Morgunblaðið - 15.05.2001, Side 7

Morgunblaðið - 15.05.2001, Side 7
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2001 B 7 - þar sem þú finnur fróðleik og fréttir úr íþróttalífinu - www. i s i spor t . i s ÚRSLIT Leikurinn fór rólega af stað. Liðinskiptust á um að sækja en Vals- stúlkur voru beittari í sóknaraðgerð- um sínum. Það var því heldur gegn gangi leiksins þegar Margrét Ákadóttir skoraði fyrsta mark leiksins á 44. mínútu með góðum skalla eftir hornspyrnu frá Laufeyju Ólafsdóttur. Markvörður Vals, Ragnheiður Ágústsdóttir, gerði mis- tök í hornspyrnunni þegar hún fór út í teig til að freista þess að kýla bolt- ann frá en missti af honum og Margrét nýtti sér það til fullnustu. Valsstúlkur voru staðráðnar í því að fylgja eftir sigrinum í Reykjavík- urmótinu á dögunum og á 50. mínútu leiksins jafnaði Dóra Stefánsdóttir, sem var nýkomin inn á í lið Vals, með góðum skalla eftir frábæra fyrirgjöf frá Rakel Logadóttur. Valsstúlkur héldu áfram að sækja og áttu nokkur ákjósanleg færi. Það besta kom á 67. mínútu þegar Dóra Stefánsdóttir slapp inn fyrir vörn Breiðabliks en Þóra B. Helgadóttir lokaði markinu algjörlega og forðaði marki. Laufey Ólafsdóttir var nærri því að tryggja Blikum deildarmeistaratitilinn á 81. mínútu leiksins þegar hún átti frá- bært skot úr aukaspyrnu sem hafn- aði í þverslá Valsmarksins. Í framlengingunni voru Valsstúlk- ur sterkari aðilinn. Þær voru meira með boltann og sóttu stíft en í öft- ustu víglínu Breiðabliks var þétt varnarlína sem þær náðu ekki að rjúfa. Margrét Ákadóttir, Björg Ásta Þórðardóttir, Unnur Arna Eiríks- dóttir og Sigrún Aðalheiður Gunn- arsdóttir stóðu þar í ströngu, börð- ust virkilega vel og fyrir aftan þær ríkti Þóra B. Helgadóttir markvörð- ur sem drottning í ríki sínu. Hún bjargaði Blikum í tvígang með meistaralegri markvörslu, fyrst frá Laufeyju Jóhannsdóttur á 109. mín- útu og aftur tveimur mínútum síðar frá Rakel Logadóttur. Hvorugu lið- inu tókst að bæta við marki og því var gripið til vítaspyrnukeppni og þar höfðu Blikastúlkur betur. Þær skoruðu úr þremur af fjórum spyrn- um sínum á meðan Valsstúlkur náðu aðeins að skora úr einni spyrnu. Margrét Ákadóttir, fyrirliði Breiðabliks, var að vonum kát þegar hún tók við Deildarbikarnum úr hendi Eggerts Magnússonar for- manns KSÍ. „Þetta var frábært. Það var virkilega góð barátta í liðinu all- an tímann og þetta var sanngjarnt þegar upp er staðið. Við urðum að vinna í dag enda voru mínir menn í Liverpool búnir að gefa okkur tóninn í morgun,“ sagði Margrét í samtali við Morgunblaðið. Margrét, Björg Ásta og Þóra léku best í liði Breiðabliks sem hefur náð að stilla strengi sína vel saman þrátt fyrir mjög miklar breytingar á lið- inu. Hjá Val léku þær Elín Anna Steinarsdóttir og Laufey Jóhanns- dóttir mjög vel á miðjunni ásamt varnarmanninum og fyrirliðanum Rósu Júlíu Steinþórsdóttur. Liðin tvö, Valur og Breiðablik, mætast á ný í fyrstu umferð Síma- deildar kvenna sem hefst 24. maí. Þóra hetja Breiðabliks ÍSLAND- og bikarmeistarar Breiðabliks tryggðu sér deild- arbikarmeistaratitilinn í knatt- spyrnu kvenna á laugardag þeg- ar liðið sigraði Val í vítaspyrnukeppni en liðin áttust við á gervigrasvellinum í Laug- ardal. Þóra B. Helgadóttir var hetja Breiðabliks en hún gerði sér lítið fyrir og varði tvær víta- spyrnur frá Valsstúlkum auk þess að skora sjálf úr fyrstu spyrnu þeirra. Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar INGÓLFUR Snorrason úr Fylki og Sólveig Sigurðardóttir úr Þórshamri tryggðu sér bikarmeistaratitlana í karate um helgina er fjórða og síð- asta bikarmótið var haldið í Smár- anum. Ingólfur varð annar í kata en sigr- aði í +74 kílóa flokki í kumite og það dugði honum til sigurs með 32 stig en Jón Viðar Arnþórsson úr Þórshamri varð annar með 22 stig. Sólveig sigraði bæði í kata og kumite og hlaut 31 stig í efsta sætið en Edda L. Blöndal varð önnur með 20 stig. Ingólfur og Sólveig meistarar Michael Schumacher gekk ekkisem skyldi í ræsingunni og komust báðir Williams-ökuþórarnir, Juan Pablo Montoya og Ralf Schumacher, fram úr Ferrari- fáknum. Eftir að sá síðarnefndi féll úr leik vegna bremsubilunar sótti heimsmeistarinn að kólumbíska ný- liðanum, sem er annálaður fyrir harðfylgi. Freistaði Schumacher framúraksturs í upphafi 16. hrings en komst ekki nema upp að hlið Montoya og neyddist til að hálf- stoppa er sá síðarnefndi náði ekki beygjunni við að reyna að koma í veg fyrir að snarsnúast vegna hliðar- skriðs. Við atvikið komust Rubens Barr- ichello hjá Ferrari, Jos Verstappen hjá Arrows, Coulthard, Kimi Räikkönen hjá Sauber og Olivier Panis hjá BAR fram úr Montoya og Schumacher. Barrichello var með forystu í kappakstrinum frá 15. til 50. hrings en Kólumbíumaðurinn varð að hætta um miðbik kappakst- ursins vegna vökvakerfisbilunar en Schumacher vann sig smám saman upp í þriðja sætið. Eftir að Coulthard náði forystunni í upphafi 50. hrings af 71 og ljóst var að hann myndi minnka bilið í Schu- macher í stigakeppni ökuþóra greip Ferrari til þess ráðs að skipa Barri- chello að hleypa heimsmeistaranum fram úr og upp í annað sætið til að skaðinn af sigri Coulthards yrði sem minnstur, en á þeim munar nú fjór- um stigum, 42:38. Þessu undi Barri- chello illa og hlýðnaðist ekki fyrr en á síðustu 100 metrunum eða svo og eftir að Jean Todt liðsstjóri Ferrari hafði hrópað fyrirmælin hástöfum í talstöðina. Á blaðamannafundi að keppni lok- inni var gremja Barrichello yfir því að þurfa að víkja greinileg. Þar gagnrýndi Schumacher mjög hart tilraun Juan Pablo Montoya hjá Williams til að verja fyrsta sætið í upphafi 16. hrings. Sagði Montoya ekki hafa átt möguleika á að halda sætinu og hefði einungis haft þann ásetning að taka sig með í fallinu. Montoya var hvergi banginn og sagði að einungis hefði verið um eðli- legt aksturstilvik að ræða. „Ég er í keppni, er ekki í kappakstri til að hleypa mönnum fram úr mér. Kom- ist þeir ekki fram úr eiga þeir að láta það vera [að reyna],“ sagði Montoya eftir keppnina. „Hann heldur að hann geti bara sagt: hér kemur Michael svo þú verður að víkja fyrir mér,“ hnýtti hann við. Schumacher og Coulthard að stinga af? Staðan í stigakeppni ökuþóra bendir til þess að Michael Schu- macher og David Coulthard séu að stinga aðra ökuþóra af þar sem þeir eru með 42 og 38 stig. Rubens Barri- chello er þriðji með 18 stig, Ralf Schumacher fjórði með 12, Nick Heidfeld hjá Sauber fimmti með 8 stig og Jarno Trulli sjötti með 7 stig. Sömuleiðis bætist stöðugt við for- skot Ferrari á McLaren en milli þeirra munar 18 stigum Ferrari í vil, 60:42. Í þriðja sæti er Williams með 18 stig, Jordan í því fjórða með 13 og Sauber fimmta með 12 stig. McLaren hefur sigur á herfræðinni DAVID Coulthard ók McLaren silfurör sinni með glæsibrag til sigurs í austurríska kappakstrinum og annað mótið í röð varð Ferrari að lúta í lægra haldi á herfræðinni. Ók Coulthard af stað í sjöunda sæti en með bílinn níðþungan af bensíni, sem gerði honum kleift að halda lengur út áður en hann kom inn í þjónustustopp, en á tíma- bilinu frá því ökuþórar Ferrari urðu að stoppa og þar til Coulthard fór inn að bílskúr vann hann upp nógu mikið forskot til að koma út á brautina á ný fremstur. Kappaksturinn var líklega sá tíðindasamasti á árinu og sviptingar miklar. Ágúst Ásgeirsson skrifar Námskeið hjá Stjörnunni UMF Stjarnan heldur námskeið um upp- byggingu í barna- og unglingastarfi í Stjörnuheimilinu í kvöld, þriðjudaginn 15. maí kl: 20:00. Námskeiðið er öllum opið en þjálfarar, stjórnarmenn og foreldrar í félaginu eru sérstaklega hvattir til að mæta. Á námskeiðinu verður farið í eft- irfarandi þætti: Líkamsþjálfun barna og unglinga. Sálræn uppbygging barna og unglinga. Félagslegar kröfur barna og ung- linga. Þátttaka og hlutverk foreldra. FH stofnar stuðningsmannaklúbb Stuðningsmenn FH í knattspyrnu ætla að stofna stuðningsmannaklúbb á veitinga- húsinu Pizza 67 við Reykjavíkurvegur klukkan 20.30 í kvöld. Ávörp flytja Logi Ólafsson þjálfari FH-inga og Guðmundur Árni Stefánsson formaður knattspyrnu- deildar ásamt því að frumflutt verður stuðningsmannalag FH sem hljómsveitin Botnleðja spilar. FÉLAGSLÍF Kringlukast: Jón B. Bragason, Breiðabliki .............. 47,36 Stefán R. Jónsson, Breiðabliki............ 44,04 Ólafur Guðmundsson, HSK................. 42,72 200 m hlaup: Sveinn Þórarinsson, FH ...................... 22,46 Óttar Jónsson, FH................................ 23,31 110 m grindahlaup: Ingi Sturla Þórisson, FH..................... 15,28 Ólafur Guðmundsson, HSK................. 15,75 300 m grindahlaup: Sveinn Þórarinsson, FH .......................37,81 Unnsteinn Grétarsson, ÍR................... 38,59 Ingi Sturla Þórisson, FH..................... 43,07 Langstökk: Theodór Karlsson, UMSS ..................... 6,81 Ólafur Guðmundsson, HSK................... 6,68 Bjarni Þór Traustason, FH................... 6,61 Sleggjukast: Jón Auðunn Sigurjónsson,FH ............ 54,87 Magnús Björnsson, USAH.................. 45,29 Stefán R. Jónsson, Breiðabliki............ 41,86 Spjótkast sveina: Arnar Þór Þórisson, FH ...................... 42,08 Ingvar Torfason, FH............................ 30,10 Spjótkast karla: Arnfinnur Finnbjörnsson, FH ............ 48,69 KONUR: 200 m hlaup: Silja Úlfarsdóttir,FH ........................... 24,83 Þórunn Erlingsdóttir, UMSS.............. 26.28 Sigrún Dögg Þórðardóttir, FH............26,90 800 m hlaup: Fríða Rún Þórðardóttir, ÍR.............. 2.19,84 Eygerður Inga Hafþórsdóttir, FH.. 2.22,77 Rakel Ingólfsdóttir, FH.................... 2.33,43 Langstökk: Þórunn Erlingsdóttir, UMSS................ 5,34 Ágústa Tryggvadóttir, HSK ................. 5,29 Tinna Karen Árnadóttir, Breiðabliki ... 5,03 Spjótkast: Vigdís Guðjónsdóttir, HSK ................. 51,81 Auður Aðalbjarnardóttir, UMSE ....... 42,26 Sigrún Fjeldsted,FH ........................... 40,14 300 m grindahlaup: Silja Úlfarsdóttir,FH ........................... 46,01 Ylfa Jónsdóttir, FH.............................. 46,64 Sigrún Dögg Þórðardóttir,FH............ 48,00 Hástökk: Íris Svavarsdóttir,FH............................ 1,60 Maríanna Hanen,Breiðabliki ................ 1,55 Ágústa Tryggvadóttir, HSK ................. 1,55 Bryndís Eva Óskarsdóttir, HSK .......... 1,55 Kúluvarp: Auður Aðalbjarnardóttir, UMSE ....... 12,34 María K. Lúðvíksdóttir, FH................ 10,90 Kringlukast: Halla Heimisdóttir, FH ....................... 41,90 Unnur Sigurðardóttir, FH .................. 37,53 Hallbera Eiríksdóttir, UMSB............. 33,94 Fjallahjólakeppni við Reynisvatn Á sunnudaginn var fór fram fyrsta fjalla- hjólakeppni sumarsins í nágrenni Reynis- vatns. Keppnin er liður í Bikarmóti Hjól- reiðafélags Reykjavíkur og Hjólreiða- nefndar ÍSÍ. Flokkur fullorðinna hjólaði fimm hringi á mjög erfiðri braut og heltust margir valinkunnir kappar úr lestinni. Alls mættu 23 keppendur til leiks. Steinar Þor- björnsson varð hlutskarpastur eftir mjög harða keppni, en Steinar mun einmitt keppa fyrir Íslands hönd á smáþjóðaleik- unum í lok maí, ásamt þremur öðrum hjól- reiðamönnum. Fullorðnir, fimm hringir: 1. Steinar Þorbjörnsson 1:03́12" 2. Jóhann Leósson 1:12́46" 3. Hákon Sigurðsson 1:15́06" Garpaflokkur 3 hringir: 1. Helgi Gústafsson 58:15" 2. Bjarni Helgason 59:50" 3. Sigurður Hallbjörnsson 1:05:35" 16-18 ára, fjórir hringir: 1. Emil Þór Guðmundsson 56:14" 2. Haukur Már Sveinsson 57:39" 3. Bjarki Bjarnason 1:00́00" 13-15 ára 2 hringir: 1. Arnþór Ingi Andrésson 46:26" 9-12 ára 2 hringir: Hannes Björn Guðlaugsson 47:19" Stúlkur 9-12 ára: 1. Sara Ólafsdóttir 14:49" Tómas Ingi á heimleið TÓMAS Ingi Tómasson, sem leikið hefur með danska knattspyrnulið- inu AGF undanfarin ár, hefur gert starfsloka- samning við félagið og stefnir á að leika á Ís- landi í sumar. Tómas hef- ur lítið fengið að spreyta sig með AGF síðustu misserin en meiðsli hafa spilað þar stórt strik í reikninginn. Tómas gekk í raðir AGF árið 1998 og frá þeim tíma lék hann 37 leiki með liðinu og skoraði fimm mörk. Tómas sagði í samtali við Morgunblaðið í gær- að hann væri í samninga- viðræðum við ákveðið félag á Íslandi en vildi að svo stöddu ekki greina frá hvaða félag það væri. Orðrómur hefur verið í gangi að Tómas kynni að vera á leið í ÍBV eða KR, bæði félög sem hann hef- ur leikið með, en for- ráðamenn þessara liða neituðu því í samtali við Morgunblaðið í gær.Njarðvík byrjar í Borgarnesi NJARÐVÍKINGAR hefja tit- ilvörn sína í körfunni næsta vetur í Borgarnesi en dregið var um töfluröð á ársþingi KKÍ um helgina. Þór mætir Stjörnunni, Breiðablik tekur á móti Tindastóli, Haukar mæta Grindavík, Hamar leikur við og KR og ÍR mætast. Hjá konunum verður stór- leikur þegar Keflavík tekur á móti meisturum KR. KFÍ fær Njarðvík í heimsókn og Grindavík tekur á móti ÍS.Í 1. deild karla mætast ÍA og Snæfell, Reynir Sandgerði og Ármann/Þróttur, KFÍ og Þór úr Þorlákshöfn, ÍS og ÍG og Selfoss fær Val í heimsókn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.