Morgunblaðið - 26.04.2001, Qupperneq 15
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 C 15
gerð Útgerðafélags Akureyringa á
Akureyri og netagerð Þormóðs ramma í
Þorlákshöfn. Nýtt netaverkstæði var
einnig stofnsett í Hafnarfirði til þess að
þjónusta allar gerðir af flottrollum.
Höfuðstöðvar fyrirtækisins, söludeild og
lagerstjórnun eru í Hafnarfirði. Hjá
fyrirtækinu starfa nú 42 starfsmenn,
þar af 10 á Nýfundnalandi. Velta
samstæðunnar á síðasta reikningsári
nam um 970 milljónum króna.
Stjórn Icedan býður Ólaf velkominn
til starfa og þakkar um leið
Þorsteini Benediktssyni vel unnin störf
á liðnum árum.
Ólafur Stein-
arsson hefur verið
ráðinn fram-
kvæmdastjóri hjá
Icedan. Hann
tekur við af Þor-
steini Benedikts-
syni, einum
stofnanda fyrir-
tækisins, en hann
lætur nú af störf-
um af heilsufarsástæðum.
Ólafur er útskrifaður iðnrekstrar-
fræðingur frá Tækniskóla Íslands en
kemur nú frá Samskipum þar sem
hann hóf störf í apríl 1993. Gegndi
hann starfi deildarstjóra innflutnings
þangað til í byrjun árs 1999 þegar hann
tók við starfi svæðisstjóra Samskipa í
Noregi og Svíþjóð. Ólafur er giftur Reg-
ínu Steingrímsdóttur og eiga þau 3
börn.
Icedan ehf var stofnað árið 1992 og
hefur frá byrjun einbeitt sér að
inn- og útflutningi á veiðarfærum og
öðrum búnaði til þjónustu við
sjávarútveginn auk þróunar á veið-
arfærum í samvinnu við norska
fyrirtækið Selstad AS. Árið 1998 var
dótturfyrirtækið Icedan Canada á
St. Johns á Nýfundnalandi stofnað með
þjónustu við íslensk og erlend
skip á Flæmska hattinum í huga og er
það nú orðið eitt stærsta
veiðarfærafyrirtækið þar í landi.
Á árinu 2000 keypti félagið svo neta-
Nýr framkvæmda-
stjóri til Icedan
Bjarni Ásgeirs-
son hefur verið ráð-
inn hótelstjóri á
Hótel Esju og Hótel
Loftleiðum og hefur
hann þegar hafið
störf. Hótelin eru
rekin af Flugleiða-
hótelum hf. undir
merkjum Icelandair
Hotels, en hót-
elstjóri ber ábyrgð
á rekstri hótelanna gagnvart fram-
kvæmdastjóra Flugleiðahótela.
Bjarni hefur verið hótelstjóri á Grand
Hotel frá árinu 1995, en Bjarni hóf af-
skipti af hótelrekstri árið 1992 þegar
hann var ráðinn til að hefja rekstur Hót-
els Reykjavíkur, sem tók til starfa sama
ár. Þar var hann hótelstjóri til ársins
1997.
Bjarni útskrifaðist frá Hótel- og veit-
ingaskóla Íslands árið 1978 og hlaut
meistararéttindi síðar, en hann lærði
iðn sína á Hótel Holti. Bjarni er fæddur
árið 1955 og er kvæntur Sigurlaugu
Einarsdóttur leikskólafulltrúa Hafn-
arfjarðarbæjar og á hann þrjú börn.
Ráðinn hótelstjóri
á Hótel Esju og
Hótel Loftleiðum
Viðskiptablað
Morgunblaðsins
Fólk
LÍFTÆKNIFYRIRTÆKIÐ
Prokaria hefur fyrst íslenskra
fyrirtækja tengst með tvö-
faldri tengingu (ljósleiðara og
kopar) í símstöð Fjarskipta-
félagsins Títans.
Með þessari nýju ljósleið-
aratengingu er hægt að flytja
símtöl yfir netkerfi fyrirtæk-
isins á auðveldan hátt, því
með tilkomu IP-tækninnar
þurfa þau ekki lengur að-
greindar síma- og tölvulagnir.
Í fréttatilkynningu frá Tít-
an segir að hin nýja tenging
veiti Prokaria ákveðið rekstr-
aröryggi og hagkvæmni í
rekstri og stuðli að því að
Prokaria verði ávallt í farar-
broddi hvað varðar Netið og
gagnaleiðir.
Talin verða ráðandi að-
ferðafræði framtíðarinnar
Talið er að þessi nýja að-
ferðafræði muni verða ráðandi
í samskiptakerfum framtíðar-
innar, þar sem fyrirtækjum
býðst að flytja saman gögn,
tal og myndir á sama ljósleið-
aranetinu. Þessi möguleiki
gerir viðskiptamönnum Títans
kleift að flytja gögn frá
10Mb/s til 1Gb/s. Reiknað er
með að frekari þróun þess
konar samskiptakerfis gefi í
framtíðinni möguleika á
margfaldri afkastagetu.
Prokaria
tengist
tvöfalt
hjá Títan