Morgunblaðið - 26.04.2001, Page 14
VIÐSKIPTI
14 C FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
STÖÐUGT fleiri fyrirtæki gera sér grein
fyrir því að til að hámarka arðsemi sína
þurfa þau að einbeita sér að lykilhæfni sinni,
því sem þau eru best í og veitir þeim sam-
keppnisforskot. Fyrirtækjum standa nú til
boða ýmsar leiðir við að „úthýsa“ þeim þátt-
um reksturs síns sem falla ekki undir lyk-
ilhæfni þeirra og fá fyrirtæki sem hafa sér-
þekkingu á einstökum þáttum til að hýsa þá.
Fyrirtæki geta þannig einbeitt sér betur að
viðskiptalegum markmiðum sínum.
Stjórnun starfsmannamála
– breyttir tímar
Stjórnun starfsmannamála hefur þróast
hratt á síðustu árum og vægi þeirra vex
stöðugt í fyrirtækjarekstri. Starfsfólk býr
yfir meiri þekkingu en áður og gerir einnig
meiri kröfur til starfsins og fyrirtækisins
sem það vinnur hjá. Til að uppfylla þessar
kröfur þurfa fyrirtæki að hafa yfir að ráða
mikilli sérfræðiþekkingu og greiðan aðgang
að þjónustu (s.s. ráðgjöfum, þjálfurum og
mælitækjum) á sviði starfsmannamála. Það
getur verið kostnaðarsamt fyrir minni fyr-
irtæki að hafa slíka sérfræðiþekkingu í húsi.
Þróunin erlendis
Víða erlendis hafa verið stofnuð fyrirtæki
til að hýsa starfsmannamál sem hafa það að
markmiði að hjálpa viðskiptavinum að bæta
þjónustustig, minnka kostnað, innleiða ný
ferli við stjórnun starfsmannamála og auka
arðsemi með skilvirkri starfsmannastjórnun.
Enn sem komið er eru færri sem nýta sér
hýsingu starfsmannamála en t.d. tölvumála
en bilið er þó að minnka. Stöðugt fleiri
stjórnendur líta til þessa möguleika í við-
leitni sinni til að ná meiri árangri og arð-
semi við rekstur fyrirtækja sinna.
Bestu mögulegu aðferðir
við starfsmannastjórnun
Rannsóknir sýna að ákveðnar aðferðir við
stjórnun og meðferð starfsmannamála skila
meiri árangri en aðrar, þetta höfum við kos-
ið að kalla „Bestu aðferðir við starfsmanna-
stjórnun“ (e. best practices in HR). Sér-
menntað fólk á sviði starfsmannastjórnunar
þekkir þessar rannsóknir og aðferðir og not-
ar þær í störfum sínum og er því mun lík-
legra að það nái þeim árangri sem óskað er
eftir. Við hýsingu starfsmannamála er þess
gætt að nota þessar aðferðir og þær sniðnar
að aðstæðum hverju sinni. Sem dæmi um
aukinn árangur í starfsmannamálum má
nefna m.a. minni starfsmannaveltu, aukna
framleiðni og betri árangur þjálfunar.
Arðsemi fjárfestinga
í starfsmannamálum
Stjórnendur fyrirtækja tala nú gjarnan
um starfsfólk sitt sem mannauð og líta í
auknum mæli á starfsfólk sem fjárfestingu í
stað útgjalda. Það
ætti ekki að vera
neitt öðruvísi með
þær fjárfestingar
en aðrar að þær
þurfa að skila arð-
semi (e. ROI –
Return On In-
vestment). Mikið
er til af mæli-
kvörðum til að
reikna og mæla
arðsemi af fjár-
festingum til
starfsmannamála.
Saratoga Insti-
tute í Bandaríkj-
unum, með dr.
Jac Fitz-enz í for-
svari, hefur þróað mælikvarða til að mæla
þessa þætti og eru stöðugt fleiri fyrirtæki
sem nýta sér þá, einkum til að gera raun-
hæfan samanburð við önnur fyrirtæki.
Dæmi um slíka mælikvarða er Arðsemi
starfsmannaþjónustu, Hagkvæmni starfs-
mannaþjónustu, Hlutfall launaveltu í
starfsþróun, Starfslokastig eða Starfs-
mannavelta, Fjárfestingarþáttur þjálfunar
o.fl. Niðurstöður þessara mælinga má, eins
og áður sagði, nota til samanburðar (e.
benchmarking) við önnur fyrirtæki á sama
vinnumarkaði eða við fyrirtæki sem starfa á
sama sviði.
Þessi þjónusta
felur í sér að utan-
aðkomandi sér-
fræðingar, eða ráð-
gjafar, fara með
umsjón starfs-
mannamála fyrir-
tækis að öllu eða
einhverju leyti, allt
eftir þörfum og
óskum viðkomandi
fyrirtækis. Þjónust-
an er fyrst og
fremst hugsuð fyrir
minni fyrirtæki og/
eða ört vaxandi fyr-
irtæki sem eru far-
in að íhuga hvert sé
besta fyrirkomulag
við stjórnun starfsmannamála sinna. Með
þessu móti fá minni fyrirtæki, sem kjósa að
fara þessa leið, faglega meðferð starfs-
mannamála og bestu mögulegu og viður-
kenndu aðferðir hverju sinni. Hér skapast
einnig sá möguleiki að fá sömu, eða aðra,
aðila til að sjá um launaútreikninga, launa-
bókhald, hugbúnað fyrir starfsmannastjórn-
un o.fl.
Hvers vegna ættu fyrirtæki
að nýta sér svona þjónustu?
Helsti ávinngur er sá að stjórnendur
spara sér mikinn tíma og geta því einbeitt
sér betur að því að uppfylla viðskiptaleg
markmið fyrirtækisins. Þeir geta verið viss-
ir um að fá sérfræðimeðferð á starfsmanna-
málum fyrirtækisins. Fyrirtæki sem fara
þessa leið spara einnig verulegar upphæðir
á sviði starfsmannamála. Nánast undantekn-
ingalaust er þessi leið hagkvæmari fyrir
minni fyrirtæki en starfsmannastjóri í fullu
starfi. Enn fremur má ná fram aukinni hag-
ræðingu með því að kaupa margar lausnir
og ólíka þjónustu af einum aðila, t.d. ráð-
gjöf, þjálfun og námskeið, mælingar o.fl.
Þeir sem fara með hýsingu starfsmanna-
mála fyrir fyrirtæki koma þar inn sem
stefnumótandi ráðgjafar og vinna með það
að leiðarljósi að árangur og arðsemi starfs-
mannamála hjá fyrirtækinu verði sem mest.
Hvernig er algengast að
fyrirkomulag þjónustunnar sé?
Í upphafi hittast stjórnendur fyrirtækis
og þeir sérfræðingar sem ætla að annast
hýsinguna og fara þeir saman yfir hvað gert
hefur verið í starfsmannamálum hjá fyrir-
tækinu og greina hvar skórinn kreppir helst
að. Í framhaldi af því er gerð aðgerðaáætlun
og henni er svo fylgt skipulega eftir. Sér-
fræðingur reiknar einnig út arðsemi starfs-
mannamála hjá fyrirtækinu og hefur til þess
sérstakar reikniformúlur sem hafa náð við-
urkenningu fyrir þess háttar útreikninga,
sbr. dæmin hér að ofan. Sérfræðingur hefur
fasta viðveru í því fyrirtæki sem hann þjón-
ustar en fyrirtækið þarf líka að skipa tengi-
lið sem vinnur með ráðgjafanum sem sinnir
einnig verkefnum fyrir fyrirtækið utan
fastrar viðveru.
Að lokum…
Í lokin viljum við ítreka mikilvægi góðrar
starfsmannastjórnar því hún er grundvöllur
góðs árangurs fyrirtækja. Góð, skilvirk
starfsmannastjórnun skilar sér í betri ár-
angri fyrirtækja. Miklir fjármunir sparast
með t.d. minni starfsmannaveltu og minni
þjálfunarkostnaði en einnig er ávinningur
með aukinni framleiðni, afköstum og ánægð-
ari viðskiptavinum. Rannsóknir Gallup í
Bandaríkjunum hafa leitt í ljós að það
starfsfólk sem segist m.a. fá oft hrós og
endurgjöf á frammistöðu sína, falla vel í
hópinn, njóta umhyggju og hvatningar á
vinnustað er ánægðara, tryggara, skilar
meiri framleiðni og afköstum og viðskipta-
vinir þess eru ánægðari og tryggari en hjá
því starfsfólki sem segist ekki fá hrós og
endurgjöf, ekki falla vel í hópinn o.s.frv.
Rannsóknir Gallup á Íslandi hafa einnig
sýnt fram á sömu niðurstöðu.
Hýsing starfs-
mannamála
færist í vöxt
Allflestir hafa heyrt um fyrirtæki sem fá önnur fyrir-
tæki til að taka að sér umsjón tölvumála, eða það sem
er kallað hýsing tölvukerfa, skrifa Hafsteinn Bragason
og Herdís Pála Pálsdóttir. Nú er stöðugt að færast í
vöxt að fyrirtæki nýti sér sömu hugmyndafræðina á
öðrum sviðum og verður hér fjallað um þá nálgun í
tengslum við stjórnun starfsmannamála.
Herdís Pála
Pálsdóttir
Hafsteinn Bragason, er ábyrgðaraðili starfs-
mannamála hjá IMG. Herdís Pála Pálsdóttir er
ráðgjafi í starfsmannaráðgjöf hjá IMG.
Hafsteinn
Bragason
!
"
#"
#
$
% "
#
&
'
# (
!$
%
"
#
&
)
*
+
+,-!
!
STARFSMENN GoPro Landsteina
luku nýverið við uppsetningu á versl-
unarkerfi hjá einni stærstu IKEA
verslun í heiminum, en það er ný
verslun IKEA í Ísrael sem er í um
23.000 fermetra húsnæði. Áætlað er
að 35.000 manns hafi lagt leið sína á
opnun verslunarinnar sem heppnað-
ist í alla staði, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu.
Verslunarkerfi GoPro Landsteina
er heildarlausn í verslunarrekstri
sem samanstendur af innkaupakerfi,
vöruhúsakerfi, birgðastýringu og af-
greiðslukerfi. Verslunarkerfið
tryggir sjálfvirkni í verkferlum og
árangursmælingu á afgreiðslufólki,
kössum, vörutegundum, vöruflokk-
um. Stjórnendur geta fylgst ná-
kvæmlega með afkomu hverrar
rekstrareiningar og skoðað tölur aft-
ur í tímann eftir því sem þeim hentar
til samanburðar við reksturinn í dag.
Verkefnið í Ísrael er þáttur í sam-
starfi milli Ikea og Landsteina en ár-
ið 1995 hófu Landsteinar að vinna að
sérþróaðri verslunarkerfislausn.
Síðastliðið haust var undirritaður
samningur við Inter Ikea Systems
móðurfyrirtæki Ikea þess efnis að
þær verslanir sem selji Ikea vörur
taki upp verslunar- og afgreiðslu-
kerfi GoPro Landsteina. Í þessum
samningi er bæði átt við núverandi
verslanir Ikea og þær sem opnaðar
verða í framtíðinni.
Settu upp
verslunar-
kerfi í
Ísrael