánari upplýsingar um ofangreind störf fást á www.job.is Almenn kennsla í 1. - 7. bekk, kennsla í list- og verkgreinum Íþróttir Tölvukennsla og tölvuumsjón Sérkennsla Umsóknarfrestur rennur út 7. maí 2001 Laus eru störf við nýjan skóla í Grafarholti Laun skv. kjarasamningum KÍ og Launanefndar sveitarfélaga. Umsóknir ber að senda á Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 1, merktar ,,nýr skóli í Grafarholti”. Upplýsingar veita Guðlaug Sturlaugsdóttir, skólastjóri í síma 894-1356, gustur@ismennt.is . Aðstoðarskólastjóri Kröfur til umsækjenda: Kennaramenntun og kennslureynsla Framhaldsmenntun æskilegt t.d. á sviði stjórnunar eða í uppeldis- og kennslufræði Stjórnunarhæfileikar og reynsla af stjórnun Lipurð í mannlegum samskiptum Metnaður í starfi Þekking á sviði rekstrar er æskileg Umsóknarfrestur rennur út 17. apríl 2001 Kennarar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.