Morgunblaðið - 14.08.2001, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001 C 9HeimiliFasteignir
2ja herb.
Háagerði. Í einkasölu ósamþykkt ris-
íbúð. Sérinngangur. Ný gólfefni, parket og
flísar á öllum gólfum. Baðherbergi flísalagt,
sturta og baðkar. Mjög falleg íbúð. Áhv. ca
4,0 millj. Ekkert greiðslumat. Verð 6,7 millj.
Æsufell. Falleg 2ja-3ja herb. íbúð á 7.
hæð í lyftublokk með frábæru útsýni. Verð
7,6 millj.
Grundarstígur - Miðbær. Sér-
inngangur. Járnklætt timburhús á baklóð.
Upphaflegar boðfjalir á gólfi. Tengi
f/þvottavél í eldhúsi. Áhv. 3,5 m. V. 6,5 m.
3ja herb.
Næfurás - Rvík. Einstaklega falleg
3ja herb. 93,8 fm íbúð í góðu fjölbýli ásamt
28,5 fm bílskúrsplötu. Baðherb. með fall-
egri innréttingu, flísalagt í hólf og gólf,
sturtuklefi,- halogen lýsing. Eldhús með
hvítri og beyki innréttingu, vönduð tæki.
Rúmgóð stofa og borðstofa, 2 herb. með
skápum. Stórar suðvestursvalir. Gólfefni
eru dökkt eikarparket og flísar. Verðlauna-
garður og mikið útsýni. Áhv. um 4,5 m.
Verð 12,6 m.
Hraunbær. Rúmgóð og vel skipu-
lögð ca 80 fm íbúð á þriðju hæð i fjölbýli.
Fallegur sameiginl. Barnvænn garður. Verð
9,6 millj.
Fornhagi. 76 fm 3ja herb. íbúð á jarð-
hæð (lítið niðurgrafin), með sérinng. í fjór-
býli. Að sögn eigenda er nýlegt þak. Verð
9,5 millj.
Hjallar - Kóp. Snyrtileg 90 fm íbúð á
8. hæð í lyftublokk með góðu útsýni. Flísar
og dúkur á gólfum. Tvennar svalir í suður
og vestur. Verð 9,9 m.
Lautasmári. Falleg 94,1 fm 3ja her-
bergja íbúð á 2. hæð í lyftublokk. Þvotta-
herbergi innan íbúðar. N-v svalir. Áhv. 6,0
millj. Verð 12,7 millj.
Funalind - laus. Glæsileg 82,6 fm
íbúð á jarðh. í litlu fjölb. sérverönd og garð-
ur. Eldhús með fallegri kirsub.innréttingu,
vönduð tæki. Baðherb. flísalagt, falleg
kirsub.rétting. Lyklar á skrifstofu. V. 12,9 m.
Víðimelur - Rvík. Snyrtileg og góð
3ja herb. 80 fm íbúð á 2. hæð. Nýtt eikar-
rústik parket og baðherb. Allt nýtt. Eldhús
með nýrri sérsmíðaðri hvítri og mahóní
innr, ný tæki. Suðursv. Nýlegar raflagnir,
tafla og dren. Áhv. 4,4 m. Verð 11,5 m.
4ra til 7 herb.
Fífulind. Vönduð 4 herb. 128 fm „pent-
house“ íbúð á 2 hæðum á þessum vinsæla
stað í Lindahverfinu. Gegnheilt olíuborið
parket á flestum gólfum. Séð er um þrif á
sameign. Verð 15,5 m.
Gullsmári. Mjög falleg 93 fm íbúð á
2. hæð í snyrtilegu litlu fjölbýli. Þrjú góð
herbergi og stofa með parketi. Stórar suð-
ursvalir flísalagðar. Vönduð eign í alla
staði.Áhv. 5,2 m. V. 13,9 m.
Álftahólar. Falleg og vel skipulögð
106 fm 4ra herb. íbúð á efstu hæð, sjö-
undu, í góðu lyftuhúsi. Lóð ný gegnum
tekin. Hiti í stéttum bakatil. Stutt í alla
þjónustu. Áhv. 3,4 millj. Verð 11,5 millj.
Álfaskeið. Góð 110,8 fm 4ra herb.
íbúð á fjórðu hæð efstu í góðu fjölbýli
ásamt 23,7 fm bílskúr. Verð 12,8 millj.
Hringbraut - Hf. Séreign á 2 hæð-
um 69,1 fm á jarðh. og 36,5 fm á efri hæð-
inni samtals 105,6 fm 3 herb. og stofa.
Vandaðar innréttingar og tæki. Þvottaherb.
í íbúð. Stæði í bílag. Verð 14,6 millj.
KÓPAVOGSBÚAR ATHUGIÐ!
OKKUR VANTAR ALLAR GERÐIR EIGNA Á SKRÁ
– SKOÐUM SAMDÆGURS – EKKERT SKOÐUNARGJALD
Lundarbrekka. Falleg og björt
104,2 fm enda íbúð á 1. hæð í fjölbýli.
Gott útsýni. Áhv. góð lán byggsj. og hús-
bréf 7,5 millj. Verð 11,5 millj,
Skúlagata. Mjög glæsileg 3ja til 4ra
herb. íbúð í hjarta borgarinnar. Vandaðar
innréttingar og gólfefni. Íbúðin er laus í lok
nóvember 2001. Verð 13,9 millj.
Kópavogur - Arnarsmári.
Falleg 4ra herb. endaíbúð á 1. hæð í fallegu
fjölbýli. Með sérverönd og lóð í.
Sérgeymsla í kjallara og sameiginlegt vagna
og hjólageymsla. Verð 13,9 m.
Írabakki. 5-7 herb. íbúð á tveimur
hæðum 167 fm. Flísar og parket á gólfum.
Eign sem þarf að taka í gegn. Möguleiki á
að gera tvær íbúðir. Sérinngangur á neðri
hæðina. Verð: 13,9 m.
Hæðir
Hátröð - Kóp. Góð 93 fm 4ra herb.
neðri sérhæð í tvíbýli. Stór bílskúr 71 fm,
hentar vel fyrir lítinn atvinnurekstur. Stór
blómaskáli. Áhv. 7,1 m. Verð 14,9 m.
Þinghólsbraut. Vorum að fá í einka-
sölu 112 fm neðri sérhæð í tvíbýlishúsi á
góðum stað í vesturbæ Kópavogs. Um 20
fm nýr hellulagður sólpallur með girðingu
fyrir framan húsið. Getur verið laus við
kaupsamning. Verð 12,9 m.
Hraunbraut. Falleg 198 fm efri sér-
hæð í tvíbýli ásamt 26 fm óskráðu garðhúsi
í suðvestur samtals 224 fm og innbyggðum
26 fm bílskúr er inn í fm tölu. Beinn inn-
gangur af götu. Stórkostlegt sjávarútsýni.
Verð 18,9 millj.
Grænahlíð. Mikið endurn. og falleg 90
fm sérhæð á neðstu hæð í nýviðgerðu fjór-
býli. Sérinngangur. Búið er að setja nýjan
skeljasand utan á húsið og einangra það
upp á nýtt. Þak yfirfarið. Verð 13,8 millj.
Grjótasel - tvöfaldur bílskúr.
Sérlega vönduð 202 fm sérhæð á góðum
stað í Seljahverfi. Eign sem býður upp á
marga möguleika. Nánari uppl. á skrifstofu
Smárans.
Rað -og parhús
Hrauntunga. Gott 320 fm hús á
tveimur hæðum í suðurhlíðum Kópavogs.
Innb. bílskúr þar af 30,6 fm. Parket á flest-
um gólfum. Stórar stofur, gott útsýni.
Mögul. að gera litla íbúð á jarðhæð. Gróinn
garður. Verð 28,0 m.
Bollasmári. Gott 200 fm einbýli
ásamt 40 fm bílskúr á þessum vinsæla
stað. Rúmgott eldhús, vönduð jatoba inn-
rétting. Sólstofa. Gegnheilt parket á flest-
um gólfum. Bílskúr flísalagður. Áhv. húsb
7,6 m. Verð 27 m.
• Bráðvantar 2ja herb. íbúðir í Kóp. og Rvík.
• 2-3 herb. íbúð í Kóp. verðhugm. 8-12 m.
• Í vesturbæ Rvík. verðhugm. 9-14 m.
• 3-4 herb. íbúð eða hæð í Háaleiti eða nágr. verðhugm. 7-16 m.
• 4-5 herb. íbúð eða hæð í Linda eða Salahverfi í Kóp. verðhugm. 11-17 m.
• 3-4 herb. íbúð í Garðabæ verðhugm. 9-14 m.
• Einbýli, Rað eða Parhús vantar í Garðabæ verðhugm. 15-25 m.
• Vantar lóðir eða lengra komið í Kóp eða Rvík fyrir byggingarverktaka.
• Bráðvantar eign með bílskúr í Árbæ verð 12 – 16 millj.
• Vantar fyrir eldri hjón á jarðhæð m. sérinng. Verð 10 – 14 millj. Miðbæ. Kóp.
• Vantar á stór Reykjavíkursvæðinu 3-4 herb íbúð með bílskúr. Bráðvantar 2ja
íbúða hús í Suðurhlíðum Kópavogs verðhugmynd allt að 35 millj.
Efstihjalli - laus
Falleg ca 80 fm 3ja herb. íbúð á 2.
hæð efstu í litlu fjölbýli. Suðursval-
ir. Allt parket er nýl. Allar innrétt-
ingar nýlegar. Áhv. 8,5 millj. Verð
10,5 millj.
Selásbraut - Árbæ. Sérlega
vandað 176 fm raðhús á tveimur hæðum
auk 22 fm bílskúrs á frábærum útsýnisstað
í Sel-ásnum. Fallegar innréttingar. Baðher-
bergi flísalögð. Möguleiki að skipta í tvær
íbúðir. Frábær eign á góðu verði. Skipti á
minna í hverfinu mögul. Verð 21,6 m.
Hlíðarbyggð - Gbæ. Í einkasölu
snyrtilegt 139 fm raðhús á 1 hæð á þess-
um vinsæla stað ásamt 67 fm bílskúr sam-
tals 206 fm. 4 herb. og stofa. Húsið er
laust og lyklar á skrifstofu Smárans. Verð
19,3 millj.
Valþór Ólason, sölustjóri.
Kristinn Erlendsson, sölumaður
VANTAR EIGNIR
FYRIR VIÐSKIPTAVINI OKKAR
allt húsið á Hverfisgötunni undir
reksturinn og haft margt fólk í vinnu.
Pétur var einn af stofnendum Nýja
bíós og forstjóri þess í nokkurn tíma.
Árið 1915 flytur fjölskyldan til
Danmerkur, þó mun einn sonurinn,
Pétur, hafa orðið eftir á Íslandi og al-
ist þar upp. Hann varð síðan þekktur
skipstjóri og um hann er bókin „Einn
í ólgusjó“.
Ljósmyndastofuna seldi Pétur
fyrrverandi nemendum sínum. Árið
1918 kemur Pétur aftur til landsins
en þá höfðu hann og Henny slitið
samvistum. Eftir heimkomuna var
Pétur með ljósmyndastofur á nokkr-
um stöðum í bænum en síðast á
Freyjugötu 11. Talið er að eftir heim-
komuna hafi hann aðallega fengist
við að stækka og lita ljósmyndir.
Sagan hermir að Pétur hafi átt í
erfiðleikum með Bakkus enda hafi
hann átt marga vini sem svipað var
ástatt um. Pétur Brynjólfsson lést af
slysförum 1. apríl 1930. Var þar í val-
inn fallinn einn af okkar mestu lista-
mönnum í ljósmyndastéttinni.
Árið 1918 er Ólafur G. Eyjólfsson
orðinn eigandi að Hverfisgötu 18.
Hjá honum og konu hans Jónínu
Magnúsdóttur mun Pétur Pétursson
sjómaður hafa að miklu leyti alist
upp. Ólafur G. Eyjólfsson var bæði
kaupmaður og útgerðarmaður.
Einnig var hann skólastjóri Versl-
unarskólans. Í hans tíð voru tvær
íbúðir í húsinu, á annarri hæð og risi,
en skrifstofur og vörulager niðri.
Í annarri íbúðinni bjó um tíma
Emil Nielsen, fyrsti framkvæmda-
stjóri Eimskipafélags Íslands.
Þegar Goðafoss strandaði 30. nóv-
ember 1916 var um borð bifreið af
Saxon-gerð sem kaupsýslumennirnir
Sigfús Blöndal og Jóhann Ólafsson
áttu og ætluðu að flytja til Akureyr-
ar. Bifreiðinni ásamt mestöllum
varningi sem var um borð tókst að
bjarga. Einum og hálfum áratug eft-
ir þennan atburð er Jóhann Ólafsson
orðinn eigandi að Hverfisgötu 18.
Miklar endurbætur
Árið 1923 er tryggingafélagið
Danske Lloyd eigandi að húsinu þar
til árið 1931 að Jóhann Ólafsson og
Co. kaupa eignina. Eftir það voru
gerðar á húsinu miklar endurbætur
og var þá allt tekið undir skrifstofur
og vörugeymslur.
Jóhann Ólafsson breytti neðri hæð
hússins í sölubúð og líkegt er að hann
hafi þá tekið af svalirnar, gluggann
og glerþakið á ljósmyndastofunni.
Þetta er þó ekki vitað fyrir víst. Þrír
gluggar voru settir þar sem stóri
glugginn á ljósmyndastofunni var.
Einnig mun hann hafa breytt aðal-
inngangi þannig að innskot við hann
var tekið af og útidyr færðar fram.
Fyrir ofan dyrnar var settur margra
faga gluggi en fyrir neðan hann heil
rúða.
Í virðingu sem fór fram 1. nóvem-
ber 1942 kemur fram að á neðri hæð
er sölubúð með mörgum vönduðum
skápum. Allar útveggjaþiljur hæðar-
innar, stoðir, bitar og loftþiljur er
klætt með krossviði sem allt er lakk-
borið. Gólfið er lagt masonittplötum.
Á neðri hæðinni eru ennfremur
tvö vörugeymsluherbergi, klósett og
gangur. Á efri hæðinni eru átta skrif-
stofur, vörugeymsluherbergi, þrír
fastir skápar og tveir gangar. Allt
þiljað, strigalagt, veggfóðrað og mál-
að. Í rishæð eru þrjú herbergi með
sama frágangi og á efri hæðinni, þrír
geymsluklefar, tveir fastir skápar og
gangur.
Í kjallara er miðstöðvarherbergi,
fjögur geymsluherbergi, kolaklefi og
gangur. Einar Sveinsson var arki-
tekt að búðinni.
Bifreiðaskýli og
verkstæði á baklóð
Þegar þessi virðing er gerð er búið
að byggja opið bifreiðaskýli á baklóð
hússins, úr steinsteypu á tvo vegu, en
tvær hliðar eru opnar, þak er úr
bárujárni á langböndum. Sex bílar
gátu verið í bílageymslunni í einu.
Bifreiðaskýlið var byggt fyrir 1937.
Stórt bifvélaverkstæði var einnig á
lóðinni en opna bílageymslan var
notuð í góðu veðri þegar gert var við
bíla. Jóhann Ólafsson og Co. var með
umboð General Motors og flutti inn
bíla og varahluti. Einnig flutti Jó-
hann Ólafsson og Co inn mikið af öðr-
um vörum. Jóhann Ólafsson hefur að
öllum líkindum verið fyrsti Íslend-
ingurinn sem ferðaðist með Síberíu-
hraðlestinni þegar ferð hans lá til
Japans vegna innkaupa á leirtaui.
Í Japan lét hann handmála myndir
frá Íslandi á bollastell og er mynd af
Kötlugosi þeirra þekktust.
Fjölskylda Jóhanns Ólafssonar
bjó ekki í húsinu að undanskildu því
að ekkja hans Margrét Valdimars-
dóttir bjó á efri hæðinni í nokkur ár
en Jóhann Ólafsson lést árið 1963. Þá
tók við rekstrinum sonur hans Jó-
hann J. Ólafsson.
Skrautlistar
og drekastíll
Mikið skraut er á húsinu, auk
skrautlista undir þakskeggi er
drekastílsumbúnaður á kanöppum
hússins. Árið 1996 voru settar litaðar
rúður í margra faga gluggann en fyr-
ir neðan hann kemur heil rúða með
skreytingu.
Reynir Adamsson arkitekt gerði
teikningu af þessari breytingu.
Í skrá frá húsadeild Árbæjarsafns
kemur fram að miklar endurbætur
hafa verið gerðar á húsinu árin 1917,
1931, 1937, 1942 og 1996.
Eftir að Jóhann Ólafsson & Co.
ehf. fluttu starfsemina í nýtt húsnæði
í Sundaborg árið 1974 var húsið leigt
út. Þar var til húsa Innkaupastofnun
Reykjavíkur, Strætisvagnar Reykja-
víkur og lengi vel Miðbæjarradíó,
Ljósmyndastofan Svipmyndir, einn-
ig arkitekta- og verkfræðistofa
ásamt ýmsum öðrum fyrirtækjum.
Þetta glæsilega og vel við haldna
hús var selt fyrir nokkru og vafalítið
hefur húsið komist í hendur þeirra
sem kunna að meta fegurð þess og
sögu.
Á myndinni bera þeir saman bækur sínar, Jóhann J. Ólafsson kaupmaður, sem
var eigandi hússins um árabil og Pétur Pétursson sjómaður, en Hverfisgata 18
varð tvisvar heimili þess síðarnefnda. Mynd þessi er tekin úr bókinni "Einn í
ólgusjó" eftir Svein Sæmundsson.
Mikið skraut er á húsinu og auk
skrautlista undir þakskeggi er dreka-
stílsumbúnaður á kanöppum hússins.