Vísir - 03.07.1979, Blaðsíða 3
3
vism Þriðjudagur 3. júli
1979
SlávarutvegsráOuneytiD hvetur til kolmunnavelða:
BREHIIR 45 MILLJÚNIR
KRÖN4 I VERBUPPBðT
Sjávarútvegsráðunextið hefur til umráða allt
að 45 milljónum króna til að greiða i uppbót á kol-
munnaverð i sumar. Sjávarútvegsráðherra hefur
lýst þvi yfir að um 3 krónur verði greiddar á hvert
kiló af kolmunna upp að 15 þúsund lesta heildar-
afla umfram lágmarksverð.
„Þetta er gert i þeim tilgangi
að hvetja menn til þess að
stunda þessar veiðar”, sagði
Jón B. Jónasson deildarstjóri i
sjávarútvegsráðuneytinu i sam-
tali við Visi.
Yfirnefnd Verðlagsráðs
ákvað nýlega nýtt verð á kol-
munna til bræðslu, 9 krónur á
hvert kfló. Verðið gildir til 31.
júli og miðast við 3% fituinni-
hald og 19% fitufrltt þurrefni.
Jón sagði að nú þegar væru
komin tvö skip á miðin út af
Austfjörðum en ekki væri vitað
um árangur. Rannsóknarskipið
Arni Friðriksson er einnig kom-
ið á miðin og verður þar við kol-
munnaleit.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
tekið Óla Óskars RE á leigu til
tilraunaveiða á kolmunna i júli
eins og Visir hefur skýrt frá og
sagði Jón að verið væri að koma
skipinu af stað þessa.dagana.
Jón sagði að um 8 til ÍO fslensk
loðnuskip gætu auðveldlega
stundað kolmunnaveiðar en
ekki væri vitað hve mörg þeirra
fara á þær veiðar I sumar.
Yfirnefnd Verölagsráðs
ákvað ennfremur nýtt lág-
marksverð á sandslli til
bræðslu, 14 krónur hvert kiló.
Tvö skip hafa leyfi til sandsilda-
veiða við suður- og suðaustur-
strönd landsins.
„Það hefur gengið mjög illa
hjá þessum skipum”, sagði Jón.
„Þau fengu veiðileyfi til að
kanna þetta svæði, og annað
skipið veiddi sæmilega fyrr i
sumar”. —KS
„Nýgamli” Jiipiter sjósettur i fyrradag eftir viögerft i Slippnum I Reykjavik. (Visismynd: EJ.)
Júpiter tilbúinn á
loðnuvelðarnar
Ætla í mál
við Sunnu
Hópur aldraðra Keflvíkinga
sem dvaldi fyrir nokkrum vikum
á Mallorca á vegum ferðaskrif-
stofunnar Sunnu hyggst höfða
skaðabótamál á hendur ferða-
skrifstofunni vegna meintra
svika. Hópurinn gaf Guðna
Þórðarsyni forstjóra ferðaskrif-
stofunnar frest til að greiða
hverjum og einum ferðalangi eitt
hundraðþúsund krónur fyrir 2.
júll og þar eð engin svör né fé
hafði borist fyrir þann tlma mun
hópurinn leita réttar sins fyrir
dómstólunum.
1 Suðurnesjatíðindum segir af
þessu máli m.a. á þennan hátt:
„Það verður ekki sagt að sönnu
að aldraðir Suðurnesjamenn hafi
einungis tekið það út með sól og
sæld aö ferðast til Mallorca á dög-
unum á vegum ferðaskrifstofunn-
ar Sunnu. Nei, þeir urðu að liða
hin ótrúlegustu svik og upplifa
verstu lygar meö tilheyrandi læ-
vlsi að hálfu þessa fyrirtækis”.
Ferðalangarnir telja sig hafa
veriö svikna um rétt hótel, ferðin
hafi verið stytt um tvo daga án
skýringa og ellefu þúsund króna
hækkun á ferðakostnaði hafi verið
tilkynnt tveimur dögum fyrir
brottför.
Guðni Þórðarson forstjóri
Sunnu sagði I samtali við VIsi I
morgun að Sunna hefði skrifaö
þessum farþegum og boðið þeim
endurgreiöslur og annað sem
tlðkaðist I hliðstæðum málum.
Fararstjórarnir hafa blásiö þetta
mál upp vegna þess að þeir fengu
frifarseðla bæði fyrir sig, börnin
sin og f jölskyldur — en vildu fá
meira”, sagði Guðni. —Gsal
„Við vonumst til að geta hafið
veiðar eftir mánuð”, sagði Hrólf-
úr Gunnarsson skipstjóri, þegar
Visir spurðist fyrir um hið „ný-
gamla” loðnuskip hans, Júpiter,
sem var sjósett I fyrradag.
„Þetta er endurbygging á
gamla siðutogaranum Júplter, og
má segja aö allt sé nýtt I skipinu
nema skrokkurinn”, sagði Hrólf-
ur ennfremur.
Endurbygging skipsins fer
fram f Stálvik h.f. og kostar lið-
lega einn milljarð króna, sem er
u.þ.b. helmingur þess verðs sem
þyrfti að borga fyrir nýtt skip af
sambærilegri gerð.
Skipið ber ca. 1300 tonn af toðnu
og er einnig útbúið fyrir kol-
munnaveiðar.
Eigandi skipsins er Hrólfur
Gunnarsson og verður hann jafn-
framt skipstjóri.
P.M.
Friðrik Ólafsson
Frlðrik
varð annar
Friðrik Ólafsson hafnaði i öðru
sæti á skákmótinu I Manila sem
lauk um helgina. Friðrik hlaut 9
vinninga en Torre frá Filippseyj-
um vann mótið með 10 vinning-
um.
Bretinn Keene og Rússarnir
Averbach og Dorfman komu næst
á eftir Friðrik með átta vinninga
en þátttakendur á mótinu voru 14.
—SG
utivist varnallðsmanna
ekkl lengur takmörkuð
Gert að
frumkvæði
ráðherra
„Varnarliðiö hefur oft beðið um
að útivistarleyfi hermanna yrði
ótakmarkáöogslöast var rættum
þetta fyrr á árinu, þegar leyfið
var aöeins vikkað, en það kom
ekki beiðni um þetta frá hernum
nú. Þetta er þvl að frumkvæði
utanrikisráöherra og -ráðuneyt-
is,”, sagði Helgi Agústsson hjá
vamarmáladeild i' samtali við
Vísi i morgun.
Hermenn fra Keflavlkurflug-
velli eru þvi frjálsir ferða sinna
um landiðhéöan I frá en fyrst um
sinn eru reglur þessar settar til
fjögurra mánaða til reynslu, frá
21. júni til 21. október.
Helgi Agústsson sagðist ekki
hafa fengið enn um það skýrslur
hvernig útivistarleyfið reyndist
en lögreglumenn hersins fylgdust
með hermönnunum ásamt is-
lensku lögreglunni. Hann kvaðst
eiga von á þvi að yrði um ein-
hverjar útistöður að ræöa, væri
þaðaðallegatilað byrjameð, þar
til reynsla væri á komin.
-IJ
islendingasveitin, sem nú spreytir sig á Evrópumeistaramótinu I
Bridge. (Vísismynd: ÞG)
Evrðpumðtlð I brldge l Svlss:
ísland 19. sætl
efllr 3. umferö
Fyllsta öryggls gætt á Costa del soi:
Sprengjuvargarn-
irhandteknir
Lifnar yfir
ferðastraum
tll Hafnar
,, Ferða straumurinn
fór hægt af stað en það
er að lifna yfir þessu
núna”, sagði Karl
Rafnsson hótelstjóri á
sumarhótelinu i
Nesjaskóla Höfn i
Hornafirði i samtali
við Visi.
Sumarhótelið var opnað 20.
júnls.l.enþetta ersjöttá sum-
arið sem það er starfrækt. 1
hótelinu er rúm fyrir um 70
manns I herbergi en auk þess
geta þeir tekið við 150 manns I
svefnpokapláss.
Rafn sagði að þarna væri
einnig ágæt aðstaða fyrir ráð-
stefnur og fundarhöld. Hótelið
er rekiö af þeim sveitarfélög-
um sem standa að skólanum
og verður það opið til ágúst-
loka.
—KS
Ungverjar unnu íslendinga 12-8
I þriðju umferö Evrópumótsins I
bridge sem nú fer fram I Sviss. 1
fyrstu umferð vann Islenska
sveitin þá portúgölsku með 20
minus þrjú, en tapaöi 15-5 fyrir
lsrael í annarri umferð. Frakkar
eruefetir með 58 stig en islenska
sveitin er með 33 stig og er I ni-
unda sæti.
Aö öðru leyti er röð efstu lið-
anna þannig að Italla er meö 48
stig, Holland 46, Pólland 38,
Noregur ér I fimmta sæti með 37,
Austurriki35, Tyrkland 35, Israel
34, Island 33 og lrar eru i 10. sæti
með 33 stig.
Meðal úrslita I þriðju umferð-.
inni I gær má nefna að Pólland
vann Noreg 14-6, Italla vann
Irland 18-2, Bretar unnu Dani 12-8
og Israel vann Sviþjóð 16-4. Þátt-
tökusveitir eru 21. -SG
Allt er nú með kyrr-
um kjörum i Torre-
molinos á Costa del Sol
á Spáni. Þar hefur
ekkert t jón orðið hvorki
á mönnum né mann-
virkjum né slys af
völdum sprenginga, að
sögn tveggja farar-
stjóra ferðaskrifstof-
unnar Útsýnar, sem
þar dveljast.
Forráðamenn ferðaskrifstof-
unnar hér heima höfðu tal af
fararstjórunum I gær vegna
frétta, sem hér hafa birst um
flótta ferðamanna frá Spáni
vegna sprengjutilræöa og kom
þá fram að yfirvöld á Spáni
telja, að búið sé nú að afstýra
frekari sprengjutilræðum.
1 frétt, sem Útsýn sendi frá
séri'gærkveldi segir meðal ann-
ars:
„Þeirsem stóðu að misheppn-
uöum sprenguutilræðum I Mar-
bella og Malaga standa ekki i
sambandi við Baska — heldur er
um smáglæpamenn aö ræða,
sem nú hafa fundist og eru
geymdir bak við lás og slá. Hins
vegar hefur öryggiseftirlit verið
stóraukið, bæöi á flugvöllum og
vegum til þess að koma I veg
fyrir uppþot af þessu tagi. Meö
aðgerðum þessum má telja full-
væist aö búið sé að afstýra frek-
ari sprengingum.”
„Ferðamannastraumurinn til
Costa del Sol er i fullum gangi.
Einkum er mikil eftirspurn eftir
ibúðum og hefur Útsýn til ráð-
stöfunar íbúðirnar E1 Remo,
Tamarindos, Santa Clara, tris
og La Nogalera. Um flótta
ferðafólks frá Torremolinos er
alls ekki að ræða að sögn starfs-
fólks Útsýnar þar. Farþegar
una hag si'num hið besta I glaða
sólskini og 30 stiga hita og hafa
ekki orðið neinna óspekta varir
né orðið fyrir neinum óþægind-
um af þeim sökum,” segir i frétt
Útsýnar.