Morgunblaðið - 08.04.2001, Síða 10
10 D SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Leikskólakennarar
— tónlistarkennarar
— kennaranemar
Nokkrar stöður leikskólakennara við leikskól-
ann Leikskála á Siglufirði eru lausar til umsókn-
ar.
Leikskálar er gróinn leikskóli í nýlegu húsnæði,
með um 100 nemendur í þremur deildum og
eru 14,2 stöðugildi við skólann og er aðbúnað-
ur þar góður.
Í skólanum er m.a. unnið að gerð skólanám-
skrár. Upplýsingar veitir leikskólastjóri í vinnu-
síma 467 1359; netfang: skalar@simnet.is eða
467 1908 heima.
Við Tónlistarskóla Siglufjarðar er laus ein staða
tónlistarkennara. Um er að ræða heila stöðu
og æskilegar kennslugreinar eru blásturshljóð-
færi og kennsla í forskóladeild. Rúmlega 100
nemendur eru í skólanum í vetur.
Upplýsingar veitir tónlistarskólastjóri í vinnu-
síma 467 1319; netfang: eliasth@ismennt.is
eða 467 1227 heima.
Einnig má hafa samband við skólafulltrúa í
síma 460 5600 eða netfang: skolaskr@siglo.is
varðandi þessar stöður.
Siglufjörður er 1600 manna bær við samnefndan fjörð. Þar er öll
almenn þjónusta, s.s. sjúkrahús, heilsugæsla og ýmis konar verslanir.
Þar er einnig veglegt síldarminjasafn, blómlegt félags- og tónlistarlíf
t.d. kvennakór og karlakór og unnið að uppsetningu þjóðlagaseturs.
Mikið íþróttastarf er hér, sundlaugin góð og nýlegt íþróttahús.
Gott skíðaland er svo og fjölbreyttar gönguleiðir.
Það er vel þess virði að kynna ser málið betur með því að hafa sam-
band við okkur.
Rétt er að benda á heimasíður Siglufjarðar www.silgo.is og Grunn-
skóla Siglufjarðar www.sigloskoli.is .
Skólaskrifstofa Siglufjarðar.
Sölumaður
á fasteignasölu
Fasteignasala í Reykjavík óskar að ráða sölu-
mann frá og með næstu mánaðarmótum.
Leitað er að duglegum sölumanni, helst með
reynslu af sölu fasteigna. Viðkomandi þarf að
hafa góða framkomu, vera stundvís, vanur að
vinna við tölvur og bíl til umráða. Boðið er upp
á góða vinnuaðstöðu, góðan vinnuanda og
laun eru árangurstengd.
Áhugasamir skili inn umsókn á auglýsingadeild
Mbl. með upplýsingum um aldur menntun og
fyrri störf, fyrir fimmtudaginn 12. apríl merkt:
„Traustur — 11104“.
Grindavík
Byggingarfulltrúi
í Grindavík
Grindavíkurbær auglýsir starf
byggingarfulltrúa laust til umsóknar.
Byggingarfulltrúi þarf að uppfylla skilyrði 48.
og 49. gr. skipulags- og byggingarlaga og sinn-
ir öllum verkefnum byggingarfulltrúa sam-
kvæmt lögum og reglugerðum.
Auk þess sér byggingafulltrúi/bæjartæknifræð-
ingur um skipulagsmál, samskipti við Fast-
eignamat ríkisins og hefur yfirstjórn og eftirlit
með verklegum framkvæmdum á vegum bæj-
arins. Hann sér um viðhald á öllum fasteignum
bæjarins.
Miklar og spennandi framkvæmdir eru á döf-
inni í Grindavík. Hafnarframkvæmdir eru þar
fyrirferðamestar, einnig framkvæmdir við
grunnskóla og gatnagerð, en góður gangur
er í húsbyggingum um þessar mundir. Á næstu
árum standa til umfangsmiklar holræsafram-
kvæmdir. Vinna við nýtt aðalskipulag er langt
komin.
Grindavík er staður í mikilli sókn, íbúar eru um
2.350 og fjölgaði mikið á síðasta ári. Hér er góð
almenn þjónusta, kraftmikið fólk, blómlegt
íþróttalíf og Bláa lónið við bæjardyrnar.
Upplýsingar um starfið veitir bæjarstjóri,
Einar Njálsson, í síma 420 1100, einnig
má hafa samband við fráfarandi bygging-
arfulltrúa, Viðar Má Aðalsteinsson.
Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofuna
í Grindavík, Víkurbraut 62, 240 Grindavík,
í síðasta lagi 23. apríl 2001.
Bæjarstjórinn í Grindavík
Rannsóknastofa Há-
skólans í meinafræði
Tveir líffræðingar óskast sem fyrst til vísinda-
starfa við eftirfarandi verkefni:
Rannsóknir á brjóstakrabbameini
Á rannsóknastofu okkar er hópur vísindamanna
sem stundar rannsóknir á brjóstakrabbameini
í samstarfi við aðra vísindamenn, bæði inn-
lendra og erlendra. Meðal spennandi verkefna
verður að taka þátt í staðsetningu og einangrun
á brjóstakrabbameinsgeninu BRCA2. Við leit-
um að einstaklingi með líffræðimenntun eða
sambærilegri menntun. Hann þarf helst að vera
tæknilega sinnaður, hafa reynslu af tölvuvinnu
og líða vel sem hluti af hóp sem vinnur saman
að sameiginlegu markmiði.
Rannsóknir á krabbameini
í blöðruhálskirtli
Um er að ræða rannsóknaverkefni með aðal-
áherslu á leit og rannsóknir á genum sem hafa
áhrif til myndunar og framþróunar á krabba-
meinsvexti í blöðruhálskirtli. Ef vilji er fyrir
hendi þá er möguleiki á að tengja starfið verk-
efni til meistaragráðu eða annarrar sambæri-
legrar menntunar.
Vinsamlegast sendið inn umsókn fyrir 25. apríl
merkt: „Krabbameinsrannsóknir“, R.H. í meina-
fræði, HÚS 14, Landspítali—háskólasjúkrahús,
v/Hringbraut. Frekari upplýsingar gefur Rósa
Björk í síma 560 1908.
Á Rannsóknastofu Háskólans í meinafræði starfa bæði líf-
fræðingar, læknar og meinatæknar auk fjölda annarra fag-
stétta. Starfssvið stofnunarinnar er vítt, en meginstarfsemin
er tengd greiningum og rannsóknum á krabbameini.