Morgunblaðið - 12.06.2001, Side 38
38 C ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
Hulduhlíð - 4ra herbergja
Nýleg 94 fm Permaform íbúð á 1. hæð í þessu
vinsæla hverfi. Mjög góðar innréttingar, flísar og
dúkur á gólfum. 3 svefnherbergi, stofa, eldhús,
salerni, forstofa og geymsla + köld útigeymsla.
Suðurverönd og -garður, í rólegri götu. Stutt í
skóla og leikskóla. Verð: 12,2 m. Áhv. 7,1 m.
Byggðarholt - raðhús
160 fm raðhús á tveimur hæðum. Uppi eru tvö góð herbergi, gott eldhús, borðstofa
og stofa. Gengið út á verönd í suður úr stofu. Niðri er baðherbergi með kari og
sturtu, góðar geymslur, þvottahús og tvö góð herbergi. Húsið nýtist allt mjög vel.
Verð: 15,2. Áhv. 6,0m. Ekkert greiðslumat.
Leirutangi - einbýli
Glæsilegt 270 fm einbýli, hæð og ris, auk 34 fm
bílskúrs. Húsið stendur á hornlóð í grónu hverfi.
Niðri er forstofa, stór borðstofa, stofa, eldhús,
þvottahús, 2 barnaherbergi og 2 baðherbergi flís-
alögð í hólf og gólf. Uppi stórt sjónvarpsherb, 3
stór herbergi með parketi og baðherbergi með
sturtu. Fallegur garður, afgirt timburverönd, með
heitum potti - hellulögð innkeyrsla með hita. Verð: 23,0 m. Áhv. 8,4m.
Sumarbústaður - Þrastarskógur
Fallegt 57 fm sumarhús í landi Miðengis í Þrastar-
skógi. Tvö svefnherb, snyrting, eldhúskrókur,
stofa, forstofa og geymsla. Svefnloft fyrir fjóra yf-
ir hluta hússins. Rafmagn og kalt vatn. Fullbúinn
húsgögnum. Verð 4,5 m
NÝBYGGINGAR
Súluhöfði - parhús
Vorum að fá tvær 190 fm parhúsa íbúðir á einni hæð. Skemmtileg hönnun, 3 svefn-
herbergi, góður bílskúr. Húsið afhendist fullbúið að utan og fokhelt að innan í sept-
ember nk. Verð kr. 14,8 m.
Súluhöfði - einbýli 193,5 m2 einbýli á einni hæð, þ.a. 42 fm tvöf. bílskúr.
Afhendist í núverandi ástandi, uppsteypt, þakklætt og gluggar steyptir í, óglerjaðir.
Skemmtileg staðsetning fyrir ofan golfvöll, í næsta nágrenni við grunnskóla og leik-
skóla. Til afhendingar strax. Verð 13,5 m.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Álafosskvosin - Vinnustofa/verk-
stæði
235 fm húsnæði í fallegu umhverfi, Hefur verið
mikið endurnýjað, m.a. nýlegar raf- og pípulagnir.
Góð aðkoma og stórar innkeyrsludyr. Tilvalið
sem vinnustofa, smíðaverkstæði eða geymslu-
pláss. Laus strax. Verð. 10,7 m. Áhv. 6,2 m.
Flugumýri - iðnaðarhúsnæði
Afar snyrtilegt og vel frágengið iðnaðar- og skrif-
stofuhúsnæði, samtals 545 fm. 301 fm vinnslu-
salur með 3 stórum innkeyrsludyrum, mikil loft-
hæð. 244 fm sambyggð skrifstofubygging á 2
hæðum. Afh. fullb. að utan, að innan skv. sam-
komulagi - gott útipláss við húsið.
Verð frá 30,0 m.
MOSFELLINGAR
**VANTAR ALLAR EIGNIR Á SKRÁ**
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 9.00 TIL 17.00
Einar Páll Kjærnested lögg. fasteignasali.
Sími 586 8080, símbréf 566 8532.
Netfang: einarp@fastmos.is
http://www.fastmos.is
ÍBÚÐARHÚSNÆÐI
Vallengi - Grafarvogur
Snyrtileg 4ra herbergja Permaform íbúð á 2. hæð. 3 svefnherbergi, sérþvotta-
hús, gott geymsluloft í risi yfir íbúð. Flísar á forstofu, teppi á stofu og gangi, dúk-
ur á herbergjum. Þetta er hagstæð íbúð á hægstæðu verði. Verð kr. 11,5 m.
Mosfellsdalur - einbýli fyrir hestafólk
156 fm einbýlishús m/bílskúr, ásamt 56 fm gróðurhúsi á 1830 fm eignarlóð
m/möguleika á stækkun t.d. fyrir hesthús, í Mosfellsdalnum. 3 svefnh., baðher-
bergi, eldhús, borðstofa og stofa. Lóðin stendur fyrir neðan Gljúfrastein m/gríð-
armiklu útsýni. Stutt í golf, á skíði og reiðleiðir til allra átta. Þetta er eign fyrir úti-
vistarfólk. Verð 18,5 m.
Arnarhöfði - raðhús
Tvö 190 fm raðhús á 2 hæðum, með bílskúr á þessum vinsæla stað. Íbúð á 2
hæðum, 4-5 svefnherbergi, mikil lofthæð. Góður garður í suð-vestur og fallegt
útsýni. Rúmlega fokhelt, að utan klætt m/marmarasalla, grófjöfnuð lóð, að innan
útveggir einangraðir, raflagnir komnar, tilb. undir sandspartl. Afhendist í ágúst
2001. Verð frá 14,5 m.
Stóriteigur - raðhús
261 fm endaraðhús m/bílskúr og heitum
potti. 6 svefnherbergi, 2 baðherbergi, eldhús
m/borðkrók, góð stofa, stórt sjónvarpsher-
bergi í kjallara, ásamt setustofu með bar.
Góður garður m/heitum potti - stutt á leik-
völlinn. Eign sem hentar stórri fjölskyldu.
Verð: 18,8 m. Áhv. 6,8 m. Skipti á minni eign möguleg.
Vantar allar stærðir og gerðir eigna á skrá.
Skoðum og verðmetum samdægurs.
www.hreidrid.is
Þuríður Halldórsdóttir, hdl., lögg. fasteigna- og skipasali. Aðalsteinn Torfason, sölustjóri.
Þórður Kr. Guðmundsson, sölustjóri, Reykjanesi, sími 893 0007.
Símar 551 7270 og 893 3985 - Fasteignavefur www. hreidrid.is
Hverfisgötu 105,
101 Reykjavík
Héraðsdómslögmaður og byggingameistari
tryggja fagleg vinnubrögð
Nýbyggingar á góðum
greiðslukjörum
Í byggingu - Ásholt - Hf
Gauksás Glæsileg raðhús á tveimur
hæðum með innbyggðum bílskúr alls
234. fm. Sérlega vönduð vel hönnuð hús
til afhendingar í sumar. Gott útsýni. Upp-
lýsingar og teikningar á skrifstofu og á
staðnum. Öruggur verktaki, Gosi Tré-
smiðja.
Grafarholt - Einbýli
Glæsil. einbýlishús við
Ólafsgeisla. Hús sem eru 205 fm
og 185 fm. Nútímaleg glæsileg hönnun,
nútímalegur byggingarmáti, útsýni og
sérlega glæsilegar eignir. Upplýsingar og
teikningar á skrifstofu.
Verð 16,8 - 19,4 m. kr.
Vogar - Vatnsleysa
Akurgerði - glæsileg hús -
frábært verð Nýkomin í sölu glæsi-
leg parhús á einni hæð með innbyggðum
bílskúr alls 137 fm Húsin afhendast full-
búin að utan, fullfrágengin lóð og fokheld
að innan með einangruðum veggjum.
Verð: 8,9 m.kr.
Einbýli
Miðtún - Reykjavík Nýkomið í
sölu gott parhús, hæð og ris 137,0 fm.
Hús sem er mikið endurnýjað úti og inni.
Vel innréttað hús á góðum stað.
Smárarimi - Grafarvogur Fall-
egt einbýlishús á tveimur hæðum með
innb. bílskúr alls 207,5 fm. Stúdíóíbúð á
jarðhæð. Vel hannað hús á góðum stað.
Vandaðar innréttingar og gólfefni. Glæsi-
legt útsýni
Kirkjugerði - Vogar Nýkomið í
sölu gott einbýlishús sem er 102,7 fm og
56,5 fm bílskúr, alls 159,2 fm. Húsið
stendur á um 900 fm gróinni lóð. Góðar
innréttingar og vönduð gólfefni. Góð
staðsetning í Vogum steinsnar frá stór
Reykjavíkursvæðinu. Verð: 12,5 m. kr.
Sérhæð
Hlíðarvegur - Kópav. - sérh.
Mjög falleg efri sérhæð 4ra - 5 herbergja
135,2 fm ásamt 27,2 fm bílskúr. Íbúð sem
er afar vönduð með góðum innréttingum.
Stofa og eldhús sérlega rúmgott. Hol,
flísalagt bað og 3-4 herbergi. Stórar
suðursvalir með tröppum niður í garð.
Mjög góð staðsetning.
4ra herb.
Blöndubakki - Rvík Nýkomin í
einkasölu góð 4ra herbergja íbúð 98 fm
Aukaherbergi í kjallara, þvottahús í íbúð
og gestasnyrting. Björt og rúmgóð íbúð.
Góð staðsetning og stutt í alla þjónustu.
Grýtubakki - Rvík - 4ra Ný-
komin í sölu á þessum eftirsótta stað 105
fm mjög góð íbúð í góðu húsi. Stór og
rúmgóð herb., stofa með suðursvölum,
gott eldhús og baðherb. Góð eign á góð-
um stað.
Atvinnuhúsnæði
Reykjavík - Miðbær Gott skrif-
stofu - þjónustu- og atvinnuhúsnæði 125
fm. Í góðu húsi með góðum bílastæðum.
Góð staðsetning rétt við Hlemm. Sala eða
leiga.
Vogar - Vatnsleysuströnd
Steinsteypt 150 fm iðnaðarhúsnæði með
3 m lofthæð + ris. Verð: 4,5 m. kr. Einnig
276 fm atvinnuhúsnæði með millilofti.
Lofthæð 6 m. Verð 9,0 m. kr.
Sumarhús
Grímsnes Á góðum stað í Grímsnesi
gott sumarhús, í sumarhúsakjarna rétt við
Þrastarlund. Rafmagn, rennandi vatn og
heitt á leiðinni. Sérlega góð staðsetning.
TALSVERT hefur borið á því að
kaupendur og seljendur fasteigna
þekki ekki réttarstöðu sína við
eigendaskipti íbúða í fjölbýlishúsi.
Sérstaklega kemur til skoðunar
upplýsingaskylda seljanda og
skoðunarskylda kaupanda gagn-
vart væntanlegum framkvæmdum
utanhúss.
Til að tryggja að upplýsingar
um ástand fasteignar séu réttar er
gert ráð fyrir því að seljandi af-
hendi yfirlýsingu frá sínu eigin
húsfélagi áður en kaupsamningur
er undirritaður. Slík yfirlýsing
hefur að geyma upplýsingar um
stöðu hússjóðs, yfirstandandi
framkvæmdir og fyrirhugaðar
framkvæmdir, viðgerðir eða end-
urbætur.
Meginreglan er sú, að sá kostn-
aður sem verður til fyrir afhend-
ingardag eignar fellur á seljanda.
Verði kostnaðurinn til eftir af-
hendingardag eignar er það kaup-
andans að bera kostnaðinn. Í
þessu samhengi skiptir ekki máli
hvenær gjalddagi kostnaðarins er
heldur hvenær kostnaðurinn verð-
ur til.
Framkvæmdir samþykktar
Vandamál geta risið vegna hlut-
deildar eignarinnar í sameig-
inlegum kostnaði sem ekki er
óyggjandi hægt að heimfæra á
tímabilið fyrir eða eftir eig-
endaskiptin.
Sem dæmi má taka ákvörðun
sem er tekin á húsfundi um að
klæða húsið og útgjöldin eiga að
greiðast síðar. Ef eigendaskipti
verða í millitíðinni rís sú spurning
hvort það sé kaupandi eða seljandi
sem eigi að bera kostnað vegna
klæðningarinnar. Það má líka
hugsa sér að við sölu liggi aðeins
fyrir samþykkt húsfundar en
verkið er óunnið.
Í þessu tilviki blandast í raun
uppgjörssjónarmið og vanefnd-
asjónarmið og ekki eru alltaf
skörp skil þarna á milli.
Verk unnið fyrir
kaupsamningsgerð
Hafi verk verið unnið fyrir
kaupsamningsgerð er það meg-
inregla að seljandi ber kostnað
vegna þess verks. Kaupandinn
hefur þá fest kaup á eigninni í því
ástandi, sem hún var skoðuð og
þess vegna verður að leggja til
grundvallar að við ákvörðun kaup-
verðs hafi verið tekið tillit til þá-
verandi ásigkomulags sameign-
arinnar. Hér er sem sagt miðað
við gerð kaupsamnings en ekki af-
hendingardaginn.
Það á ekki að verða kaupanda
til skaða að hann hafi vitað að
verkið hafi verið unnið nýlega. At-
hugasemd seljanda t.d. um að þak
sé nýtt verður frekar að líta á sem
yfirlýsingu um það að ekki komi
upp vandamál varðandi þakið í
nánustu framtíð en sem aðvörun
um að það komi krafa á hann
vegna þess síðar.
Það skiptir hér ekki máli hvort
seljandi vissi eða hefði mátt vita
að verkið væri ógreitt. Það sem
veldur hins vegar vafa er það
hvort kaupandi vissi eða mátti vita
að verkið væri ógreitt. Þótt hann
viti að verkið sé ógreitt þarf það
ekki að þýða það að hann hafi
samþykkt að bera kostnaðinn.
Kaupandinn getur þó yfirtekið
þessa skuldbindingu með samningi
eða eftir atvikum með þegjandi
samþykki.
Verk unnið eftir kaupsamn-
ings- eða afhendingardag
Hafi verk verið unnið eftir
kaupsamnings- eða afhending-
ardag eru líkur á því að kaupandi
beri kostnaðinn vegna fram-
kvæmdanna. Þetta gildir þótt hús-
fundur hafi samþykkt framkvæmd
og jafnvel gert samning við verk-
taka áður en kaupsamningur er
gerður. Sama gildir ef húsfundur
er haldinn frá gerð kaupsamnings
og þar til afhending fer fram.
Þessi sjónarmið byggja á sömu
sjónarmiðum og fjallað var um áð-
an, þ.e.a.s. að kaupandi kaupir
eignina í því ástandi sem hann
hefur skoðað hana í og þess vegna
eru líkur á því að kaupverðið hafi
verið ákveðið m.t.t. þess. Það má
segja að hér komi verkið kaupand-
anum til góða.
Kaupandinn má alltaf búast við
því eftir að hann kaupir eða yf-
irtekur eign að húsfélagið taki
ákvarðanir um sameiginlegar
framkvæmdir og viðhald sem hann
getur ekki sett sig á móti og þess
vegna eru engin rök fyrir því að
fría hann greiðsluskyldu aðeins
vegna þess að húsfélagssam-
þykktin er gerð fyrir eig-
endaskiptin hvort heldur er fyrir
gerð kaupsamnings eða afhending-
ardaginn.
Ákvörðun um verk eftir
afhendingardag
Sé ákvörðun um sameiginlega
framkvæmd tekin eftir afhending-
ardaginn er það nokkuð öruggt að
kostnaðurinn er seljanda óviðkom-
andi. Jafnvel þótt seljandi hafi
haft veður af því að slík ákvörðun
hafi verið í aðsigi. Það hefur ekki
úrslitaþýðingu þótt hann hafi látið
vera að upplýsa kaupandann um
það. Þó er stutt yfir á grátt svæði.
ER NÝJA ÍBÚÐIN
ÞÍN Í SKULD?
Hús og lög
eftir Elísabetu Sigurðardóttur,
hdl, lögfræðingur Húseigenda-
félagsins/huso@islandia.is
Hafðu öryggi og reynslu í
fyrirrúmi þegar þú kaupir eða
selur fasteign