Vísir - 03.07.1979, Qupperneq 1
H
Ó.OUQZ
&
*
4«
a
«Sí
^oí**0
if'SSáði
Lf^.S-fc
BÆKLUHARSÉRFflÆÐIHGAR
ÚR SJÚKRASAMLAGIHU
Kostnaður sjúklinga hækkar stðrlega par sem
Dáltlaka sjúkrasamiagsins tellur niður
Bæklunarsérfræðingar hafa nýlega sagt sig úr Sjúkrasamlagi Reykjavik-
ur og svo virðist sem það færist nokkuð i vöxt að sérfræðingar á sviði
læknisfræði kjósi að starfa utan við sjúkrasamlög. Bæklunarsérfræðing-
arnir eru fyrsti stóri hópur lækna sem dregur sig út úr Sjúkrasamlagi
Reykjavikur en áður hafa allmargir einstakir læknar gert slikt hið sama og
mun ástæðan fyrst og fremst vera óánægja með launakjör.
Fyrir sjúklinga sem þurfa að
leita til þessara sérfræðinga
getur þetta þýtt tugi ef ekki
hundruð þúsunda króna, þvi um
leið og sérfræðingur segir sig úr
sjúkrasamlagi tekur rikið ekki
þátt i kostnaði við meðferð og
sjúklingurinn verður að greiða
allt úr eigin vasa. Sjúklingur
með tilvisun á sérfræðing t.d. i
lyflækningum, geðlækningum
og örorkulækningum greiðir
2000 krónur fyrir viðtalið en ef
sömu læknar standa utan við
sjúkrasamlag greiðast 7630
krónur fyrir viðtalið.
Að sögn Daviðs Oddssonar
forstjóra Sjúkrasamlags
Reykjavikur standa yfir við-
ræður milli Tryggingarstofnun-
ar rikisins og Sjúkrasamlags
Reykjavikur annars vegar og
Læknafélagsins hins vegar
varðandi samninga bæklunar-
sérfræðinga. Davið kvað uppi
ágreining um það á hvaða tima
sérfræðingar gætu hætt hjá
samlaginu, hvort það væri að-
eins þegar samningar væru
lausir .eða allan ársins hring.
,,Ég verð ekki var við neina
almenna óánægju hjá sér-
fræðingum um samninga þeirra
við samlagið”, sagði Davið
Oddsson.
—Gsal
Davið Oddsson
Hækkanlr,
hækkanir..
A fundi Verölagsnefndar i gær
var samþykkt 18% hækkun á
farmgjöldum vegna stykkjaflutn-
ings til landsins að viðbættum 4%
hækkun vegna gengisbreytinga.
Skipafélögin fóru fram á 25%
hækkun eftir áramót en hækkuðu
þá beiöni upp i 40% eftir siðustu
oliuveröshækkun. Rikisstjórnin
mun taka afstöðu til þessarar til-
lögu á fundi sinum i dag sem og
annarra hækkana sem Verðlags-
nefnd fjallaði um.
A fundi sinum samþykkti
nefndin að leggja til við rikis-
stjórnina, að heimiluð verði 8%
hækkun á smjörliki, 20.5% hækk-
un á harðfiski, 7.5% hækkun á
steypu og 25% hækkun á möl og
sandi sem notaður er I steypu.
Einnig var samþykkt að heimila
hækkun á verði aðgöngumiða að
vinveitingahúsum úr 400 krónum
upp I 500 krónur. — JM.
FLUGLEIÐIR
SKRÚFA FYRIR
FARMIÐASÖLU
HJA SUNNU
Flugleiðir hafa tekið fyrir far-
miðasölu til ferðaskrifstofunnar
Sunnu vegna þess að feröaskrif-
stofan hefur ekki staðið við
endurgreiðslur á farseðlunum.
Farmiðasalan var stöðvuð núna i
byrjun vikunnar en þá var liðin
ein vika frá þvi greiðsla átti að
hafa borist, að sögn Stefáns Rafn-
ar i fjármáladeild Flugleiða:
Milli ferðaskrifstofanna og
Flugleiða hefur viðgengist sá
viðskiptamáti að feröaskrif-
stofurnar fá bunka af farmiðum i
umboðssölu sem þær gera siðan
upp reglulega. Við þessar skuld-
bindingar hefur Sunna ekki staðið
og Flugleiðir þvi hætt sölu á far-
miðum til hennar i umboössölu.
Sunna nýtur þvi ekki lengur
þeirra lánakjara sem Flugleiðir
veita öðrum ferðaskrifstofum og
verður að staðgreiða alla far-
seðla.
Guöni Þórðarson forstjóri
Sunnu vildi litið láta eftir sér hafa
þegar rætt var við hann i morgun,
en kvaðst telja eðlilegt að Flug-
leiðir gerðu grein fyrir
viðskiptum sinum við sina ferða-
skrifstofu það er úrval og jafn-
framt viðskiptum við aörar
feröaskrifstofur.
—Gsal
Ivelr rallbátar
við ingðitshðtða
Sjórall Snarfara, félags sport-
bátaeigenda og Dagblaðsins er nú
i fullum gangi, þrátt fyrir tið
óhöpp ibyrjun. Tveir bátanna eru
við Ingólfshöfða á leið til Hafnar i
Hornafirði, en þeir eru „Inga” og
„Signý”. Búist er við að þeir
verði i Höfn um hádegisbilið.
„Lára” lét úr höfn i Vest-
mannaeyjum i gær, en þurfti að
snúa við og verður i dag skipt um
skrúfu bátsins og er vonast til að
hann geti lagt af stað aftur um
kvöldmatarleytið i kvöld.
Aðeins þrir bátar taka þátt I
sjórallinu að þessu sinni. _ss—
SlökkviiiOsmenn að störfum um borO i Jóni Sturlaugssyni. (Visismynd: FinnbogiHermannsson).
Brunl í bát í ísaflarðarhðfn:
Sprenglhæfla um Uma
Um fjögurleytið I gær kom
upp eldur i vélbátnum Jóni
Sturlaugssyni ÁR-7 er hann lá
við bryggju I ísafjarðarhöfn.
Kom eldurinn upp i lúkarnum
þegar menn sem þar voru að
vinnu kveiktu á logsuðutækjum.
Gaus upp mikill eldur og gátu
þeir með naumindum forðað sér
út.
Slökkvilið Isafjarðar brá
mjög skjótt við og hóf slökkvi-
starf. Á timabili var mikil
sprengihætta I skipinu þar sem
mælar höfðu bráðnað ofan af
gastækjunum, eftir þvi sem
slökkviliðsstjórinn á Isafirði,
Jón Ólafur Sigurösson tjáði
fréttamanni Visis. Skemmdir
taldi hann ekki verulegar, en
vatn hafði þó komist i vistar-
verur skipverja og einnig höföu
netadræsur brunnið.
Eigandi skipsins sem smiðað
er i Noregi er Guðni Sturlaugs-
son, útgerðarmaður en skip-
stjóri er Jakob Guðnason. Verið
er að útbúa skipið til úthafs-
veiða og mun óhappið ekki tefja
útgerð skipsins. —FI/FH, Núpi