Morgunblaðið - 12.06.2001, Page 14
14 C ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
ÞRASTANES - ARNARNES
Mjög gott 275 fm einbýli á tveimur hæðum. Stað-
sett innst í botnlanga. Vandað hús á frábærum
stað. Húsið býður upp á mikla möguleika.
Rað- og parhús
HRAUNÁS - GBÆ.
Stórglæsileg 240 fm parhús, á besta stað í Garða-
bæ, óskert útsýni. Ýmsir möguleikar. Skilast fullbú-
ið að utan og fokhelt að innan.
BIRKIGRUND - KÓP.
Tveggja hæða 126.6 fm raðhús á besta stað í Foss-
vogsdalnum. Mjög gott og snyrtilegt hús á rólegum
og veðursælum stað. Verð 16,5 millj.
KLETTÁS - GBÆ.
Glæsileg eins hæða raðhús á frábærum stað í nýja
Ásahverfinu í Garðabæ. Um er að ræða fjögur hús,
tvö endahús 110 fm + 31,6 fm bílsk. og tvö milli
hús 103,8 + 31,6 fm bílsk. Skilast fullbúin að utan
og fokheld að innan (mögul að fá lengra komið).
BLIKAÁS - HAFNARFJ.
Í einkas. glæsilegt 200 fm raðhús með innb. bílsk. á
frábærum stað í Ásahverfinu. Stutt í skóla, íþróttir
og náttúruna. Skilast fullbúið að utan og fokhelt að
innan. Verð 13,7 millj.
BIRKIÁS - GBÆ.
Mjög gott 165 fm raðhús með innb. bílsk. á frábær-
um stað í Garðabæ. Húsið er fullbúið að utan og
fokhelt að innan. Teikningar og lyklar á skriftst.
Verð 14.5 millj.
ÁSBÚÐ - GBÆ. (STÓR BÍLSK.)
Í einkas. mjög gott 252 fm endaraðhús á besta stað
í Garðabæ. Vandað og gott hús, tvöf. bílskúr og
góð aðkoma. Stór og fallegur garður. Verð 22.500
SJÁVARGR. - GARÐABÆ
Nýkomin í einkasölu stórglæsilegt 171 fm raðhús
auk 20 fm bílskýlis. Mjög vönduð eign. Hér er allt
fyrsta flokks.
ÁLFTANES -PARHÚS
Glæsileg og vönduð 194,6 fm parhús með bílskúr á
frábærum stað á nesinu. Skilast fullbúið utan og
fokhelt að innan. Teikn. á skrifst. Aðeins fjögur hús
eftir. Verð 14. millj.
Hæðir
MIÐBÆR - „PENTHOUSE“
Glæsilegasta íbúð miðbæjarins er til sölu. Íbúðin
135,8 fm auk 40,3 fm bílskýlis, samtals 176,1 fm
Marmari á gólfi neðri hæðar og glæsilegar innrétt-
ingar. Mjög falleg og sérstök eldhúsinnréttig og
tæki. Heitur pottur á verönd. Þessi íbúð er algjör
draumur.
GRENIGRUND - KÓP.
Í einkasölu mjög góð 137,9 fm íbúð með bílskúr á
frábærum stað. Neðri sérhæð í góðu húsi. Íbúð með
ýmsa möguleika. Verð 14,8 millj.
SÚLUNES - ARNARNES
Stórglæsileg 167 fm neðri sérhæð á frábærum stað.
Vandaðar innréttingar. Sólpallur í garði. Mjög rúm-
góð og falleg íbúð. Verð kr. 18,5 millj.
BLÁSALIR - KÓP.
Nýkomin í einkasölu stórglæsileg 112,4 fm íbúð á
efri hæð í fjögurra íbúða húsi. Allt mjög vandað,
eikarparket og mahóní hurðir og innréttingar.
Glæsieign með frábæru útsýni.
4ra herb
ÁRSALIR - KÓP.
Glæsileg 4ra herb. íbúð í lyftuhúsi ásamt bíl-
geymslu. Vandaðar innréttingar og tæki og flísalagt
baðherb. Geymsla, hjóla og vagnageymsla. Fullbúið
hús og lóð. Verð kr. 14.7 millj.
LÆKJASMÁRI - KÓP.
Mjög góð 97 fm 3ja. - 4ra. herb. íbúð á jarðhæð
með bílskúr. Skilast tilb. til innréttinga
ÁLFASKEIÐ - HF. - Bílskúr
Mjög góð 117,2 fm endaíbúð auk 24 fm bílskúrs.
Sérlega falleg og snyrtileg íbúð á góðum stað. Mjög
gott útsýni.
HRAUNBÆR - M. AUKA HERB.
Mjög góð 105,1 fm á annarri hæð ásamt herb. í
kjallara (ekki í fm tölu). Falleg íbúð með parketi á
stofum, þvottaherb., 3 svefnherb. Verð 11,9 millj.
3ja herb.
HVERFISGATA - RVÍK
Nýkomin í sölu 77 fm skemmtileg íbúð á 3ju hæð í
litlu fjölbýli. Mögul. á þriðja svefnherbergi . Snyrti-
leg sameign. Verð kr. 8,5 millj.
NJÁLSGATA - RVÍK
Mjög góð og falleg 3ja. herb. íbúð, talsvert endurn.
Parket á gólfum og aukarými í risi. Góð aðstaða í
kjallara. Verð 7,9 millj.
ENGJASEL - RVÍK
Í einkasölu mjög góð 80 fm útsýnisíbúð á 3 h.,
ásamt stæði í bílgeymslu. Frábær staðsetning og
útsýni í suður. Falleg og rúmgóð íbúð, parket á
gólfum. Verð 9,9 millj.
DIGRANESVEGUR - KÓP.
Mjög góð 86,7 fm íbúð á miðhæð með frábæru út-
sýni. Parket á gólfum, frábærar suðursvalir og gott
eldhús. Góður garður og geymslur.
HRÍSMÓAR - GBÆ.
Nýkomin í einkasölu mjög falleg 71 fm íbúð á 2.
hæð í enda hússins. Parket á gólfum og flísalagt
bað. Falleg íbúð á góðum stað. Verð 10,5 millj.
LANGAMÝRI - M/bílsk.
Í einkasölu mjög glæsileg 125,7 fm íbúð með bíl-
skúr. Íbúðin er á jarðhæð í tveggja hæða húsi.
Parket og flísar á gólfum. Mjög vandaðar innrétt-
ingar. Sólstofa og hellulögð verönd.
LYNGMÓAR - GBÆ
Góð 91,5 3ja herb. íb. auk bílskúrs á 2. hæð í litlu
fjölbýli. Nýlegt eldhús. Parket á gólfum. Góðar
stórar suðursvalir. Verð 11,9 millj.
2ja herb.
NÖKKVAVOGUR - RVÍK
Sérlega góð 57 fm íbúð á þessum friðsæla stað.
Parket á gólfum og góðar innréttingar. Góð eign á
góðum stað.
Eldri borgarar
GARÐATORG - GBÆ
Mjög falleg 97,7 fm íbúð á annarri hæð ásamt
26,4 fm bílskúr. 2 svefnherb., tvær stofur og mjög
góðar suðursvalir. Íbúðinni fylgir eignaraðild í sam-
eiginlegum samkomusal eldri íbúa.
Atvinnuhúsnæði
TIL LEIGU - HF.
Til leigu 240 fm bjart og gott versl. húsn. við Hval-
eyrarbraut. Miðsvæðis í Hf. og rétt við höfnina.
Frábær staðsetn. og miklir mögul.
VESTURVÖR - KÓPAVOGI
Til sölu samtals 5000 fm atvinnuhúsnæði við höfn-
ina í Kópavogi, skiptanlegt í fjóra hluta. Mjög
vönduð eign á besta stað við höfnina í Kópavogi.
Kirkjulundi 13 - Garðabæ
Guðmundína Ragnarsdóttir hdl. og lögg. fast.sali
Þórhallur Guðjónsson rekstrarhagfræðingur
Sigurður Tyrfingsson húsasmíðameistari
Einbýli
DIGRANESHEIÐI - KÓP.
Gott 156.5 fm einbýli á tveimur hæðum ásamt 38,9
fm bílskúr samtals 195,4 fm 4 svefnherb. Parket á
góflum og flísalögð baðherbergi. Gróinn garður.
Verð 19,9 millj.
GARÐAFL. - GBÆ.
Mjög snyrtilegt og gott lítið einbýli á flötunum.
Mikið endurnýjað og góð aukaíb. er í bílskúr. Fall-
egur gróinn garður. Verð 18,9 millj.
HAGAFLÖT - GBÆ.
Mjög gott 224 fm einb. með tvöf. bílsk. Húsið
stendur á 1.200 fm hornlóð. Mikið endurnýjað m.a.
þak og gler að hluta. Ný gólfefni. Mikil lofthæð í
bílsk. Mjög hugguleg stúdíóíbúð með sérinngangi.
HÖRGATÚN - GBÆ.
178.3 fm mjög gott hús með 28 fm innb bílskúr, á
besta stað í túnunum. 5 svefnherbergi. Góð suður-
verönd, mjög góður og fallegur garður. Mjög stutt í
alla þjónustu. Verð kr. 18,9 millj.
KRÍUNES - GLÆSIEIGN
Glæsilegt tvílyft 365 fm í Arnarnesinu með stórum
bílsk. Mjög vandað og gott hús á frábærum stað.
Eign fyrir vandláta.
KEFLAVÍK - EINBÝLI
Mjög glæsilegt 278 fm einb. með 25 fm bílsk. Hús-
ið er allt nýlega tekið í gegn. Mögul. á 7 herb. Mjög
rúmgott og fallegt hús. 50 fm verönd og fallegt
grindv. með lýsingu. Verð aðeins 18 millj.
(Brunabótamat 23 millj.)
HVASSAHRAUN - EINSTAKT
Glæsilegt einbýli í friðsælu hrauninu skammt frá
sjónum. Húsið er á tveimur hæðum og er allt hið
glæsilegasta. Gegnheilt parket og náttúrusteinn á
gólfum. Rólegur ævintýrastaður.
JAPANINN Kikoo Mozuna túlkar
heimspekina yin-yang svo í húsagerð
sinni.
„Húsið“ táknar alheiminn en innra
rými þess sýnir tvö öfl togast á; virkni
og óvirkni, yin og yang – öfl, sem eru
sprottin úr heimspeki Zen Buddism-
ans.
Kikoo Mozuna leiðir einstaklinginn
inn í þennan heim andstæðna í húsinu
yin – yang (1978) og skapar bústað
sem einkennist af atorku og sífelldum
breytingum.
Tvíundarkerfið Yin-Yang
Taikyoku kortið sýnir alheimsegg-
ið klofið. Það skiptist í yin og yang,
eða, virkni og óvirkni og fæðir af sér
átta fyrirbrigði: himinn, jörð, fjöll,
vatn, þrumur, vind, sjó og eld. Hvert
og eitt þeirra vísar í eitt af hinum átta
Genki (frumeiningum): Ken, Kon,
Gon, Kan, Shin, Son, Da og Ri. Ekk-
ert tilbrigði hins daglega lífs er skilið
eftir.
Ferlið samanstendur af 384 tákn-
um sem eru sett saman úr jöfnum og
ójöfnum, yin og yang, hinum átta fyr-
irbrigðum og þremur víddum; skeiði
mannsins, mætti jarðarinnar og ör-
lögum mannsins. Allt sköpunarverkið
fylgir sama tvíundarkerfinu, eins og
tölvan á okkar tímum.
Yin og Yang, ein af frumeiningum
alheimsins, eru tvö andstæð öfl. Yin
er tákn um óvirkni og er auðkennt
sem jörð, kvenkyn, óskýrleiki og er
heillandi. Yang ber tákn um virkni.
Eiginleikar þess eru himinn, karlkyn,
ljós og skerpa. Þau eru túlkuð og
samofin samfélagsmyndinni.
Víddir umhverfisins og samgöngu-
leiðir byggjast á andstæðum pörum:
uppi og niðri, úti og inni, langt og
stutt, norður og suður, stór og lítill,
hér og þar o.s.frv. Hugleiðingar gagn-
vart hlutunum vísa líka í andstæður:
gott og slæmt, líf og dauði, gleði og
sorg o.s.frv.
Auk þess lýsa félagsleg gæði og
fegurðarskyn andstæðum pólum: vel-
gengni og misheppni, fegurð og ljót-
leiki. Ýmis hugtök styðjast líka við
þetta ferli andstæðna: rökfræði; rétt
og rangt, þekkingarfræði; ytra útlit
og raunveruleiki, verufræði; að vera
og að vera ekki.
Staðreyndin er að hversu miklar
sem andstæðurnar eru þá er ekki
hægt að skilja þær að. Þær eru
ákveðnar hliðar af sömu staðreyndinni
og geta því hvorug án hinnar verið.
Frumgerð hússins yin – yang
Kikoo Mozuna útskýrir alheimssýn
sína í húsinu yin – yang, sem stendur
við kletta á eyjunni Hokkaido. Fyrir á
lóðinni var gamall bóndabær en í stað
þess að rífa hann og byggja nýtt hús
frá grunni, lagði Mozuna fram tillögu
um að byggja við gamla húsið og sam-
eina þessa tvo hluta í sama hugtakinu.
Í grundvallaratriðum er húsið yin
–yang gert úr einföldum táknrænum
formum Taó heimspekinnar: ferningi
sem táknar jörðina, þríhyrningi sem
táknar himininn og hring sem táknar
manninn. Ferningurinn inniheldur
eldri hluta hússins, hringurinn er við-
byggingin og þríhyrningurinn táknar
rústirnar.
Á huglægan hátt er fortíðinni þann-
ig haldið við; nútíðin táknar pól þess
sem á undan hefur farið en rústirnar
eru brot túlkuð sem op alheimsins og
gefa til kynna ófullkomleika hans.
Húsið er á þremur hæðum en hver
og ein lýsir sterkum andstæðum. Þær
eru hluti af túlkun Mozuna á hugtak-
inu T’ai-chi tu sem er táknrænt fyrir
yin og yang í taóískri heimspeki.
Formið er tvær kommur - svört og
hvít - sem hringa sig hvor um aðra.
Til þess að skýra uppsetningu
hússins, setti Mozuna teikningarnar
af húsinu yfir teikninguna af T’ai-chi
tu. Eldri parturinn – ferningurinn –
leggst yfir meginhluta hvíta svæðis
T’ai-chi tu en bogadregin form við-
byggingarinnar eru ráðandi yfir
svarta svæðinu.
Þessir tveir hlutar hússins tengjast
í leik boginna og beinna lína. Bæði
Heimspekin Yin-Yang túlkuð í húsagerð
Gamli hluti hússins tengist viðbyggingunni í leik boginna og beinna lína.
Ljósmyndir/Arkitektastofa Kikoo Mozuna
Kikoo Mozuna (f. 1941).