Morgunblaðið - 26.04.2001, Qupperneq 11
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 C 11
Bæjarlind 8-10 • Kópavogi • Sími 510 7300 • www.ag.is
með Seria Ergo skrifstofuhúsgögnum.
Léttu þér vinnuna
Seria Ergo skrifstofuhúsgögnin, nýjasta línan frá Á.G., eru einstaklega vönduð og
setja fallegan svip á vinnuumhverfið. Þau fást með stillanlegri hæð á borðplötu
sem hentar hverjum og einum og stillanlegri niðurfellingu fyrir lyklaborð.
Seria Ergo skáparnir fást með rennihurðum sem nýtast vel í litlu rými.
NORRÆNA bankasamsteypan
Nordea hefur vakið mikla athygli fyr-
ir velgengni í netbankaþjónustu en
2,3 milljónir viðskiptavina bankans á
Netinu framkvæma fleiri færslur
mánaðarlega en viðskiptavinir nokk-
urs annars banka. Færslurnar eru
6,9 milljónir talsins í hverjum mánuði
og er það tvöfalt á við þann banda-
ríska banka sem er stærstur á sviði
netþjónustu, Bank of America.
Nordea varð til á þessu ári en hef-
ur þróast frá árinu 1998 á þann hátt
að Merita Bank í Finnlandi samein-
aðist Nordbanken í Svíþjóð, þá kom
danski Unibank til liðs við fyrirtækið
og á síðari hluta síðasta árs bættist
norski Kreditkassen í hópinn. Nafnið
Nordea var tekið upp um síðustu ára-
mót.
„Bo Harald og Nordea eru best í
netbankaþjónustu,“ segir Amit
Mehta hjá Morgan Stanley Dean
Witter í London við tímaritið
Business Week sem ræddi nýlega við
Finnann Bo Harald, framkvæmda-
stjóra netbankaþjónustu Nordea, en
hann hefur um langa hríð starfað inn-
an finnska bankakerfsins.
Nordea hefur lagt niður helming
útibúa sinna í Finnlandi og hagnaður
hefur aukist, sérstaklega vegna góðr-
ar afkomu netþjónustunnar. Vel-
gengnin hefur fyrst og fremst verið í
Finnlandi en Harald vinnur að því að
breiða út boðskapinn til hinna Norð-
urlandanna sem Nordea nær yfir.
Sérstakir netbankar
ekki rétta leiðin
Undanfarin ár hafa verið stofnaðir
nokkrir bankar sem eingöngu starfa
á Netinu og má þar fremstan telja
breska bankann Egg. Dansk Basis-
bank hefur einnig verið áberandi í
umræðunni á Íslandi og Skandia rek-
ur ennfremur sérstaka netbanka á
Norðurlöndunum.
Hefðbundnir bankar hafa einnig
fært út kvíarnar og stofnað netbanka
en stundum gert þá að sjálfstæðum
fyrirtækjum, óháðum móðurbankan-
um. Dæmi um það er netbanki þýska
Commerzbank, Comdirect, sem hef-
ur ekki gengið sem skyldi þar sem
hagnaður hrapaði um 75% á síðasta
ári.
Miðað við velgengni Nordea, sem
einnig rekur hefðbundin bankaútibú,
er ekki rétta leiðin að stofna sérstak-
an netbanka, heldur að hafa hann
hluta af starfsemi bankans og beina
viðskiptavinum bankans á Netið.
Mesti kostnaður sérstakra netbanka
hefur falist í að ná til viðskiptavina og
þeir hafa aldrei náð jafnmörgum net-
viðskiptavinum og Nordea.
Netviðskiptavinir Nordea eru 2,3
milljónir og framkvæma 6,9 milljónir
færslna á mánuði. Viðskiptavinir
breska netbankans Egg eru 1,5 millj-
ónir og framkvæma 500 þúsund
færslur á mánuði. Bank of America
hefur fleiri netviðskiptavini en Nord-
ea, eða 3,2 milljónir, en þeir fram-
kvæma aðeins 3,1 milljón færslna á
mánuði. Netvæðing bandaríska
bankakerfisins er enda skemur á veg
komin en á Norðurlöndunum og
Bandaríkjamenn virðast t.d. fremur
skrifa ávísanir en að nota greiðslu-
kort.
Á síðustu fimm árum hefur Merita
Bank, finnski armur Nordea, notað
sem samsvarar um 1,6 milljörðum ís-
lenskra króna til að byggja upp net-
þjónustu við viðskiptavini. Til sam-
anburðar hefur Egg notað um 60
milljarða til að koma undir sig fót-
unum.
Ósló. Morgunblaðið.
Nordea
fremst í
netbanka-
þjónustu