Morgunblaðið - 12.06.2001, Qupperneq 1
Þriðjudagur
12. júní 2001
Prentsmiðja
Morgunblaðsins blað C
Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu
Heimspeki
íhúsagerð
Kikoo Mozuna túlkar
tvíundarkerfið
Yin-Yang 14
Hröðupp-
bygging
Ævintýra-
heimur
Fjölbreytni setur
svip á húsagerð í
Salahverfi 26
Framúrstefnu-
arkitektúr
í Köln 28
! "! !"#$%#
!$&$&!
'! ()&
*+,$%-.&
/$'$&'0&1.&
2$&1$()&
3! $ $1$4&!,,.&
$5$
65 #& 7
!1$$ 65 #& 8 $59-7
# $ %
&% % $ %
&% /!959:; $ !9-$5$ 	 9
< 9$$= $ $& >>
58
58
58
58
?
?
?
?
>
! !
HÚSIÐ Austurvegur 46 á Selfossi er
nú til sölu hjá Málflutningsskrifstof-
unni Austurvegi 6 þar í bæ. Eigandi
hússins er Fossnesti hf. Ekkert fast
verð er sett á þessa eign en óskað eft-
ir tilboðum.
„Húsið stendur á afar heppilegum
stað gagnvart umferð ferðamanna ár-
ið um kring, en í því er rekin marg-
vísleg verzlunar- og þjónustustarf-
semi,“ segir Guðjón Ægir Sigur-
jónsson hdl. hjá Málflutnings-
skrifstofunni Austurvegi 6.
„Um er að ræða sérhæft verzlunar-
og þjónustuhúsnæði á þremur hæð-
um, alls 989,6 m², sem stendur á 3.000
m² leigulóð. Húsið var byggt í fimm
áföngum frá árinu 1966 en bygging-
arefni eru timbur og steinsteypa.
Á jarðhæð eru verzlun, söluskáli og
grill ásamt umferðarmiðstöð Austur-
leiðar-SBS. Kaffi Bistró er nú rekið á
jarðhæðinni en þar var áður Foss-
nesti sem margir þekkja. Miðhluti
jarðhæðarinnar er steinsteyptur og
er hann elztur en geymsla eða bakhús
er úr timbri og viðbygging jarðhæðar
að götu einnig en sá hluti er yngstur.
Á annarri hæð er veitinga- og
skemmtistaðurinn Inghóll sem tekur
150 manns í sæti og hefur leyfi fyrir
um 400 gesta skemmtunum. Þessi
hæð er úr timbri og lítur vel út enda
upprunalega vönduð að allri gerð.
Þriðja hæðin er undir súð og hefur
fylgt rekstri veitinga- og skemmti-
staðar á efri hæð. Þar er notalegur
lítill bar.“
Guðjón Ægir Sigurjónsson segir
að eigninni hafi ávallt verið vel við-
haldið af hálfu eigenda og er húsið ný-
lega málað að utan sem innan.
Það er hitað upp með hitaveitu og í
gluggum er tvöfalt verksmiðjugler.
Fasteignamat er 60.550.000 kr. en
brunabótamat er 134.815.000 kr.
Eignin verður seld í einu lagi en
áhvílandi er um 34 millj. kr. langtíma-
lán sem kaupandi gæti yfirtekið. „Það
er ekki sett fast verð á þessa eign en
óskað eftir tilboðum,“ segir Guðjón
Ægir. „Einnig er möguleiki á að
kaupa hlutafélagið Fossnesti hf. sem
er eigandi fasteignarinnar. Afhend-
ing eignarinnar gæti farið fram eftir
samkomulagi.“
Guðjón Ægir kvað viðbrögð við
auglýsingu um eignina hafa verið góð
og greinilegt að margir hafa áhuga á
henni. „Þessi eign felur í sér mikla
möguleika fyrir marga,“ sagði hann.
„Staðsetningin er sérlega góð eins
og ég gat hér áðan og ég er ekki í
nokkrum vafa um að þetta verður að-
alveitingastaðurinn á Selossi í fram-
tíðinni hér eftir sem hingað til.“
Fossnesti, eitt helzta
veitingahús Selfoss, til sölu
Ljósmynd/Sigurður Jónsson
Austurvegur 46 er sérhæft verzlunar- og þjónustuhúsnæði á þremur hæðum, alls 989,6 ferm., sem stendur á 3.000
ferm. leigulóð. Húsið er til sölu hjá Málflutningsskrifstofunni Austurvegi 6. Óskað er eftir tilboðum.