Morgunblaðið - 15.05.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.05.2001, Blaðsíða 4
KNATTSPYRNA 4 B ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hver er uppáhaldsborgin ykkar?Getur verið að það sé Cardiff? spyr kynnirinn á Þúsaldarvellinum þar í borg um fimmleytið á laugar- daginn. Stuðningsmenn Arsenal eru flestir farnir, þó að stutt sé síðan flautað var til leiksloka, en þeir sem eru á bandi Liverpool hreyfa sig hvergi heldur syngja hástöfum hvert lagið á fætur öðru; You’ll Never Walk Alone og fleiri sígild. Liðið þeirra hef- ur sigraði í bikarkeppni enska knatt- spyrnusambandsins í sjötta sinn þrátt fyrir að Arsenal væri mun betra nán- ast allan tímann. Ástæða spurningar þularins er vitaskuld sú að þetta var annar leikur Liverpool í Cardiff í vetur, í bæði skiptin hefur liðið sigrað og jafnframt hampað bikar. Fyrri viðureignin var úrslitaleikur deildarbikarkeppninnar þar sem Birmingham var lagt að velli. Rautt, hvítt og gult Rautt og hvítt eru litir dagsins. Þetta eru litir aðalbúninga beggja liða og stuðningsmennirnir eru flestir þannig klæddir. Talsvert af áhang- endum Liverpool var reyndar í gulu varatreyjum, en hetjurnar þeirra klæðast einmitt gulu í leiknum. Blaðamaður rekst svo á konu í blárri landsliðstreyju Frakklands og það er vel við hæfi. Gérard Houllier og Arsene Wenger eru mennirnir á bak við þessi tvö frábæru lið, þessir snjöllu frönsku þjálfarar vita sannar- lega hvað þeir syngja. Yfirburðir Arsenal eru Liverpool- fólki þegar þegar í stað gleymdir þeg- ar leiknum lýkur og skipta engu máli. Úrslitin eru 2:1 Rauða hernum frá Liverpool í hag og því fær ekkert breytt. Arsenal menn sögðu það enda sjálfir á eftir að nýti lið ekki úrvals- færi eins og þeir fengu nokkrum sinn- um vinnst ekki leikur sem þessi; að minnsta kosti er aldrei hægt að bóka sigur þótt lið geri eitt mark þegar Michael Owen er einn andstæðing- anna. Þegar bikarúrslitaleikir eru annars vegar skiptir ekkert nema sigur máli. „Leikurinn í dag lofar góðu, en þegar í bikarúrslitaleik er komið er handritinu sjaldnast fylgt. Fegurð leiksins verður ekki efst í huga leikmanna heldur ilm- urinn af sigri og kampavínsbragðið á fagnaðarstundu,“ skrifaði Lee Dixon bakvörður hjá Arsenal í Daily Tele- graph á laugardagsmorgun. „Í sann- leika sagt skipta gæði leiksins einungis máli ef maður tapar. Sigurvegararnir eru þeir einu sem fólk minnist frá bik- arúrslitum,“ sagði hann. Frammistaða Liverpool olli stuðn- ingsmönnum liðsins miklum von- brigðum enda voru þeir óvenju hljóð- látir á laugardag. Þeir höfðu að vísu sannarlega yfirhöndina fyrir leik. Þöndu raddböndin af miklum krafti á götum og krám í þröngum miðbæn- um á meðan Lundúnabúarnir höfðu sig minna í frammi. En allt fór vel fram. Öll dýrin í skóginum voru vinir. Wales-búar eru frægir söngmenn, en gestirnir frá Englandi þurftu ekki að skammast sín fyrir tilþrifin á því sviði. Það kom ekki á óvart að Ars- enal-lögin hljómuðu hærra um leik- vanginn glæsilega í Cardiff eins og leikurinn þróaðist. Þeir glöddust vegna frammistöðu sinna manna og allt ætlaði um koll að keyra þegar Sví- inn duglegi Fredrik Ljungberg gerði fyrsta markið á 72. mínútu. Aðeins fá- einum andartökum síðar hefði Frakk- inn frábæri, Thierry Henry, getað gert út um leikinn en brást illilega bogalistin. Það var eins og vantaði í hann drápseðlið. Svo var Westerveld, markvörður Liverpool, yfirleitt vel á verði og finnski fyrirliðinn Samy Hyypia varði einum þrisvar sinnum á eða við marklínuna! Henry var ekki ætlað að skora á laugardag en einn andstæðinga hans er hins vegar maður sem er fæddur markaskorari. Michael Owen. Þessi litli, eldfljóti framherji byrj- aði fjörlega í leiknum en síðan tóku leikmenn Arsenal völdin og Owen og félagar urðu nánast sem áhorfendur. Leikurinn lofaði góðu á fyrstu mín- útunum en fyrri hálfleikurinn í heild var ekki sérlega skemmtilegur, reyndar svo daufur að þegar þulurinn kynnti það í leikhléinu að hápunktar hans yrðu sýndir á risaskjánum við báða enda vallarins fór undrunarkl- iður um áhorfendur. Hvað átti að sýna? Eitt atvik úr fyrri hálfleik var reyndar ákaflega umdeilt og ólíklegt að það líði stuðningsmönnum Arsenal úr minni næstu áratugina. Eftir glæsilegt samspil komst Thierry Henry í ákjósanlegt færi, lék á West- erveld og skaut að marki en knött- urinn fór í hönd Stephane Henchoz, varnarmanns Liverpool, sem stóð á marklínunni og skaust þaðan aftur fyrir endalínuna. Henry heimtaði auðvitað þegar í stað vítaspyrnu, en „dómarinn hló að mér,“ sagði hann í viðtölum á eftir. Dómarinn taldi knöttinn meira að segja hafa farið í stöngina og dæmdi hornspyrnu. Þarna var illa farið með Arsenal- menn. Allt annað var upp á teningnum eftir leikhlé. Þá fóru hlutirnir að ger- ast, en lengst raunar aðeins á öðrum vallarhelmingnum. Arsenal sótti en Liverpool varðist. Svo skoraði Ljung- berg sem fyrr greinir og margir álitu möguleika Liverpool augljóslega enga. En sveit Houlliers er þekkt fyr- ir allt annað en gefast upp um þessar mundir. Og eftir að Gary McAllister, sem óvænt var ekki í byrjunarliðinu, og Patrik Berger komu inn á hjá Liv- erpool breyttist leikur liðsins mjög til hins betra. Owen náði að jafna með föstu, hnit- miðuðu skoti af stuttu færi eftir mikla baráttu í teignum á 83. mínútu. Mörg- um létti. Einhverjir sáu fram á fram- lengingu en Owen var ekki í þeim hópi. Þegar aðeins tvær mínútur voru eftir af hefðbundnum leiktíma fékk hann langa sendingu fram völlinn frá Patrik Berger og sýndi svo ekki verð- ur um villst að þarna er á ferðinni besti framherji enskrar knattspyrnu um þessar mundir. Hann stakk Lee Dixon af og skoraði með frábæru skoti framhjá landsliðsmarkverðinum David Seaman áður en hinn tignar- legi varnarmaður Tony Adams náði að kasta sér fyrir hann. Færið var þröngt en Owen spyrnti með vinstra fæti og knötturinn söng í netinu við gríðarlegan fögnuð um það bil helm- ings áhorfenda. Hinn helmingurinn felldi tár. Merkilegur dagur Andrúmsloftið í Cardiff var mjög skemmtilegt fyrir leikinn. „Það er miklu betra að þessi leikur fari fram hér en í London,“ segir einn margra götusala sem er að störfum; selur minjagripi merkta báðum liðum. „Það Að skora eða ekki skora… Stuðningsmenn Liverpool fagna sigri, en á risaskjánum fyrir ofan þá m Henry liggjandi á vellinum, haldandi um andlitið – vonbrigði Hen AP Michael Owen, sem margir kalla nú Prinsinn af Wales, fagnar eftir að hafa skorað sigurmark Liverpool, 2:1. Margir götusalar voru á ferðinni í Ca inn. Boðið var upp á allt milli himin Úrslitaleikur ensku bik- arkeppninnar, elsta knattspyrnumóts heims, fór í fyrsta skipti fram utan Englands á laug- ardag þegar Liverpool og Arsenal mættust í höfuðborg Wales. Skapti Hallgrímsson sá síðarnefnda liðið hafa umtalsverða yfirburði en varð vitni að því að „galdramaðurinn“ Michael Owen refsaði Lundúnaliðinu með tveimur frábærum mörkum í lokin og Liv- erpool vann bikarinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.