Vísir - 03.07.1979, Blaðsíða 2

Vísir - 03.07.1979, Blaðsíða 2
Þri&judagur 3. júll 1979 Eiga Norðmenn Jan Mayen? Asgcir Albertsson, vélstjóri: A& þvi er ég best veit eiga þeir eyj- una. Gu&jón Einarsson, ljósmyndari: Þeir Norðmenn sem ég hef talað við i eynni segjast eiga hana. Annars fer allur póstur til eyjar- innar um norska sendiráðið hér i Reykjavik. Steingrimur Gislason, auglýs- ingastjóri: Nei, þeir eiga hana ekki. Ég tel hana alþjóöa eign. Jón Asgeir Jónsson, vélstjóri: Já. beir keyptu hana af manni sem stundaöi selveiðar þar, held ég. Sólrún Fri&riksdóttir, skrifstofu- stúlka: Ég áh't að þeir eigi ekki meiri rétt til hennar en við. Umsjón: Katrln Pálsdóttir ög Halldór Reynisson Fyrir þá sem vilja sleikja sólskiniö og fá svolitla brúnku á kroppinn ver&a sundfötin hentugri eftir þvi sem þau eru efnisminni. Svo eru þau lika ódýrari... Vlsismynd GVA. Sundfalatískan: Þær djðrfu í minl - Dær felmnu í bolum - en kaiiarnir alltaf samir víð sig Sundlaugarmynd á sólrikum degi: Segja má aO tiskan hafði ná& alla leið niOur i heitu pottana þar sem sundföt, sem annað, er nú orðiö tisku- fyrirbrigði. „Eftir að Islendingar fóru að fara til sólarlanda eru sundföt orðin tiskuvara hér á landi ekki siður en annars staðar,” sagði Matthildur Guðmundsdóttir fyrr- verandi sunddrottning og núver- andi formaður sýningarsamtak- anna Módel ’79 þegar Visir spjall- aði við hana um sundfatnað. Matthiidur sagöi að nú væru það sundbolirnir sem værumest I tisku og þáhelst i nokkuö dökkum litum. Hélt hún að það kynni að veravegna siðvendni Islendinga, svo og vegna loftslagsins en er- lendis væru konur jafnvel litnar hornauga ef þær væru ekki topp- lausar og i einhvers konar mini-lendaskýlum. Um karlana hafði Matthildur það að segja að þeir væru alltaf samir við sig og siður væri hægt að tala um aö baðfatatisku hjá þeim. Nú væru flestir i litlum keppnisskýlum og kæmi það ef- laust li'tið til með að breytast á næs tunni. Matthildur var spurð hvort mismunandi sundföt hefði eitt- hvað að segja þegar út i keppni værikomið ogsagði hún það vera. Keppniskonur væru helst á alveg sléttum og saumlitlum bolum og væri mótstaðan I vatninu mun minni enþegarum tviskipt bikini baðföt væru að ræða. Aðauki væri svo þægilegra að synda i bol. Visir hafði einnig samband við nokkrar verslanir sem selja sundföt og þá kom ýmislegt upp á teningnum. 1 einni verslun var sagt að kvenfólk keypti mest pinubaðföt — það vildi fá sem mesta brúnku á likaman og þvi betra sem minna væri hulið sjón um marina. í annarri var sagt að bolir væru jú mest seldir, en nú yrðu það liklega glansbolir úr satini sem kæmust i tisku á næst- unni. Sundskýlur á karlmenn voru ódýrastar og kostuðu flestar i kringum 2000 kr. Bikinisundföt kostuðu 4-8000 kr. og voru þvi ódýrarisem þau voru minnst Sund bolirá konur kostuðu allt frá 2100 kr. og upp i 10.000 kr. en algeng- asta verð var 6-7000 kr. Hins veg- ar fengust engir sundbolir á karl- menn sem þó tiökaðist mjög hér áður fyrr, en i einni sportvöru verslun var sagt að ef menn óskuðu þá gætu þeir fengið slikt saumað á sig... — hr.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.