Morgunblaðið - 12.06.2001, Page 28

Morgunblaðið - 12.06.2001, Page 28
28 C ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir Þ AÐ hendir af og til að ein- staka húsbygging verður að yfirlýsingu höfundar síns án þess þó að eiga endilega mikla skírskotun til þess sem er efst á baugi á sama tíma. Þannig verður stundum til merkileg- ur arkitektúr, t.d. eins og með inn- lendu arkitektúrþróuninni sem á sér nú stað í Ungverjalandi. Þar er ekki neinn „stuðlabergs- arkitektúr“ á ferðinni heldur byggir þessi nýja ungverska stefna á já- kvæðum, óefnislegum tengslum milli manneskjunnar og byggðs umhverf- is hennar. Höfundur Guggenheim- safnsins í Bílabaó hefur greinilega orðið fyrir áhrifum þaðan. Oftar leiðir þó slík yfirlýsingagleði til skipbrots þegar fjármálin binda enda á gerð viðkomandi húss. Nú eða þá að bygging hússins stendur yfir í um hundrað ár eins og kirkjur fyrri alda gerðu eða Sacrada Familia Gaudis í Barcelona er dæmi um í dag. Ævistarfið hús Þeir menn eru þó til sem gera gerð eigin húss þannig að ævistarfi sínu. En slíkri viðleitni má einna helst líkja við umhverfislistsköpun og það er þá einungis tilviljun að nytjahluturinn hús varð fyrir valinu. Eitt markverðasta dæmi um ævi- starfið hús er án efa ævintýri tékk- neska innflytjendans Makovic í Flórída á miðri síðustu öld. Hann hóf byggingu mikils húss utanvert við Miami-borg fyrir sig og heitmey sína í Tékkóslóvakíu. Og hlóð til þess saman þungum björgum með mikilli fyrirhöfn. Þetta stóð yfir í mörg herrans ár og á sama tíma óx borgin nær og nær lóð hans uns hún gleypti hana og húsið með. Er svo var komið settu yfirvöld honum þá kosti að rífa húsið ella að flytja það á nýja lóð langt út fyrir borgarmörkin. Eftir nokkra umhugsun ákvað húseigandinn að taka seinni kostinn. Hann kom sér í samband við vöru- bílstjóra sem samþykkti að leggja vörubíl sínum á nóttunni við húsið. Á hverjum morgni var svo eitt bjargið komið upp á bílpallinn og því síðan ekið á nýju lóðina. Þannig var allt húsið smám saman flutt til og byggt upp að nýju. En aldrei sótti hús- byggjandinn samt heitmey sína yfir Atlansála. Þetta hús má enn skoða í Flórída. Svo dramatískt er dæmið þó ekki með hús arkitektsins Zander rétt ut- an við Köln. Árið 1980 ákvað hann að byggja eigið íbúðarhús sem hann hafði lengi gengið með í höfðinu. Fyrir þann tíma hafði hann í yfir þrjátíu ár teiknað fyrir aðra einbýlis- hús í fúnkisstíl og tekist bara nokkuð vel með það. Þessi fúnkishús hans voru útfærð eftir ströngustu reglum módernism- ans og öll nokkuð lík hvert öðru við fyrstu sýn. En fyrir reglubræður hans í þessari ferköntuðu skúffu arkitektúrsins virkuðu þau þó sem gjörólíkar og vandaðar útfærslur við þetta þema. Hvolfin ólík í laginu En nú var Zander sem sagt orðinn leiður á þessu strögli. Á stórri lóð rétt utan við Kölnarborg hóf hann byggingu tæpra 300 fermetra grunnflatar íbúðarhúss fyrir tuttugu árum. Byggingin hefur svokallað frjálst form: Hún er samsett úr þyrpingu sjö hvolfþaka sem skerast hvert inn í annað. Mikill kjallari er undir öllu húsinu og bogadregnir út- veggir hans eru gerðir úr hvítum múrsteini, vel þykkum. Hvolfin sjö eru mismunandi stór og ólík í laginu. T.d. það sem átti þá að vera svefnherbergi yngsta sonar hans var sem langdreginn sporbaug- ur í þversniði. Og lítur því fremur út eins og rúnnaður turn en hvolfþak. Það er eini tveggja hæða hluti bygg- ingarinnar. Það var flókin geómetría að koma hugmyndinni til skila á pappír og síðan að útfæra hana. Sem dæmi að ganga frá öllum sniðflötunum milli einstakra hvolfa, ekki síst þar sem þrjú þeirra skárust í einu. Og ein- staka útfærslur kröfðust mikilla bollalegginga, t.d. eins og aðalinn- gangurinn. Þar var hugmyndin að láta boga- dregið formið halda sér en samt út- búa opnanlegar dyr. En hver einasta bílhurð er eins útfærð: Hurðin fellur inn í heildarform bílsins þegar hann er lokaður. Hér var sem sagt í mikið ráðist og auðvitað varð kostnaðurinn mikið meiri en byggingaráætlunin gerði ráð fyrir. Framkvæmdir drógust því á lang- inn og standa raunar yfir enn þann dag í dag. Það gerir bygginguna í sjálfu sér ekkert verri en hins vegar má vera að þetta hafi komið niður á samheldninni í fjölskyldunni. Því Zander býr nú einn í þessu mikla húsi ásamt elsta syni sínum. Þar er einnig teiknistofa hans staðsett. Ævintýraheimur Í heild sinni er húsið einn ævin- týraheimur. En það er eins með svona óvenjuleg hús og vín: Þau verða æ betri því eldri sem þau verða. Eða í tilfelli hússins því leng- ur sem búið er í því. Á hinn bóginn hafa þau tilhneigingu til að verða seint fullgerð. En aldrei verða þau leiðinleg eins og hver önnur kassa- laga íbúð sem unnt er að upplifa upp til agna á nokkrum dögum. Í ævintýraheimi Zanders er svo- sem búið að ganga frá flestum prakt- ískum hlutum en húsið hefur þó enn ekki „lífsmark“ sem fagurlega gerð eldri hús einatt hafa eftir að fólk hef- ur samsamast þeim og öfugt, jafnvel við misjafnar aðstæður. T.d. er gert ráð fyrir því að allt húsið hverfi inn í einn samfelldan gróðurhjúp garðs- ins nema þá helst risavaxnir gluggar þess. Það er þó nokkuð í land með þetta enn þá og því blasir víða við plast- hvítur þakdúkurinn sem strekktur er yfir alla bygginguna. Það tekur líka sinn tíma fyrir tvo menn að fylla 300 fermetra hús af lífsmarki. Og hér vantar tilfinnanlega innandyra það sem kallast á ensku „a womans touch“. Enginn vafi leikur á því að í fyll- ingu tímans og eftir nokkra tilfall- andi sköpunarkrampa á þetta hús Zanders eftir að verða mikið draumahús. Hönnunin hefur alla burði til þess og mjög margir mögu- leikar eru enn fyrir hendi að hanna það í ýmsar áttir innandyra. Í flokki svokallaðra ævistarfshúsa ætti það að geta komið vel út. Og skemmtilegt verður að skoða það aftur eftir u.þ.b. önnur tuttugu ár. Hvað snertir arkitektúrstefnuna í draumahúsi Zanders þá virðist hann hafa hitt hér á gullæð! Því einmitt í dag er það allra nýjasta nýja frá Am- eríku svokallaður „Bubble“ arkitekt- úr. Nú gildir hið frjálsa rými Ungir og skapandi tölvuarkitektar frjálsir frá teiknihornum og reglu- stikum hafa sagt línunni og „réttu“ horni stríð á hendur. Og nú er það hið frjálsa rými sem gildir. Meira um það seinna á þessum síðum. Hitt er annað mál að það er ósanngjarnt að ráðleggja nokkrum manni að leggj- ast í svipaðar framkvæmdir. Því enda þótt arkitektúr sé merki- leg listgrein og beri – ólíkt hinum listgreinunum – jafnvel menningu ákveðinna stuttra tímabila augljóst vitni árhundraða á milli dags dag- lega – þá er það fleira en hús sem takast þarf á við á hlutfallslega styttri ævi notanda hússins. Þar sem hús lifa marga mannsaldra liggur þeim hins vegar ekkert á að verða fullkomin. Framúrstefnuarkitektúr Sjö hvolfþök sem sker- ast hvert inn í annað Glergluggar snerta tjörn og gróðurdekkt þakið fyrir ofan. Útsýni af svölum utan við turnherbergið á annarri hæð. Vinnustofa arkitektsins með ofanljósi á norðurhlið. Gluggi í móttökusal þar sem gjarnan eru lesin ljóð. Zander undirbýr gestamóttöku. Zander við aðalinnganginn inn í turnhvolfið. Á stórri lóð rétt utan við borgina Köln í Þýzkalandi hefur arkitektinn Zander byggt hús sem er hreinn ævintýraheimur. Einar Þorsteinn hönnuður fjallar um þetta hús sem hefur svokallað frjálst form.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.