Morgunblaðið - 15.05.2001, Blaðsíða 2
KNATTSPYRNA
2 B ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SKAGAMENN sigruðu Val, 3:1, í
æfingaleik á grassvæði ÍA á Akra-
nesi á laugardaginn. Hjörtur Hjart-
arson (2) og Grétar Rafn Steinsson
skoruðu fyrir ÍA en Sigurbjörn
Hreiðarsson svaraði fyrir Val úr
vítaspyrnu. Dean Holden, enski
varnarmaðurinn, lék sinn fyrsta leik
með Val.
KEFLVÍKINGAR sigruðu Þrótt
R., 2:0, á æfingasvæði sínu á Iðavöll-
um á laugardaginn. Zoran Daníel
Ljubicic og Hólmar Örn Rúnarsson
skoruðu mörkin og Gunnleifur
Gunnleifsson, markvörður Keflavík-
ur, varði vítaspyrnu.
EYSTEINN Hauksson, sem lék
ekkert með Keflavík í fyrra vegna
meiðsla, gæti misst af byrjun Ís-
landsmótsins en hann meiddist í
nára á æfingu á dögunum. Þá er
markaskorarinn Guðmundur Stein-
arsson tæpur vegna ökklameiðsla.
COLIN Pluck, enski varnarmað-
urinn sem lék með KA í 1. deildinni í
knattspyrnu í fyrra, kemur ekki til
félagsins aftur eins og til stóð. Eftir
gott gengi í vor komust KA-menn að
þeirri niðurstöðu að þeir þyrftu ekki
að styrkja lið sitt frekar. Dean Mart-
in er hinsvegar kominn á ný til KA
eftir að hafa leikið með enska utan-
deildaliðinu Stevenage í vetur.
MARGRÉT Ákadóttir, fyrirliði
Breiðabliks, gaf sér ekki langan
tíma til að fagna með félögum sínum
að loknum úrslitaleik Breiðabliks og
Vals í deildabikarkeppninni. Hún
átti erindi í brúðkaup fyrrum félaga
síns hjá ÍA, Steindóru Steinsdóttur,
sem gekk í það heilaga fyrr um dag-
inn.
TVEIR kylfingar úr Keili tóku
þátt í Opna írska golfmótinu á Royal
Dublin vellinum fyrir helgina. Ólaf-
ur Már Sigurðsson lék á 75-71= 146
höggum, tveimur yfir pari og munaði
einu að hann kæmist áfram í síðasta
hringinn. Björgvin Sigurbergsson
lék hins vegar báða hringina á 77
höggum.
HELGI Birkir Þórisson úr GS lék
Leiruna á 66 höggum á laugardag-
inn en þá fór fram þar Maxfli-mótið í
golfi. Árangurinn er mjög góður því
hann er aðeins einu höggi frá vall-
armetinu og sex höggum undir pari.
Tveir aðrir kylfingar voru undir pari
í blíðunni, Kristinn Óskarsson á 70
og Björn Víkingur Skúlason á 71.
WALDIR Pereira, eða Didi eins
og hann var jafnan kallaður, lést á
laugardaginn, 71 árs gamall. Didi
var einn fremsti knattspyrnumaður
allra tíma í Brasilíu og varð heims-
meistari 1958 og 1962, og lék m.a.
með Fluminense, Botafogo og Real
Madrid. Hans síðasti landsleikur var
úrslitaleikur HM 1962 þegar Bras-
ilía vann Tékkóslóvakíu.
FÓLK
Guðlaug
fékk silfur
GUÐLAUG Jónsdóttir og
félagar í Bröndby biðu lægri
hlut fyrir Fortuna Hjörring,
3:2, í úrslitaleik dönsku bik-
arkeppninnar í kvennaflokki
í knattspyrnu um helgina.
Guðlaug var atkvæðamikil í
sóknarleik Bröndby og
krækti af harðfylgi í víta-
spyrnu sem lið hennar jafn-
aði úr, 2:2, en áður hafði hún
lagt upp dauðafæri sem ekki
nýttist. Þetta var í fyrsta
skipti sem Bröndby leikur til
úrslita í bikarkeppni kvenna í
Danmörku.
Við erum með töluvert breytt liðfrá því í fyrra en höfum unnið
með sömu grunnhugmyndir í vörn og
sókn, en með komu nýrra leikmanna
ættu ný tækifæri að skapast,“sagði
Bjarni Jóhannsson þjálfari Fylkis.
„Steingrímur Jóhannesson og Errol
Edison McFarlane eru mjög fljótir
sóknarmenn og að auki er McFar-
lane sterkur skallamaður þannig að
við ættum að geta notað okkur hæfi-
leika þeirra. Sverrir Sverrisson lék
mjög aftarlega á miðjunni í fyrra en í
sumar verður hann færður framar á
miðjunni. Ég tel að leikmannahópur
okkar hafi styrkst verulega frá því í
fyrra og venslasamningur okkar við
Aftureldingu gerir það að verkum að
ný tækifæri skapast fyrir yngri leik-
menn liðsins. Okkur hlakkar því mik-
ið til að takast á við fyrsta verkefnið í
deildarkeppninni gegn KR,“ sagði
Bjarni.
„Það er mikil eftirvænting í okkar
hópi og við finnum fyrir miklum
áhuga á leiknum hjá okkar stuðn-
ingsmönnum, það verða margir KR-
ingar í Árbænum,“ sagði Pétur Pét-
ursson þjálfari KR í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Við erum með
svipaðar áherslur og hugmyndir í
vörn og sókn en maður veit aldrei
hvernig leikir þróast og oft þarf að
breyta út frá því sem lagt var fyrir í
upphafi. Nýi framherjinn okkar,
Moussa Dagnogo, hefur staðið sig vel
í vorleikjunum og það verður spenn-
andi að sjá hvernig okkur tekst að
nýta hæfileika hans gegn varnar-
mönnum Fylkis, en liðsheildin verður
okkar sterkasta vopn,“ sagði Pétur.
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Fylkismennirnir Þórhallur Dan Jóhannsson, Kristinn Tómasson, Errol Edderson McFarlane, Sæv-
ar Þór Gíslason og Finnur Kolbeinsson við nýju stúkuna á Árbæjarvelli.
Spennandi
sóknarmenn
OPNUNARLEIKUR Íslandsmóts-
ins í knattspyrnu fer fram í
kvöld á Fylkisvellinum í Árbæ og
margir knattspyrnuunnendur
verða fegnir að biðinni lýkur
þegar Egill Már Markússon
dómari blæs í flautu sína kl. 20.
Enginn leikmanna Fylkis eða Ís-
landsmeistaraliðs KR er meidd-
ur og því geta þjálfarar beggja
liða valið byrjunarlið sín úr
stórum hópi leikmanna en þeir
Bjarni Jóhannsson þjálfari Fylk-
is og Pétur Pétursson sögðu
báðir í samtali við Morgunblaðið
að þeirværu búnir að velja byrj-
unarliðin en það yrði ekki gefið
upp fyrr en í leikinn væri komið.
IÐNAÐARMENN frá Ístaki og
sjálfboðaliðar frá Fylki hafa að
undanförnu unnið dag og nótt á
Fylkisvellinum við byggingu nýrra
áhorfendastæða og gera forsvars-
menn félagsins ráð fyrir að um
2.000 áhorfendur komist fyrir í
nýju stúkunni. Í gær var mikið
verk framundan hjá Fylk-
ismönnum og átti m.a. eftir að mal-
bika og ganga frá mörgum lausum
endum en vaskur hópur Fylk-
ismanna undir stjórn Guðmanns
Haukssonar var fullviss um að allt
yrði klárt þegar blásið verður til
leiks í kvöld. Þegar stúkan verður
fullgerð er gert ráð fyrir að 900
áhorfendur komist þar fyrir í sæt-
um en kostnaðaráætlun fyrir verk-
ið hljóðar upp á tæpar 11 milljónir
króna og er allt útlit fyrir að þær
áætlanir standist.
Ný stúka
á Fylkis-
velli
OPNUNARLEIKUR Ís-
landsmótsins í knatt-
spyrnu verður leikinn á
heimavelli Fylkis í kvöld,
þar sem Íslandsmeist-
aralið KR kemur í heim-
sókn. Nokkur óvissa var
hvort keppnisvöllur Ár-
bæjarliðsins yrði tilbúin
fyrir leikinn en eftir
ágætt tíðarfar undanfarna
daga hefur horfið til betri
vegar. Árbæjarvöllur er
nokkuð sléttur miðað við
árstíma en það vantar
töluvert uppá að iðagrænt
gras sé til staðar á öllum
vellinum. Skipt var um
undirlag á stórum hluta
vallarins í fyrra og er sá
hluti mun lengra á veg
kominn hvað grassprett-
una varðar.
Leikið
í Árbæ
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Framarar kynntu nýja búninga sína í gær, sem ítalski sport- og
tískuvöruframleiðandinn FILA hefur hannað. Aðalbúningurinn
er blá peysa með hvítum ermum og hvítar buxur, en varabún-
ingurinn er alhvítur. Hér á myndinni eru Þorbjörn Atli Sveins-
son, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson og Mario Pajic í búningnum.
12. 05. 2001
3
0 7 5 5 8
15 22 26 27
18Þrefaldur1. vinningur
í næstu viku
2 fyrsta
vinningar
færa til
Noregs
09. 05. 2001
1 7 8
27 36 48
13 22