Morgunblaðið - 08.04.2001, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 08.04.2001, Qupperneq 22
22 D SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ LANDSSAMBAND hestamanna- félaga og verkefnisstjórn Vind- heimamela fyrir hönd hestamanna- félaganna í Skagafirði undirrituðu á fimmtudaginn samning um afnot á mótssvæðinu á Vindheimamelum í Skagafirði fyrir landsmót hesta- manna sem halda á þar 2. til 7. júlí árið 2002. Rekstraraðili landsmóts- ins af hálfu Bændasamtaka Íslands og LH er Landsmót hestamanna ehf. Framkvæmdanefnd, starfs- maður og skrifstofan klár Þeir Páll Dagbjartsson fyrir hönd verkefnisstjórnar, Jón Albert Sigurbjörnsson fyrir hönd LH og Sveinbjörn Sveinbjörnsson, for- maður stjórnar Landsmóts hesta- manna ehf., undirrituðu samning- inn í skemmtilegri og sérlega skagfirskri umgjörð í Miðgarði í Skagafirði á fimmtudagskvöldið að viðstöddum gestum. Þar stóð nefni- lega yfir æfing karlakórsins Heim- is, en kórmeðlimir mættu í einkenn- isbúningi kórsins í tilefni dagsins. Kórinn söng nokkur lög og fór á kostum og vakti athygli að einn af einsöngvurunum var hinn níu ára gamli Aron Pétursson frá Víðidal II. Jafnframt var framkvæmdanefnd mótsins kynnt. Hana skipa Hjörtur Einarsson, formaður úr Austur- Húnavatnssýslu, Rafn Arnbjörns- son úr Eyjafjarðarsýslu og Skag- firðingarnir Anna Sif Ingimarsdótt- ir, Eyþór Einarsson, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Hinrik Már Jóns- son og Stefán Reynisson. Í verkefn- isstjórn Vindheimamela sitja auk Páls Dagbjartssonar formanns þeir Agnar H. Gunnarsson og Bjarni Egilsson. Stjórn Landsmóts hesta- manna ehf. skipa auk Sveinbjörns Sveinbjörnssonar formanns þeir Sigurgeir Þorgeirsson og Pétur J. Eiríksson. Verkefnið Átak í hestamennsku leggur til starfsmann, Huldu Gúst- afsdóttur, en auk þess mun Hesta- miðstöð Íslands í Skagafirði veita aðstoð. Hún er meðal annars fólgin í gerð heimasíðu Landsmóts 2002 sem einnig var opnuð við þetta tækifæri. Skrifstofuaðstaða fyrir LM2002 verður á skrifstofu LH í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Leigugjaldið 23% af and- virði seldra miða Samningurinn felur í sér að leigu- sali, verkefnisstjórn Vindheima- mela, á að sjá um að mótssvæðið verði tilbúið, samkvæmt samkomu- lagi sem samningsaðilar gerðu með sér í janúar, með hæfilegum fyrir- vara. Meðal annars sér verkefnis- stjórnin um að áhorfendasvæði og keppnisvellir skulu vera frágengn- ir, svo og snyrtiaðstaða, frárennsl- islögn, nægt drykkjarhæft vatn, stóðhestahús fyrir 28 stóðhesta í eins hesta stíum og viðbótarrými í nágrenni mótssvæðis fyrir allt að 52 stóðhesta, bílastæði, tjaldstæði, af- girt beitarhólf, afgirt leiksvæði fyr- ir börn og sparkvöll með mörkum. Öll mannvirki skulu vera snyrtileg og byggingar nýmálaðar. Einnig sér verkefnisstjórn um að í dóm- pöllum verði rafmagn og tölvuteng- ing með nettengingu og að á svæð- inu verði fullnægjandi skilyrði til allra þráðlausra fjarskipta. Rekstraraðili mótsins, Landsmót hestamanna ehf., á að sjá um að all- an nauðsynlegan húsakost og tjöld umfram það sem áður er getið, að- stöðu til veitingasölu, búnings- og veitingaaðstöðu fyrir knapa, start- bása, sérútbúna aðstöðu fyrir dýra- lækni, aðstöðu fyrir neyðaraðstoð, tölvubúnað, aðstöðu fyrir fjölmiðla og samskipti við þá, samninga vegna löggæslu og aðstöðu fyrir hana, svæðisútvarp og miðlun upp- lýsinga til gesta og útgáfustarfsemi á mótsstað og aðstöðu og annað er tilheyrir starfsmannahaldi. Samið var um að leigugjald fyrir mótssvæðið verði 23% af andvirði seldra aðgöngumiða á mótið og greiðist að fullu 31. júlí 2002. Vindheimamelar skapaðir fyrir landsmót Í máli þeirra sem stóðu að samn- ingagerðinni kom fram að hún tók nokkuð langan tíma og eins og Agn- ar H. Gunnarsson í verkefnisstjórn orðaði það var engin ládeyða yfir henni. Hann sagðist vona að á Vind- heimamelum yrði fjölskylduvænt landsmót sem höfðaði til hesta- manna en nauðsynlegt væri að bjóða upp á einhverjar nýjungar sem höfðuðu til fleiri en þeirra. Að hans mati eru Vindheimamelar eins og skapaðir fyrir landsmót og sagð- ist sannfærður um að það yrði svo gaman á þessu móti að þeir sem ekki fara á það munu segja: „Ég vildi að ég hefði farið.“ Sveinbjörn Sveinbjörnsson, for- maður stjórnar Landsmóts hesta- manna ehf., tók undir það að samn- ingagerðin hefði ekki verið átakalaus, en sagðist ánægður með að samningar hefðu tekist og allir væru sáttir. Sveinbjörn benti á að landsmót hestamanna væru afar mikilvægur þáttur í hestamennsk- unni og í raun stórt byggðamál. Út- lendingar sem kæmu á landsmót fylltu 15 til 20 vélar og engin önnur útisamkoma hér á landi laðaði að sér svo marga útlenda gesti. Því væru mikil verðmæti fólgin í lands- mótum sem bæri að halda í. Gísli Gunnarsson, forseti sveitar- stjórnar Skagafjarðar, sagðist ánægður með að búið væri að skrifa undir samninginn. Umsókn Skag- firðinga um landsmót á Vindheima- melum hafi fylgt stuðningsyfirlýs- ing héraðsnefndar Skagafjarðar sem þá voru í 12 sveitarfélög. Eftir sameiningu var ákveðið að standa við þessa stuðningsyfirlýsingu enda stefna sveitarstjórnar Skagafjarðar að efla hestamennskuna og þætti sumum nóg um. Gísli sagðist finna að góður andi ríkti um Landsmótið 2002 og greinilegt að þeir sem að því stæðu væru samtaka um að bjóða upp á gott mót. Mikil bjartsýni ríkti í máli Jóns Alberts Sigurbjörnssonar, for- manns LH, um að vel tækist til með landsmótið á Vindheimamelum. Samningur um landsmót á Vind- heimamelum 2002 undirritaður Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir Stefán Reynisson, Hjörtur Einarsson, Hinrik M. Jónsson og Guðbjörg Guðmundsdóttir úr framkvæmdanefnd spjalla saman. Samningur um afnot á mótssvæðinu á Vind- heimamelum í Skaga- firði fyrir Landsmót hestamanna árið 2002 var undirritaður á fimmtudaginn. Ásdís Haraldsdóttir skellti sér í Skagafjörðinn og fylgdist með. FREMSTIR FYRIR GÆÐI Milli manns og hests... ... er arhnakkur Fermingargjafir í miklu úrvali Frábær fermingartilboð NIÐURSTÖÐUR nýrrar rann- sóknar á ættlægni nýrnafrumu- krabbameins á Íslandi, sem kynntar voru á nýafstöðnu þingi Skurð- læknafélags Íslands, sýna að nánir ættingjar sjúklinga sem greinst hafa með nýrnafrumukrabbamein, hafa yfir tvöfalt meira á hættu en aðrir á að fá sjúkdóminn. Niður- stöðurnar sýna að áhættuaukningin er einnig marktæk fyrir fjarskyld- ari ættingja. Leit að meingeni sjúk- dómsins stendur nú yfir og er í því skyni að hefjast blóðsýnasöfnun meðal sjúklinga og nánustu ætt- ingja þeirra. Eiga aðstandendur rannsóknarinnar mikið undir því að þeir sem verða beðnir um að taka þátt í rannsókninni sýni jákvæð við- brögð. Að sögn Tómasar Guðbjartsson- ar, skurðlæknis við Háskólasjúkra- húsið í Lundi í Svíþjóð, er nýrna- frumukrabbamein alvarlegur sjúk- dómur og lífslíkur sjúklinga því miður lakar. „Einkenni sjúkdóms- ins eru lúmsk og því verður oft töf á greiningu. Ríkjandi meðferð á sjúk- dómnum felst í brottnámi nýra með skurðaðgerð, þar sem sjúkdómur- inn svarar illa geisla- og lyfjameð- ferð,“ segir hann. Orsök sjúkdóms- ins er að mestu óþekkt en vitað er að nýgengi hans hérlendis er með því hæsta í heiminum. Að rannsókn- inni standa 10 sérfræðingar frá þvagfæraskurðdeild, krabbameins- deild og meinafræðideild Landspít- alans – háskólasjúkrahúss við Hringbraut, hjarta- og lungna- skurðdeild Háskólasjúkrahússins í Lundi og Íslenskri erfðagreiningu. Markmið hennar var að kanna ætt- lægni sjúkdómsins á Íslandi síðustu 45 ár, eða frá 1945–1999. Alls voru 1.078 Íslendingar sem greindust með nýrnafrumukrabbamein á um- ræddu tímabili teknir með í rann- sóknina en þær upplýsingar fengust úr krabbameinsskrá Krabbameins- félags Íslands. Skrá yfir alla greinda sjúklinga var borin saman við ættfræðigrunn ÍE þar sem er að finna upplýsingar um nær alla núlif- andi Íslendinga auk forfeðra aftur að landnámi, alls 630 þúsund manns. „Niðurstöður rannsóknarinnar eru mjög athyglisverðar og eins af- gerandi niðurstöður hafa ekki kom- ið fram áður á ættlægni sjúkdóms- ins,“ segir Ásgeir Thoroddsen, læknir á handlækningadeild LHS, sem kynnti niðurstöðurnar á þinginu. „Í framhaldinu munum við síðan safna blóðsýnum úr sjúkling- um og fjölskyldum þeirra sem við munum nota til að einangra erfða- efni hvers og eins með því markmiði að finna meingen sjúkdómsins.“ Ábending um mögulegan erfðaþátt Að sögn Þóru J. Jónasdóttur verkefnisstjóra eru þær niðurstöður Blóðsýnasöfnun meðal nýrnafrumu- krabbameinssjúklinga að hefjast Mikilvægt að fá já- kvæð viðbrögð sjúklinga og ættingja þeirra Gól fe fn i á v innustað inn Ármúla 23, sími 533 5060 HEIMASÍÐA fyrir Landsmót 2002 var formlega opnuð þegar samning- ar um Landsmótið voru undirritaðir. Það voru þeir Sveinbjörn Eyj- ólfsson, formaður stjórnar Hesta- miðstöðvar Íslands í Skagafirði, og Björn Sveinsson á Varmalæk sem opnuðu síðuna formlega. Svein- björn óskaði eftir að fá Björn í lið með sér, enda væru hann og gæðingur hans, Hrímnir frá Hrafna- gili, tákn landsmótsins á Vindheima- melum árið 1982 í margra augum. Á heimasíðu Landsmóts 2002 er að finna margvíslegar upplýsingar um sögu landsmóta, Skagafjörð, gistimöguleika, hvernig komast eigi á staðinn og ýmislegt fleira. Auk þess birtast fréttir um gang mála er varða landsmótið. Enn sem komið er er síðan á ís- lensku en verður fljótlega einnig á ensku og þýsku. Slóðin er www.- landsmot.is. Heimasíða fyrir Landsmót 2002 opnuð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.