Morgunblaðið - 08.04.2001, Síða 23

Morgunblaðið - 08.04.2001, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2001 D 23 Þeir sem að mótinu koma væru vel mannaðir strax frá upphafi, tryggt væri samstarf við Átaksverkefni í hestamennsku og Hestamiðstöð Ís- lands og aðstandendur hefðu þegar skrifstofuaðstöðu. Sigurgeir Þorgeirsson hvatti í lokin til þess að kynning og mark- aðssetning á mótinu yrði hafin sem fyrst og væri opnun heimasíðu landsmótsins upphafið af henni. Heimasíðan væri í fyrstu einungis á íslensku en verið væri að þýða hana yfir á þýsku og ensku. Mikilvægt væri að koma upplýsingum um heimasíðuna á framfæri erlendis. Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir Páll Dagbjartsson, Jón Albert Sigurbjörnsson og Sveinbjörn Svein- björnsson undirrita samninginn. Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir Verkefnisstjórn Vindheimamela. Páll Dagbjartsson, Bjarni Egilsson og Agnar H. Gunnarsson. DAGBÓK Háskóla Íslands 9.–15. apríl. Allt áhugafólk er velkomið á fyrirlestra í boði Háskóla Íslands. Ít- arlegri upplýsingar um viðburði er að finna á heimasíðu Háskólans á slóð- inni http://www.hi.is/stjorn/sam/dag- bok.html. Dr. Anne Brydon flytur fyrir- lestur Þriðjudaginn 10. apríl mun dr. Anne Brydon flytja opinberan fyrir- lestur á vegum Mannfræðistofnunar og mannfræði-/þjóðfræðiskorar Há- skóla Íslands. Fyrirlesturinn hefst kl. 12.15 í stofu 101 í Odda og verður hann fluttur á ensku. Fyrirlesturinn nefnist „Artists with agency: Visual- izing place and the extension of mod- ernity in Iceland“. Kristur á hvíta tjaldinu Þriðjudaginn 10. apríl kl. 17 flytur dr. Arnfríður Guðmundsdóttir lektor fyrirlestur í málstofu Guðfræðistofn- unar sem hún nefnir „Kristur á hvíta tjaldinu. Um túlkun á persónu og boðskap Jesú Krists í kvikmyndum“. Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu V í Aðalbyggingu háskólans og er öll- um opinn. Málstofa sálfræðiskorar Miðvikudaginn 11. apríl verður síð- asta málstofa vormisseris haldin. Jón Friðrik Sigurðsson Ph.D., sérfræð- ingur í klínískri sálfræði og réttarsál- fræði, flytur fyrirlesturinn „Réttar- sálfræðirannsóknir á Íslandi“. Málstofa sálfræðiskorar verður hald- in alla miðvikudaga í vetur í Odda, stofu 201, kl. 12–13. Málstofan er öll- um opin. Námskeið Endurmenntunarstofn- unar HÍ Málstofa um nýtt námsefni í sögu- kennslu. Kennarar: Ýmsir sögukenn- arar og námsefnishöfundar (stutt er- indi). Umsjón: Róbert F. Sigurðsson. Tími: 28. apríl kl. 13.30–16.30. Microstation – Grunnnámskeið Kennari: Daði Björnsson landfræð- ingur. Tími: 9. og 10. apríl kl. 9–17. Að skrifa barna- og unglingabæk- ur. Kennari: Anna Heiða Pálsdóttir, rithöfundur og doktorsnemi í barna- bókmenntum. Heimasíða: http:// www.mmedia.is/ah/English.htm. Tími: Mán. og mið. 9. apríl–2. maí kl. 20–22.30 (7x). Verkefnastjórnun II – Stýring og framkvæmd verkefna – Stjórntæki í verkefnum. Kennarar: Tryggvi Sig- urbjarnarson ráðgjafarverkfræðing- ur og Helgi Þór Ingason Ph.D., véla- og iðnaðarverkfræðingur. Tími: 9. apríl kl. 8.30–17. Kenningar Ira Progoffs um innri visku og sköpunargáfu (The Intens- ive Journal Method – writing your inner self). Kennari: Kristiina Nikk- ola, sálfræðingur í Finnlandi. Tími: 17. apríl kl. 9–13. Stjórn bókasafna og upplýsinga- miðstöðva. Kennari: Anna Torfadótt- ir, forstöðumaður Borgarbókasafns. Tími: 23. apríl kl. 13–17 og 24. apríl kl. 13–18. Íslenski þroskalistinn. Kennarar: Einar Guðmundsson sálfræðingur, forstöðumaður Námsmatsstofnunar, og Sigurður J. Grétarsson sálfræð- ingur, dósent við HÍ. Tími: 23. apríl kl. 9–16. Unix 2. Kennari: Yngvi Þór Sig- urjónsson hjá Teymi hf. Tími: 23. og 27. apríl kl. 13–17. Veraldarvefurinn og virk upplýs- ingaleit fyrir tæknimenn. Ný viðhorf í upplýsingamálum. Kennari: Jón Er- lendsson yfirverkfræðingur, Upplýs- ingaþjónustu HÍ. Tími: 24. og 25. apr- íl kl. 9–17. Nytsemi veflausna. Kennarar: Marta Kristín Lárusdóttir tölvunar- fræðingur og Ebba Þóra Hvannberg, dósent í tölvunarfræði við HÍ. Tími: 24. og 26. apríl og 2. maí kl. 13–17. Vefsmíðar II – Þróaðri vefsmíði og myndvinnsla. Kennari: Gunnar Grímsson, viðmótshönnuður og vef- smiður hjá Engu ehf. Gestafyrirles- ari: Heimir Þór Sverrisson, verk- fræðingur hjá Teymi hf. Tími: 24. og 26. apríl kl. 8.30–12.30, 27. apríl kl. 8.30–11.30, 30. apríl kl. 8.30–12.30 og 2. maí kl. 8.30–11.30. Stjórnarstörf í hlutafélögum – Réttindi, skyldur og ábyrgð. Kenn- arar: Jakob R. Möller hrl. og Kristinn Bjarnason hrl. Tími: 24. apríl kl. 16– 19. Námskeið fyrir bókara. Umsjón: Halldór J. Harðarson Ríkisbókhaldi. Tími: 24. apríl kl. 13–17 og 25. apríl kl. 9–13. Höfundarréttur að hugbúnaði – Einkaleyfi, vörumerki og samkeppn- islög. Kennarar: Ásta Valdimarsdótt- ir lögfræðingur, Erla S. Árnadóttir hrl. og Gunnar Örn Harðarson, sér- fræðingur hjá A.P. Árnasyni. Tími: 25. apríl kl. 15–19. Hönnun mannvirkja á jarðskjálfta- svæðum – Jarðskjálftavá, evrópskur jarðskjálftastaðall EC8, hegðunar- staðlar (performance based design), jarðtæknileg atriði. Kennarar: Júlíus Sólnes, Sigurður Erlingsson, Páll Einarsson, Ragnar Sigbjörnsson og Eysteinn Einarsson, allir prófessorar við HÍ. Tími: 26. og 27. apríl kl. 9–17. Skattamál: Nýlegir úrskurðir og dómar. Kennari: Steinþór Haralds- son, yfirlögfræðingur RSK. Tími: 26. apríl kl. 16–19.30. Stjórnun breytinga og nýmæla í opinberri stjórnsýslu. Kennari: Sig- urbjörg Sigurgeirsdóttir M.Sc. stjórnsýslufræðingur. Tími: 26. apríl kl. 9–16. Íþróttaslys. Umsjón: Gunnar Skúlason. Fyrirlesarar: Ýmsir sér- fræðingar. Tími: 27. apríl kl. 8.20– 16.10 og 28. apríl kl. 8.30–12. Vísindavefurinn Hvers vegna? – Vegna þess! Vísindavefurinn býður gestum að spyrja um hvaðeina sem ætla má að vísinda- og fræðimenn Háskólans og stofnana hans geti svarað eða fundið svör við. Leita má svara við spurn- ingum um öll vísindi, hverju nafni sem þau nefnast. Kennarar, sérfræð- ingar og nemendur í framhaldsnámi sjá um að leysa gáturnar í máli og myndum. Slóðin er: http://www.vis- indavefur.hi.is. Sýningar Árnastofnun Stofnun Árna Magnússonar, Árna- garði við Suðurgötu. Handritasýning er opin kl. 14–16 þriðjudaga til föstu- daga, 1. sept. til 15. maí, og kl. 11–16 mánudaga til laugardaga, 1. júní til 25. ágúst. Þjóðarbókhlaða Myndir úr Maríu sögu. Sýning á útsaumuðum smámyndum eftir Elsu E. Guðjónsson í Þjóðarbókhlöðu 15. mars–30. apríl. Myndir úr Maríu sögu eftir Elsu E. Guðjónsson eru átján útsaumaðar smámyndir ásamt frumsömdum vísum sem skírskota til sögu hinnar helgu meyjar eins og hún er sögð í Maríu sögu, íslenskri helgi- sögu frá 13. öld. Þá er einnig á sýn- ingunni veggteppi með sömu mynd- um. Orðabankar og gagnasöfn Öllum er heimill aðgangur að eft- irtöldum orðabönkum og gagnasöfn- um á vegum Háskóla Íslands og stofnana hans. Íslensk málstöð. Orðabanki. Hefur að geyma fjölmörg orðasöfn í sér- greinum: http://www.ismal.hi.is/ob/ Landsbókasafn Íslands – Háskóla- bókasafn. Gegnir og Greinir. http:// www.bok.hi.is/gegnir.html Orðabók Háskólans. Ritmálsskrá: http://www.lexis.hi.is/ Rannsóknagagnasafn Íslands. Hægt er að líta á rannsóknarverkefni og niðurstöður rannsókna- og þróun- arstarfs: http://www.ris.is Dagbók Há- skóla Íslands sem þegar eru komnar fram túlkaðar á þann hátt, að litið er á aukna sjúkdómsáhættu meðal fjar- skyldari ættingja sem ábendingu um mögulegan erfðaþátt. „Ef áhættuaukningin nær hins vegar ekki út fyrir kjarnafjölskylduna, þá getur umhverfisþátturinn haft meira vægi en erfðaþátturinn,“ út- skýrir hún. Á næstu dögum hefst blóðsýna- söfnun sem nær til sjúklinga og nánustu ættingja þeirra. Sjúklingar munu fá bréf frá læknum sínum og þeir beðnir um að taka þátt í rann- sókninni. „Þátttakendur verða beðnir um að taka nánustu ættingja sína með til blóðsýnagjafar, því við þurfum að rannsaka hvernig erfða- þættir sjúkdómsins ganga í kyn- slóðir og bera þær athuganir saman við sjálfa sjúkdómsmyndunina,“ segir Laufey Ámundadóttir, fram- kvæmdastjóri Íslenskra krabba- meinsrannsókna, dótturfyrirtækis ÍE. „Það er því mjög mikilvægt fyr- ir rannsóknina að við fáum jákvæð viðbrögð frá þátttakendum og þeir gefi blóðsýni.“ Þegar blóðsýnasöfn- unin er komin vel af stað mun leit sérfræðinganna að meingeninu hefjast, sem felst í leit að sameig- inlegum þætti í erfðaefni Íslend- inga, sem eru til staðar í miklum meirihluta meðal sjúklinganna en finnast ekki hjá hinum frísku. „Við erum því að leita að ákveðnu „fingrafari“ í erfðaefni sjúklinga sem gengur í ættir. Það bendir okk- ur á ákveðin litningasvæði þar sem meingenið getur verið að finna,“ segir Laufey. Morgunblaðið/Þorkell Fjórir aðstandendur nýrnafrumukrabbameinsrannsóknarinnar, f.v.: Tómas Guðbjartsson skurðlæknir, Laufey Ámundadóttir framkvæmdastjóri, Ásgeir Thoroddsen læknir og Þóra J. Jónasdóttir verkefnisstjóri. MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá áhuga- hópi um auðlindir í almannaþágu: „Áhugahópur um auðlindir í al- mannaþágu ítrekar fyrri yfirlýs- ingar sínar um nauðsyn gjör- breyttrar stefnu í fiskveiðimálum. Koma verður á jafnræði til veiða svo fiskveiðar við Ísland þróist með eðlilegri nýliðun. Núverandi kerfi viðheldur óhóflegu verði á kvóta og hindrar þannig nauðsyn- lega nýliðun. Þetta einkenni kerf- isins gengur lengra en hagkvæmn- irök standa til og skekkir forsendur eðlilegrar samkeppni. Stórfelld uppkaup á kvóta í núver- andi kerfi valda gríðarlegri skulda- söfnun í útgerð og samþjöppun fiskveiðiréttinda á fáar hendur. Koma verður í veg fyrir að kvóta- kaup útgerðarinnar valdi enn frek- ari veðsetningu framtíðarútflutn- ingstekna þjóðarinnar en þegar er orðið. Með markvissum skrefum er verið að fórna langtímahagsmun- um okkar af eðlilegri byggð í land- inu fyrir hagsmuni nokkurra stórra útgerðarfyrirtækja. Svonefnt „hóflegt auðlindagjald“ samkvæmt tillögum auðlinda- nefndar er aðeins framhald gjafa- kvótakerfisins. Fyrningarleiðin sem nefndin bendir á tryggir hins vegar jafnan rétt allra Íslendinga til fiskveiða og þjóðin öll mun þá njóta afraksturs fiskistofnanna. Áhugahópur um auðlindir í al- mannaþágu fagnar því að fyrning- arleiðin nýtur vaxandi fylgis meðal þjóðarinnar. Samfylkingin hefur sett fram frumvörp á alþingi þar sem þessi leið er valin og nú ný- lega flutti formaður þingflokks framsóknarmanna tillögu um fyrn- ingarleiðina á flokksþingi fram- sóknarmanna með þeim árangri að Framsóknarflokkurinn hefur ákveðið að skipa nefnd til þess að endurskoða fiskveiðistefnu flokks- ins. Undirritaðir skora á alla sem vilja jafnrétti til fiskveiða og þjóð- areign á fiskistofnunum að ýta lít- ilvægum ágreiningi til hliðar og sameinast um fyrningarleiðina. Varðveitum auðlindina fyrir kom- andi kynslóðir. Komum í veg fyrir að fiskistofnarnir verði settir að veði fyrir erlendum skuldum. Sam- einumst um leið sem er til þess fallin að ná fram hámarkshag- kvæmni og tryggir jafnræði við af- not auðlindarinnar.“ Undir þetta rita: Ellert B. Schram, Guðmundur G. Þórarins- son, Jón Magnússon, Jónas Elías- son, Markús Möller, Sigurður Bjarnason, Sveinn Hannesson, Tryggvi Agnarsson, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorvaldur Gylfason, Þórólfur Matthíasson. Yfirlýsing

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.