Morgunblaðið - 15.05.2001, Side 1
2001 ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
SÖGULEGUR BIKARÚRSLITALEIKUR Í CARDIFF/B4
GUÐLEIF Harðardóttir, ÍR,bætti eigið Íslandsmet í
sleggjukasti á svæðismeistaramóti
háskóla í suð-austurríkjum Banda-
ríkjanna um helgina. Guðleif kastaði
sleggjunni 48,02 metra og bætti
fyrra met um 58 sentímetra, en það
setti hún í Athens í Georgíuríki í apr-
íl á síðasta ári. Metkastið nægði Guð-
leifu aðeins í 19. sæti. Hún kastaði
einnig spjóti á sama móti og hafnaði í
17. sæti með 38,38 metra og var all-
nokkuð frá sínu besta. Meistaramót-
ið var að þessu sinni haldið á velli há-
skólaliðs S-Karólínuríkis. Halldóra
Jónsdóttir tók einnig þátt í mótinu
en hún stundar nám við háskólann í
Alabama. Halldóra náði sér ekki á
strik í úrslitum spjótkastsins og
gerði öll köst sín ógild.
Þórey meiddist á ökkla
Þórey Edda Elísdóttir, stangar-
stökkvari, átti einnig að keppa á
svæðismeistaramótinu. Hún snérist
á ökkla á æfingu á föstudaginn og
gerði tilraun til að vera með þegar að
stangarstökkskeppninni kom á
sunnudag. En þegar á hólminn var
komið varð hún að draga sig úr leik.
„Ég reyndi en varð að hætta við í
upphitun því ég dreif ekki að dýn-
unni því ég var hölt í atrennunni,“
sagði Þórey vonsvikin því aðstæður
voru góðar á mótinu auk þess sem
hún vann stangarstökkið á svæðis-
meistaramótinu innanhúss í vetur.
Þórey sagðist ekki reikna með að
meiðslin drægju dilk á eftir sér og
hún stefnir ótrauð á þátttöku á
bandaríska háskólameistaramótinu
utanhúss um næstu mánaðamót.
Íslandsmet hjá Guðleifu
Tvö
silfur hjá
Óðni
ÓÐINN Björn Þorsteinsson,
kastari úr FH, vann tvenn
silfurverðlaun á meist-
aramóti menntaskóla í Tex-
as-ríki um helgina, en til
þess var stefnt fremstu
frjálsíþróttamönnum sem
stunda nám í menntaskólum
í ríkinu. Óðinn kastaði
kringlu 54,50 metra, en
keppt var með 1,6 kg
kringlu. Sá sem stóð uppi
sem sigurvegari kastaði
kringlunni tæpa 58 metra.
Hin silfurverðlaun Óðins
komu í kúluvarpi þar sem
hann varpaði 18,47 metra
og bætti sinn fyrri árangur
um 10 sentimetra, en kúlan
sem notuð var er 5,5 kg að
þyngd. Sigurvegari kúlu-
varpskeppninnar varpaði
18,85 metra, en Óðinn hafði
lengi vel forystu í kúluvarp-
inu og reyndar einnig í
kringlukastskeppninni.
Óðinn, sem er 19 ára, er
að ljúka öðru ári sínu við
skólann í Burleson. Hefur
frammistaða hans í mótum
vetrarins vakið mikla at-
hygli og um næstu helgi
fær Óðinn sérstaka við-
urkenningu frá skóla sínum
fyrir árangurinn.
Þá er ljóst að Óðinn
keppir með íslenska lands-
liðinu í frjálsíþróttum í Evr-
ópubikarkeppni landsliða
sem fram fer á Nikósíu á
Kýpur 23. og 24. júní.
deildarliðið Essen. Guðjón hefur
leikið með liði KA undanfarin tvö ár
en þessi snjalli handknattleiksmaður
er uppalinn hjá Gróttu. Guðjón hélt
utan á sunnudag og kom heim með
samninginn í farteskinu seint í gær-
kvöldi.
„Þetta gekk fjótt fyrir sig. Ég átti
fund með forseta félagsins og stjórn-
armönnum þess og í kjölfarið var svo
gengið frá samningi. Þetta verður
mjög spennandi og atvinnumennsk-
an er auðvitað það sem maður hefur
stefnt á. Essen er stórt og virt félag í
Þýskalandi sem hefur mikinn metn-
að svo ég tel mig vera að fara á mjög
góðan stað. Ég geri mér alveg grein
fyrir því að samkeppnin um sæti í
liðinu verður geysihörð enda lið Ess-
en vel mannað,“ sagði Guðjón Valur í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Guðjón, sem er 21 árs gamall,
verður þriðji íslenski handknatt-
leiksmaðurinn til að leika með Ess-
en. Patrekur Jóhannesson leikur
stórt hlutverk með Essen í dag og á
árum áður varð Alfreð Gíslason
meistari með liðinu undir stjórn Jó-
hanns Inga Gunnarssonar. Essen er
í sjötta sæti þýsku 1. deildarinnar
þegar tveimur umferðum er ólokið
og á því enn möguleika á Evrópusæti
en fimm efstu liðin í deildarkeppn-
inni auk bikarmeistaranna fá sæti í
Evrópukeppninni á næstu leiktíð.
Guðjón reiknar með að halda utan
til Essen um miðjan júlí en æfingar
fyrir næstu leiktíð hefjast upp úr 20.
júlí.
Guðjón Valur Sigurðsson, lands-liðsmaður í handknattleik og
besti leikmaðurinn á nýafstöðnu Ís-
landsmóti, skrifaði í gær undir
þriggja ára samning við þýska 1.
Guðjón
Valur samdi
við Essen
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Margrét Ákadóttir, fyrirliði kvennaliðs Breiðabliks, sem vann
deildabikarkeppnina í knattspyrnu – lagði Val að velli í víta-
spyrnukeppni. Umfjöllun um leikinn á B7.